Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2003, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAQUR 29. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Einar Lee hefði ekki þurft að missa
sjónina. Hann tók ekki lyfin sín við syk-
ursýki, þrátt fyrir að vita að það leiddi
til blindu. Hann er þakkiátur fyrir
reynsluna og segir sjónleysið lærdóm.
Einar Lee vaknaði upp blindur
á öðru auga í febrúar árið
2000. Á þjóðhátíðardaginn
sjálfan, sama ár, þegar jarðskjálft-
ar skóku jörðina og hundruð flúðu
heimili sín, missti hann sjón á hinu
auganu. „Síðan hef ég ekki horft
yfir íslenska jörð,“ segir Einar, sem
nú er þrjátíu og tveggja ára.
Æðarnar sprungu í augum Ein-
ars og þau fylltust af blóði vegna
þess að hann tók ekki þau lyf sem
hann þurfti á að halda við sykur-
sýki. „Ég vissi að ég yrði blindur ef
ég fylgdist ekki vel með blóð-
sykrinum og tæki lyfin reglulega.
Þetta er að öllu leyti sjálfum mér
að kenna - ekki læknum eða ein-
hverjum öðrum - þetta eru mínar
eigin misgjörðir,“ segir Einar, nú
þremur árum seinna. „Ef ég hefði
tekið lyfin væri ég væntanlega ekki
í þessari stöðu í dag.“
„Ég veit að það er erfitt íyrir aðra
að skilja þetta“, segir Einar. Söguna
má rekja aftur til ársins 1986, þegar
Einar var 15 ára og greindist með
sykursýki. Ég var skammt frá því að
detta niður dauður og hefði eflaust
gert það ef mér hefði ekki verið
komið á spítala. Fyrst gekk þetta
vel, ég tók lyfin reglulega, en það er
erfitt fyrir 15 ára krakka þegar við
hann er sagt að hann megi aldrei
aftur borða nammi og ég var
hræddur við þessar risastóru
sprautur sem mér var sagt að ég
þyrfti að sprauta mig með reglulega
næstu 50 árin.“
Afneitaði sjúkdómnum
Einar gifti sig 23 ára, en sam-
bandið gekk illa og endaði með
skilnaði ári síðar. „Þá hófst hjá mér
einhvers konar afneitun á lífinu, og
þar með sjúkdómnum. Ég gaf bara
skít í þetta, hugsaði ekkert um fram-
tíðina, var mikið á djamminu og
hugsaði eiginlega bara um að
skemmta mér sem best. Tók einn
dag í einu í því að finna út hvað ég
gæti gert til að skemmta mér og
hugsaði ekkert um afleiðingarnar.
Ég fylgdist illa eða ekkert með blóð-
sykrinum og lifði í raun eins og ég
væri ekki með þennan sjúkdóm. Tók
bara lyfin með höppum og glöppum
og einhvern veginn - stundum ekk-
ert.“
Þetta tók sinn toll af heilsu Einars
og fyrir kom að hann féll hreinlega
niður. Blóðsykurinn mældist þá 50,
en eðlilegt magn er 4-7. Þrátt fyrir
það hélt hann sínu striki. „Ég veit
ekki hvort það má kalla þetta
sjálfseyðingarhvöt. Ég var mjög
kærulaus, safnaði miklum skuldum
og var hrikalega þunglyndur. Það
hefur eflaust spilað inn í,“ segir Ein-
ar. I tvö ár lifði hann eins og sjúk-
dómurinn væri ekki til. Þáttaskil
urðu þegar hann kynntist fyrrver-
andi sambýliskonu sinni.
