Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ2003 DV SPORT 29
Mjög erfitt verkefni
segir Guðjón Þórðarson, nýráðinn knattspyrnustjóri hjá Barnsley
m
'ÉM
ÖFLUGUR: Þórir Gylfi Bjarnason með tvo laxa sem hann veiddi í fossinum í Elliða-
DV-mynd G. Bender
ánum á maðk. Hann hefur áður veitt laxa.
„Veiddi tvo laxa
í fossinum"
segir Þórir Gylfi Bjarnason, veiðimaður aflífi og sál
„Það var skemmtilegt að
veiða þessa tvo laxa í fossinum í
Elliðaánum á maðkinn, 5 og 6
punda fiska,“ sagði Þórir Gylfi
Bjarnason veiðimaður í sam-
tali við DV-Sport en fyrir fáum
dögum veiddi hann þessa laxa í
ánni.
Laxveiðin heldur áfram, það
hefur meira bleytt í og það er
íyrir mestu. Sumar veiðiár hafa
aðeins lagast og það skiptir
miklu máli. Veiðimennirnir
halda áfram að renna fyrir fiska
og margir veiða vel.
„Ég hef veitt laxa áður, í
Elliðaánum og svo í Laxá á
Refasveit, mér finnst gaman að
veiða," sagði veiðimaðurinn
ungi um leið og hann stillti sér
upp með tvo laxa sem hann
landaði alveg sjálfur í fossinum
í Elliðaánum.
Fyrsti laxinn kominn úr
Andakílsá
„Fyrsti laxinn er kominn á
land úr Andakflsá í Borgarfirði,
en hann veiddist á laugardag-
inn og tók fluguna Black
ghost," sagði Bergur Stein-
grímsson er við spurðum um
stöðuna í veiðinni.
„HoUið sem var að hætta
núna í Norðurá var komið með
yfir 50 laxa þegar síðustu tölur
lágu fyrir og þetta er allt að
koma á Norðurárbökkum.
Veiðimenn frá okkur byrja síð-
an í Fáskrúð í Dölum á morgun
og Krossá á Skarðsströnd lfka
en það hafa sést laxar í
Krossánni. Veiðimenn af Skag-
anum hafa verið að veiða í Fá-
skrúð síðustu daga en ég hef
ekkert frétt enn þá,“ sagði Berg-
ur.
Veiðimenn sem voru að
koma úr Ljárskógavötnum í
Dölum veiddu vel, fengu 29 fal-
lega fiska, þrátt fyrir leiðinlegt
veðurfar.
„Það eru komnir laxar í
Krossá, í gegnum teljann,"
sagði Trausti Bjarnason er lax-
veiði bar á góma fyrir tveimur
dögum.
G. Bender
Breski kaupsýslumaðurinn
Sean Lewis keypti í gær meiri-
hluta í enska knattspyrnufélag-
inu Barnsley af Peter Doyle. Við
sama tækifæri var greint frá því
að félagið hefði ráðið Guðjón
Þórðarson sem framkvæmda-
stjóra félagsins en ekki var
greint frá því hversu langan
samning Guðjón gerði við
Barnsley.
Sean Lewis hefur þegar tekið sæti
stjórnarformanns félagsins en Pet-
er Doyle hættir öllum afskiptum af
félaginu. Kaupverð fél.agsins var
ekki gefið upp. Lewis mun þó ein-
göngu sitja tímabundið í þessu sæti
þar sem hann hefur ekki áhuga á að
stýra félaginu og leit að nýjum
stjórnarformanni er þegar hafin.
Kenny Moyes mun sitja við hlið
Lewis til að byrja með en ekki er
loku fyrir það skotið að hann taki
síðan sæti í stjórn félagsins.
„Þetta er mjög gaman.
Það er bæði ánægja og
yndi afþví að vera
kominn í vinnu aftur."
Lewis er 38 ára, fjögurra barna
faðir, sem kemur frá London en
hann hefur undanfarna níu mán-
uði búið í Kaliforníu í Bandaríkjun-
um þar sem hann hefur verið að
sýsla með fasteignir auk þess sem
hann er með puttana í fjölmiðla-
fyrirtæki vestanhafs.
Ráðning Guðjóns hefur legið í
loftinu undanfarna daga og hann
var vitaskuld hæstánægður með að
vera kominn aftur í slaginn þegar
DV-Sport náði tali af honum í gær.
„Þetta er mjög gaman. Það er
bæði ánægja og yndi af því að vera
kominn í vinnu aftur. Það leggst vel
í mig að vinna fyrir Barnsley. Þetta
verður mjög erfitt þar sem klúbbur-
inn er ekki í léttri stöðu. Það bíður
okkar mikil vinna. En það er ekkert
sem ég hef áhyggjur af,“ sagði Guð-
jón en hann stýrir fyrstu æfingu
sinni hjá félaginu á morgun. Það er
honum kærkomið þar sem honum
hefur ekki tekist að kynna sér
mannskap félagsins mjög náið.
„Ég hef kynnt mér mannskapinn
svona lauslega. Ég hef reyndar ekk-
ert séð þá á æfingum saman og ég
mun kynna mér stöðuna á hópn-
um í rólegheitum. Ég geri ráð fyrir
því að við reynum að styrkja hóp-
inn eitthvað," sagði Guðjón en
Kenny Moyes, sem sat blaða-
mannafundinn fyrir Lewis í gær,
staðfesti á fundinum að nýir leik-
menn yrðu fengnir til félagsins.
Það vakti nokkra athygli að Guð-
jón vildi ekkert gefa upp um það
hversu langur samningur hans við
Barnsley er.
„Samningurinn er ótímasettur.
Það er ákveðið ákvæði í samningn-
um af minni hálfu. Raunverulega er
ekkert um samninginn að segja en
það er best að útskýra hann þannig
að hann er frá upphafi til enda,“
sagði Guðjón.
Aðstoðarmaður Guðjóns er
Ronnie Glavin en hann er einn af
dáðustu sonum Barnsley. Glavin
lék með liðinu um árabil við góðan
orðstír fyrr á árum eftir farsælan
feril með Celtic.
„Mér líst ágædega á Glavin.
„Raunverulega er ekk-
ert um samninginn að
segja en það er best að
útskýra hann þannig
að hann er frá upphafi
tilenda."
Hann er skoskur og ég þekki þá
ágætlega. Ég var með tvo Skota í
mínu liði hjá Stoke á sínum tíma.
Skotarnir eru fínir."
Guðjón segir að nýir eigendur
Barnsley séu ekkert farnir að ræða
markmið og væntingar fyrir fram-
tíðina.
„Nei, við erum ekkert byrjaðir á
þvf. Við ætlum okkur að koma
þessu félagi upp á við og við vonum
að botninum sé náð. Við ætlum að
ýta þessu upp á við og svo verður
bara að koma í ljós hversu langt við
förum með það,“ sagði Guðjón
Þórðarson, nýráðinn fram-
kvæmdastjóri Barnsley, í samtali
við DV-Sport í gær.
henry@dv.is
AFTUR í SLAGINN: Guðjón Þórðarson er aftur farinn að þjálfa í enska boltanum og hver veit nema hann fái tækifæri til þess að taka aftur
á móti Gerard Houllier og strákunum hans í Liverpool eins og hann gerði með Stoke. Reuters
www.lax-a.is
OoQ/00
<