Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2003, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2003, Side 16
7 6 LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2003 Fréttir DV Enn þá bundinn Arnar Dór Hannesson, sem rekinn var úr Idol- keppninni, söng íyrir íjöl- menni í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í vikunni. Vík- urfréttir greina frá því að Arn- ar Dór hafl tekið lagið „The wonder of you“í hljóðveri, en lagið má ekki spila á út- varpsstöðvum fyrr en í mars á næsta ári. Forsvars- menn Idol segja þetta gert til að þeir keppendur sem detta út séu ekki að trufla aðalkeppnina. Vín í jólaþorpi Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt umsókn um vínveitingaleyfi vegna þátttöku veitingamanns eins í fyrirhuguðu jólaþorpi Hafnfirðinga. Hefjast á handa eftir helg- ina við að reisa jólaþorpið sem á að standa á Thorsplani og kemur innflutt í heilu lagi frá Þýskalandi. Vínveitinga- leyfið á að gilda frá 29. nóv- ember og út Þorláksmessu. Miðað er við að bjór og létt vín verði til sölu á afmörk- uðu svæði í jólaþorpinu, salan hefjist klukkan tólf um helgar og fylgi almenn: um opnunartíma verslana á aðventunni. Seinfær börn út úr skólan- um Formaður Skólastjórafé- lags Danmerkur vill seinfær börn út úr grunnskólanum, auk erfiðra og órólegra nemenda, að því er fram kemur á ís- lenska menntanet- inu. I hverj- um bekk eru að sögn for- mannsins einn eða tveir nemendur sem spilla kennslunni og eiga ekki heima í grunnskólanum. Sömuleiðis telur hann að ofdekruð börn, tvítyngd börn, sem tala mjög litla dönsku, og yfirburðagáfuð börn eigi ekki að vera í grunnskólanum. Runólfur Ágústsson rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst Hvernig hefur þú þaö? „Ég hefþað Ijómandi gott, þakka þér fyrir, “ segir Runólfur Ágústsson, skólastjóri Við- skiptaháskóians á Bifröst í Borgarfirði. „Það er einkar gott tíðarfar og aldrei sem núgott að búa í Norðurárdainum. Þá gengur skólastarf hjá okkur sér- staklega vel um þessar mundir. Jafnframt eru horfur i efna- hagsmálum þjóðarinnar mjög góðar og þá fara fjölskyldurnar út að versia, svo sem í Kringi- una þar sem ég stend í þessum töluðum orðum." Ágreiningur sem kraumað hefur undir yfirborði Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er aftur kominn upp á yfirborðið í kjölfar afsagnar formannsins. í sumarbyrjun 2001 fór allt í háaloft vegna Portúgalsferðar sem nefndin greiddi fyrir ötulustu sjálfboðaliðana Átök hafa verið í Mæðrastyrksnefnd Reykjavík- ur allt frá vori 2001 að uppskátt varð um alræmda lystireisu nefndarkvenna til Portúgals á kostnað nefndarinnar. Mikil fjölmiðlaumfjöllun varð um þessa Portú- galsferð. Fullyrt var í DV í byrjun júní 2001 að Ás- gerður Jóna Flosadóttir, formaður Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur, hefði orðið tvísaga vegna málsins: „Hún hélt því staðfastlega fram í fjöl- miðlum að nefndarmenn hefðu um árabil farið í skemmtiferðir innanlands á kostnað nefndarinn- ar. Þessu hafa aðrir nefndarmenn mótmælt sem staðlausum stöfum,“ sagði í DV. Skiptar skoðanir voru um það í