Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Qupperneq 16
16 TILVERA ÞRIÐJUDAGUR 1.JÚLÍ2003
Tilvera
Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5813-550 5810
Lucy Liu skýtur skelk í bringu
HOLLYWCXDD: Kvikmyndaleik-
konan Lucy Liu erfarin að
finna fyrir því á eigin skinni að
leika alltaf kynferðislega
drottnunargjarnar konur á
hvíta tjaldinu. „Ég sem hélt að
ég hefði einhvern sjens í
Hollywood," segir hin 35 ára
gamla Lucy. Nú þykist hún
þess fullviss að hún muni
aldrei eignast mann. Lucy telur
að vegna hlutverkavalsins
skjóti hún karlpeningnum svo
mikinn skelk í bringu að fáir
þori að fara á fjörur við hana.
Um þessar mundir skemmtir
Lucy heimsbyggðinni í fram-
haldsmyndinni um Englana
hans Kalla. „Ég var alveg veik í
að leika í Englunum hans Kalla
af því að ég var asísk að upp-
runa. Mig langaði til að leika
allt frá blautu barnsbeini. En
mér fannst það um leið vera
draumur sem aldrei myndi
rætast af því að ég sá enga
Asíubúa í sjónvarpinu þegar ég
var að alast upp. Leiklistin var
fyrir Barbí-dúkkur en ekki fyrir
manneskju sem leit út eins og
ég," segir Lucy við norska blað-
ið VG. Allar vinsælustu stúlk-
urnar voru Ijóskur en Lucy var
LUCYLIU: Kín-
versk ættaða
leikkonan hafði
lengi dreymt
um að leika í
englunum
hans Kalla.
stuttklippt, með hrafnsvart hár,
og formlaus að auki, að því er
hún sjálf segir frá. En svo komu
sjónvarpsþættirnir um Ally
McBeal og boltinn fór að rúlla.
KVIKMYNDIR HELGIN 27. - 29. JÚNl'
Sætl Fyrir viku Titill Innkoma, helgin Innkoma alls Fjöldi blósala
1. - CHARLIE ANGELS FULL 37.634 37.634 3459
2. 1 THE HULK 18.847 100.539 3674
3. 2 FINDING NEMO 13.968 253.991 3333
4. - 28 DAYS LATER 10.061 10.061 1260
5. 3 2 FAST 2 FURIOUS 6.225 113.996 2817
6. 4 BRUCE ALMIGHTY 5.462 76.758 2021
7. 5 THEITAUAN JOB 6.111 6.111 2310
8. 6 RUGRATS GO WILD 3.639 30.979 3008
9. 8 HOLLYWOOD HOMICIDE 3.061 27.315 2425
10. 7 ALEX AND EMMA 2.622 11.539 2310
11. 10 THE MATRIX RELOADED 2.575 268.979 1488
12. 13 DADDY DAY CARE 2.302 97.823 1540
13. 9 DUMB AND DUMBERER 1.665 24.158 2102
14. 15 WHALE RIDER 977 2.303 163
15. 12 X-2X-MEN UNITED 932 1.048 150
16. - MAIM PREM Kl DIWANI HOON 672 672 60
17 11 FROM JUSTIN TO KELLY 370 3.519 1969
18. 14 BENDIT LIKE BECKHAM 566 23.878 301
19. 12 HOLES 419 64.886 99
20. 17 WINGED MIGRATION 348 4.074 79
Atlar upphæðir i þúsundum Bandarikjadollara
Engin met hjá englunum
Það voru engin met sett um helg-
ina í Bandaríkjunum í aðsókn í
kvikmyndahús. Sú kvikmynd sem
„átti“ að fá metaðsókn, Charlie
Angels: Full Throttle, fékk aðeins
rúmlega helming þeirrar aðsóknar
sem aðstandendur hennar höfðu
vonast eftir og er útlitið ekki gott
hjá þessari rándýru kvikmynd sem
var mikið auglýst á síðustu vikum.
Það er ekki þar með sagt að að-
sóknin hafi verið slæm því hún skil-
aði 38 milljónum dollara í kassann.
Það segir þó lítið upp í reikningana
þar sem meðal annars er reikning-
ur frá Cameron Diaz upp á 20 millj-
ónir dollara sem eru laun hennar.
