Dagblaðið - 21.04.1976, Blaðsíða 1
i
i
i
2. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1976 — 87. TBL. RITSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
Loks barst svar um hraðbátana
BANDARIKJAMENN NEITA
„Nei, svarió er ekki jákvætt, að
minnsta kostiekki eins og við
hefðum viljað hafa það,” sagði
Ölafur Jóhannesson dómsmála-
K
Skip af „Asheville”-gerð. Þau
eru 225 tonn að stærð og ganga
40 sjómílur.
ráðherra um svar Bandaríkja-
manna við tilmælum íslendinga
um, að þeir útveguðu íslenzku
landhelgisgæzlunni hraðskreið
skip af Ashville-gerð.
„Þeir mega víst ekki sjá af bát-
unum þessa stundina,” sagði
Ólafur. Um það, hver yrði afstaða
ríkisstjórnarinnar til þessarar
neitunar, sagði Ölafur: „Maður
verður víst að taka það trúanlegt,
að mennirnir hafi ekki ráð á að
lána okkur þetta.”
Ólafur sagði, að svar Banda-
ríkjamanna, sem borizt hefur
eftir langa bið, hafi ekki komið
formlega til sín frá utanríkisráðu-
neytinu.
Það var upphaflega dómsmála-
ráðuneytið, sem óskaði eftir því
við utanríkisráðuneytið, að þetta
yrði athugað hjá bandarískum
stjórnvöldum.
—HH/HP
VIÐBUNAÐUR GEGN
SVÍNAINFLÚENSU
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin í Genf hefur skorað á heil-
brigðisyfirvöld allra landa að búa
sig undir hugsanlegan faraldur
svínainnflúensu næsta vetur. í
áskorun þessari er talið útilokað
að hindra útbreiðslu þessarar
veiki með bólusetningum einum
saman, og þurfi því að beita
öðrum tiltækum ráðum.
„Norðurlöndin hafa ekki bol-
magn til að framleiða nema mjög
takmarkað magn af bóluefni í
sumar,” sgði Margrét Guðnadóttir
prófessor í viðtali við Dagblaðið.
Kvað hún notkun þess fyrst og
fremst miðast við veikt fólk og
lasburða, sem ekki þolir þessa in-
flúensu. Því næst verður að hugsa
um gamalt fólk og ef til vil! til-
tekna starfshópa, eftir því, sem
magn bóluefnis hrekkur til.
Margrét sagði, að lyfjaverk-
smiðjur myndu nú fara á stað með
framleiðslu bóluefnis, og hefði
landlæknir þegar í undirbúningi
öflun þess. Auk þess kvað hún nú
vera að koma fram ný efni. sem
gætu orðið til hjálpar, ef faraldur
kæmi upp.
Vegna þessa takmarkaða
magns af bóluefni, sagði Margrét,
að það væri hægara sagt en gert
að bólusetja fjölmennar þjóðir í
skyndingu, eins og t.d. forseti
Bandaríkjanna hefði nýlega mælt
fyrir um.
„Hér verður í sumar unnið að
því að mæta hugsanlegum
faraldri með öllum tiltækum
ráðum," sagði Margrét Guðna-
dóttir.
BS
NYR BYGGÐARKJARNI
NÁLÆGT HÚSAVÍK?
Hreppsnefnd Re.vkjahrepps í S-
Þingeyjarsýslu hefur samþykkt
að neyta forkaupsréttar á um 100
hektara landi úr landi Skarða þar
í hreppnum.
Að sögn hreppstjórans, Atla
Baldvinssonar á Hveravöllum. er
ekki fullgengið frá kaupunúm
enn, en hugmyndin er að reisa
þarna jafnvel byggðarkjarna.
Skipulag hans er þó ekki mótað
enn.
Bæjarleið er á milli Skarða og
Laxamýrar og um tíu kílómetrar
eru milli Skarða og Húsavíkur.
Yrði hugsanleg byggð væntanlega
reist austan Kísilgúrsvegarins
svonefnda.
Atli sagði að þörf væri fyrir
svæði til íbúðarhúsabygginga í
hreppnum, en ekki gat hann í
fljótu bragði gizkað á hversu stór
þessi kjarni vrði, það ylti á ýmsu
svo sem hvort laxeldi þar í ná-
grenninu yrði stóraukið á næst-
unni eða ekki o.f-. —G.S.
Rádizt á fslending
á Kanaríeyjum
Ráðizt var á islenzkan ferða-
lang á Kanaríeyjum í fvrradag
og hann svo hart leikinn, að
hann liggur nú á sjúkrahúsi þar
syðra. Eftir þvi, sem næst
verður komizt, voru árásar-
mennirnir Arabar eða heima-
menn á Kanaríeyjum.
Ekkj tókst að fá upplýsingar
um áverka þá, sem maðurinn
hlaut, en talið er að þeir séu
talsverðir, enda þótt þeir séu
ekki lífshættulegir. Sem fyrr er
sagt var hann þó fluttur á
sjúkrahús og liggur nú þar.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið telur áreiðanlegar,
er maður þessi kaupmaður hér
— Hggur
sœrður á
sjúkrahúsi ytra
í Reykjavík, eigandi sportvöru-
verzlunar. Er hann þarna á
vegum íslenzkrar ferðaskrif-
stofu með fjölskyldu sinni, og
er talið, að þetta atvik hafi átt
sér stað í Las Palmas. Ekki er
ljóst með hverjum hætti átökin
hófust.
—B.S.
Vorið getur ekki verið iangt undan — sumardagurinn fyrsti er a
morgun. Morgnar eru orðnir bjartir og Iesbjart fram eftir kvöldum.
Lífið er að vakna af drunga'vetrar. fiðringur færist um kroppinn og
trillukarlar róa til fiskjar. Ef þetta er ekki merki um langþráð vor,
þá megum við hundar heita. DB-mynd: BP.
Án konu
enginn maður
— Sjú leikdóm Ólafs
Jónssonar um
Keramik — Bls. 9
Nýtt kjör-
dœmi á
Suðurnesjum
— sjá bls. 9
íslendingarnir
markhœstir
hjá Dankersen
— Sjá íþróttir í opnu
Þorskastríðið
kostar Breta
yfir 800 millj.
— Sjá baksiðu
A