samfélaginu hvort siðlegt hefði verið af meðlimum Mæðra- styrksnefndar að nota söfnunarfé f Portúgalsferð- ina. Umbun erfiðisins „Konurnar sem starfa hjá Mæðrastyrksnefnd hafa af fórnfysi og ósérhlífni lagt á sig ómælt starf í áranna rás,“ var haft eftir Júlíusi Vífli Ingvarssyni, í DV. Júlíus, þá starfsmaður Ingvars Helgasonar hf. sem um árabil hafði fært Mæðrastyrksnefnd gjafir, bætti við að eðlilegt væri að fyrir störf af þessum toga væri umbunað með einhverjum hætti. Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálpar- starfs kirkjunnar, sagði við DV þann 25. maí 2001 að enginn efaðist um mikið og óeigingjarnt starf kvenna í Mæðrastyrknefnd. „Það er ósköp óheppilegt að þetta hafi gerst á þennan hátt,“ sagði hann um Portúgalsferðina. Endurgreiddi og hélt formennsku „Formaðurinn þarf að víkja ef þetta á ekki að eyðileggja nefndina alveg. Þetta er afar sorglegt og öll þessi umfjöllun fer illa með nefndina," segir Ingibjörg Snæbjarnardóttir, fyrrverandi varafor- maður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, í viðtali við DV í byrjun júní 2001. Nokkrum dögum eftir viðtalið við varafor- manninn fyrrverandi var ákveðið á framhalds- aðalfundi Mæðrastyrksnefndar að Ásgerður myndi sitja áfram í formannsstólnum. Portúgals- peningum yrði skilað: „Nefndarmenn voru sammála um að í ljósi þeirrar miklu og neikvæðu umræðu sem orðið hefði um nefndina væri rétt að endurgreiða ferð- ina að fullu. Þær sem í ferðina fóru samþykktu að endurgreiða sinn hlut," sagði í DV eftir fundinn. Gjöfunum rigndi inn Nokkur ró færðist yfir Mæðrastyrksnefnd eftir þetta. Undir lok ársins 2001 birti verulega til. Ás- gerður Jóna skýrði frá því að gjafir og styrkir streymdu inn sem aldrei fyrr. Frystikistan var fyllt af ís, flugeldapakkar voru gefnir, sömuleiðis þrjú bretti af kexi, 300 kjötlæri auk jólapakka frá al- menningi, tölvubúnaðar og nettengingar. Stjórn Velferðarsjóðs barna gaf Mæðrastyrksnefnd tvær milljónir króna - svo eitthvað sé nefnt. En óánægjan hefur kraumað undir niðri. Sér- staklega virðast formenn kvenfélaganna átta sem standa að Mæðrastyrksnefnd haft horn í síðu Ás- gerðar. Samkvæmt heimildum DV var Ásgerði í fyrra sagt að hún yrði að vera horfin úr formannsstóln- um fyrir aðalfund sem haldinn yrði í vetrarlok 2004. Ljóst hafi þó orðið í vor að hún yrði látin víkja fyrr, enda hefði hún algerlega stýrt starfi Mæðrastyrksnefndar án þess að ráðfæra sig við aðildarfélögin. nefndin skuli hafa varið opinberum styrkjum, sem sótt var um til rekstrar nefndarinnar, til bókaskrifa um sögu nefndarinnar. Helsta áhyggjuefni núverandi valdhafa í Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur er þó söfnunar- átakið Betri heirnur sem byggist á sölu samnefnds geisladisks. Eins og komið hefur fram þykja nefndarkonum fjármál þessarar söfnunar vera afar óljós. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur tók til starfa fyrir 75 árum. gar@dv.is Umdeilt ítsröalag M«.