Danny Boyle og aðrir aðstand-
endur 28 Days Later geta aftur á
móti brosað breitt þar sem hin
hræódýra 28 Days Later {var sýnd á
ENGILL Cameron Diaz leikur einn af
englum Charlies í Charlie's Angels: Full
Throttle.
kvikmyndahátíð Regnbogans í vor)
fær meiri aðsókn en nokkur þorði
að vona. Myndin sjálf kostaði 8
milljónir dollara en þar sem nokkur
áhugi virtist á henni vestan hafs
vart 6 milljónum dollara eytt f
markaðssetningu og virðist það
ætla að borga sig og gott betur.
MYNDBÖND VIKAN 23. - 29. JÚNÍ
Sæti Fyrir Titill Vikurá lista
1. 2 ABOUT SCHMIDT 2
2. - TRAPPED 1
3. - ISPY 1
4. 1 8MILE 2
5. 6 BLOOD WORK 2
6. 3 TRANSPORTER 3
7. 8 EQUILIBRIUM 2
8. 4 SWEET HOME ALABAMA 7
9. 9 FEMME FATALE 4
10. 11 STEALING HARVARD 3
11. 5 RED DRAGON 6
12. 7 THETUXEDO 5
13. - ABANDON 1
14. 10 BALLISTIC 5
15. 15 THE GOOD GIRL 5
16. 13 CRUSH 3
17. 14 SUPER TROOPERS 4
18. - OLD MEN IN NEW CARS 1
19. - SPEAKING OF SEX 1
20. - JUWANNA MAN 8
Nicholson ígóðuformi
Það sem helst einkennir mynd-
bandalistann þessar vikurnar er hve
margar myndir, sem ekki voru sýnd-
ar í kvikmyndahúsi, komast inn á
hann. Þessa vikuna eru það hvorki
meira né minna en sjö kvikmyndir
sem ekki fengu náð fyrir augum
kvikmyndahúsaeigenda sem eru á
listanum. Þetta eru Equilibrium,
Femme Fatale, Stealing Harvard,
Abandon, Super Troopers, Old Men
in New Cars og Speaking of Sex
í efsta sætinu trónir gæðamyndin
About Schmidt. Myndin er byggð á
samnefndri skáldsögu Louis Beg-
leys um Warren Schmidt, ósköp
hversdagslegan mann sem lendir á
skömmum tíma í ótrúlegu mótlæti.
Til að byrja með er hann að ljúka
starfsævinni sem tryggingafræðing-
ur og veit ekki hvað hann á af sér að
gera. Augasteinninn hans, einka-
ABOÚT SCHMIDT: Jack Nicholson sýnir
stórleik í hlutverki meðalmannsins War-
rens Schmidts.
dóttirin Jeannie, er um það bil að
giftast Randall, náunga sem
Schmidt hefur óbeit á. Þar með er
ekki öll sagan sögð því að kona hans
fellur skyndilega frá eftir 42 ára
hjónaband. Orðinn einstæðingur,
án eiginkonu, fjölskyldu og starfs,
heldur Schmidt í örvæntingarfulla
leit að fyllingu í sitt sviplausa líf.
Ameríska kvikmyndastofnunin:
„Mesta leikkona
Katharine Hepburn lék í sinni
fyrstu kvikmynd árið 1933. 60
árum síðar var hún búin að
leika í 43 kvikmyndum, auk
þess að leika nokkur hlutverk
á sviði og í sjónvarpi.
Óskarsverðlaun hlaut hún
fjórum sinnum, eða oftar en
nokkur annar leikari á sínum
ferli.
Katharine Hepburn fæddist í
Connecticut 1907. Foreldrar hennar
voru auðugir og hún og systkini
hennar fimm höfðu einkakennara
og hlutu aðra menntun í einkaskól-
um. Fyrsta starf hennar var hjá
hlutabréfafyrirtæki í Baltimore.
Fyrsta hluverk hennar á sviði var í
New York 1928. Sama ár giftist hún
Ludlow Ogden, sem einnig var af
auðugri ætt, en hjónaband átti illa
við skapgerð Hepburn, enda var
hjónabandið varla nema nafnið og
skildu þau endanlega 1934, eða rétt
eftir að Katharine hóf glæstan feril
sinn í kvikmyndaheiminum.
