Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2003, Side 14
14 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 15
Auömenn
Hefur umrót í íslensku viðskiptalífi
undanfarin misseri og ár skapað nýja
kynslóð auðmanna sem eiga í pening-
um, eignum og pappírum slíkar fúlg-
ur að annað eins hefirr ekki áður sést í
íslandssögunni? Hefur það frjálsræði
sem innleitt hefur verið í fjármálalíf-
inu síðasta áratuginn breytt hinu
næsta stéttlausa samfélagi - sem við
trúðum lengst af að við lifðum í - svo
mjög að skilin milli hinna ríku og ann-
arra eru orðin skarpari en nokkru
sinni hefur áður sést í landinu? Eða
hefur alltaf verið til staðar aðall sterk-
efnaðra manna á Islandi og áhyggjur
okkar af aukinni stéttaskiptingu því
meiri en ástæða er til?
Losnar um höftin
Það var fyrst á þessari öld sem
raunverulegar stefnur, eins og við
þekkjum þær, tóku að myndast í ís-
lenskum stjómmálum. Framan af
ríkti töluvert frelsi í viðskiptum en
ítök ríkisvaldsins og stofnana þess
fóm smátt og smátt vaxandi, ekki síst
í kjölfar kreppuáranna í kringum
1930. Þá var talið nauðsynlegt að rík-
ið kæmi myndarlega til skjalanna til
að hamla gegn atvinnuleysi og fátækt
og hið opinbera var síðan afar tregt til
að sleppa aftur því sem það hafði náð
tangarhaldi á. Því fylgdu síðan mikil
pólitísk afskipti af viðskiptum, 'at-
vinnulífi og raunar flestum sviðum
þjóðlífsins. Kaupin á eyrinni - í öllum
skilningi þeirra orða - réðust ekki síst
af þessum pólítísku afskiptum. Flest
var buncfið á klafa stjórnmálanna og
fulltrúar á þingi fóm með veldis-
sprota sinn eins og sjáaldur auga
síns.
Eilítið var losað um þessi afskipti
þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks, Viðreisnarstjórnin, tók
við völdum árið 1959. Hún var við
völd fram til 1971 og hin síðari ár
hafði óneitanlega dregið allmikið úr
„frelsisvæðingunni" sem henni fýlgdi
í byrjun. En þróunin var hafin og
næstu áratugi losnaði smám saman
um þau sterku tök sem stjórnmála-
menn höfðu á viðskiptalífinu. Vextir
vom gefnir frjálsir árið 1985 og síðar
var opnað fýrir frjálsa íjármagns-
flutninga milli landa, frelsi fyrirtækja
til verðákvarðana var gefið ffjálst og
almennt talað hafði Island verið opn-
að; og varð hluti af hinu alþjóðlega
viðskiptasamfélagi. Þá fór virkur
hlutabréfamarkaður að myndast á fs-
landi laust fyrir 1990, sem varð til
þess að hleypa lífi í öll viðskipti á ís-
landi.
Þjóðarsáttin grundvöllur
Lengi fram eftir öldinni var það að-
eins fámennur hópur fólks á Islandi
sem var í einhverjum vemlegum áln-
um. Þá lá auðlegðin ekki síst í ættum,
svo sem ættum Hallgríms Benedikts-
sonar, Thorsaranna og Engeyjarætt-
inni en þessar ættir allar vom lengst-
um helstu valdastoðimar í Sjálfstæð-
isflokknum. Hin blokkin í viðskiptalíf-
inu var svo Sambandið, sem tengdist
Framsóknarflokknum. f báðum hóp-
um vom forríkir einstaklingar en þeir
náðu samt á einhvern hátt að laga sig
svo að samfélaginu í kringum sig að
auður þeirra vakti á endanum ekki
verulega athygli eða andúð.
Bæði þessi veldi em nú á fallanda
fæti þótt eftir sem áður séu sterkefn-
aðir einstaklingar innan um, bæði í
hinum gömlu ríkramannaættum og í
leifum Sambandsins. En í staðinn em
komnir nýir auðmenn sem slá að
margra mati auðmenn fýrri tíma alveg
út.
Halda má því ffam að nokkur at-
riði hafi öðru ffemur lagt gmnn að því
að, til þess að gera, fámennur hópur
hafi náð að hagnast svo vel á sfðustu
ámm að auður einstakra manna sé
talinn í hundmðum milljóna, ef ekki
milljörðum. Það sem hér skiptir ef til
Óskar Guðmundsson um ríkidæmi fyrri alda
Erfðasyndir felia auðmenn
„Það hefur aldrei ríkt logn og
friður um ríka Islendinga," segir
Óskar Guðmundsson blaðamaður
sem síðustu ár hefur einbeitt sér
að samantekt bóka í ritröðinni
öldin okkar. Undanfarið hefur
hann skrifað bækur um miðaldir,
12. til 15. öld íslandssögunnar.
