Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2003, Blaðsíða 16
76 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER2003
Fókus DV
Morgunmatur
„Ég fer yfirleitt aldrei neitt út að borða á
morgnana. Fæ mér bara eitthvað fljótlegt
og hollt heima. Myndi sennilega fara eitt-
hvert þangað sem ég fengi eitthvað fljót-
legt."
Hádegisverður
„Oftastferégá
Subway eða kaupi
mér Hlöllabát,
nánast alltaf eitt-
hvert brauðmeti. Er
reyndar farinn að
fara mikið á
Reykjavík Bagel Company á Lauga-
veginum þar sem ég fæ mér góm-
sæta beyglu með hinum og þessum
áleggstegundum. Þar er mikið úrval af
beyglum og allskonar nýbökuðu
brauði."
Djammið
„Það er bara ósköp misjafnt. Fer aðallega
eftir stemningu en annars er það bara
týpíski hringurinn sem er alltaf tekinn. Þá
ferég
helstá
Sólon,
Hverfis-
barinn,
Felix og
Gaukinn
en það ræðst bara á því hvernig skapi mað-
ur er i. Samt fer ég langoftast í bíó
þegar æfingarnar hjá mér eru
strangar."
Örn Arnarson sund-
kappi Italia og Caruso
eru uppáhalds veit-
ingastaðirnir.
Kvöldverður
„Veitingastaðirnir Ítalía
og Caruso eru í miklu
uppáhaldi hjá mér. Þar
fær maður mjög góða
þjónustu og rosa gott
að borða. Panta mér
helstgóðan pastarétt
þegar ég fer á ftalíu og
á Caruso fæ ég mér
góða, alvöru steik."
Eftirlætis
verslun
„Mjög misjafnt. Fer bara eftir
því hverju ég er að leita mér
að í hvert skipti. Skemmtilegast
finnst mér samt að fara inní GK ef
maðurá einhverja peninga og ætlar
að kaupa sér eitthvað fallegt. Levi's
búðin er líka góð og ég kíki líka alltaf
annað
slagið inn í
Spútnik.
Skókaupi
ég mér oft-
ast í Puma-umboðinu þar sem ég er á
samning hjá Speedo og sama fyrirtæk-
ið flytur skóna inn."
Heilsan
„Laugin undan-
tekningarlaust.
Fer gjarnan í Ár-
bæjar- og Laugar-
dalslaugina, kíki í
pottinn og hef það
næs. Ég fer lítið ofaní
til að synda þegar
ég fer í sund til að slappa af."
Á mánudagsmorgun, 1. desem-
ber, eru liðin rétt tuttugu ár frá því
Rás 2 hóf útsendingar. Mun Ríkisút-
varpið rækilega minnast þeirra tíma-
móta á næstu dögum og meðal
annars verður laugardagsþáttur
Gísla Marteins Baldurssonar í Sjón-
varpinu sérstaklega helgaður þess-
um tímamótum. „Ég tel að Rásin hafi
elst vel og tekist að halda sfnu með
ágætum. Á þessum tuttugu árum
hefur veruleikinn í íslenskri fjölmiðl-
un breyst mjög rnikið og stöðvum
fjölgað, en Rás 2 hefur samt haldið
sinni sérstöðu; sem er að vera útvarp
í almannaþjónustu sem leggur
áherslu meðal annars á þjóðfélags-
umræðu og alla vaxtarsprota í tón-
list. Ég tel til dæmis að stuðningur
hennar við íslenskar hljómsveitir
hafa reynst mörgum þeirra mikil-
vægt veganesti," segir Jóhann
Hauksson forstöðumaður Rásar 2.
Þjóðarsál og svæðisstöðvar
Fyrsti stjómandi Rásarinnar var
Þorgeir Ástvaldsson og mótaði hann
starfsemina í upphafl. Útsendingar-
tíminn var þá mjög takmarkaður,
það er frá 10 - 12 og 14 - 18 virka
daga. Starfsemin efldist síðan í fyll-
ingu tímans og mest með dægur-
málaútvarpinu sem hófst árið 1987.
Það sá um morgunútvarp alla virka
daga. Einnig síðdegisþáttinn Dag-
skrá, en hluti af henni var hin víð-
Forstöðumaðurinn „Ég telað Rásin hafi
elst vel og tekist að halda sínu með ágæt-
um," segirJóhann Hauksson.
fræga Þjóðarsál sem Stefán Jón Haf-
stein annaðist. Þar var efnt til kapp-
ræðna um þjóðmálin hvern rúm-
helgan dag - og tókst þannig til að
þættir þessir em enn í minnum
hafðir.
