Dagblaðið - 17.12.1975, Page 6
6
Dagblaðið. Miðvikudagur 17. desember 1975.
Sólarorka til
upphitunar
Bandariska fyrirtækið Citi-
corp, dótturfyrirtæki First
National Citybank, gengur á
undan með gott fordæmi við
orkuspörun. Þessi 56-hæöa
bygging í New York vcröur aö
hluta hituö upp meö og loft-
hreinsuö af sólarorku. 1859
fermetra sólskermur sér um
t>á hliö málsins.
Þriðji
gervihnöttur
Kínverja
Kinverjar hafa sent þriöja
gervihnöttinn á loft á þremur
mánuðum — og þann fimmta
siðan 1973. Otvarp Peking
skýrði frá þessu i morgun.
Gervihnettinum var skotiö á
loft i gær og starfar hann eöli-
lega
Hollenzkur ritstjóri fœrði dagbók í lestinni í Beilen:
„Stjórnin hefur
logið að okkur"
Meöal gislanna, sem s-mólúkk-
eysku skæruliöarnir héldu I
þrettán daga i lestinni i Beilen I
Hollandi, var ritstjóri hollenzks
dagblaös, „Nieuwsblad van het
Noorden”, Ger Vaders aö nafni.
Hann skrifaði daglega hjá sér
atburöi dagsins og hyggst nú
birta dagbókina i blaöi sinu.
Vafalaust skrifar ritstjórinn
einnig bók um lifsreynslu sina.
Samstarfsmenn ritstjórans
hafa skýrt svo frá aö meö birtingu
dagbókarinnar fái umheimurinn
nýja og allt aöra mynd af þvi sem
geröist þessa þrettán daga en
fengizt hefur til þessa.
„baö leikur enginn vafi á þvi aö
frásögn ritstjóra okkar mun sýna
fólki aö yfirvöldin ljúga alltaf,”
sagöi ritstjórnarfulltrúi „Nieuws-
SOLDÁNINN í ÓMAN
W
Lögregla og hermenn á lelö upp i lestina eftir aö skæruliöarnir höföu
gefizt upp og voru komnir i hlekki.
Ger Vaders ritstjóri sem færöi
dagbókina I gislingu hjá Suöur-
Mólúkkeyingunum.
blad van het Noorden”, S.
Vehhuis, i samtali viö fréttamann
danska blaðsins B.T. i Beilen.
„Yfirvöldin hafa logiö að okkur
bæöi um það sem gerzt hefur i
lestinni þessa þrettán daga og
eins um það sem raunverulega
gerðist i desember 1949, þegar
Indónesar lýstu þvi yfir aö Suður-
Mólúkkaeyjar væru hluti af Indó-
nesiu.”
Trúfrelsi í
S-Víetnam
— ef það er ekki
„dulbúin stjórn-
málastarfsemi“
Bráöabirgöabyltingar-
stjórnin i Suöur-Vietnam
viöurkennir rétt þjóöarinnar
til frjálsrar trúariökunar, svo
framarlega sem sá réttur er
ekki misnotaður i stjórn-
málalegum tilgangi, aö sögn
varaformanns Þjóöfrelsis-
fylkingarinnar, Ngjyen H.
Varaformaðurinn gaf þessa
yfirlýsingu á fundi i fyrradag
með tuttugu og þremur
kaþólskum biskupum sem
komu saman til fundar til að
ræöa vandamál kaþólsku
kirkjunnar i S-Vietnam.
Hann sagöi aö sigurinn i
sjálfstæöisbaráttunni og sam-
eining þjóðarinnar hefði skap-
aö góðan grundvöll fyrir þátt-
töku trúarlifsins i uppbygg-
ingu lands og þjóöar.
„Tróarbrögö og þjóðin ættu
aö hafa nána samvinnu til
góðs fyrir land okkar,” sagði
hann.
