Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2003, Blaðsíða 43
r-
Raunasaga Snjókast þingmanna
Fyrstu dagar mínir í blaða-
mennsku og ég fæ það verkefni að
koma þingheimi úr þingsöl-
um og út í snjókast. Sem
hljómar kannski ekkert
svo galið, en að fá þing-
menn í snjókast er ekk-
ert grín. Mér skilst að ef
einhver svona snilldar-
hugmynd sé fram-
kvæmd hljóti viðkom-
andi mikinn heiður.
Sérstaklega á svona
ungu og fersku
blaði. Svo ég lít á
þetta sem soldinn
prófstein. Mitt
Henný
fyrsta verkefni. En kemst fljótlega að
því að þetta er eins og að reyna að fá
páfann til að dansa strippdans í
'beinni útsendingu.
Flestir þingmenn virðast vera of
mikið niðri á jörðinni til þess að geta
sprellað aðeins upp á gamanið. Og
eftir fyrstu símtöl mín inn á Alþingi
ákvað ég að fá bara unga þingmenn í
snjókast. Flestir tóku mér auðvitað
vel, enda ekki við öðru að búast við af
fólki sem er með umboð frá almenn-
ingi öllum til að þjóna okkur. Þetta
voru skemmtileg samtöl og ungu
þingmennirnir sögðu til dæmis: „Ó,
þá verð ég sko að koma með húfu!“
og „Æðisleg hugmynd, maður er nú
svoddan barn í sér.“ eða „Já, það
verður nú gaman að kaffæra stjórn-
ina.“
Svo ég mælti mér mót við þetta
unga og fallega fólk. En þegar á
hólminn var komið mætti næstum
því enginn. Þingmenn eru greinilega
„ali talk, no walk“. Við stóðum þarna
tvö, ég og Hari ljósmyndari, og þeir
einu sem mættu voru Birgir Ár-
mannsson Sjálfstæðisflokksmaður
og Ágúst Ólafur Ágústsson Samfylk-
Þingmenn eru
greinilega „all *
talk, no walk".
ingarmaður. Ég hafði boðað sex. Þrjá
úr stjórnarflokkunum og þrjá úr
stjórnarandstöðu. Og fékk tvo. Þeir
sem mættu ekki voru Sigurður Kári
Kristjánsson, Katrín Júlíusdóttir, Kol-
brún Halldórsdóttir og Bjarni Bene-
diktsson. Ég ætla rétt að vona að þau
hafi góða afsökun en mér er samt al-
veg sama. Því ekkert þeirra hafði fyrir
því að hringja og afboða. Svo ég veit 4..
liverja ég mun strika út í næstu kosn-
ingum.
■
SPÁMAÐUR.IS
0V Fókus
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 2003 43
W VatfíSb&m (20. þn.-W.febr.)
\\ -------------------------------------
Fólk fætt undir stjörnu vatns-
berans leggur sig fram af alhug þegar
vinátta er annars vegar, í lok nóvember,
þar sem heiðarleiki ræður ríkjum. Þér er
ráðlagt að vera ekki eigingjarn/eigin-
gjörn á ástúð annarra.
FiSkam (19. febr.-20.mars)
Fylgdu enn frekar þinni innri
rödd sem knýr þig stöðugt til dáða. Ekki
hika við að finna þér nýjar ögranir og
efldu skopskyn þitt með bjartsýnina að
vopni.
W’!ÚXmm(21.mars-l9.april)
Ef þú tapar ekki orku, styrk og
vilja til að framkvæma ættir þú fyrir alla
muni að halda áfram að rétta öðrum
hjálparhönd. Ef þú hefur hins vegar
hafið verkefni eða jafnvel nám, sem
virðist breyta aðstæðum þínum tölu-
vert, ættir þú að skipuleggja tíma þinn
mjög vandlega.
NaUtÍð (20. apríl-20. maí)
Einhver sem tengist þér virðist
ekki veita þér þá ást og hlýju sem þú
þarfnast, af einhverjum ástæðum. Ekki
bíða eftir að aðrir í kringum þig fram-
kvæmi fyrir þig hlutina.
