Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.2003, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2003 MENHtNG 15
I
I
1 ii •
Mennmg
Leikhús - Bókmenntir - Myndiist - Tónlist - Dans
Skálholtstónleikar:
Dularfulla
©
TÓNUSTAKGA&XSÝNl
JónasSen
I
I
Fjögur tónskáld voru fengin til að semja tón-
list við kveðskap Ólafs Jónssonar á Söndum
(1560-1627), en hann var virt skáld í Skálholti á
tímum Brynjólfs Sveinssonar biskups. Afrakst-
urinn var opinberaður á tónleikum í Skálholts-
kirkju á laugardaginn var og voru flytjendur
Sönghópurinn Gríma, sem samanstendur af
Kirstínu Ernu Blöndal, Guðrúnu Eddu Gunn-
arsdóttur, Erni Arnarsyni og Benedikt Ingólfs-
syni. Einnig voru sjö hljóðfæraleikarar á ferð-
inni og var þeim stjórnað af Bernharði Wilkin-
son.
Raddir hljóðfæranna voru að
mestu tilgangslaust skraut, svo
ómarkvissar að einfaldar laglín-
urnar nutu sín ekki.
Fyrst á dagskrá voru verk eftir Þuríði Jóns-
dóttur, Tvö kvæði af tveim undarlegum böm-
um, Kvæði um nfu mannsins óvini, Nokkur
raunakvæði og Enn eitt nytsamlegt huggunar-
kvæði. Þuríður sló eftirminnilega í gegn með
trúarverki sínu, Rauður hringur, á tónlistardög-
um Dómkirkjunnar fyrir noJdcru en tónsmíð-
arnar sem nú vom fluttar ollu nokkmm von-
brigðum. Raddir hljóðfæranna voru að mestu
tilgangslaust skraut, svo ómarkvissar að ein-
faldar laglínurnar nutu sín ekki og er því ekki
hægt að segja að margt hafi gerst í tónlistinni.
Ekld bætti úr skák að söngvararnir vom ekki al-
mennilega komnir í gang, Benedikt virkaði eins
og hann væri nývaknaður og í Guðrúnu Eddu
heyrðist alls ekki nóg í Kvæðinu um níu manns-
ins óvini. Sem betur fer lagaðist þetta er á leið.
Best var marimban, en hún dýpkaði stemning-
una í raunakvæðunum og var það Steef van
Oousterhout sem spilaði fallega á hana.
Eftir Tryggva M. Baldvinsson vom þrjár tón-
smíðar, Alleina til Guðs set trausta trú, Misst
hef eg mengrund svo þýða og Kvæði um sum-
arið. Uppbygging verkanna var mun meira
sannfærandi en þau sem Þuríður samdi, stfg-
andin hnitmiðaðri og undirleikshijóðfærin bet-
ur nýtt. Básúnan, sem Oddur Björnsson spilaði
á, myndaði skemmtilegt mótvægi við söng-
raddirnar og ísmeygilegir, liggjandi orgeltónar
með smá krúsídúllum frá Douglas A Brotchie
lífguðu upp á.
Verk Huga Guðmundssonar var líka áhrifa-
mikið en það bar nafnið Mjög hneigist þar til
mannslundin hrein. Hvert erindi var sjálfstæð
tónsmíð þótt allt væri rammað inn af dularfullu
Steingrímur og Eggert meðal útvalinna
GERÐARSAFN: Listamennirnir
Steingrímur Eyfjörð og Eggert
Pétursson eru meðal þeirra 24
norrænu listamanna sem valdir
hafa verið til að taka þátt í farand-
sýningunni Carnegie Art Award
2004. Sýningin verður sett upp
hjá öllum Norðurlandaþjóðunum.
Hún hefst í Konstakademien í
Stokkhólmi 15. október í ár og
lýkur í Helsingin Taidehalli í
Eggert við eitt verka sinna.
Helsinki 9. janúar 2005. (Listasafni
Kópavogs, Gerðarsafni, verður
hún á tímabilinu 5. desember
2003 til 22. febrúar 2004. Dóm-
nefndin kemur saman í lok ágúst
til að útnefna þrjá listamenn til
verðlauna og einn styrkþega.
