Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR Fókus DV En að öllum líkindum verðurþað þó ofurhetj- an Spiderman sem mun fara með sigur af hólmi i baráttunni um athygli bíógesta á næsta ári. Nú þegar Fróði hefur komið hringnum í réttar hendur og Hilmir er snúinn heini er eins og leggist einhver ládeyða yfir mann. Hvað getur mögulega toppað þrfleikinn Hringadróttinssögu? Ævintýra- myndir hafa þó síður en svo liðið undir lok, því mikið sverðaglamur er í vændum árið 2004. Tvær myndir um hinn stríðglaða Alexander af Makedóníu eru í vændurn, og á eftir að koma í ljós hvor verður fyrri til. Ein þeirra heitir Alexander, skartar Colin Farrell í aðalhlutverki og er í leikstjórn Oliver Stone, en hin þeirra heitir Alexander the Great, skartar Leonardo Di Caprio og er í leikstjórn Baz Luhrman. Oliver Stone á að baki myndir eins og Platoon, The Doors og JFK, en Baz Luhrman hefur gert myndir eins og Strictly Bailroom, Romeo and Juliet og Moulin Rouge. Nú á bara eftir að koma í ljós hvort Alexander Stone’s stökkvi ölvaður upp á stríðskerrur og lýsi því yfir að hann sé konungur Hellena, áður en hann verður myrtur af samsæri illra ólífuolíukaupmanna, eða hvort í mynd Luhrmanns hann dansi léttur á fæti um Persaveldi syngjandi „By the Rivers of Babylon”, verður skot- inn í hverri prinsessunni á fætur annarri og drekkur síðan eitur í ást- arsorg. Paris tekst á við sólbrúna og stælta karlmenn Nei, þetta er ekki annað heimilis- myndband frá Hilton fjölskyldunni, heldur stórmyndin Troy í leikstjórn kafbátaforingjans Wolfgang Peter- sen. Kyntáknið Orlando Bloom leik- ur hetjuna Paris sem berst gegn kyn- tákninu Brad Pitt í hlutverki AkJdles- ar. Báðir munu klæðast pilsum í anda tímabilsins, en ólíkt Forn- Grikkjum herma fregnir að báðir munu vera í nærfötum innanundir, sem mun vafalítið valda milljónum kvenna um allan heim vonbrigðum. Minna er um stjörnur í nýrri mynd um Artúr konung. Góðu frétt- irnar eru þær að Bretar gera mynd- ina, en það var einmitt Bretinn John Boorman sem gerði meistaverkið Excalibur um títtnefndan konung, þótt reyndar hafi peningarnir í þeirri mynd verið amerískir. Slæmu frétt- irnar eru þær að Jerry Bruckheimer framleiðir. Uma Thurman sveiflar sverðinu aftur í Kill Bill tvö. Öruggt er að margir fleiri af mismunandi kynjum og litarháttum munu verða drepnir á fallegan og stflfærðan hátt, óviss- ara er hvort mikið meira muni örla fyrir söguþræði. Annar maður sem lendir í úti- stöðum í Japan er Tom Cruise í myndinni The Last Samurai, en hann leikur amerfskan hermann sem þarf að velja sér bandamenn í átökum milli keisarans og sam- úræja. Líklega munu margir Japanir falla í valinn sama hvernig fer. Eitthvað loðið loðir við Hugh Jackman Hugh Jackman tekst á við úlfa- menn í myndinni Van Helsing, en hvort Wolfman Jack komi við sögu er óljóst. Jackman hefur sjálfur áður leikið úlfamann sem Wolverine í X- Men myndunum tveimur. En sem Helsing tekst hann einnig á við skrýmsli Frankenstein, Dr. Jekyll og herra Hyde, og erkióvin sinn Dra- kúla. Van Helsing hefur áður verið leikinn af sörunum Laurence Olivier og Anthony Hopkins, svo það mun koma í ljós hvort Hugh berji spýtum í hjartað á vandauðum af jafn mikilli list og verði riddari eins og Sir Mick fyrir vikið, en sá síðarnefndi var að- laður fyrir að hafa enst í hljómsveit vandauðum í 40 ár. Gary Oldman, sem síðast átti í útistöðum við Helsing