Veldi duga í hundrað ár
„Oft hafa mikil auðæfi safnast
að einstökum ættum og fjölskyld-
um en þeir fjármunir hafa hins
vegar ekki reynst endingargóðir.
Það veldi sem peningar eða eignir
skapa þessu fólki duga í hundrað
ár eða svo. Síðan fjarar veldi þess
út. Þetta virðist vera að gerast enn
í dag,“ segir Óskar. Hann bætir því
við að á 14. öld, en einkum þeirri
15., hafi margir býsna auðugir ís-
lendingar verið við lýði.
„Þeirra frægastur var líklega
Vatnsfirðingurinn Björn Einars-
son Jórsalafari. Dóttir hans var
Kristín og hennar sonur Björn,
maður Ólafar ríku á Skarði á
Skarðsströnd, sem sjálf var dóttir
hins ríka og glæsilega Lofts Gutt-
Söguritarinn „Aldrei ríkt logn og friður
um ríka fslendinga," segir Óskar Guð-
mundsson rithöfundur.
ormssonar. Eru Björn og Ólöf
raunar fræg; allir þekkja þau um-
mæli sem höfð eru eftir Ólöfu er
karl hennar var veginn; að ekki
þýddi að gráta Björn bónda heldur
skyldi safna liði. Óskar nefnir
einnig til sögu Guðmund Arason á
Reykhólum, sem á sinni tíð átti
jarðir um alla Vestfirði og var einn
efnaðasti maður sinnar tíðar.
Fallið falið í tvennu
Margir af þessum Islendingum
fyrri alda, sem komust í góðar áln-
ir, voru sannkallaðir heimsborgar-
ar, enda þurfti talsverða fjármuni
til utanferða og í risnu. „Hnignun
og faU auðugra manna er yfirleitt
falið í tvennu; annars vegar bera
þeir sjaldnast gæfu til að deila
auðnum með fjöldanum, samfé-
lagi sínu. Hins vegar verður gamla
erfðasyndin, ágirndin, þeirn . að
falli," segir Óskar.
Að mati Óskars er blekking í
þeirri söguskoðun að átök á fyrri
öldum hafi fýrst og síðast verið
milli ætta. „Guðmundi ríka á
Reykhólum var til dæmis steypt af
stóli af tengdafólki sínu. Þegar
kemur að baráttunni um auð,
forrræði, völd og áhrif rofna öll
ættar- og fjölskyldubönd. Þetta er
sígilt lögmál. Við sjáum þetta lög-
mál vinna f efnahagslífinu og póli-
tík dagsins í dag. Við höfum him-
inhrópandi dæmin fýrir okkur,“
segir söguritari Aldanna.
Sígræna
lí
;* 10 ára ábyrgð
t*-12 staerðir, 90 - 500 cm
t* Stálfótur fylgir
f* Ekkert barr að ryksuga
» Truflar ekki stofublómin
tá Eldtraust
Þarf ekki að vökva
t* íslenskar leiðbeiningar
r* Traustur söluaðili
í* Skynsamleg fjárfesting
, 1. hæð við Debenhams
Skátamiðstöðin Hraunbæ 123
‘mnss&n
vill mestu eru kjarasamningarnir sem
kenndir eru við þjóðarsátt og voru
undirritaðir snemma árs 1990. Segja
má að þá hafi böndum verið komið á
verðbólgudrauginn sem leikið hafði
lausum halda um langa hríð, öllum til
ama. Og um leið sköpuðust skilyrði til
að færa viðskiptalífið úr hinum póli-
tísku viðjum. Ríkið þurfti ekki lengur
að einbeita sér að því að standa á öll-
um bremsum, svo verðbólgan legði
ekki land og þjóð í rúst, og þá var hægt
að slaka á ýmsum hömlum. Beint í
kjölfarið gerðist Island síðan aðili að
Evrópska efnahagssvæðinu og þá .var
það beinlínis skilyrði að bönd yrðu
leyst af fjármálalífinu og pólitísíc af-
skipti minnkuð.
Kvótinn er þrætuepli
Annað mikilsvert atriði
sambandi er kvótakerfið;
sem fýrstu drög vom lögð
að árið 1983 og lögfest
fáum árum síðar. Með
frjálsu framsali afla-
heimilda hefur mörgum
tekist að koma ár sinni
ótrúlega vel fyrir borð og
efriast vel.