Tvíburamirf/;. maí-21.júnl)
Þú ert án efa fædd/ur hugsuð-
ur og gerir þitt besta svo að öllum í
kringum þig líði vel. Gleymdu ekki eigin
draumum og reyndu að halda fast í
heiðarleikann næstu vikur.
Krabbinnf22.yiýn/-22./ú//ý___________
Um þessar mundir ættir þú að
leggja áherslu á léttlyndi innra með þér.
Þú býrð yfir óbilandi drifkrafti, gleymdu
því eigi þegar líða tekur á hátíðarnar
fram undan.
LjÓnÍð (21.júli-22. ágúst)
Þér er ráðlagt að halda fast í
viljastyrk þinn varðandi mál sem á hug
þinn allan þessa dagana. Hvorki leyfa
öðrum að ákveða hvert þú stefnir í
framtíðinni, ef þú stendur í dag frammi
fyrir ákvörðun, né dreifa kröftum þínum
að óþörfu um þessar mundir.
Meyjan (21. ágúst-22. sept.)
Þú sækist eftir velþóknun í fari
manneskjunnar sem þú unnir eða ert í
nánu sambandi við. Um þessar mundir
hefur þú án efa djúpstæða þörf fyrir ást
og væntumþykju, eða réttara sagt inni-
lega nálægð.
o Vogin (23.sept.-23.okt.)
Ekki vænta þess að vinir þínir
eða fjölskyldumeðlimir hafi sama smekk
og þú þegar kemur að áherslum tilver-
unnar. Jákvæð reynsla erfram undan
og engin ástæða til þess af þinni hálfu
að gera nákvæma og óhagganlega
áætlun varðandi framhaldið.
Sporðdrekinn /™j
Hreinsaðu hugann með því að
hugleiða stutta stund daglega en lærðu
að elska með því að elska að sama
skapi hérna. Finndu lykilinn að sérkenn-
um þínum með því að skoða sjálfið enn
betur en þú hefur gefið þér til tíma fyrir
undanfarið.
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.des.)
Gleði og stolt einkennir
stjörnu þína af einhverjum ástæðum
hérna, sem er sannarlega jákvætt þegar
stjarna bogmanns er annars vegar en
hér kemur einnig fram að þú ert fær
um að blanda saman innsæi og raun-
sæi og ættir að tileinka þér þann eigin-
leika framvegis.
Steingeitin (22.des.-19.janj
-J' Reyndu eftir fremsta megni
að forðast óþarfa áhyggjur sem kunna
að hvíla á herðum þínum þessa dagana.
Ekki ásaka sjáifið ef hindranir verða á
vegi þínum og trúðu á það statt og
stöðugt.
Sigurlaug Didda Jónsdóttir
Sigurlaug (Didda) Jónsdóttir skáld er 39
ára í dag. „Henni er ráðlagt að
ganga inn í hið óþekkta af
frjálsum vilja sem sýnir
hverja stund lífs hennar
sem áhugavert ævintýri
þar sem hún leikur að-
alhlutverkið af alúð.
Óvissa framtíðar er já-
kvæð því hið þekkta
sýniraðeinsfortið
konunnar," segir í
stjörnuspá hennar.
4 ferðir dregnar út á dag
á Töfrastundum VISA
Þú gætir hitt á Töfrastund þegar þú notar VISA
Heppnir VISA-korthafar sem greiða með VISA-kreditkorti og hitta á Töfrastund vinna
flugferð fyrir tvo með til Evrópu.
Það eina sem korthafar þurfa að gera er að nota VISA-kreditkortið þegar þeir versla og
eiga þá möguleika á að verða dregnir út. Dregið er úr færslum þannig að því oftar sem
þeir nota kortið því meiri möguleikar eru á vinningi.
Dregnar verða út 100 Töfrastundir á tímabilinu 1.-24. desember eða að jafnaði fjórar á
dag. Hringt verður f vinningshafa og nöfn þeirra birt á www.visa.is.
VISA ísland - Greiðslumiðlun hf. Álfabakka 16 109 Reykjavlk Sfmi 525 2000 Fax 525 2020 visa@visa.is www.visa.is
Hvert sem leiðin liggur
VISA UM ALLA FRAMTIÐ
VISA
Stjörnuspá