í myndinni Bram Stoker’s Dracula árið 1992, er þessa dagana uppteknari af að atast í undrastráknum Harry Potter í hlut- verki Sirius Black, en næsta Harry Potter mynd, Flarry Potter and the Prisoner of Azkaban, er væntanleg næsta sumar. Johnny Cash og the Alamo Indverska nóttin M. Night Shyamalan hefur áður tekist á við drauga (6th Sense), ofurhetjur (Un- breakable) og vatnshræddar og fremur vitlausar geimverur (Signs). Nú er viðfangsefni hans 19. aldar furðuverur í myndinni The Village. Sigorney Weaver fer með aðalhlut- verk, og eiga furðuverurnar sára tíma í vændum ef hörkukvendið tek- ur þá Alien-tökum. Henni til aðstoð- ar eru Joaquin Phoenix og Adrien Brody á píanó. Joaquin mun hins vegar munda gítarinn sem kántrí- hetjan Johnny Cash í myndinni I Walk the Line, og ljóskan Reese Witherspoon mun leika eiginkonu hans June Carter, en myndin er enn í vinnslu. Vin Diesel leikur íjöldamorðingj- ann geðþekka Riddick í framhaldi Pitch Black, The Chronicles of Ridd- ick, og mun Dame Judi Dench fara með hlutverk óáþreifanlegrar veru. Óskarverðlaunahafinn Akiva Goldsman skrifar handrit, en hann á að baki myndir eins og A Beautiful Mind og Batman and Robin. Verður fróðlegt að sjá hvorri þessi mun frekar lflcjast. Handritshöfundur myndarinnar um Artúr konung, John Lee Hancock, leikstýrir myndinni The Alamo, sem fjallar um hetjulega bar- áttu Bandaríkjana gegn Mexíkó, sem mun líklega efla þjóðernisvitund hinna annars feimnu og varkáru Bandaríkjamanna. Kristur og Köngulóarmaður- inn The Passion fjallar um 12 klukku- tíma í lífi Jesúsar Krists. Kristur hef- ur aðeins hálfan sólarhring til að sleppa úr klóm illra Rómverja og æðstupresta, en hann þarf að velja á milli föður síns, konunnar sem hann elskar og örlög alls mannkyns. Hasarhetjan Mel Gibson leikstýrir, en hann var síðast bak við vélina í hinni mjög svo blóðugu Braveheart. En að öllum líkindum verður það þó ofurhetjan Spiderman sem mun fara með sigur af hólmi í baráttunni um athygli bíógesta á næsta ári. Meðan Súpermann situr enn í hjóla- stól og fátt er vitað um fyrirhugaða fimmtu mynd um ævintýri hans sveiflar Spidey sér óðum í átt að bíó- gestum. Fyrri óvinur hans, Green Goblin, átti það til að tala við sjálfan sig og endaði með að drepa sig á svifbretti sínu, en í þetta sinn er óvinurinn hinn illi Dr. Octopus, sem rétt eins og Spidey sjálfur hefur dá- læti á dýrum með átta örmum. To- bey Maguire leikur Spiderman, en Alfred Molina leikur erkifjanda hans. Ofurhetjukvikmyndir hafa verið afskaplega vinsælar upp á síðkastið, en engin þó meira en Spidey, og því líkur á að hann sveifli sér á toppinn aftur. valur@dv.is 1. Uma Thurman tekur á því í Kill Bill 2. 2. Thomas Jane, sem fer með hlut- verk The Punisher, er hörkutól þrátt fyrir eftirnafnið enda var honum líklega mikið strítt I skóla. 3. Adam Sandler reynir við Drew Barrymore, (50 First Dates, en hún segist aldrei muna eftir honum og kennir minnistapi um. 4. Ewan MacGregor leikur pabba Billy Crudup i myndinni Big Fish. 5. Julia Roberts, sem lék glöðu vændiskonuna í Pretty Woman, fer með hlutverk kennslukonu í kvennaskóla í Mona Lisa Smiles. 6. Kyntröllið Ron Pearlman, bróðir Cörlu úr Cheers, leikur hinn snoppufríða Hellboy. 7. Úlfamaðurinn Hugh Jackman leikur blóðsugubanann Van Hels- ing. 8. Tom Cruise ríður feitum hesti í The Last Samurai.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.