HROSAR SIGRI EFTIR
10 ÁRA STRÍÐSÁTÖK
Tiu ára löngu striöi er lokiö i
Óman þar sem hersveitir
soldánsins hafa meö aöstoö Breta
barizt viö uppreisnarmenn
kommúnista i héraðinu Dhofar i
suöurhluta landsins.
Qaboos bin Said soldán lýsti
yfir endanlegum sigri I útvarps-
ávarpi til þjóöar sinnar um helg-
ina. Lýst var yfir almennum há-
tiöisdegi og um þaö bil fimmtiu
þúsund manns gengu fylktu liöi i
gegnum hina fornu borg Muscat
til aö heyra soldáninn halda ræöu
á nýjum iþróttavelli i útjaöri höf-
uðborgarinnar.
„Hersveitir Óman hafa fyrstar
Arabaþjóða unnið algjöran sigur
yfir alheimskommúnismanum,”
sagöi soldáninn. Hann varaöi
samt viö linkind. Sigurinn þýddi
ekki aö fbúar Óman gætu lagt
niöur vopn sin og hvilzt. Þeir ættu
stöðugt að vera viöbúnir hinum
alþjóölega kommúnisma sem
hann kallaöi „krabbamein meðal
þjóða”. Kommúnistar reyndu
stöðugt nýjar aðferðir til aö not-
færa sér „veikhuga einstaklinga”
við aö koma markmiðum sinum i
framkvæmd.
Herforingjar soldánsins höfðu
spáö sigrinum fyrir hálfum mán-
uöi. 1 heilan mánuö hafa hersveit-
ir Óman — meö dyggum stuöningi
Breta — haft algjöra yfirhönd i
bardögum gegn Alþýöufylking-
unni til frelsunar Óman.
A undanförnum tveimur mán-
uöum hafa alls 130 uppreisnar-
menn gefizt upp fyrir hersveitum
soldánsins og 300—400 hermenn
frá Suður-Jemen sem tekiö hafa
þátt i bardögum meö uppreisnar-
mönnunum flýöu heim yfir landa-
mærin.
Nær 700 Bretar — sumir mála-
liöar soldánsins og aðrir leiguher-
menn úr brezka hernum — áttu
stóran þátt i sigri soldánsins.
Bardagar fóru fram við erfiöar
aöstæður i snarbröttum fjöllum
og botnlausum fenjaskógum.
Meöal Bretanna voru 60 hermenn
úr sérsveitum brezka flughersins.
Aö auki hefur soldáninn notið
stuðnings rúmlega 3500 iranskra
hermanna og 200 jórdanskra.
Þeir munu halda heim einhvern
tima á næsta ári. Bretarnir eiga
allir að vera farnir frá óman i
árslok 1977.
Hrikaleg áfengisneyzla
á Grœnlandi
( Afengisneyzla Grænlendinga i gær. j
\ það sem af er árinu eru 600 bjór- Ibúar Grænlands eru um 1
dósir og 7 litrar af vini á hvern fimmtiu þúsund og er rúmlega (
ibúa — eða 34 milljón bjórdósir helmingur þeirra undir 15 ára /
og 345 þúsund litrar af vini. aldri. Félagsleg vandamál 1
Þetta kom fram i skýrslu sem vegna drykkjuskapar hafa lengi i
lögð var fyrir danska þjóðþingið tröllriðið þjóðinni. 7
Markovic-málið í Frakklandi:
Verður málið látið niður falla?
— uppljóstranirnar gœtu haft skaðvœnleg áhrif, segir lögfrœðingur eins þeirra, sem grunaðir voru
um þátttöku á sínum tíma
Franskir saksóknarar hafa
farið fram á aö fá leyfi til aö
hætta við sjö ára gamla
rannsókn á moröi Stefans
Markovics, lifveröi leikarans
Alains Delons, aö sögn tveggja
lögfræöinga i Paris.
