Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 39
Sport DV
DV Sport
Bikarmeistarar í nfunda sinn á aðeins 25 árum Skagamenn unnu FH-inga, 1-0,1 bikar-
úrslitaleiknum og nutu óskiptrar athygli Ijósmyndara i leikslok eins og sést vel á myndinni hér
að ofan.
Sigurður gerði sjöunda körfuboltaliðið að íslandsmeisturum Sigurður Ingimundar-
son gerði karlalið Keflavikur að Islandsmeisturum iþriðja sinn og vann jafnframt sinn 7.
meistaratitil sem þjálfari. Hann tók einnig við landsliðinu á árinu.
Náðu 7. sætinu á HM í Portúgal og tryggðu sig inn á ólympíuleikana í Aþenu 2004 Islenska handboltalandsliöið tryggði sig inn á ólympiuleika í
fyrsta sinn Í12ár og Ólafur Stefánsson var i aðalhlutverkinu sem fyrr.
DV birtir í dag
myndaannál frá
því helsta sem
gerðist í bolta-
greinunum á árinu
2003 sem nú er að
renna sitt skeið.
Boltaannáll 2003
Kominn inn í NBA-deildina Jón ArnórStefánsson varð annar Islendingurinn tilaðgera
samning við NBA-lið þegar hann samdi við Dallas Mavericks i septemberbyrjun. Jón Arnór
komst inn i leikmannahópinn en hefur ekki enn fengið að spreyta sig með liðinu.
Eiður Smári markahæstur í riðlinum Eiður Smári Guðjohnsen skoraði 3 landsliðsmörk á
*éninu og varð markahæstur í 5. riðli undankeppninnar með fimm mörk enhann átti þátt í
öllum mörkum Islands nema einu.
■Æ
Ásgeir og Logi með
landsliðið Asgeir Sigurvinsson
og Logi Ólafsson tóku við lands-
liðinu sem vann þrjá leiki i röð
og átti möguleika á sæti á EM
allt fram á siðustu minútu.
Markið sem dæmt var af Hermanni Hreiðarssyni í Þýskalandi Hermann Hreiðarsson átti frábæra leikigegn Þjóðverjum íundankeppni EM og skoi 'aði meðal annars
mark í stöðunni 1 -0 fyrir Þýskaland i seinni leiknum sem fram fór íHamborg. Rússneski dómarinn taldi Hermann hafa ýtt frá sér áður en hann skallaði bol tann i mark Þjóðverja.
Reuters
HI m
mmmm*
Báðir titlarnir í fjölskyldunni Þeir bræðurArnar Gunnlaugsson, Garðar Gunnlaugsson og
Bjarki Gunnlaugsson léku allir og skoruðu allir í Landsbankadeildinni siðasta sumar, Arnar (7)
og Bjarki (l)meðKR sem varð Islandsmeistari og Garðar (3) fyrir ÍA enhann tryggði liði sínu
bikarmeistaratitilinn.
Valskonur bikarmeistarar í níunda sinn Valskonur unnu bikarinn íniunda sinn eftir3-1
sigur álBVi úrslitaleiknum á Laugardalsvelli. Hér að ofan fagna stelpurnar titlinum með stæl.
Frábært ár hjá Ásthildi með KR og landsliðinu Ásthildur Helgadóttir var valin leikmaðurársins Ikvennaknatt-
spyrnunni annað áríð i röð og vann sinn niunda Islandsmeistaratitil á tólfárum með KR, þrátt fyrír að á liðinu dundi hvert
meiðslaáfallið aföðru. Ásthildur var fyrírliði KR, tók við Islandsbikarnum i fyrsta sinn og leiddi einnig landsliðið til góðs
árangurs, þar á meðal 10-0 sigurs á Póllandi. Ásthildur skoraði þrjú mörk fyrir landsliðið á árinu og erþar með orðin
markahæsti landsliðsmaður Islands frá upphafi - hefur skorað 18 mörk fyrír A-landsliðið, einu meira en Rikharður Jónsson.