-Arastyrksnefitdai ir «il Pot t úgals: Formaður með ný samtök Kaflaskipti urðu í átökunum í byrjun þessa mánaðar er Ásgerður Jóna Flosa- dóttir sagði af sér embættinu. Ásgerður hafði þá áður stofnað sín eigin samtök, Fjölskylduhjálp Islands, sem hún segir munu starfa á landsvísu. Ásgerður Jóna hvarf af vettvangi Mæðrastyrksnefndar aðeins þremur dögum fyrir boðaðan aukaaðalfund þar sem átta aðildarfélög sem eru bak- hjarlar nefndarinnar hugðust víkja henni úr starfinu. Þær konur sem tekið hafa við stjórn Mæðrastyrksnefndar segjast hafa, á þeim vikum sem liðnar eru frá brott- hvarfi Ásgerðar, reynt að gera sér grein fyrir rekstri og stöðu nefndarinnar. Heilabrot um Betri heim Sjálf segir Ásgerður fjármálin í stakasta lagi og bókhaldið undir ná- kvæmri stjórn gjaldkera utan nefndar- innar. Það breytir því ekki að arftakar hennar hafa eytt síðustu vikum í að klóra sér í höfðinu yfir óvenju miklum útgjöldum á fyrri hluta ársins. Einnig velta þær fyrir sér hvað orðið hafi um mikinn fatalager Mæðrastyrksnefndar. Þessar konur segjast einnig óánægðar með að Mæðrastyrks- Söfnunarfé fari til málefnisins öhtppHeg mól að muti Ilj,UPun,turf. kirkjutmar Fi-amhaldsfuníior MirSrastyrksi>e(n4ar beðið mt» eíráwmingœ ^ Formaðurinn þarf að vikja - «vo nofnrán vcrfli ekki nybilbS*. wsir fyrrvorandi vmafunnaðut: “tísríWEiUv— fayKtsyarUj gmyaassa Átakafréttir af Mæðrastyrksnefnd Hlé hefur verið i nokkur misseri á fréttum um ágreining innan Mæðrastyrks- nefndar Reykjavikur. Þessar fréttir um umdeilda Portúgalsferð voru iDVi maí ogjúniárið2001. Fnunhaldtaðalluiuti MnðrMtyrkanrfndar Kevkiavfk„.<„1.,a. Nefndarmenn ætla að endurgreiða sólarferöina *** « •SikoBttm »1 ,?&, «■ j*:*, í íSwípbb. «í«ttóMkv. r«i SZS,SS£,mM•', $*um bmrtteni knfmi * l «**»*»« hXv ðr tmu tetw. ir-ae Ítam orfwiw hefði á bp.' kt&BEsaga 8*>Hh6iiHu6. *««« BV eð hM *&***!*». HOti tsqtm «*• ««f Á*5íííVÚ«r Aj fMÁMlní HV í Ksmtuóín wfl gz&jH & •MtmitÁrtíj ðtma*#Otn, jehntnfí. Brunavarnir í ólestri viö Kárahnjúka Vatnslaust slökkvilið „Það er óhætt að segja að hægt gangi að koma brunavörnum við Kárahnjúka í gott horf," segir Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri og eftirlits- maður eldvarna við Kárahnjúka. Hann gagnrýnir seinagang Impregilo varðandi brunavarnir og telur núver- andi slökkvilið á staðnum illa búið ti! að takast á við eldsvoða. „Ef eldur kemur upp í dag er stað- an sú að slökkviliðið er vanbúið til að takast á við vandann. Aðgangur að nauðsynlegum búnaði er mjög tak- markaður. Slökkviliðið á staðnum, sem Impregilo hefur sjálft sett sam- an, hefur lítið getað æft sig og er auk þess ekki fullmannað. Síðast en ekki síst liggur ekki ljóst fyrir hvort að- gangur er að vatni ef á þarf að halda." Baldur vill þó taka fram að verk- takinn hafi staðið sig sæmilega, enda séu allar aðstæður á svæðinu erfiðar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem op- inber stofnun kvartar yfir seinagangi ítalanna. Ileilbrigðiseftirlit Austur- lands þurfti ítrekað að ýta á eftir þeim í sumar og haust til að nauðsynlegar umbætur yrðu gerðar. Aðalvinnubúðimar við Kárahnjúka Slökkviliðið á staðnum er alls ekki reiðubúið að eiga við meiriháttar eldsvoða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.