Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Side 12
72 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1.JÚLÍ 2003 Útlönd Heimurinn í hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson og Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is / erlingur@dv.is Sími: 550 5829 Blix hættur vopnaleitinni SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR: Hans Blix lét formlega af störfum sem yfirmaður vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í (rak í gær, nýorðinn 75 ára. „Það er hálfdapurlegt að fara frá New York af því að ég kann vel við New York. Ég átti hér þrjú spennandi ár við erfiða en oft á tíðum gefandi vinnu," sagði Blix við fréttamenn í gær, siðasta daginn í vinnunni áður en hann sest í helgan stein heima í Svíþjóð. Blix gætti þess vel að hlakka ekki yfir óförum Bandaríkja- manna við gjöreyðingarvopna- leitina í írak að afloknu stríði. „Við útilokum ekki að þeir finni eitthvað en líkurnar á því minnka eftir því sem lengri tími líður," sagði Blix. Tólf ára myrt DANMÖRK: Lögregla í Dan- mörku leitar nú ákaft að morð- ingja tólf ára stúlku sem hvarf á föstudagskvöld. Lík hennar fannst í gærkvöld, grafið í jörðu við knattspyrnuvöll í bænum Ringsted þar sem síð- ast sást til hennar. Það voru sérþjálfaðir sporhundar sem fundu lík stúlkunnar. Krufning mun leiða dánarorsök í Ijós. Stöðugar skæru- árásir í írak Rumsfeld líkir ástandinu við Víetnam Bandarísk eftirlitssveit f nágrenni Bagdad: Bandaríkamenn leggja nú alla áherslu á að koma á lögum og reglu í Irak og hafa hert allt eftirlit í viðleitni sinni til þess að stöðva stöðugur skaeruárásir og uppræta andstöðuhópa. Að minnsta kosti fimm óbreytt- ir borgarar létu lífið og aðrir fimmtán slösuðust þegar öflug sprenging varð í mosku í bæn- um Fallujah, rétt vestur af höf- uðborginni Bagdad í gærmorg- un. Að sögn íbúa í þessum órólega bæ, þar sem andstaða gegn banda- ríska innrásarliðinu hefur verið mikil á undanförnum vikum, var flugskeyti eða sprengju varpað á moskuna en því mótmæla tals- menn bandaríska hersins á svæð- inu og segja að sprengju hafi verið komið fyrir inni í moskunni. Að sögn sjónarvotta varð spreng- ingin í hliðarbyggingu moskunnar klukkan ellefu að staðartíma í gærmorgun og var hún svo öflug að veggir og þak hrundu yfír þá sem þar voru staddir. Einn sjónarvotta sagði að málm- hlutar sem fundust í rústunum sönnuðu að flugskeyti hefði verið skotið á bygginguna og hefði því verið skotið úr bandarískri flugvél. Aukin spenna Atvikið í gær á örugglega eftir að auka á spennuna í bænum en á sunnudag særðist bandarískur fréttamaður þegar sprengjuárás var gerð á eftirlitsstöð bandaríska hers- ins í bænum. Stuttu síðar létust þrír óbreyttir borgarar þegar pallbfll, sem þeir voru í, lenti í hörðum árekstri við bandarískan herbfl sem flutti fréttamanninn slasaða af vett- vangi. Sprenging í vopnageymslu Á laugardaginn létu að minnsta kosti þrjátíu íraskir borgarar lífið þegar öfiug sprenging varð í vopna- geymslu fraska hersins í nágrenni bæjarins Haditha, um 260 kfló- metra norðvestur af Bagdad. Margir hinna látnu eru sagðir hafa verið að stela vopnum úr geymslunni þegar sprengingin varð en að sögn sjónarvotta var fjöldi manns í byggingunni og margir illa slasaðir. Að sögn talsmanna bandaríska hersins var ekki vitað um fjölda látinna eða slasaðra í gær og þar sem vopnageymslan væri írösk væri það ekki á ábyrgð bandaríska hersins að hlúa að hinum slösuðu. Bandarískir hermenn verða nær daglega fyrir árásum í írak, aðallega á svæðum súnníta- múslíma í miðhluta landsins og hafa að minnsta kosti 22 þeirra fallið í átökum síðan Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti 1. maísl. að meiri háttar átökum í írak væri lokið. Ekki er enn vitað hvað olii sprengingunni, sem var mjög öflug, en að sögn sjónarvotta hrundi þak geymslunnar yfir þá sem voru þar innandyra. Að sögn lækna, sem tóku á móti þeim slösuðu, voru margir illa brenndir og slasaðir, þar á meðal Akid Mohsen Halas sem sagði að allt að hundrað manns hefðu verið inni í geymslunni og utan hennar þegar sprengingin varð. „Fólk kom á hverjum morgni til þess að verða sér úti um sprengjur og önnur hergögn til þess að selja. Við erum öll mjög fátæk og eigum engan mat. Þess vegna söfnuðum við brotamálmi og þar á meðal hergögnum úr geymslunni til þess að selja