Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2003, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Efnin greind í
næstu viku
Efnin sem voru tekin úr
amfetamínverksmiðju í
Kópavogi á miðvikudag
voru flokkuð í gær. Að sögn
Ásgeirs Karlssonar aðstoð-
aryfirlögregluþjóns er rann-
sókn málsins í fullum
gangi. Hann sagði yfir-
heyrslur yfir mönnunum
tveimur sem sitja í gæslu-
varðhaldi hafa haldið áfram
í gær. Hvað efnin varðar þá
var þeim pakkað í gær og
verða þau send í efnagrein-
ingu á rannsóknarstofu
strax eftir helgina. Ásgeir
sagði að óskað yrði eftir
flýtimeðferð á rannsóknar-
stofunni.
Harðlínu-
menn vinna á
Harðlínuflokkar unnu
mjög á í heimaþingkosn-
ingum sem fram fóru á
Norður-írlandi í gær. End-
anlegar tölur lágu ekki fyrir
þegar DV fór í
prentun. Svo
virtist sem
Lýðræðis-
flokkur sam-
bandssinna,
undir stjórn
Ians Paisleys,
hefði fengið
að minnsta
kosti 24 af 108 sætum
heimaþingsins og einnig
var útlit fyrir að Sinn Féin,
stjórnmálarmur írska lýð-
veldishersins, hefði náð 15
þingsætum. Paisley og fé-
lagar hans í Lýðræðisflokki
sambandssina gaf það
sterklega til kynna að flokk-
urinn myndi aldrei deila
völdum með Sinn Féin.
Huntley
brenndi líkin
Ian Huntley hefur viður-
kennt að hafa brennt lík
Jessicu Chapman og I lolly
Wells í ágúst í
fyrra. Hann
hefur jafn-
framt viður-
kennt að hafa
brennt föt
stúlknanna
og flutt lík
þeirra út fyrir
bæinn So-
ham í bifreið sinni. Jessica
og Holly voru tíu ára þegar
þær létust. Þrátt fyrir þetta
neitar Ian Huntley að hafa
myrt stúlkurnar.
Hryðjuverka-
menníhaldi
Lögregla á Italíu og í
Þýskalandi hefur handtekið
þrjá Norður-Afríkubúa sem
eru grunaðir um að skrá
fólk til að
taka þátt í
sjálfs-
morðsárás-
um í frak.
Forsprakki
hryðju-
verkahóps-
ins, Ma-
hjub
Abderr-
azak, var
handtekinn í Hamborg í
gærmorgun. Hinir tveir,
Marokkóbúi og Túnismað-
ur, voru handsamaðir í
Mílanó í fyrradag.
Meirihluti þingmanna Sjálfstæðisflokksins er ósammála þeirri ákvörðun fjögurra
ráðherra að ekki eigi að færa íbúðalán inn í bankakerfið. Félagsmálaráðherra seg-
ist ætla að halda sínu striki.
Þegar frumvarp um hækkun ibúðarlána
upp í 90% af kaupverði verður lagt fram
stefnir í hörð átök innan Sjálfstæðisflokks-
ins en meirihluti þingmanna flokksins er
ósáttur við að framkvæmdin verði ekki
innan bankakerflsins. Ákvörðunina tóku
félagsmálaráðherra, utanríkisráðherra, for-
sætisráðherra og fjármálaráðherra en lög-
fræðiálit segir að bankaleiðin sé að öllum
líkindum ófær vegna ákvæða í EES samn-
ingnum um ríkisábyrgðir. Þingmennirnir
efast margir hverjir um að svo sé og telja
sumir reyndar að ríkisábyrgðin sé óþöif.
Þeir eru ekki sáttir með ákvörðunina eins
og fram kom hjá fimm þingmönnum
flokksins til viðbótar í blaðinu í gær og telja
ekki útséð um málið enn.
Guðlaugur Þór Þórðarson reiknar með
að láta til sín taka þegar málið fer fyrir fé-
lagsmálanefnd en hann er varaformaður
hennar. „Ég sé enga ástæðu til að byggja
upp fleiri opinbera banka. Það var af góðri
og gildri ástæðu sem ríkisbankarnir voru
einkavæddir." Ásta Möller, sem nú situr á
þingi fyrir Davíð Oddsson, er sömu skoð-
unar. „Mér finnst það eigi ekki að loka á
það að bankarnir taki við þessum lánum,
það á frekar að vera á hinn veginn." Sama
segir Guðjón Hjörleifsson, sem vill heldur
sjá þessi lán hjá bönkunum. „Þetta á ör-
ugglega eftir að skapa töluverða umræðu í
þinginu. Auðvitað er þetta ekkert óbreyt-
anlegt, það er hægt að endurskoða þessa
ákvörðun hvenær sem er.“
Sigríður Anna Þórðardóttir, fyrrverandi
formaður þingflokksins hafði ekki kynnt
sér ákvörðunina. Aðspurð hvort hún væri
almennt fylgjandi því að íbúðarlán væru
innan bankakerfisins neitaði hún að segja
skoðun sína og sagðist vera í fríi. Núver-
andi formaður þingflokksins, Einar K. Guð-
finnsson, er staddur erlendis og hafði ekki
kynnt sér ákvörðunina. „Almennt get ég þó
sagt að ég get alveg hugsað mér að stíga
skref í þá átt að færa íbúðarlánin til banka-
kerfisins en ég hef ekki hugsað mér að
hverfa frá ríkisábyrgð á iánunum."
