Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003
Fókus DV
Fjórtán ára stúlka fannst látin í grennd við Carbondale í Illinois á aðventunni árið 1969. Lögregla var
ráðalaus og morðinginn virtist hafa gufað upp. Að morgni jóladags fundust tvær ungar konur myrtar.
Þá loks komst lögreglan á sporið.
Á morgni jóladags vöknuðu íbúar
Carbondale við skelfileg tíðindi.
Tvö morð höfðu verið framin í bænum.
„Lisa er farin heim," sögðu skólafé-
lagamir við móður Lisu Levering laug-
ardaginn 29. nóvember 1969. Það var
kalt í veðri þennan dag og Ann Lever-
ing ákvað að sækja dóttur sína í félags-
miðstöðina í Carbondale í Illinois í
Bandaríkjunum. Lisa, sern var fjórtán
ára, hafði yfirgefið félagsmiðstöðina
um hálfri stundu áður en móður
hennar bar að garði. Ann þótti þetta
skrýtið enda hefði hún átt að rekast á
dóttur sína þegar hún ók að félags-
miðstöðinni.
Ann Levering ók aftur heim. Húsið
var mannlaust og engin ummerki um
dótturina. Hún hringdi í vini dóttur
sinnar en enginn hafði haft spurnir af
henni. Þegar feið á kvöldið hafði Ann
samband við lögreglu og sagði víst að
eitthvað hefði komið fyrir dóttur sína.
Hún færi aldrei út án þess að láta vita
af sér.
Leit hófst þegar í stað og stóð fram
eftir nóttu en án árangurs. Daginn eft-
ir fengu lögreglumenn fyrstu vísbend-
inguna. Tvær ungar stúlkar sögðu frá
manni sem hefði stöðvað bíl sinn við
félagsmiðstöðina og boðið þeim far.
Þær höfnuðu boðinu. Stúlkumar lýstu
manninum sem 25 ára hvítum karl-
manni, með brúnt liðað hár. Bíllinn
var ljósleitur en þær vissu ekki hverrar
tegundar.
„Þetta gæti verið maðurinn. Hugs-
anlega hefur hann þröngvað dóttur
þinni inn í bílinn," sagði Hazel lög-
Sérstæö sakamál
reglumaður við Ann Levering. Leitin
að fjórtán ára stúlkunni hélt áfram af
fullum krafti og skömmu síðar fannst
annar skórinn hennar og taska. í tösk-
unni vom skilríki Lisu og aðrir munir
sem hún hafði jafnan meðferðis. „Mér
finnst líklegt að Lisa hafl gengið af stað
frá félagsmiðstöðinni og árásarmað-
urinn hafi elt hana. Hún hefur senni-
lega byrjað að hlaupa og misst skóinn
og töskuna á hlaupunum. Svo virðist
Játaði sekt sína Kenneth Rogers gafekki
viðhlítandi skýringar á morðæði sinu. Hann
játaði fúsiega sekt sína en sagðist ekki hafa
meira að segja um máiið.
Wilma Rogers Hún var
nýgift og hamingjusöm
þegar bundinn var endi á
lifhennar.
sem árásarmaðurinn hafi náð henni,“
sagði Hazel lögreglumaður.
Hundurtil aðstoðar
Lögreglumenn vom ráðþrota en
leitin að Lisu hélt áfram. Bæjarbúar
tóku þátt í leitinni en enn án árangurs.
Sex dögum síðar fengu lögreglumenn
aftur vísbendingu. Heimilishundur á
bóndabæ, um átta kílómetra frá Car-
bondale, kom heim með skó í kjaftin-
um. Húsmóðirin á bænum hafði heyrt
fregnir af hvarfi Lisu og lagði saman
tvo og tvo. Hún hafði samband við
lögreglu og við skoðun kom í ljós að
um skó Lisu var að ræða. Hundurinn
var fenginn til aðstoðar og leit hófst í
nágrenni bóndabæjarins. Hundurinn
leiddi lögreglumenn að stöðuvatni í
grenndinni og þar fannst iík Lisu
Levering. Tæknideild lögreglunnar var
kvödd á staðinn en hvorki fundust fót-
spor né för eftir bíldekk.
íbúar á svæðinu vom yfirheyrðir en
enginn hafði orðið nokkurs var. Ekki
fýrr en Lathin Downs, 24 ára verka-
maður, var yfirheyrður. Hann mundi
eftir ljósbláum bfl á svæðinu þremur
Lisa Levering Lifsglaður
unglingur sem átti sér einskis
ills von þegar hún gekk heim á
leið eftir skemmtun ífélags-
miðstöðinni.
dögum eftir að Lisa hvarf. „Hann var á
ferðinni um miðnættið. Ég held þetta
hafi verið Chevrolet og hann virtist
vera mannlaus," sagði Lathin. Réttar-
læknir úskurðaði sama dag að Lisu
hefði verið nauðgað og hún síðan
kyrkt. Hún hefði sennilega dáið fáein-
um stundum eftir að hún yfirgaf fé-
lagsmiðstöðina. Þekktir kynferðis-
glæpamenn í Carbondale og nágrenni
voru yfirheyrðir en ekkert kom út út
þvi.