Á ferli sínum lék Hepburn á móti
nær öllum glæsilegustu og eftirsótt-
ustu karlleikurum Hollywood og er
haft fyrir satt að hún hafi gætt þá
enn meiri þokka og hæfileikum með
nærveru sinni og mótleik en þeir
höfðu annars til að bera. Sjálf varð
hún ímynd þeirrar kvenlegu glæsi-
mennsku sem lyfti körlunum yfir
alla meðalmennsku hinna hvers-
dagslegu kvennabósa.
Undantekningin er þegar hún lék
á móti Humphrey Bogart í Afríku-
drottningunni, þar sem hann fór
með hlutverk heldur lítilsiglds olíu-
fitugs formanns á manndrápskollu.
En slíkur varð samleikur þeirra að
Bogart fékk Óskarinn fyrir hlutverk
sem var í algjörri mótsögn við alla
þá ímynd sem hann hafði fyrir aðrar
afbragðsmanngerðir sem hann
skóp.
Æviferill Hepburn er eðlilega ná-
tengdur kvikmyndum, en sjálf sagði
hún að heimur stúdíóanna ætti ekki
við sig. Hún var of sjálfstæð til að
þola nákvæmar fyrirskipanir um
hegðun sína og léik. En það kom
ekki að sök því hún skóp sínar eigin
persónur og lyfti þeim með sem
komu fram með henni á hvíta tjald-
inu.
Sá leikari sem Hepburn lék í flest-
um kvikmyndum með var Spencer
Tracy, en þau bjuggu saman í 27 ár
og léku saman í níu kvikmyndum.
Á ferlinum fékk hún óskarsverð-
launin sem besta leikkona ársins
þegar á fyrsta ári sínu í Hollywood,
1933. Það var fyrir leik sinn í Morn-
ing Glory. Næst var hún kjörin besta
leikkonan 1967 fyrir Guess Who’s
Coming to Dinner, þá árið eftir fyrir
leikinn í The Lion in Winter og að
lokum var hún kjörin besta leikkon-
an í aðalhlutverki 1981 fyrir frammi-
stöðuna í On Golden Pond.
Árið 1999 útnefndi Ameríska
kvikmyndastofnunin hana mestu
leikkonu allra tíma.
Á þessari upptalningu má sjá að
Katharine Hepburn hlaut verðuga
viðurkenningu fyrir leik sinn og
störf, en í augum landa sinna, og
raunar annarra sem fylgdust með
persónu hennar í kvikmyndum og
einkalífi, var hún ímynd hinnar
frjálsu konu sem bar með sér kraft
og einbeitni og óástleitinn kyn-
þokka sem karlar þora varla að
minnast á að höfði til þeirra.
Elizabeth Taylor, sem gerir kröfu
til að vera stórstjarna og lék með
Hepburn í Suddenly Last Summer
árið 1959, minnist hennar með
þessum orðum: „Ég held að hver
einasta leikkona í veröldinni líti upp
til hennar með virðingu og skilningi.
Almáttugur, hvað mig langar til að
líkjast henni."
Síðast lék Hepburn í kvikmynd
1994. Það var myndin This Can’t Be
Love þar sem Warren Beatty
blómstraði.
Leikkonan skrifaði nokkrar bækur
um ævina og varð hin fyrsta þeirra
metsölubók í BNA árið 1977, en
hún fjallaði um tilurð og töku
Afríkudrottingarinnar, sem varð ein
vinsælasta kvikmynd aldarinnar,
ekki síst fyrir frábæran samleik
þeirra Hepburn og Bogarts, sem var
ólfkur flestu þvf sem kennt er við
UNG OG GLÆSILEG: Ferill Katharine Hepburn sp
iðnaðarframleiðsluna í Hollywood.
Síðustu árin hrakaði heilsu hinn-
ar öldnu leikkonu og margs konar
sjúkdómar hrjáðu hana, meðal ann-
ars Parkinsonveiki sem farið var að
bera á þegar hún lék í sínum síðustu
kvikmyndum. Hún var sér vel með-
vitandi um heilsufar sitt og aldur og
sagði aldamótaárið að hún héldi að
fólk væri farið að átta sig á að hún