Kjartan Ólafsson, varamaður Árna R.
Árnasonar, vill einnig fara varlega í breyt-
ingar á kerfinu. „Það er samt sem áður alls
ekki hægt að útiloka það ennþá að hús-
næðislánakerfið í heild sinni færist til
bankanna.'1 Arnbjörg Sveinsdóttir, vara-
maður Tómasar Inga Olich, segist hafa trú
á að bankarnir geti sinnt þessari þjónustu
betur. „En áður en farið verður að ræða
þetta við bankana þarf auðvitað að ná jafn-
vægi á bankamarkaðnum" segir Arnbjörg
og vfsar þar til umræðu um hagnað og
hárra vaxta bankanna undanfarið. Raunar
hafa margir velt fyrir sér tímasetningunni á
þessari ákvörðun og leitt að því getum að
hún hafi verið valin með tilliti til þeirrar
gríðarlegu gagnrýni
sem bankarnir
hafa sætt á
undanförnum
dögum sem
gerir þeim ill-
mögulegt að
setja sig upp á
móti þessari
ákvörðun.
Ekki náðist í
fjármálaráð-
herra vegna
málsins.
brynja@dv.is
meðí ÞÍ!^D™aSsSstSlisÍSi„í'Ssaf ne‘.“nl ó4na!ffl"
a húsnæðismarkaði skuli vera ^8’1 að endurskipuJagning
Ibúðalánasjóð." samrænu við markmið um
bankana? “masetrung valin vegna neikvæðrar umræðu um
til að draga mmXaTvai tamtffaðT3’ ^ ^ Gngin ástæða
ar vinnu." °m,ð að ^essum timapunkti í okk-
Arns Magnusson,
f«3agsmá3atrá<ðhefra
Guðlaugur Þór
Þórðarson
„Sé enga ástæðu til að
byggja upp fleiri opin-
bera banka."
Ásta Möller
„Mdekki loka á það að
bankarnir taki við þess-
umtánum."
Guðjón
Hjörleifsson
„Þetta á örugglega
eftir að fá töluverða
umræðu í þinginu."
Einar K.
Guðfinnsson
„Vil stiga skrefin iþá
átt að færa íbúðatán til
bankanna."
Kjartan Ólafsson
„Ekki hægt að útiloka
að húsnæðislánakerfið
færist til bankanna.*
Arnbjörg
Sveinsdóttir
„Bankarnir geta sinnt
þessari þjónustu bet-
ur.“
Sigríður Anna
Þórðardóttir
Neitar að segja skoðun
sina á málinu og segist
vera i frii.
Fleiri álögur á landsmenn frá stjórnvöldum
Dýrasta bensín í heimi
vegna laga Alþingis
Bensínhækkun er yfirvofandi eft-
ir að Alþingi samþykkti, með 22 at-
kvæðum gegn 18, að breyta lögum
um vörugjald af ökutækjum og
bensíni. Þessi ákvörðun mun þýða
hækkun á hvern bensínlítra um 3,90
krónur. Verðið á bensínlítra, miðað
við fulla þjónustu, mun því fara í
99,90 kr. á mánudaginn kemur. Þar
með er íslendingum boðið upp á
dýrasta bensín í heiminum.
í tilkynningu frá Félagi íslenskra
bifreiðareigenda kemur fram að
miðað við yfirlýsingar og loforð
stjórnarflokkanna fyrir kosningar sé
þetta áfall fyrir þær fjölskyldur í
landinu sem eiga og reka bfl. Út-
reikningar þeirra benda til að vísi-
tala neysluverðs muni hækka unt
0,12% með tilheyrandi hældcunar-
áhrifum á aðrar skuldbindingar al-
mennings
Athygli vekur að 23 þingmenn
voru ijarstaddir atkvæðagreiðslu
sem fram fór um málið.
Aðeins er rúm vika síðan olíufyr-
irtækin drógu eitt af öðru hækkanir
á bensíni til baka en hækkanirnar
kölluðu á hörð viðbrögð. Þær hækk- ■
anir voru upp á eina krónu og hefðu
þýtt auknar álögur á bfleigendur um
195 milljónir á ársgrundvelli.
í ljósi þessara stærða er einsýnt
að álögurnar nema um 57 milljón-
um króna í desembermánuði og
hundruð milljóna á næsta ári.
Isafjörður Bensinlitrinn kostar lika næstum þvi 100 kall fyrir vestan. Enda islenskt bensin
dýrast.