Engin merki um átök
A morgni jóladags vöknuðu íbúar
Carbondale við skelfileg tíðindi. Tvö
morð höfðu verið framin í bænum.
Claude Worthern heimsótti Wilmu
dóttur sfna, sem bjó í hjólhýsi skammt
utan Carbondale, klukkan 1L um
morguninn. Wilma var 25 ára og var
nýgift Kenneth Paul Rogers, 29 ára, af-
greiðslumanni í bókaverslun. Enginn
svaraði þegar Claude knúði dyra í hjól-
hýsinu. Hann opnaði dyrnar og fór
inn. Við Claude blasti hreint hræðileg
sjón. Wilma lá á gólfinu og við hlið
hennar var nakin stúlka. Það var Bar-
Barbara Case Brúðarmær
Rogershjónanna. Hún bjó
hjá Rogershjónunum eftir
brúðkaupið.
bara Case, 22 ára, sem hafði verið
brúðarmær Wilmu. Barbara hafði
búið með nýgiftu hjónunum í nokkrar
vikur. Claude Worthern lét lögreglu
vita þegar í stað.
Réttarlæknir sem kom á staðinn
taldi að konurnar hefðu verið myrtar
kvöldinu áður. „Þær voru báðar myrt-
ar. Barböru Case var augljóslega
nauðgað og hún síðan kyrkt með raf-
magnssnúru. Wilma ber engin merki
um kynferðislegt ofbeldi," sagði James
Wilson réttarlæknir. Barbara hafði
einnig verið kyrkt og taldi Wilson kon-
urnar hafa verið myrtar með nokkurra
mínútna millibili.
Claude Worthern skýrði svo frá að
Wilma og eiginmaður hennar hefðu
ætlað að heimsækja sig á aðfanga-
dagskvöld. Þau hefðu ekki komið og
þegar þau svöruðu ekki síma að
morgni jóladags liefði hann ákveðið
að kanna málið. Hann kvaðst ekki vita
til þess að fólkið hefði átt í útistöðum
við glæpalýð eða verið hótað. Kenneth
Rogers var horfinn.
Tæknideild lögreglunnar skoðaði
hjólhýsið hátt og lágt. Það kom lög-
reglumönnum á óvart að engin merki
voru um átök í hjólhýsinu fyrir utan
lampa sem lá á hliðinni. „Ég velti fyrir
mér hvað hefur orðið um tengdason
þinn. Fötin hans eru hér og engin
merki þess að hann sé farinn í lang-
ferð," sagði Hazel lögreglumaður við
Claude Worthern. Bifreið Kenneths
stóð fyrir utan hjólhýsið og vakti það
grunsemdir um að Kenneth hefði
sjálfur orðið fórnarlamb ofbeldis-
manna.
Reyndi að hengja sig
Við eftirgrennslan kom hins vegar í
ljós að Barbara Case átti ljósbláan Ch-
evrolet en slíkur bfll hafði einmitt sést
í grennd við felustaðinn þar sem lík
Lisu fannst. Lýsing á Kenneth Rogers
og ljósbláa bílnum var þegar send til
Hjólhýsi Rogershjónanna Jólahald i
þessum híbýlum einkenndist afskeifiiegu of-
beldi. Tvær ungar konur voru myrtar á skelfi-
tegan hátt.
allra lögreglustöðva í grenndinni.
Ekki leið á löngu þar til leitin að bfln-
um bar árangur. Ljósblái bíllinn
fannst yfirgefinn nálægt bænum
Ripley í Tennessee. í framsætinu lá
óundirritað bréf. „Ég myrti Lisu
Levering. Ég myrti Barböru og eigin-
konu mfna. Ég elska hana mjög mikið.
Hvers vegna? Vegna þess að ég er
mjög, mjög veikur."
Lögregiumenn sáu blóðbletti á
stýrinu og á framsæti bflsins. Það gaf
til kynna að ökumaðurinn kynni að
hafa slasast. Það var þó ekki fyrr en
næsta dag að upp komst að vegalög-
reglan hafði tekið Kenneth Rogers
upp í lögreglubfl þar sem hann gekk
eftir þjóðveginum. Kenneth Rogers
sagði til sín og skýrði frá því að hann
væri meiddur á hendi eftir að hafa
reynt að skera sig á púls. Kenneth var
handtekinn með það sama og
hnepptur í gæsluvarðhaid. Við yflr-
heyrslur sagði Kenneth • lítið um
ástæður morðanna. Hann kvaðst hins
vegar hafa reynt að hengja sig í kirkju.
Roger Kenneth játaði brot sínu
fúslega í réttarsal. „Ég er sekur. Meira
hef ég ekki að segja," sagði hann.
Roger var dæmdur í tvöfalt lífstíðar-
fangelsi fyrir morðin á konunum
þremur. Skömmu áður en afplánun
dómsins hófst var Roger ákærður fyrir
nauðgun sem átti sér stað tveimur
dögum áður en hann myrti konu sína
og brúðarmey. Hann hlaut þriðja lífs-
tíðardóminn fyrir þann glæp. Hazel
lögreglumaður sagði að loknum rétt-
arhöldum að líkast til hefði lögregla
aldrei fundið morðingja Lisu Levering
ef Kenneth Rogers hefði ekki myrt
konu sína og vinkonuna, Barböru
Case.
arndis@dv.is