Margir hafa
horfið frá
þessu
m
^umsamair Mtur atnm m
‘sianás irraá bjáwráða/m
úr CmiÚQrfkíi srt irraá hon-
t/m hafa þair Bf&kgáifc?-
fedyar og ’Viayrrus Þcr^
It'nsxa úuykarric.
sjósókn, selt kvótann frá sér og fært
sig með fullar hendur fjár yfir í aðrar
atvinnugreinar. Ellegar farið að spila
á mörkuðum. Að hægt sé að selja frá
sér heimildir til að veiða óveiddan
fiskinn í sjónum, sem lögum sam-
kvæmt er sameign þjóðarinnar, og
hagnast þannig um gríðarmikla fjár-
muni hefur mörgum sviðið. Hafa
deilurnar um kvótann raunar verið
einhver mestu þjóðfélagsátök síðari
tíma á íslandi.
Og víst er það gömul saga og ný að
skipting auðæfa er þrætuepli manna
í millum.
Nýja hagkerfið
Þriðja atriðið f þessu sambandi er
hlutabréfamarkaðurinn sem spratt
upp í kjölfar aukins stöðugleika og
ffelsis í viðskipmm. Margir hafa
lagt peninga í atvinnu-
rekstur. Séu virk við-
skipti með fyrirtæki og
rekstur þeirra ábata-
söm getur það oft
skilað mönnum góð-
um gengishagnaði,
þótt dæmin séu vissu
lega á hinn veginn
líka.
f
Þarna má sérstaklega nefna „nýja
hagkerfið" svonefnda, sem byggjast
átti á nýjungum í tækni og vísindum,
ekki síst líftækniiðnaði og tölvusmíði
hvers konar. Á tímabili, það er fyrir um
þremur ámm, hækkaði gengi fýrir-
tækja á þessum vettvangi með ofsa-
hraða og margir fjárfestu í þeim. En
svo hmndi gengið og margir sátu eftir
með sárt ennið. Enda segir máltækið
víst að sýnd veiði sé ekki alltaf gefin.
Útrásarpeningar
aftur heim
Allar opinberar tölur staðfesta að
íslendingar em efnuð þjóð og að okk-
ur hefur almennt farnast vel. Væntan-
lega verður svo áfram; enda er búist
við nýju hagvaxtarskeiði á Islairdi.
En það sem ef til vill hefur vald-
ið mestum straumhvörfum er
útrás íslendinga sem hafa verið
að snúa aftur til fslands með
þá fjölmörgu aura sem þeim
hafa áskomast utanlands.
Björgólfsfeðgar og Akureyring-
urinn Magnús Þorsteinsson, fé-
lagi þeirra, em hér skýrt dæmi;
með bjórgróðanum úr Garða-
ríki hafa þeir sporð-
reist ís-
lenskt viðskiptalíf og víst em þeir fé-
lagar hvergi hættir, þar sem Lands-
bankinn er nú eins konar flaggskip
veldis þeirra - þótt þar sé Björgólfur
eldri nú reyndar að mestu einn við
stjórnvölinn.
Þá er Kaupþing Búnaðarbanki
orðið sem ríki í ríkinu og hefur mikil
umsvif bæði heima og heiman. Segja
stjórnendur bankans fyrirtækið
raunar fyrst og síðast vera alþjóðlegt
- og með því réttlættu þeir kauprétt-
arsamninga sem áttu að færa tveim-
ur mönnum nær 400 milljónir hvor-
um um sig. Þær ráðagerðir höfðu
raunar í för með sér fáheyrða geðs-
hræringu í síðustu viku. Þar kom
hvort tveggja til - samningarnir virt-
ust hafa í för með sér svo
óheyrileg laun að ekki
varð séð að þeir félagar
lifðu í sama landi og
mestallur almenningur -
og svo ef til vill hitt að
auðsöfnun hvers konar
er yfirleitt sem flís í auga
íslendinga, svo vön sem
þjóðin er næsta stétt-
litlu samfélagi
þar sem
jöfn-
Kristján Kristjánsson um ríkidæmi
„Ég hygg að fámennið skipti
talsverðu máli varðandi þá úlfúð
sem oft hefur skapast um fslend-
inga sem komast í góð efni,“ segir
Kristján Kristjánsson, heimspek-
ingur og prófessor við Háskólann á
Akureyri. „Það er merkilegt að eng-
inn virðist amast við því að íslend-
ingar búsettir erlendis komist í áln-
ir; fólk eins og Björk, Kristján Jó-
hannsson eða Eiður Guðjohnsen.
