Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2003, Blaðsíða 38
38 LAUQARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003
Sport DV
íslandsmeistarar Hauka eiga erfiðan leik fyrir höndum á morgun er þeir mæta Vardar Skopje á einum
erfiðasta velli Evrópu. Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg, spáir i leikinn fyrir DV Sport.
varaman
íslandsmeistarar Hauka í handknattleik leika sínn síðasta leik í
riðlakeppni meistaradeildarinnar á sunnudag er þeir mæta liði Vardar í
Skopje. Fyrir fram var búist við því að leikurinn myndi skera úr imx það
hvort liðið næði þriðja sæti í riðlinum og tryggja sér þar með rétt til
þátttöku í 16-liða úrslitum í Evrópukeppni bikarhafa. Sú varð nú aldeilis
ekki ratmin því stórkostlegur leikur Haukanna í Barcelona tnn síðustu
helgi, þar sem þeir náðu jafntefli, gerði það að verkum að þeir tryggðu sér
þriðja sætið í riðlinum og þar með réttinn til að mæta franska liðinu Creteil í
Evrópukeppni bikarhafa.
Það hefur verið mikið álag á Haukum
undanfarið en þeir voru vart lentir eftir
frægðarförina til Barcelona er þeir mættu
Blikum í RE/MAX-deildinni. Lítil hvíld var í
boði eftir þann leik því þeir flugu strax um
morguninn út aftur þar sem tók við langt og
strembið ferðalag til Makedóníu. Er heim
kemur tekur við erfiður leikur gegn ÍR
RE/MAX-deildinni á miðvikudagskvöld. Svo
bíður þeirra stutt ferðalag á föstudag er
þeir mæta Selfyssingum.
henry@dv.is
Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg,
þekkir orðið vel til Haukaliðsins þar sem
hann hefur mætt liðinu tvisvar undanfarið í
meistara-deildinni. Heimaleikinn unnu
lærisveinar Alfreðs næsta örugglega en lentu
svo í bullandi vandræðum er þeir komu á
Ásvelli. Þar stóðu Haukarnir í þeim allan
leikinn en góður endasprettur þýska liðsins
tryggði þeim sigur.
DV Sport setti sig í samband við Alfreð og
ræddi við hann um leik Hauka og Magdeburg
á Ásvöllum og fékk hann í kjölfarið til þess að
meta Haukaliðið og spá í leikinn í Skopje á
sunnudag.
„Við máttum hafa mikið fyrir sigrinum á
Ásvöllum. Haukarnir spiluðu mjög góðan
sóknarleik gegn okkur og strákarnir mínir
voru á sama tíma að gera nákvæmlega það
sem ég var búinn að biðja þá um að gera ekki.
Við hleyptum Pauzuolis - sem hafði ekki
leikið vel í leikjunum á undan - mjög mikið
inn í leikinn. Hann er engu að síður ágætis
skytta og við gerðum þau mistök að hleypa
honum í gjafafæri hvað eftir annað á
miðjunni. Þá sérstaklega í fyrri hálfleiknum,
og fyrir vikið byggðum við hann upp og hann
fékk aukið sjálfstraust. Varnarleikurinn hjá
okkur í þeim leik var fyrir neðan allar hellur.
Ég var langt frá því að vera ánægður með
vörnina því hún var skelfileg. Fyrir utan Fúsa
voru varnar-mennirnir mínir skelfilegir,"
sagði Alfreð en hann var samt ekki á því að
Haukarnir hefðu náð að koma honum á
óvart.
Haukarnir sterkir í sókn
„Nei, alls ekki. Ég vissi að á góðum degi
gætu þeir spilað slíkan bolta. Annað atriði hjá
okkur var að skjóta Birki Ivar ekki í stuð en
hann var mjög góður í þessum leik og varði
mikið úr dauðafærum. Vörnin var samt örugg-
lega ekki upp á sitt besta hjá þeim gegn okkur.
Vandamálið hjá okkur í þeim leik var að alltof
margir af mínum mönnum spiluðu illa.“
Alfreð var hrifinn af sóknarleik Haukanna í
þessum leikjum og telur sóknina vera þeirra
helsta styrkleika.
„Haukarnir hafa verið að sýna það að þeir
geta leikið alveg ágætis sóknarbolta. Þegar
varnirnar gefa þeim færi á að leika sinn bolta
eru þeir verulega skæðir. Þetta er ágætis lið.
Þeir spila skynsamlega sókn og taka sér góðan
tíma í stað þess að losa of snemma," sagði
Alfreð og bætti við að liðið væri ekki í nægilega
góðum málum ef Pauzuolis næði sér ekki á
strik.
„Það er í raun ekki mikið um skyttur ef
hann skorar ekki. Þá geta andstæðingarnir
spilað mun þéttari 6/0 vörn á Haukana."
Hrækt á leikmenn
Heimavöllur Vardar er einn sá alræmdasti í
Evrópu en þar komast áhorfendur upp með
að
ótrúlegustu hluti. Leikmenn mega þola
það sé hrækt á þá í tíma og ótíma,
ásamt því að alls kyns aðskotahlutum
er iðulega fleygt inn á völlinn. Svo eiga
þeir engan Þorgrím Þráinsson í
Makedóníu og starfsmenn
íþróttahússins kippa sér ekki mikið
upp við það þótt meirihluti
áhorfenda strompreyki meðan á leik
stendur.
Margir hafa líkt því við helvfti að
leika þarna og því má fastlega búast
við að róður Hauka verði þungur.
All'reð segir að þrátt fyrir aðstæður
eigi Haukarnir alveg möguleika á
að ná hagstæðum úrslitum.
„Ef Haukarnir ætla sér að ná
góðum úrslitum úr leiknum
verða þeir að leika jafn vel og
þeir gerðu gegn okkur á
Ásvöllum - og hugsanlega
betur. Þeir verða líka að gera
sér grein fyrir því að það
verður allt á móti þeim í
leiknum. Ef þeir standast
pressuna og hávaðann í
hús-inu eiga þeir alveg að
geta náð sigri. Á góðum degi
eru þeir ekki með síðra lið en
Makedónarnir. Því má samt
ekki gleyma að þetta
gríðarlega erfiður
völlur heim að
sækja. Það er
öllu
lauslega
fleygt af
áhorfendabekkj-
unum; sígarettustubb
um, mynt og fleira. Svo eru
áhorfendur óhræddir við að hrækja
á báða bóga. Sem betur fer er þó búið að
byggja yfir varamannabekkinn þannig að
leikmenn þurfa ekki að sitja þar lengur með
regnhlíf," sagði Alfreð og hló dátt.
Haukarnir eiga fullt erindi í keppnina
Akureyringurinn sterki er á því að
Haukarnir eigi fullt erindi í slfka keppni og
hann segir það mikilvægt fyrir íslenska
boltann að eiga lið í Evrópukeppni.
„Þeir eiga tvímælalaust erindi í þessa
keppni og það er mikilvægt fyrir íslenskan
handbolta að taka þátt í þessari keppni og
örugglega gaman fyrir leikmennina sem fá
mikla reynslu sem kemur þeim bara til góða.“