Dagblaðið - 17.12.1975, Síða 8
8
Dagblaðið. Miðvikudagur 17. desember 1975.
Hafið póstkassana vel merkta:
230 MANNS
BERA ÚT TÍll
TONN AF
JÓLAPÓSTI!
SÍÐASTI DAGUR FYRIR
Fulltrúar 230 bréfbera nú fyrir jðlin: Gisli Helgason, Sigrún
Ingjaldsdóttir og Disa Hermannsdóttir.
'Sama gamla sagan fyrir öil jól, — milijónir bréfa, sem greina þarf I sundur, svo að allt komist nú til
skila. Um 80 manns vinna aukalega við þessi störf nú um jólin.
SU stétt manna, er einna mest
mæðír á nú siðustu dagana fyrir
jólin, er án efa póstfreyjur- og
póstþjónar.
Við litum inn i þröng húsa-
kynni aðalpósthússins við Póst-
hússtræti og þar var mikill
handagangur i öskjunni. Fjöldi
manns vinnur við greiningu og
útburð á jólapósti, bæði i aðal-
pósthúsinu og i útibúunum sex.
„Eins og undanfarin ár, má
búast við að um ein milljón ein-
inga verði borin út hér i Reykja-
vik nú fyrir jólin, eða um 10
tonn,” sagði Reynir Armanns-
son póstfulltrúi i viðtali við DB.
Það er mikið þegar þess er
gætt, að allt árið 1974 bárum við
út um sjö milljónir eininga eða
um 110 tonn”.
65 póstfreyjur, sem allar
vinna hálfan daginn og 17 póst-
þjónar auk 145 unglinga sjá um
allan útburð bréfa nú fyrir þessi
jól. Um 70—80 manns eru ráðnir
aukalega til þess að greina póst
i verstu orrahriðinni.
„Margir velta þvi fyrir sér,
hvort jólapóstur fari minnk-
andi,” sagði Reynir ennfremur.
„Um það get ég ekki sagt neitt
ákveðið, en reynslan hefur sýnt,
að yngra fólkið er ekki eins dug-
legt við þessar jólakortasend-
ingar. Þá hafa mörg fyrirtæki
tekið upp’þann sið að gefa fjár-
hæð þá, er ætluð var til jóla-
korta, til einhverrar góðgerðar-
starfsemi og það er allra góðra
gjalda vart.”
Reyriir bað okkur einnig að
koma þvi á framfæri við fólk,
sérstaklega það, sem býr i fjöl-
býlishúsum, að huga nú að þvi
hvort póstkassar þeirra væru
greinilega merktir. Flýtti það
mjög fyrir öllum útburði, auk
þess sem öruggt væri, að fólk
fengi sinn jólapóst. HP.
Bergur Adolfsson situr hér við stimpilvélina, sem stimplar öll bréf,
sem um pósthúsið fara. Afköst vélarinnar eruð um 10.000 bréf á
klst.
Guðlaug Þor-
steinsdóttir
■ ••• •
kjorin
íþróttamaður
Kópavogs
Guðlaug Þorsteinsdóttir,
skákkonan unga var i gær kjörin
iþróttamaður ársins i KópáVogi.
Rotary-klúbbur Kópavogs veitir
árlega verðlaun þeim iþrótta-
manni sem þykir skara framúr i
Kópavogi.
Guðlaug hlaut verðlaunin
fyrir að hafa sigrað á Reykja-
vikurmótinu i skák i kvenna-
flokki. Fyrir Islandsmeistara-
titil — fyrir að keppa i landsliði
tslands gegn Færeyjum og að
sjálfsögðu fyrir að verða fyrst
islenzkra kvenna til að verða
Norðurlandameistari i skák.
Þann titil vann hún i Noregi
siðastliðið sumar.
Formaður klúbbsins Gottfreð
Arnason veitti Guðlaugú verð-
launin i hófi sem Rotary
klúbburinn hélt i félags-
heimilinu i gær.
Þessi verðlaun hafa einu sinni
áður verið veitt iþróttamanni og
i fyrra hlaut verðlaunin Karl
West Frederiksen.
—h halls
Guðlaug með hina veglegu
styttu, sem hún hlaut.
Jólarjómi
Reykvíkinga
að norðan
Nœr 50 þúsund lítrar fluttir nú þegar
— Það er mun minni mjólkur-
framleiðsla i vetur vegna ó-
þurrkanna i sumar, sagði Oddur
Helgason, sölustjóri Mjólkur-
samsölunnar i Reykjavik.
— Við erum búnir að flytja
nær 50 þús. litra af rjóma til
höfuðborgarinnar siðan seinni-
hluta október. Yfirleitt er minni
mjólk frá nóvember og fram i
janúar og hefur árlega verið
fluttur rjómi að norðan.
— Alls hafa verið fluttir hing-
að um 27 þús. litrar frá Akur-
eyri, um 10 þúsund litrar frá
Sauðárkróki og um 12 þúsund
litrar frá Húsavik og Blönduósi.
Rjóminn er fluttur hingað með
bilum og gerilsneyddur og
pakkaður hér syðra.
— Er norðanrjóminn nokkuð
frábrugðinn þeim sunnlenzka?
— Nei, hann er það ekki, svar-
aði Oddur.
— Hver er rjómaneyzla Reyk-
vikinga?
— Meðalrjómaneyzla á sölu-
svæði Mjólkursamsölunnar,
sem nær frá Akranesi og til
Vestmannaeyja, er um tvö þús-
und litrar á dag. Meðalmjólkur-
neyzla á þessu svæði er um 100
þúsund litrar á dag.
— JÞurfum við að fá mjólk að
norðan?
— Nei, þess þarf ekki, við höf-
um næga mjólk.
— Hvað kosta rjómaflutning-
arnir?
— Mér er ekki kunnugt um
það, sagði Oddur Helgason, —
en að sjálfsögðu er norðanrjóm-
inn seldur á sama verði og ann-
ar rjómi, framreiðsluráðið jafn-
ar kostnaðinum út.
Svæði Mjólkursamsölunnar i
Reykjavik nær eins og áður seg-
ir frá Akranesi og austur að
Hellisheiði, að auki eru Vest-
mannaeyjar einnig á þvi. Sam-
lögin á Selfossi og i Borgarnesi
selja beint til neytenda og eru
þvi ekki með i þeim tölum sem
hér hafa verið nefndar.
—A.Bj.