Fyrstu verðlaun nema 1 milljón
sænskra króna, önnur verðlaun
eru 600 þúsund s.kr. og þau
þriðju 400 þúsund s.kr. Styrkur að
upphæð 100 þúsundum s.kr. fell-
ur í skaut listmanni af yngri kyn-
slóðinni. gun@dv.is
SÖNGHÓPURINN GR(MA: Benedikt Ingólfsson, Kirstín Erna Blöndal, Örn Arnarson og Guðrúnu Edda Gunnarsdóttir.
klukknaspili og strengjaþyt. Klukknaspilið var
ákaflega fagurt og í byrjun hélt ég að þetta væru
sjálfar kirkjuklukkumar að óma úr turninum
fyrir ofan. Framhaldið var eftir þessu, tónlistin
allan tímann hófstillt en sérlega grípandi, aldrei
Hvert erindi var sjálfstæð
tónsmíð þótt allt væri rammað
inn afdularfullu klukknaspili
og strengjaþyt.
af þeirri gerðinni sem er troðið af svo yfirgengi-
legri tilfinningasemi ofan í hlustandann að
honum finnist að það sé verið að leggja hann í
einelti. Þvert á móti var tónlistin þannig að
mann virkilega langaði til að heyra hana aftur.
Sfðastar á dagskrá voru þrjár tónsmíðar eft-
ir Báru Grímsdóttur, Hugsun kalda hef eg að
halda, Mikils ætti ég aumur að akta og Sjálfur
Drottinn sannleikans. Bára er hálfgerður
mínímalisti sem hér hefur byggt tónlist sína á
endurtekningum, kom það ekkert illa út og
minnti útkoman stundum á Carmina Burana.
Kraftmikill trumbuslátturinn, sem var mest
áberandi hluti undirleiksins, var líka verulega
hressilegur og veitti ekki af þar sem tónleikarn-
ir voru orðnir óhóflega langir er hér var komið
sögu. Hugsanlega hefði farið betur að skipta
efnisskránni í tvennt, hafa tvenna tónleika og
fylla upp í með endurreisnartónlist - hver segir
að nútímatónlist þurfi alltaf að vera í afmörk-
uðum bás þar sem ekkert annað má vera með?
Orð, tónar og kvikar myndir
Hvíta tjaldið verður vígt í Síldarminjasafninu á
Siglufirði næstkomandi laugardag. Hvíta tjaldið
er sýningartjald í Gránu, bræðsluhúsi safnsins.
Þar verður framvegis sýnd kvikmynd Þorgeirs
Þorgeirsonar, Maður og verksmiðja.
í tilefni þessa verður dagskrá flutt í Sfld-
arminjasafninu, Þorgeiri til heiðurs, en hann
varð sjötugur ívor og verður viðstaddur þessa at-
höfn. Fjölmargir lista- og fræðimenn munu
koma fram í dagskránni sem verður fléttuð sam-
an úr orðum, tónum og kvikum myndum. Dag-
skráin hefst kl. 13.00 og stendur fram til kl. 23.00
með hléum þar sem boðið verður upp á dans,
músík, kaffi & kleinur og kjötsúpu og að henni
lokinni verður boðið í miðnætursiglingu um
Qörðinn.
Meðal þeirra sem koma fram í dagskránni eru:
Anna Signður Einarsdóttir leikkona,
Ari Halldórsson kennari,
Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur,
Eggert Þorleifsson leikari,
Hákon Már Oddsson kvikmyndagerðarmaður,
Rósa Jóhannesdóttir fiðluleikari,
Tómas Gunnarsson lögfræðingur,
Viðar Eggertsson leikstjóri,
Vilborg Dagbjartsdóttir skáld,
Þorsteinn Jónsson kvikmyndagerðarmaður og
Örlygur Kristfinnsson, safnstjóri Síldarminja-
safnsins.
Sunnudaginn 13. júlí verða kvikmyndirnar
Maður og verksmiðja og Samræða um kvik-
myndir sýndar til skiptis á hvíta tjaldinu í Gránu,
frá kl. 10 til 18.
gun@dv.is
Þorgeir Þorgeirson.
Suzuki Grand Vrtara, 3 d., bsk.
Skr. 5/00, ek. 45 þús.
Verð kr. 1370 þús.
Toyota RAV4, bsk.
Skr. 6/96, ek. 112 þús.
Verð kr. 970 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sfmí 568-5100
Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk.
Skr. 7/97, ek. 46 þús.
Verð kr. 690 þús.
Suzuki Liana, bsk.
Skr. 2/02, ek. 10 þús.
Verð kr. 1380 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 6/96, ek. 93 þús.
Verð kr. 890 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 1/98, ek. 91 þús.
Verð kr. 990 þús.
Daewoo Leganza, sjsk.
Skr. 5/98, ek. 56 þús.
Verð kr. 950 þús.