Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2003, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003
Fókus DV
t
r
t
l
»
t
!
Karlmenn eiga það til að vera verstu sóðar, hvort sem það snýr að
útlitinu eða að umhverfinu í kringum þá. Henný Sif Bjarnadóttir tók sér
sj ónvarpsþáttinn Queer Eye for the Straight Guy til fyrirmyndar og fékk
þrjá homma til að taka ungan piparsvein og íbúðina hans í gegn.
Að sögn Róberts, sem er klippari á Jóa&Fé-
lögum, er Tóti ekki maður sem hefur mikið
fyrir hárinu á sér; „ég klippti hann þannig að
línan haldist í hárinu á honum sama hvernig
hann hefur sig til. Alveg sama hvað hann gerir
er línan flott í því. Hann getur komið beint úr
sturtunni og látið það þorna en svo getur hann
lfka notað glue frá Paul Mitchell og þá er hann
tilbúinn í partýið. Þetta er svona klipping sem
krefst þess að hann greiði hárið það upp og ýfi
það aðeins til.“
Tóti var sendur í
Topman þar sem hann
hitti Jómba. Hann
klæddi Tóta mjög
smart og sagði honum
að sylgjubeltin væru
aftur komin í tísku.
„Hann er í jakkafata-
jakka, teinóttri skyrtu,
myndabol, gallabuxum
og takið eftir keðjunni
sem er algjört möst.“
„Það má leika sér miklu
meira með skyrtur í
dag, hafa þær frá-
hnepptar eða jafnvel
bol yfir. Svo eru jakka-
fatajakkarnir skilyrði
þessa dagana en þeir
passa við allt.“
Þrír Þrælfínir fóru á stúfana og fundu mann sem lýsingin að
ofan á fullkomlega við. Hann heitir Þórólfur Jarl Þórólfsson, Tóti
og er 22 ára gamall námsmaður. Hann býr í 40 fermetra íbúð við
Laugaveginn og er hún í algjörri steik að sögn Róberts, Guðlaugs
og Jónba sem leggja sig í líma við að breyta “straight" mönnum
og heimilum þeirra. Þeir fengu algjört sjokk þegar þeim var boð-
ið í heimsókn í íbúðina hans Þórólfs. Tóku þeir málin strax í sín-
ar hendur og fengu til liðs við sig stórverslunina IKEA og máln-
ingu frá Hörpu Sjöfn. „Heimilið er í henglum," sagði Gulli
þegar hann kom fyrst þangað inn. Eigandi heimilis-
ins gerði ekki mikið til að mótmæla þessum
ummælum Gulla heldur samsinnti
þeim enn frekar þegar hug-
myndaflugið hjá Þrem
þrælftnum fór í
gang.
b