Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Blaðsíða 11
XJV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 11
Spennandi koíningar lieðic) eftir úrslitum.
Iramsókn var i lykilstoðu eftir kosningar eins og
ofl (íður. Sjrílfstædisflokkur topaði fjórurn
þingmónnum.
malaar
vik og átök
vilnun kemur til framkvæmda árið
2004. Ibúar á Hyjafjarðasvæðinu
sökuðu einnig ráðamenn um svik
þegar í ljós kom eftir kosningar að
Héðinsfjarðargöngum yrði frestað
um tvö ár. Ætlunin var að hefja
framkvæmdir við Héðinsfjarðar-
göng haustið 2004 og var efnt til út-
boðs. Ríkisstjórnin ákvað að taka
ekki lægsta tÚboði í ffamkvæmdina
vegnayfirvofandi þenslu íþjóðfélag-
inu vegna stóriðjuframkvæmda á
Austurlandi. Verkið yrði boðið út að
nýju árið 2006. Viðbrögð íbúa á
Eyjafjarðarsvæðinu voru mjög hörð,
og sögðust þeir ekki skilja hvaða að-
stæður hefðu breyst á tveimur mán-
uðum sem gæfu tilefni til frestunar.
Ákvörðunin var endurskoðuð og
gerð ganganna frestað um eitt ár en
ekki tvö.
Öryrkjamálið
Deilur um loforð og efndir, svik
og átök settu svip sinn á stjórnmála-
umræðu haustsins þegar rfkisstjórn-
in ákvað að verja milljarði króna í að
hækka bætur yngstu öryrkjanna,
samkvæmt nokkurs konar friðar-
samkomulagi sem gert var við Ör-
yrkjabandalagið. Útreikningar heil-
brigðisráðuneytisins gerðu ráð fyrir
að það kostaði 1500 milljónir að
efna samkomulagið, og reyndi Jón
Kristjánsson, heilbrigðisráðherra,
ítrekað að fá aðra ráðherra
til að samþykkja þá fjár-
hæð. Fjármálaráðherra
sagði við Jón að hann
fengi ekki meira en millj-
arð. Forsvarsmenn öryrkja sökuðu
•Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra
um svik. Einar Oddur Kristjánsson,
formaður fjárlaganefndar, sakaði
Jón um að hafa gert leynisamning
við öryrkja, og ráðherrar úr flokki
Jóns studdu hann ekki í baráttunni.
Öryrkjabandalagið hætti samvinnu
við ríkisstjórnina vegna Evrópuárs
fatlaðra 2004 og enn einn kaflinn var
skrifaður í átakamiklum samskipt-
um Öryrkjabandalagsins og rílds-
stjórnarinnar, og eru fleiri málsókn-
ir í burðarliðnum af hálfu banda-
lagsins. Eftir situr Jón Krist-
jánsson, beygður en ekki
brotinn, og vill sitja
áfram í rfldsstjóm.
Það vilja líka aðrir
ráðherrar Fram-
sóknarflokksins,
en þeim fækkar
um einn 15.
september, þeg-
ar Halldór As-
grímsson tekur
við forsætisráð-
herraembættinu og
utanrflds- og um-
hverfisráðuneyti
færast yfir til Sjálf
stæðisflokks.
Þungaskattur var
hækkaður og vöru-
gjald á bensíni, en
samtals mun þetta
auka tekjur ríkissjóðs
um einn milljarð á ári.
Bensínverð hækkaði í
kjölfarið, og þar með
var íslendingum
boðið uppá
dýrasta
bensín í
heimi.
Jón Kristjánsson
Ráðherrar Fram-
sóknarstuddu hann
ekki þegar kom að ör-
yrkjamálinu.
Ótrúlegar sviptingar urðu í viðskipta-
lífinu í ár og hefur eignarhald stærstu
fyrirtækja landsins gjörbreyst.
