Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2003, Qupperneq 14
74 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2003
Ræktun lýðs og lands
Umsjón: Páll Guðmundsson
Netfang: palli@umfi.is
Sími: 568 2929
L.ANOSMÚT
LEIÐTOGA
SKOLINN
Þemavika ^
anda UMFÍ
SKEMMTILEG VINNA: Að sögn Margrét-
arTryggvadóttur kennara, sem hélt
utan um ungmennafélagsvinnuna í
skólanum, höfðu krakkarnir mjög gam-
an af verkefninu óg öðluðust góða sýn
á starf og hugsjón .
BYGGJA: Nemendur i
Hvolsskóla stofnuðu ung-
mennafélag og byrjuðu á
því að byggja félagsheimili.
Ungmennafélögin í land-
inu hafa í flestum héruðum
landsins komið að upp-
byggingu félagsheimila og
ípróttamannvirkja.
/Grunnskólanum á Hvolsvelli, Hvols-
skóla, varfyrirskemmstuhalclin
þemavika, eins og haldnar eru víða í
skólum landsins. Pema vikunnarí
Hvolsskóla varstarfí landinu á fyrri
hluta síðustu aldar og meðal annars
komið inn á starfungmennafélag-
anna á fyrri hluta síðustu aldar.
f yngri bekkjum skólans var farið
nokkuð ítarlega yfir hlutverk ung-
mennafélaganna á þessum tímum
og meðal annars komið inn á þá
uppbyggingu sem ungmennafélög-
in stóðu fyrir í sinni heimabyggð, til
dæmis með uppbyggingu á félags-
heimilum og íþróttaaðstöðu.
Síðan var farið í það að stofna
ungmennafélag í hverjum bekk,
kosinn formaður, byggt félags-
heimili, stofnaðar deildir og starfíð
skipulagt. Leikþáttur var settur á
svið við stofnun hvers ungmenna-
HÚSVÍGSLA: Leikpresturinn mætti á svæðið og vígði húsið.
FÁNAHYLLING: Haldið í gamlar hefðir og góða siði. Við vígslu félagsheimilisins flutti
formaðurinn ræðu, presturinn vígði húsið og svo var fánahylling
HU5HJ OPNAO: Klippt var á boröa
þegar húsið var opnað og borðinn
hengdur upp á vegg, áritaður af
öllum sem voru viðstaddir opnun-
ina, líkt og tíðkaðist áður fyrr.
félags, félagsheimilið var vígt, for-
maðurinn hélt ræðu, presturinn
kom og blessaði húsið, kíippt var á
borða, fánahylling, fluttar ræður og
skemmtiatriði.
Að sögn Margrétar Tryggvadótt-
ur, sem hélt utan um ungmennafé-
lagsvinnuna í skólanum, höfðu
krakkarnir mjög gaman af verkefn-
inu og öðluðust góða sýn á starf og
hugsjón ungmennafélaganna.
I
:
E1
I
Þrekog aflraunabrautir
Á meðal þeirra verkefna sem nem-
endur í Hvolsskóla unnu í þemavik-
unni var að skoða hvaða áhöld og
búnaður var notaður til íþróttaiðk-
ana á fyrri hluti síðustu aldar.
Til gamans settu nemendur upp
aflraunabraut þar sem þeir notuðu
mismunandi þunga steina til að
lyfta og bera í dauðagöngu. „Þetta
var mjög gaman og margir sem
prófuðu," segir Guðmundur Haf-
þór Björgvinsson, nemandi í 8.
bekk í Hvolsskóla. „Það var samt
enginn sem gat lyft þyngsta stein-
inum sem var um 80 kíló."
Guðmundur segir að í gamla
daga og á fyrri öldum hafi verið
notast við steina í aflraunir og þar
nægi að benda á Húsafellshelluna
sem dæmi. „Við ætlum að vera með
steinana hérna áfram og leyfa öll-
um sem vilja að prófa. Þetta er fín
æfing," sagði Guðmundur og lét sér
ekki muna um snara 50 kílóa steini
í fangið.
KRAFTAKARL Guðmundur Hafþór
Björgvinsson, nemandi í 8. bekk Hvols-
skóla, lét sér ekki muna um að lyfta
fimmtíu kílóa hellu.
KAMMERKOR
REYKJAVIKUR
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
w