Dagblaðið - 12.05.1976, Side 7
DACBI.AÐH). MIÐVIKUDACUK 12. MAÍ 1976.
7
Ráðgast
um fíf
og dauða
Karenar
Quinlan
Karen Anne Quinlan
Læknar Karenar Anne
Quinlan í Denville í New Jersey
í Bandaríkjunum hafa hafizt
handa um fjölda tilrauna og
prófa, sem sióareglunefnd
sjúkrahússins ætlar aö hafa til
hliðsjónar við að ákvarða hvort
hún fær að deyja. Karen hefur
verið meðvitundarlaus I
rúmlega eitt ár.
Prófanirnar hófust í síðustu
viku og hafa til þessa gefið það
eitt til kynna, að undanfarna
mánuði hefur líkamsstarfsemi
hennar ekkert breytzt. Karen
er haldið á lífi með stállunga og
fleiri tækjum.
31. marz sl. úrskurðaði
Hæstiréttur New Jersey, að
faðir Karenar gæti fyrir hennar
hönd hafnað frekari læknis-
meðferð ef hún virtist gagns-
laus.
England:
Hundurínn
Símoní
Erlendar
fréttir
REUTER
tannvið-
gerðum
Hundurinn Símon, sem er í
eigu frúar einnar i Englandi
hefur verið til tannviögerða.
Hefur hann þótt vel tenntur,
en er orðinn nokkuð við aldur
og fór að bera á tann-
skemmdum lijá honum.
Tannlæknir frúarinnar brá
ve.| við. — sviefði Simoii. dro
úr buiidinuiu töiin og l'yllti
aðra. Simoni heilsasl vel eftir
atvikinn.
Bandarísku forkosningarnar í Nebraska:
Ford og Carter töpuðu
fyrír Reagan og Church
Öldungadeildarþingmaður-
inn Frank Chureh sigraði
Jimmy Carter óvænt í forkosn-
ingum bandarísku forsetakosn-
inganna í Nebraska í gær.
Snemma í morgun, þegar
megnið af atkvæðunum hafði
verið talið, virtist Church hafa
hlotið um 40% atkvæða en
Carter um 35%. Önnur atkvæði
skiptust á milli ýmissa fram-
bjóðenda.
Í herbúðum Reagans, f.vrrum
ríkisstjóra Kaliforníu, var glatt
á hjalla í morgun, enda virtist
Reagan hafa sigrað Ford
forseta í kosningunum með
53% atkvæða á móti 47%. Þessi
sigur er Reagan mjög mikil-
vægur, en kosningabarátta
hans hefur verið rekin af aukn-
um krafti undanfarið.
í Nebraska var kosið um 25
kjörmenn Repúblikanaflokks-
ins á flokksþingið í Kansas City
í ágúst og 23 kjörmenn
demókrata á fiokksþingið í
New York i júlí.
Þetta voru fyrstu forkosning-
arnar, sem Church tekur þátt I.
Hann var í sjöunda himni í
morgun, þegar úrslit lágu fyrir
að mestu, og sagði fréttamönn-
um í Omaha að hann fyndi á
sér, að ..kraftaverk" væri að
gerast og að útnefning flokks-
ins væri síður en svo tryggð
Jimmy Carter.
1 Vestur-Virginíu sigraði
Ford forseti Reagan með 57%
atkvæða gegn 43%. Úrslit þar
eru ekki talin skipta jafn miklu
máli og í Nebraska.
I
Frank Church ásamt konu
sinni á skátamóti f.vrir
skemmstu. Þingmaðurinn gat
sér gott orð sem formaður CIA-
nefndar iildungadeildarinnar.
Bólivískur herforingi bendir á skotsárið á brjósti Che Guevara, sem
varð honum að bana.
Sendiherramorðið íParís:
SAMA BYSSAN
VAR NOTUÐ VIÐ
ÁRÁS Á SPÆNSK-
AN DIPLÓMAT
— i París í desember sl.
Franska lögreglan skýrði frá
því í morgun, að sendiherra Bóii-
viu, sem myrtur var í Paris í gær,
hafi orðið fyrir skoti úr sömu
byssu og var notuð til skotárásar á
spænskan diplómat í desember.
Sendihcrrann, Joaquim
Zenteno Ana.va hershöfðingi,
sem var foringi hersveitanna er
skutu skæruliðaforingjann Che
Cuevara til bana í Bólivíu 1967,
varð fyrir tveimur skotum skeggj-
aðra manna nærri sendiráðinu.
Hópur, sem kallar sig „Che
Guevara-herflokkinn”, tök á sig
áb.vrgð á morðinu. Litlar líkur eru
taldar til þess að morðingjarnir
finnist.
1 Bólivíu hefur verið aukinn
vörður um þá menn, sem áttu þátt
i drápi Guevaras eftir handtöku
hans 1967.
Smurbrauðstofan
Njálsgötu 49 - Sími 15105
Til sölu:
FORD PINTO STATION
árgerð'73
Skipti koma til greina á minni bíl, t.d.
nýlegum Austin Mini. Uppl. á bílasölu
Garöars, Borgartúni 1, sími 19615 og
18085.
Fró Byggingasamvinnu-
félagi Kópavogs
Fyrirhuguð er stoínun bygginga-
flokks um byggingu fjölbýlishúss.
Tekið verður á móti umsóknum
félagsmanna á skrifstofu félagsins að
Lundarbrekku 2 til laugardagsins 15.
maí, kl. 1 til 7 e.h.
Stjórnin.
Tvær dosentsstööur i klínískri handlæknisfræði við
læknadeild Háskóla íslands eru lausar til umsóknar. Um
er að ræða hlutastöður og fer uni veiting þeirra og
tilhögun samkvæmt ákvæöum 2. gr. laga nr. 67/1972. um
brcyting á lögum nr. 84/1970. uni Háskóla íslands. Gert
er ráð fvrir. að önnur staðan tcngist sérfræðingsstöðu við
handlækningadcild Landspitalans. cn hin sérfræðings-
stöðu við handla>kningadcild Landakotsspitala.
Umsóknarfrestur er til 10. júni nk.
Laun samkvicmt gildandi rcglunt unt launakjör
dóscnta í hlutastöðum i hcknadeild i samræmi við
kennsltimagn.
Umsækjendur um framangreindardósentsstöður skulu
láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrsiu um vísinda-
störf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo
og námsferil sinn og störf.
IMcnntaniálaráðuncytið.
7. ntaí 1976.