Tekist á um
völd og áhrif
Sala ríkisbankanna
Sala á tæplega lielmingshlut
rfkisins íLandsbankanum til Sam-
sonar varð að veruleika á síðasta
degi ársins 2002. Kaupverðið var
12,3 milljarðar króna, en lækkaði
um 700 milljónir í lok ársins vegna
afskrifta bankans. Þar með var
innreið Björgólfsfeðga í íslenskt
viðskiptalíf hafin. S-hópurinn svo-
kallaði keypti, ásamt þýskum fjár-
festingarbanka, tæplega helm-
ingshlut ríkisins í Búnaðarbank-
anum á 11,9 milljarða króna. í
hópnum em Egla hf., VÍS, Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn og Eignar-
haldsfélagið Samvinnutryggingar.
Kolkrabbinn leystur upp
í viðskiptum af áður óþekktri
stærðargráðu hérlendis urðu
margþætt viðskipti með eignir
Kolkrabbans svokallaða. Burðar-
ás, fjárfestingararmur Eimskipafé-
lagsins, seldi að fullu eignarhluti
sína í Sjóvá-Almennum, fslands-
banka og Flugleiðum til Fjárfest-
ingarfélagsins Straums og íslands-
banka í skiptum fyrir hlutabréf í
Eimskipafélagi íslands. Lands-
bankinn og tengdir aðilar keyptu
Eimskipafélagið og ætla sér að að-
skilja þrjá meginstólpa þess, út-
gerðarfélagið Brim, fjárfestingafé-
lagið Burðarás og flutningastarf-
semina. Þegar eru hafnar þreifing-
ar varðandi sölu á eignum Brims.
Jón Helgi keypti Kaupás
Norvik, móðurfélag BYKO í
eigu Jóns Helga Guðmundssonar
og fjölskyldu, keypti matvörukeðj-
una Kaupás á árinu fyrir tæpa
fjóra milljarða króna. Kaupás rek-
ur verslanirnar Nóatún, 11-11,
Krónuna, Húsgagnahöllina og
Intersport. Ætla má að yfirtakan á
Kaupási muni kosta Jón Helga
þrjá til fjóra milljarða króna.
Kaupás hefur um fjórðung mat-
vörumarkaðarins.
Hræringar á fjölmiðlamark-
aði
DV varð gjaldþrota. Þrotabúið
var keypt af Frétt ehf. sem einnig
gefur út Fréttablaðið. Jón Ásgeir
Jóhannesson og Landsbankinn
eiga nú stærstu hlutina í Frétt ehf.,
og Jón Ásgeir einnig í Norðurljós-
um eins og staðan er nú, þar sem
Landsbankinn á vemlegra ltags-
muna að gæta.
Jó íahappdrcztti
Krabbameins-
Útdráttur f Á I ^ fi Q I 11 Q
24. dzsetnBer 2003 * ^ J 11 I J
Vinnintjar
Ford Focus C-MAX, 2.370.000 kr.
8550
Bifreið eða greiðsla upp í íbúð, 1.000.000 kr.
121997
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun, 100.000 kr.
60 18297 29560 50647 67275 89187 103833 116548
1279 18920 29695 51448 70206 91121 103921 120869
4966 19862 32173 52945 70480 93059 104624 123028
5650 19967 32454 54960 71770 93797 105062 123675
6581 21131 32966 55673 72484 94711 105416 124245
7855 21380 34774 56969 73304 95010 106087 125441
10005 22431 35316 57346 73833 95282 106258 126536
10860 22770 36151 59697 76414 95366 107422 127079
11001 23787 36190 60148 77024 95964 108372 129628
11531 23990 36592 61995 78411 97518 108875 130187
12629 24418 38427 63369 78622 98451 112593 131141
13282 25170 38599 63471 84681 99381 112874 131917
13625 25941 42733 63501 85710 99886 112989 133398
14344 26222 46930 63556 85744 101269 113439 134174
14723 26422 47028 65014 86814 101673 113470 134599
15034 27480 47631 65431 87015 102270 113651
15706 27971 48978 65728 87920 102345 113998
16974 28101 49125 66122 88013 102894 115824
18113 29504 49184 67127 88539 103394 116321
A ‘XTaÉSamrinsféfaflið palfar
(andstnömum veittan stuðning
2 Krabbameinsfélagið
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu
Krabbameinsfélagsins að'Skógarhlíð 8, sími 5401900.
Byrjað verður að greiða út vinninga 8. janúar nk.