Að norðan og sunnan
Árið 1987 varð Rás 2 einnig sólar-
hringsútvarp þannig að segja má að
hún hafl þá verið farin að taka á sig
þá mynd sem hún hefur enn í dag:
Útsending allan sólarhringinn, mikil
tónlist og ríkuleg umfjöllun um dæg-
urmálin og íþróttir, auk samvinnu
við ungt fólk. Þessu til viðbótar hafa
komið sífellt öflugri tengsl við svæð-
isstöðvar um allt land.
Útvarpskonan IngerAnna Aikman við
hljómnemann, en hún var umsjónarmaður
vinsælla þátta i árdaga Rásar2.
Á síðasta ári vom gerðar skipu-
lagsbreytingar innan Ríkisútvarps-
ins, meðal annars á þann veg að nú
em höfuðstöðvar Rásar 2 norður á
Akureyri og Jóhann Hauksson var
ráðinn forstöðumaður. Á afmælinu
verður lögð áhersla á frumkvöðla-
starf Rásar 2 sem meðal annars er
tónlistarflutningur og samvinna við
tónlistarmenn, þjónusta við landið
með svæðisútvörpum og ýmsir ung-
lingaþættir.
Jóhann Hauksson segir að vel hafi
tekist til með að samkeyra útsend-
ingarnar frá tveimur landshornum;
Akureyri og Reykjavík. Allt hafi þetta
slípast og starfsmenn jafnt sem les-
endur vanist fyrirkomulaginu.
Söluhæstu bækurnar
Árás á Goðafoss vinsælust
Bach á aðventutónleikum
í Hallgrímskirkju
Útkall - Árás
á Goðafoss eftir
Óttar Sveinsson
er vinsælasta
bókin á íslandi
um þessar
mundir, ef
marka má söl-
unaíverslununt
Hagkaupa síð-
ustu vikuna.
Ævisaga knatt- Óttar Sveinsson
spyrnukappans Höfundur vinsælustu
David Beckham ^öLarinnar á Islandi.
kemur þar á eftir og þriðja vin-
sælasta bókin er ævisaga Lindu Pét-
ursdóttur eftir Reyni Traustason.
Jólasalan er rétt að fara í gang
þannig að listinn gæti breyst nokkuð
á næstu vikum. Fleiri íslenskar ævi-
sögur eiga örugglega eftir að skríða
upp listann, rétt eins og skáldsög-
urnar.
Útkall - Árás á Goðafoss Óttar Sveinsson
David Beckham Engum líl ur
Linda - Ijós og skuggar ReynirTraustason
Harry Potter og Fönixreglan J.K. Rowling
Einhvers konar ég Þráinn Bertelsson
Skuldaskil - ævisaga Sverris Hermanns Pálmi Jónasson
Bettý Arnaldur Indriðason
110 bestu furðufréttir Sveppi og Simmi
Hvað segir þitt hjarta?
Heimur spendýranna David Attenborough
Ösköpin öll
DaVinci lykillinn Dan Brown
Strandanornir Kristín Helga Gunnarsdóttir
Rauða serían saga mánaðarins
Dætur Kína Xinran
Artemis Fowl Læsti teningurtnn
Höfuðskepnur álfheima Ólafur Gunnar Guðlaugsson
Ambáttin Mende Nazer/Damien Lewis
Ensku rósirnar Madonna
Blóðregn Embla Ýr Bárudóttir/lngólfur Björgvinsson
Listinn tekur mið afsöluhæstu bókunum i verslunum Hagkaupa síðustu vikuna.
Matreiðslubókum sem fást einungis þar er sleppt.
Á morgun er fyrsti sunnudagur í
aðventu og býður Listvinafélag Hall-
grímskirkju upp á flutning á tveimur
aðventukantötum eftir Johann
Sebastian Bach, fyrst í guðsþjónustu
sem hefst.kl. 11 og síðan aftur á tón-
leikum kl. 17 og verða þá einnig
fluttir þrír orgelforleikir Bachs yfir
aðventusálminum „Nú kemur
heimsins hjálparráð." Markar þetta
upphafið á 22. starfsári Listvinafé-
lagsins.
Flytjendur eru Schola cantorum
og einnig verða fjórir einsöngvarar í
kantötunum. Kammersveit leikur
undir á meðan þrír af efnilegustu
söngvurum þjóðarinnar stíga á
stokk. Það eru þau Guðrún Edda
Gunnarsdóttir og systkinin Hallveig
Rúnarsdóttir og Þorbjörn Rúnarsson
og einnig syngur breski bassasöngv-
arinn Alex Ashworth sem hefur vak-
ið mikla hrifningu í heimalandi sínu
Hörður Áskelsson verður íhlutverki
stjórnandans á aðventutónleikunum á
morgun
upp á síðkastið. Björn Steinar Sól-
bergsson leikur einleik á Klais-orgel
en stjórnandi er Hörður Áskelsson.
-ari@dv.is