fyrir mat,“ sagði Halas. Daglegar árásir Bandarfskar hersveitir verða nær daglega fyrir skæruárásum í írak, aðallega á svæðum súnníta-mús- líma í miðhluta landsins og í ná- grenni Bagdad og hafa að minnsta kosti 22 bandarískir hermenn og sex breskir fallið í átökum síðan Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti 1. maí sl. að meiri háttar átökum í írak væri lokið. í morgun var gerð sprengjuárás á bandarískan herbfl í miðborg Bag- dad f nágrenni al-Mustansiriyah- háskóla og leikur grunur á að handsprengju hafi verið kastað að bflnum sem var í ljósum logum á eftir. Að sögn sjónarvotta, sem sátu á nálægu kaffihúsi, var að minnsta kosti fjórum illa særðum banda- rískum hermönnum bjargað út úr brennandi flakinu. Víetnam-aðferðin Að sögn fréttamanns Reuters- fréttastofunnar, sem kom á vett- vang skömmu seinna, voru tveir bflar alelda á götunni, annar ír- askur og hinn bandarískur, og sagði annar sjónarvottur að sprengja hefði sprungið í íraska bflnum. Fyrr í morgun særðist banda- rískur hermaður þegar hand- sprengjuárás var gerð á bandaríska eftirlitssveit í nágrenni Bagdad- flugvallar en þar hafa bandarískar eftirlitssveitir orðið fyrir síendur- teknum árásum. Donald Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, kenndi í gær dyggum stuðningsmönnum Saddams Husseins, fyrrum fraks- forseta, um skæruárásirnar og líkti þeim við það sem gerðist í Víetnam. Hann sagði að það tæki einhvem tíma að stöðva andstöðuhópana. f gær handtóku bandarískir her- menn, að beiðni írasks dómara, Abu Adbul Munim, héraðsstjóra í Najaf, en hann er sakaður um mannrán og spillingu. Handtakan er liður í viðleitni bráðabirgastjórnarinnar til þess að koma á lögum og reglu í frak og verður Munim dæmdur af íröskum dómstóli. Vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs á brauðfótum: Féll í árás á varðstöð hersins Ofbeldi og eiturlyf í hjónabandi JFKJr. Þegar John F. Kennedy yngri og eiginkona hans, Caroline Bessette, létu lífið í flugslysi á árinu 1999 voru ofbeldi og eiturlyfjaneysla orðin svo snar þáttur hjónabands þeirra að þau sváfu hvort í sínu herberginu. Þessu er haldið fram í nýrri bók um Kennedy-fjölskylduna eftir Edward Klein. Brot úr bók- inni birtust í tímaritinu Vanity Fair sem kom út f gær. Klein segir meðal annars frá þvf í bók sinni að tveimur dög- um fyrir flugslysið hafi Kenne- dy, einkasonur Johns F. Kenne- dys, fyrrum Bandaríkjaforseta, sagt vini sínum að hjónaband hans og Caroline væri í molum. Hann vildi eignast börn en hún þvertók fyrir það. Bókarhöfundurinn hefur eftir vinum Caroline í tískuheimin- um að hún hafi verið á bólakafi í kókafnneyslu og að Kennedy hafi komið að henni við neyslu þess með vinum sínum í íbúð hjónanna í New York. Gamall kærasti Caroline segir frá ofbeldishneigð hennar og mun eiginmaðurinn líka hafa fengið að kynnast þeirri hlið. Palestínskur vígamaður réðst í morgun að varðstöð ísraelska hersins á Vesturbakkanum og var skotinn til bana. Árásin í morgun var önnur í röðinni eft- ir að herská samtök Palestínu- manna lýstu yfir vopnahléi í baráttunni við ísrael eftir mik- inn þrýsting erlendis frá. Vopnahlésbrotið í morgun varð á sama tíma og þeir Mahmoud Abbas, forsætisráðherra palest- ínsku heimastjórnarinnar og Ariel Sharon, ísraelskur starfsbróðir hans, bjuggu sig undir fund þar sem fara á yfir næstu skref í að hrinda svokölluðum Vegvísi að friði í framkvæmd. ísraelar kölluðu herlið sitt burt Á FERÐALAGI: Palestínumenn gátu farið nokkurn veginn frjálsir ferða sinna á Gaza í gær, í fyrsta sinn í tvö og hálft ár, eftir að ísraelski herinn var fluttur þaðan. Ekki er annað að sjá en að mennirnir í þessum bíl séu ánægðir með nýfengið ferðafrelsi. frá mestöllu Gaza-svæðinu á sunnudag og mánudag þannig að PalesU'numenn gátu farið þar um frjálsir ferða sinna 1' fyrsta sinn í hálft þriðja ár. Föngum sleppt Sharon sagði á fundi þingflokks Likud-bandalagsins í gær að frekari þróun í friðarátt ylti á því hvort palestínsku heimastjórninni tækist að stöðva öll ofbeldisverk. Hann sagði einnig að ákveðnum fjölda palestínskra fanga yrði sleppt. Fréttaskýrendur áttu von á því að á fundinum með Sharon myndi Abbas að öllum lfldndum benda á vopnahléið sem ræka sönnun þess að umbótastjórn hans sé að takast að koma böndum á ofbeldismenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.