Dagblaðið - 12.05.1976, Side 9
I)A(iBI,AÐH). MIÐVIKUUAC.UH 12. MAÍ 1976.
AUGLÝSTU BÍLINN í DB
Seldur í einum
grœnum og ón
allra sölulauna
,,Það er ekki ofsögum sagt aö
auglýsingamáttur Dagblaósins
sé mikill,” sagði lesandi sem
hringdi til okkar og hafói aug-
lýst bíl sinn til sölu núna fyrir
helgina.
„Á fyrstu mínútunni, eða á
slaginu átta um kvöldið, þegar
mátti hringja lét sá fyrsti heyra
í sér,” sagði auglýsandinn.
„Síðan stoppaði ekki síminn.
Næsta morgun kl. 9.30 kom sá
fyrsti og skoðaði, og á meðan
hringdi annar áhugasamur.
Nema hvað, bílakaupin voru
ákveðin í einum grænum. Við
gengum frá pappírum og enn
einn kaupandi kom til þess að
kíkja á bílinn. Síminn hélt
síðan áfram að hringja. Ég sá
mitt óvænna og flýði út, en
auðvitað hringdi svo fólkið
bara seinna”
Eins og kunnugt er þá hefur
Dagblaðið tekið upp nýja þjón-
ustu við lesendur sína og
auglýsendur blaðsins. Er hún
fólgin í því að í Þverholti 2 eru
veittar leiðbeiningar um al-
menn bílaviðskipti. Prentaðar
leiðbeiningar liggja frammi um
allan frágang skjaia varðandi
kaup og sölu. Þar fá menn
eyðublöð fyrir afsali og sölutil-
k.vnningu.
EVI
Á auglýsingaskrifstofu Ðag-
blaðsins í Þverholti 2 má fá þau
skjöl og leiðbeiningar sem til
þarf í ' sambandi við sölu
bifreiðar. Seljandi sparar sér
því sölulaunin.
(DS-mynd R.Th.)
„0f mikið gert
úr ófœrð"
— segir Paul Michelsen, garðyrkjubóndi í Hveragerði
Það þarf víst ekki að gefa bak-
arabarni brauð, en hér bítur
„Palli” í banana, sem kona
hans býður. F.vrirtæki þeirra á
nú 20 ára afmæli.
„Það er allt of mikið gert úr
ófærð hér á veturna. Hún er ekki
nærri eins mikil og virðist vera af
tilkynningum,” sagði Paul V.
Michelsen, „Palli Mikk”, garð-
yrkjubóndi í Hveragerði, þegar
Dagblaðið leit við í verzlun hans í
Hveragerði. Hann telur sig hafa
tapað miklum viðskiptum á þess-
um ófærðarfréttum.
Fyrirtæki hans varð 20 ára
hinn 1. maí.
Paul hefur unnið mörg heiðurs-
merki, meðal annars fékk hann
heiðúrsverðlaun og þrenn stór
silfurverðlaun í samkeppni
manna frá Norðurlöndum á 75
ára afmælissýningu danska garð-
yrkjusambandsins.
Hann hefur ásamt konu sinni,
Sigríði Ragnarsdóttur, og sonum
sínum lagt nótt við dag til að
halda fyrirtækinu gangandi.
Fjölmargir islendingar hafa
komið við í verzlun hans í Hvera-
gerði.
—HH
Stórsmyglið:
VODKAGRÓÐINN
VAR1300 ÞÚS.
Pólverjar virðast selja hið eld-
sterka 75% vodka á lágu verði
heima fyrir. Skipstjóri á flutn-
ingaskipinu Hvassafelli gerði inn-
kaup í einni af ferðum skipsins í
janúar sl. og pantaði 468 flöskur
af miðinum, Á Sauðárkróki fann
hann tvo kaupendur og hagnaðist
skipstjorinn á sölunni um 1.3
milljónir króna, seldi hann svo til
allt magnið þar á 1.450.000
krónur. Innkaupsverðið sam-
kvæmt því er þá eitthvað liðlega
300 krónur flaskan.
Tollgæzlan sendi frá sér í gær-
dag fréttatilkynningu um mál
þetta, en sagt hafði verið frá því
lauslega í Dagblaðinu sama dag.
Auk tollgæzlunnar hefur saka-
dómur í Reykjavík, Húnavatns-
sýslu og á Akureyri unnið að
rannsókn málsins.
Kunnugir telja að pólskt vodka
75% að styrkleika sé selt á svört-
um markaði fyrir 4500 krónur
flaskan. Sölumennirnir tveir hafa
einnig ætlað að mata krókinn, þvi
þeir hafa trúlega selt flöskurnar
fyrir 1.9 milljónir króna.
Tímaritið Adam
kemur út
múnaðar-
lega og
flytur m.a.:
Spennandi sakamálasögur
Skemmtisögur
Sportþœtti
Frásögn um Bermuda
þríhyrninginn og
ýmislegt fleira.
BS útgáfan.
Innköllun
hlutabréffa í Flugffélagi
íslands og
Loftleiðum
Afhending hlutabréfa í Flugleiðum hf. hefst föstudag-
inn 14. maí n.k. Hluthafar fá afhent hlutabréf í Flug-
leiðum gegn framsali á hlutabréfum í Flugfélagi
íslands og Loftleiðum. Hlutabréfaskipti fara fram í
aðalskrifstofu Flugleiða, Reykjavíkurflugvelli alla virka
daga á venjulegum skrifstofutíma og einnig laugar-
daginn 15. maí kl. 13-17.
FUIGLEIIHR HF