Málið var meiriháttar
hneyksli á siöasta áratug. Fjöldi
fólks úr skemmtanaiönaöinum
flæktist inn i þaö — þar á meöal
eiginkona Delons, Nathalie, og
um tima var nafn Pompidous
heitins forseta dregiö inn i
máliö.
Sögusagnir um að háttsettir
embættismenn og stjórnmála-
menn f Frakklandi væru flæktir
i morðmálið leiddi til þess á
endanum að Pompidou sendi frá
sér opinbera yfirlýsingu þar
sem sagði aö hvorki hann né
kona hans heföu á nokkurn hátt
komið nærri Markovic og mál-
um hans.
Lik Markovics, sem var 31 árs
gamall Júgóslavi, fannst i plast-
poka á ruslahaug i úthverfi
Parisar 1. október 1968.
Francois Marcantoni, veit-
ingahúseigandi frá Korsiku, var
ákæröur fyrir aöild aö moröinu
en ástæöa fannst aldrei. Þá
geröist það aö rétti i Paris var
faliö aö kanna og skera úr um
hvort ákærum á hendur Mar-
cantoni skyldi visað frá.
Staöfesting þessaö sækjendur
vildu nú hætta viö rannsóknina
og loka málinu kom I dag þegar
Roland Dumas, lögfræöingur
Markovic-fjölskyldunnar, hafði
komið fyrir rétt fyrir lokuðum
dyrum. Hann lýsti þvi yfir aö
sér hefði komiö' mjög á óvart
tillögur saksóknara og lét I ljós
þá von aö rétturinn tæki þær
ekki til greina er úrskuröui
veröur kveöinn upp eftir þrjái
vikur.
„Ef ekki heföi verið vegna
tengsla viö skemmlanaiönaö-
inn, stjórnmál og undirheimana
sjálfa,” sagöi Dumas, „þá væri
þessu máli löngu lokið.”
Hann bætti þvi viö aö nægar
sannanir og alvarlegar ákærur
heföu þegar komiö fram gegn
Marcantoni til aö réttlæta rétt-
arhöld yfir honum fyrir kviö-
dómi.
Lögfræðingur Marcantonis,
Jacques Isorni, sagði hins vegar
viö fréttamenn: „Svo virðist
sem engar kærur hafi veriö
bomar fram á hendur skjól-
stæðingi mfnum.”
Hann gat þess og að þaö hefði
verið „sannaö, aö umsvifamikið
samsæri beindist gegn Pompi-
dou og konu hans. Þaö geröist
allt mun ofar en Marcantoni er,
raunar á milli klika de Gaulles
og Pompidous.”
Þegar sögusagnir þessar voru
á sveimi var Pompidou ekki i
opinberri þjónustu en hann
hafði áöur veriö forsætisráö-
herra de Gaulles.
„Ég hef fulla trú á réttinum og
égharma þaðekkiaðhann hafi i
dag komið saman fyrir lokuöum
dyrum vegna þess að þær
uppljóstranir sem gerðar hafa
veriö eru sllkar aö þær myndu
hafa skaðvænleg og trúflandi
áhrif á þá kyrrö, sem menn hafa
komið sér saman um,”
sagði Isorni lögfræðingur. Hann
útskýröi ekki nánar hvað hann
átti við.
Hann benti hins vegar á að
meö ákvörðun saksóknara væri
gerð aö engu sjö ára rannsókn,
sem heföi kostaö 10 milljónir
franka — eða 380 milljónir is-
lenzkra króna.
Marcantoni var handtekinn
og haföur I haldi I niu mánuöi
1969 eftir aö lögreglan sagöi
plastpokann, sem lik Markovics
fannst I, hafa verið keyptan af
Marcantoni nokkrum dögum
fyrr.
Honum var sleppt vegna
skorts á sönnunargögnum og
lögreglan sneri sér aÖ þvi að
yfirheyra leikarann Alain
Delon, konu hans og fleiri aðila
úr franska kvikmyndaheimin-
um.