Það styrkir fámenniskenninguna.
Önnur skýring væri sú að íslend-
ingar sættu sig við að fólk á vissum
þjóðlífssviðum, svo sem í íþróttum
og menningu, efnaðist verulega en
ekki aðrir, til dæmis bankastarfs-
menn.“
Samsömun og samanburður
Kristján segir að ef til vill sam-
sami almenningur sig meira banka-
samsamar sig bankastjórum
manninum en afreksmanni í íþrótt-
um og finni því meira til smæðar
sinnar gagnvart hinum fýrmefnda.
„Ef hann rís of hátt fjárhagslega í
samanburði við almenning, sam-
kvæmt þekktri sálfræðikenningu
um samsömun og samanburð. Um
það hvemig menn baða sig einatt í
ffægðarljósi fjarlægra einstaklinga,
sem þeir finna þó til einhvers skyld-
leika við, en krumpast af saman-
burði við þá sem em í meiri nánd."
Aðspurður segir Kristján að lík-
lega geti sú kenning átt sér nokkum
stað að íslenskt þjóðfélag þoli ekki
nema ákveðinn fjölda manna sem
em í góðum álnum. „Líklega em
það hlutföEin milli manna sem
skipta hér meirá máli en fjöldinn. ís-
lendingar em flestaUir í góðum áln-
um miðað við íbúa Bangladesh, til
dæmis."
Kenningin er goðsögn
Sú kenning sem gjarnan er höfð
á hraðbergi að íslendingar séu tvær
þjóðir, þá með tilliti til efnahags
fólks, er að einhverju leyti goðsögn.
Sá sem búið hefrir í Bretlandi eða
Bandaríkjunum veit hvað raun-
veruleg stéttaskipting er.
„Hitt er svo annað mál hvort við
emm smám saman á leið inn í
þann heim - en við eigum sem bet-
ur fer talsvert langt í land þar. Ætli
fáir yrðu ekki tfi að halda fram
þeirri kenningu að skattar á íslandi
séu of lágir. Hins vegar mættu ís-
lenskir auðkýfingar læra meira af
kollegum sínum erlendis hvað
varðar framlög til góðgerðar- og
menningarmála og ef til vill mætti
umbuna meira fyrir slík framlög í PRÓFESSORINN „Islenskirauðkýfingar
skattalögum," segir Kristján að síð- geta lærtafkollegum sinum erlendis,"segir
ustu. Kristján Kristjánsson prófessor.
Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur
Ekki í hálfkvisti við
auðmenn fyrri tíma
Gífurlegar breyt-
ingar í athafnalífi
þjóðarinnar. Nýir
auðmenn fram á
sjónarsviðið og
valdaættir hopa.
En er byltingin að
éta börnin sín?
uður hefur lengst af verið meiri en
víða annars staðar.
Nú þegar það breytist hljóta lands-
menn að spyija sig siðferðilegra
spurninga um auð eins en örbirgð
annarra.
Byltingin étur börnin sín
Þá em ónefnd íslensk fyrirtæki sem
hafa verið að hasla sér vöU erlendis -
sem aftur hefur haft ýmis smitandi
áltrif í hagkerfinu hér heima. Má í
þessu sambandi meðal annars nefna
fyrirtæki eins og Baug, Pharmaco,
Bakkavör og önnur fyrirtæki í sjávarút-
vegi, Eimskip og Samskip og fleiri.
Athyglisvert er hins vegar í þessu
sambandi að þau fýrirtæki sem hvað
mestri gagnrýni hafa mátt sæta af
hálfu ráðamanna að undanförnu - í
orrahríð þar sem grægði hefur verið
lykilorðið - em einmitt þau sömu og
sprottið hafa upp og náð sér á strik í
krafti rýmri reglna í viðskiptalífinu.
Frelsisins, sem hefur í raun skapað
nýtt ísland. Er í þessu sambandi áleit-
in sú spurning hvort skepnan hafi snú-
ist gegn skapara sínum og byltingin
étið börnin sín, en oft er því haldið
fram að sú sé raunin.
sigbogi@dv.is
„Með fullri virðingu fýrir Jóni Ás-
geiri Jóhannessyni í Baugi og öðmm
ríkum köllum nútímans er ég
smeykur um að þeir komist varla í
hálfkvisti við auðmenn fýrri tíma, ef
við skoðum hlutfallslegt ríkidæmi
þeirra," segir Ámi Daníel Júhusson
sagnfræðingur.
