Dagblaðið - 12.05.1976, Page 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. MAI 1976.
2
/■
enda færi að vakna af dvala
sínum félagsmönnum sínum til
varnar, en sjálfsagt kemur þar
bara þriðja þjóðnýtingin.”
ÞAÐ ER SVO
MARGT MISJAFNT
FYRIR NORÐAN
— og bfleigendur þurfa að borga
Bragi Jónsson skrifar:
,,Fyrir nokkrum dögum
héldu þingeyskir bændur ráð-
stefnu á Húsavík og sendu fjöl-
miðlum ál.vktun fundarins þar
sem þeir kvarta sáran yfir
áróðri ýmissa aðila gegn
bændastétt landsins.
Nú er ég ekki neinn bænda-
hatari, siður en svo, því af
bændum er ég kominn og sem
böndi hefði ég viljað eyða æv-
inni þó öðruvísi færi.
Eg var á ferð um landið á
síðastliðnu sumri, allt frá
Ströndum og austur í Þing-
eyjarsýslu. Ég sá og heyrði
margt, sem að vonum vakti at-
hygli mína, en mesta athygli
vakti þó meðferð bænda á
heyfyrningum sínum, svo og
sauðfé.
Ég man ekki betur en á sín-
um tíma væri lagður sérstakur
skattur á landsmenn vegna
hækkunar á áburði og jafnvel á
fóðurbæti. En hvernig farið þið
bændur með töðuna sem spratt
upp af þessum sama áburði? Ég
fullyrði að hundruð hestburða,
svo ég nefni ekki hærri tölu,
hafi legið undir skemmdum eða
eyðileggingu vegna lélegs frá-
gangs í uppsetningu og sóða-
legrar umgengni. Þetta var
ekki síður áberandi í Þing-
eyjarsýslu en öðrum sýslum.
Þetta er bændum til skammar
og hlýtur að valda hneykslan
þeirra sem á horfa, því glöggt
er gests augað.
Verðlagsráð landbúnaðarins
setti í fyrrasumar lög er stíluð
voru á bíleigendur: ef bílstjóri
slasaði eða dræpi kind yrói
hann að borga skepnuna sam-
kvæmt mati þeirra laga og voru
þar margar tölur nefndar. Hver
veitir verðlagsráði leyfi til
slíkrar lagasetningar? Hver
veitir bændum leyfi til að beita
fé sínu allt sumarið á sána
vegakanta? Hver borgar þessa
vegi? Eru það ekki bíleigend-
ur?
Það vakti sérstaka athygli
mína að sjá fé stórbændanna á
Laxamýri á veginum við túnfót-
inn, það sýnist lítill mann-
dómur í slíkum slóðaskap.
Margt gæti ég fleira upp
talið en læt vera að sinni, en
sparið stóru orðin og allar stór-
yrtar yfirlýsingar. Lítið ykkur
nær því tilefnið til áróðurs
gegn ykkur skapið þið sjálfir.
Eftir að þið komuzt á ríkisspen-
ann ásamt öðrum atvinnugrein-
um eruð þið að missa sjálfsvirð-
ingu ykkar og sjálfsábyrgð.
Ég get ekki látið hjá líða að
nefna þá áráttu stjórnvalda
undanfarin ár að þjóðnýta bíl-
Símatíminn
er frá 13—15
Hríngið í sima 83322 milfí
kl. 13 og 15 eða skrifið
eigendur sem árvissan tekju-
stofn fyrir ríkissjóð og það er
látið heita vegafé, í vegi sem
við getum svo varla ekið um
vegna fjárbænda sem þjóðnýta
okkur líka sem tekjustofn fyrir
sig og sýnist mér mál til komið
að Félag íslenzkra bifreiðaeig-
Frœðsla um NATO er nauðsynleg
— alltaf taloð um Kanann
Nokkrir járnsmiðir höfðu sam-
band við DB:
,,Við lásum hér um daginn
grein eftir Mats Wibe Lund um
herstöðina og hún vakti athygli
hér á vinnustaðnum. Það var
rætt um þetta mál fram og
aftur. Við verðum að gera
okkur grein fyrir því að bak við
NATO standa ca 500 milljónir
manna um alla álfuna. Þó að
Bandaríkjamenn séu hér á
íslandi þá eru þeir hér i nafni
NATO. Það á alveg tvímæla-
laust að greiða fyrir þá aðstöðu
sem NATO fær hér á landi. Það
er gert allsstaðar þar sem þeir
hafa aðstöðu, nema hjá okkur,
við erum svo stoltir. Þvílíkt
stolt! Það er hlegið að okkur
alls staðar í heiminum fyrir það
hve þetta er heimskulegt hjá
okkur.