„Líf mitt komst í fastari skorður,
ég fór að vinna hér og þar, meðal
annars hjá Bónusi. og lærði þar
mikinn vinnuaga". Þremur árum
seinna kom reiðarslagið - afleiðing-
ar lífernis hans þessi tvö ár. „Ég er
nú algerlega blindur á hægra auga
en með 8% sjón á því vinstra." Þessi
örlitla sjón senr hann þó hefur er að
þakka sjö aðgerðum sem gerðar
hafa verið á augunum. „Eftir 4-5 ár
verður hún farin líka,“ segir Einar,
og reynir að lýsa því fyrir sjáandi
manneskju hvernig hann sér. „Það
litla sem ég sé er hulið grárri móðu,
og ég sé best það sem er í arms-
lengd frá mér. I rökkri sé ég alls ekki
neitt.“
Blindan er lærdómur
„Þegar þetta var orðin staðreynd
helltist yfir mig svartnætti. I heilt ár
lá ég bara heima og hlustaði á tón-
list og hljóðbækur. Það bjargaði mér
eiginlega að fara að vinna á vinnu-
stofu Blindrafélagsins árið 2001, þar
sem ég kynntist fólki og reif mig upp
úr þunglyndinu.“
Einar hefur verið öflugur innan
Blindrafélagsins. Hann var í at-
vinnumálanefnd, stjórn vinnustof-
unnar og formaður ungmenna-
deildar félagsins. Hann hætti því
hann vildi einbeita sér að námi og
að komast í starf utan vinnustof-
unnar, sem er einhæf pökkun og
framleiðsla. „Mér finnst þjóðfélag-
ið vera illa upplýst um hvað blindir
og sjónskertir geta gert á vinnu-
markaðnum. Við þurfum að fá
tækifæri til að sanna hvað við get-
um.“ Einar hefur sótt um ýmiss
konar vinnu, til dæmis tölvuvinnu
og símsvörun, en ekki fengið. Hann
er enn að leita.
„Ég reyni eins og ég get að vera
ekki alltaf að pæla í þessari fötlun
minni. Ég geri það sem mig langar
að gera. Ég er á kafi í golfi, og fólk
hreinlega gapir þegar ég segist dútla
við að gera við bfla. Laxveiðar eiga
líka ákaflega vel við mig og ég stend
mig betur þar en félagar mínir. Þeg-
ar þeir biðja um kennslu segi ég ein-
faldlega við þá að þetta byggist á því
að hafa tilfinningu fyrir stönginni,
en ekki að stara ofan í vatnið. Mig
þyrstir í þekkingu og les mjög mikið.
I augnablikinu er ég að lesa heilmik-
ið um líf- og lífeðlisfræði. Mér finnst
gaman að ræða allt milli himins og
jarðar, og vinir mínir kalla mig rök-
ræðusjúkling," segir hann og hlær.
Hann lítur á blinduna sem lær-
dóm. „Lífið byggist allt á því að læra.
Þetta er bara einn af lærdómum lífs-
ins, og ég sit enn og gapi yfir því sem
ég læri á hverjum degi. Ég hef upp-
götvað að lífið er svo langt frá því að
vera það sem ég hélt að það væri.
Þegar ég geng um, til dæmis í
Kringlunni, flnnst mér yndislegt að
hlusta og sjá ekki neitt. Þá heyri ég í
fólki þeytast milli búða til að kaupa
nýjustu hlutina og fötin, en það hef-
ur runnið svo rækilega upp fyrir mér
að allt þetta kapphlaup skiptir ná-
kvæmlega engu máli. Það er innri
maðurinn, þar er fegurðin. Sjáandi
fólk tekur ansi mörgu sem sjálfsögð-
um hlut - sem er það alls ekki.“
Lít ekki til baka
Það er í raun sami eiginleiki Ein-
ars og varð til þess að hann missti
sjónina sem hefur komið honum til
bjargar og gerir hann að þeirri
björtu manneskju sem hann er í
dag. Hann horfir einungis fram á
við, tekur einn dag í einu og hugsar
á hverjum degi um hvað hann geti
gert til að líða vel. Þeir sem setja sig
í spor hans spyrja hvort hann sé
ekki fullur eftirsjár vegna þess sem
hann hefur gert sjálfum sér. „Ég er
ekki reiður út í sjálfan mig. Þetta er
eitthvað sem lífið bauð mér upp á.
Ég hef þroskast heilmikið og er
ekki sami maðurinn og ég hefði
verið ef þetta hefði ekki gerst. Ég er
þakklátur fyrir það. Ég lít ekki til
baka og hugsa um hvern andskot-
ann ég var að pæla. Ég horfi fram á
við og gríp þau tækifæri sem mér
bjóðast. Stundum er ég dapur, eins
og gengur með alla, en ég hef alltof
mikið að lifa fyrir; sjálfan mig, vini
mína og fjölskyldu. Ef maður ætlar
að leggjast í þunglyndi gæti maður
alveg eins bara endað þetta líf."
brynja@dv.is