„Ef við skoðum til dæmis tímann
kringum 1400-1500 vom fáeinir ein-
staklingar á íslandi svo ríkir að við
höfum aldrei séð þeirra líka, hvorki
fýrr né síðar. Þetta vom Guðmundur
ríki, Loftur Guttormsson, Bjöm ríki
á Skarðsströnd og Ólöf kona hans.
Þau áttu hvert um sig um það bil 400
jarðir en þá voru jarðir á Islandi um
það bil 4.000. Þar sem jarðimar vom
í reynd undirstaða aUrar eignar í
landinu má segja að eign hvers
þeirra hafi verið um það bU 10% af
öllum þjóðarauðnum. Þótt Jón Ás-
geir og félagar eigi nú öllu stærri hlut
af þjóðarkökunni en við hin, efast ég
um að hlutur þeirra komist nokkurs
staðar nálægt 10%. Um svipað leyti
áttu biskupsstólarnir Hólar og Skál-
holt hvor um sig um 350 jarðir, svo
það segir sig sjálft að ekki var mikið
eftir handa óbreyttum almúganum.
F.n um þetta leyti vom kjör alþýð-
unnar þó ekki ýkja slæm, að
minnsta kosti ekki verri en víða í
Evrópu og betri en sums staðar ann-
ars staðar. Það var ekki fyrr en á
seinni öldum sem kjör almúgans
urðu verulega slæm. Og þá söfnuðu
menn líka sjaldan öðmrn eins auði
og þessir fjórmenningar gerðu. Það
hefrir verið reiknað út að íslensku
auðmennirnir um 1400 vom svona
Arni Daníel Júlíusson sagnfræðingur
Hlutfallslega var Guðmundur rlki miklu rlk-
ari en Baugsfeðgar.
ámóta ríkir og meðal-aðalsmenn í
Danmörku. Ríkustu aðalsmennirnir
í Danmörku og öðmm löndum voru
miklu ríkari en Islendingarnir, en
hér vom þó alveg prýðUega mUdir
auðkýfingar. Enda héldu þeir sig
margir feiknavel og ýmis höfuðból á
íslandi á fýrri tímum vom litlir eftir-
bátar herragarðanna í Danmörku að
ríkidæmi.
Þessunt auðæfum fylgdu líka -
eins og jafnan er- mUdl pólitísk völd
og áhrif. Helsti munurinn á auð-
mönnum fyrri tíma og þeim sem nú
em ríkastir, er sá að í þá daga var lít-
ið um fjárfestingar. Auðkýfingarnir
hirtu tekjumar af eignum sínum en
hirtu lítið um að búa til úr þeim eitt-
hvað nýtt. Þeir söfnuðu auðnum og
eyddu honum, en stóðu ekki í fjár-
festingum eins og kapítalistar síðari
tíma og nútímans."
Eltíheitt afmælistilboð
við erum orðnir eldgamlir
í tilefni af 80 ára afmæli Ólafs Gíslasonar & Co. hf.
bjóðum við 15% afslátt af eftirfarandi búnaði í næstu
viku, einstaklega gott tækifæri til þess að eignast
eldvarnabúnað á lægra verði.
Hafið samband við söluaðila:
Húsasmiðjan // Verslanlr um allt land
Ellingsen // Grandagarði, Reykjavlk
Raflagnaverslunin Rafsól // Skipholti, Reykjavfk
Rafmætti // Firðl, Hafnarfirði
Eldvörn // Þjóðbraut, Akranesi
Tómas Sigurðsson ehf. // Stekkjarholti, Ólafsvík
Slökkvlstöðin // Isaflrðl
Bland f poka // Eyrarlandi, Hvammstanga
Slökkvistöðin // Sauðárkróki
Eldvarnamiðstöð Norðurlands // Austursfðu, Akureyri
Slökkvistöðln // Húsavfk
Slökkvitækjaþjónusta Austurlands // Strandgötu, Eskifirði
Slökkvlstöðin // Fáskrúðsfirði
Slökkvitækjaþjónusta Hornafjarðar // Höfn
Jósep Benediktsson // Varmadal, Hellu
Slökkvistöðin // Flúðum
Brunavarnir Árnessýslu // Slökkvistöðin, Selfossi
Slökkvistöðin // Hveragerði
Slökkvitækjaþjónustan // Vestmannaeyjum
M ÁBA ŒA ©íiLAIOKI i C@. HF.
srofNAD 1923 Sundoborg 3 • Sími 568 4800 • www.olafurglsloson.is
i^iimimiiimiiiiii