Það verður að fræða okkur á
hve mikill hlutur hvers lands
er um sig og hvað hvert land
fær frá NATO fyrir aðstöðu eða
annað. Hér á landi er alltaf
talað um Kanann og ekkert
nema þennan Kana. En þetta er
bara alls ekki allt Kaninn.
Þá leigu sem við fáum svp
fyrir aðstöðuna, það er alveg
sjálfsagður hlutur, get'um við
svo notað í einhverjar fram-
kvæmdir. Okkur vantar í svo
margt. Það ætti ekki að vera
nokkur vandi aó koma þeim
tekjum í eitthvað viturlegt. Það
vantar til dæmis öryggisþjón-
ustu við alla flugvelli hérlend-
is. Varla þarf að minna
nokkurn á að okkur vantar
fleiri varðskip. Við erum staur-
blönk öll sömun og samt erum
Varnarliðsmenn við eitt skotbyrgið á Keflavíkurvelii.
við svo stór upp á okkur að við leigu fyrir okkar eigin eign,
getum ekki einu sinni þegið sem er svo sjálfsagður hlutur.”
Kógskrif Timans um Kristján
Pétursson hafa verið
Framsóknarflokknum til
skammar, segir framsóknar-
maður af Suðurnesjum.
RÓGSKRIF TÍMANS HAFA VAKIÐ TIL
— munu verða Framsóknarf lokknum til œvarandi skammar
Framsóknarmaður á Suður-
nesjum skrifar:
■ • Rógskrif Tímans á undan-
lörnum vikum í garð Kristjáns
Péturssonar hafa vakið menn
til umhugsunar um hvers konar
maður Ölafur Jóhannesson
dómsmálaráðherra er. Hann er
formadur blaðstjórnar Tímans,
sem viðhaft hefur ein mestu
ósanninda- og níðskrif um einn
heiðarlegasta og virtasta lög-
gæzlumann hér á landi. Nú er
það öllum ljóst, sem til þekkja,
að þessi níðskrif Tímans eiga
við engin rök að styðjast þar
sem engin dæmi hafa verið til-
færð um ólöglegt atferli Krist-
jáns í starfi eða utan þess.
Hvers konar hlutverki eiga þá
þessi skrif að gegna? Eru þau
til að hjálpa sakamönnum sem
leitað hafa hælis og náð völdum
innan 'Framsóknarflokksins?
Önnur skýring er vandfundin.
Hér er um alvarlegra mál að
ræða en flesta grunar. Blaða-
mönnum Tímans er greinilega
fyrirskipað að skrifa svona níð-
greinar af þeim öflum sem
hræðast starfsemi Kristjáns á
sviði lögreglurannsókna. Þetta
er flestum landsmönnum nú að
verða ljóst og jafnframt að
dómsmálaráðherra er samsekur
um þessi skrif sem formaður
blaðstjórnar. Þeir fjölmörgu að-
ilar, sem veitt hafa Kristjáni
stuðning í fjölmiðlum, eru kall-
aðir í Tímanum skósveinar
hans sem hann noti í þeim eina
tilgangi að ófrægja Ólaf for-
mann.
Ekki er líklegt að Ölafur
þurfi að óttast pólitísk afskipti
Kristjáns, þar sem hann hætti
öllum afskiptum af stjórnmál-
um fyrir mörgum árum vegna
ágreinings við forustumenn Al-
þýðuflokksins á þeim tíma. Þá
eru öll nánustu skyldmenni
hans eindregið framsóknarfólk,
m.a. hefur bróðir hans, Hilmar
Pétursson i Keflavík, verið
aðaláhrifamaður flokksins þar I
bæ og varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins. Hér er því
syntlega ekki um pólitisk átök
að ræða við Kristján heldur er
verið að vernda ákveðnar var-
hugaverðar hagsmunaklíkur
innan Framsóknarflokksins
sbr. Klúbbmálið o.fl.
Bréfritari hefur þekkt Krist-
ján í fjöldamörg ár og er auk
þess framsóknarmaður. Kynni
mín af þessum manni eru öll á
einn veg. Hann er afburða dug-
legur, heiðarlegur en harður og
einbeittur þegar á þarf að
halda. Störf hans á sviði félags-
mála, sem hafa verið margþætt
í gegnum árin sýna skýrt þessa
hæfileika hans. Starfsmenn
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli hafa heldur ekki gleymt
því tímabili sem hann var ráðn-
ingarstjóri og vinnumálafull-
■