Dagblaðið - 12.05.1976, Qupperneq 14
14
/*
n
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1976.
£.-5frr--=g;v-,' ir.^r-rxaay ;..,v
Brezkt góanó á
vegum Festi
— Red Sky AtNight tíu árum á eftir tímanum
RED SKY AT NIGHT: Er hljómsveitin leyni-
vopn Breta, til þess œtluö aö drepa okkur
meö vondri músík?
DB-mynd BP.
Hljómsveitin Red Sky At
Night kom rækilega á óvart í
Festi á laugardaginn var. Hún
var meö þeim fádæmum léleg
að hún dygði ekki einu sinni til
að leika i Þórskaffi í miðri viku
Red Sky...kom fram nokkru
eftir miðnætti, að loknum leik
hljómsveitanna Laufsins og
Paradísar. Og svei mér ef
maður fylltist ekki stolti yfir
getu landans er þessar þrjár
hljómsveitir voru bornar
saman. Öll framkoma brezku
hljómsveitarinnar og
hljóðfæraleikur benti helzt til
þess að fjórir brezkir togara-
strákar hefðu orðið þreyttir á
sjómennskunni og ætlað að
verða frægir. Utlit mannanna
var meira að segja með þeim
fádæmum að íslenzku grúppíin,
sem eru þó ekki vön að fúlsa
við neinu sem brezkt er, voru
með fúlmennsku- og fyrir-
litningarsvip 1 Festi á
laugardaginn.
Ef á að gera tónlist Red
Sky.... einhver skil, þá minnti
hún einna helzt á það sem
hljómsveitin Troggs var að gera
fyrir 10-12 árum. Engin skil
kunni ég á lögum hljómsveitar-
innar. Þau voru öll mjög
keimlík — og fóru inn um
annað eyrað og út um hitt — og
skildu ekkert eftir nema
leiðindi í sálinni. Geta
hljóðfæraleikaranna
heimfærist upp á þá ályktun að
þarna sé um togarasjómenn að
ræða. Gitarleikararnir kepptust
við að framleiða sem mestan
hávaða og bassinn var falskur á
köflum. Ef á að reyna af öllum
vilja og mætti að finna
einhvern ljósan punkt hjá
hljóðfæraleikurunum þá var
trommuleikarinn einna
skástur, þó að standardinn hjá
honum sé svipaður og hjá strák
í slappri gagnfræðaskólahljóm-
sveit.
1 stuttu máli: Það er að vissu
leyti virðingarvert framtak hjá
framkvæmdastjóra Festi að
flytja inn brezka hljómsveit til
að Iífga upp á popplífið. Hins
vegar er það í hæsta máta til
skammar að innflutningurinn
sé svo lélegur að hnn sé ekki
hvítum mönnum bjóðandi.
Red Sky At Night, er
hljómsveit sem er ekki þess
virði að eyða aurunum sínum í
að hlusta á og hefðu gestir Festi
hiklaust átt að fara fram á að fá
2000 kallinn sinn
endurgreiddan ef ekki hefði
komið til ágætis frammistaða
íslenzku hljómsveitanna
Paradísar og Laufsins.
-Asgeir Tómasson.
Vikivaki gerír það
gott í útlandinu
— meðal annars í Marquee og Speakeasy
Hljómsveitin Vikivaki: Hans, Jón og Gunnar Magnússynir og Tomm.v Eiríksson.
Hljómsveitin Vikivaki, sem
mörgum er vel kunn fyrir ágæt-
lega heppnaðar heimsóknir
hingað undanfarin tvö sumur,
hefur undanfarið gert víðreist I
útlandinu.
Það eru bræðurnir, Hans,
Jón og Gunnar Magnússynir
ásamt félaga sínum Tommy
Eiriksson, sem skipa
hljómsveitina. Þeir hafa undan-
farin ár verið búsettir í Sviþjóð,
nánar tiltekið I Gautaborg, þar
sem vinsældir þeirra eru veru-
legar.
t fyrrasumar gaf Ploydor-
hljómplötufyrirtækið út 12 laga
plötu með þeim og nú vinna
þeir að gerð nýrrar með aðstoð
elzta bróðurins, Björns, sem
skapað hefur sér ágætan grund-
völl sem söngvari og laga-
smiður nú i vetur.
Milli Svíþjóðar og Englands
Björn Magnússon, einn
Vikivaka-bræðranna, mun gera
tólf laga hljómplötu með eigin
lögum núna i haust.
er í gildi gagnkvæmur samning-
ur um skipti á hljómsveitum.
Þeir félagar hafa orðið slíks
boðs aðnjótandi og eru í
London um þessar mundir, þar
sem þeir leika á nokkrum
klúbbum, m.a. hinum fræga
Speakeasy og Maruqee.Þaðan
halda þeir til Cardiff og
Suffolk.
Nýlega var svo gefin út
hljómplata með Birni og hann
mun einnig gera 12 laga plötu
undir haustið. Með honum á
plötunni verða frægir hljóð-
færaleikarar sænskir, eins og
George Wadenius og hljómsveit
hans, Made in Sweden.
Wadenius lék um tíma á gítar
með hljómsveitinni Blood
Sweat and Tears.
Má þvi segja að þeir bræður
hafi gert garðinn frægan er-
lendis og er vonandi að vel tak-
ist til hjá þeim. -HP.
FRKSH: Ómar Oskarsson. Sveimi Magnússon. Tom Lansdown og Jónas Björnsson. l)B-mynd Bjoigvin
Pálsson.
fRii heitir
sú nýjasta
Um komandi helgi hefur ný
hljómsveit starf á dansleikja-
markaði Reykjavíkur og
nágrennis. Þetta er hljóm-
sveitin „Fres'h” en hana skipa
Omar Öskarsson. fyrrum
píanóleikari Arna og Stóla,
Tom Lansdown, sem á sinum
tima var i Roof Tops og
Sólskini. Sveinn Magnússon,
fyrrum bassaleikari Cabaret og
Jónas Björnsson
trommuleikari. Hann var áður
með hljómsveitinni Barrock.
Það er ekki langt síðan þeir
félagarnir ákváðu að gera
óformlegar sessionir sínar í
allan vetur að formlegum
æfingum með það fyrir augum
að kom fram og þreifa fyrir sér
meðal alntennings.
„Viö vil.jum alls ekki að fólk
fati að gera sér of miklar
vonir." sagði Tom Landsdown.
þegar við litum inn á æfingu
hjá Fresh vestur í bæ eitt kvöld
fyrir skemmstu. „Það hefur
vakið vissar grunsemdir að við
höfum verið að æfa hér í vetur
en það hefur bara verið leikur,
tómstundagaman."
Hljómsveitin er með all-
fjölbreytt lagaval og líkaði vel
nýlega. þegar hún kom fram
f.vrir bandaríska herntenn i
einum klúbbanna á Keflavikur-
flugvelli.
Dýrasti sjóður hljóm-
sveitarinnar er án efa Ómar
Öskarsson sem er einhver
albezti söngvari er fram hefur
komið hérlendis um margra ára
skeið.
Fresh verðúr i Klúbbnum
annað kvöld. Tjarnarbúð
föstudagskvöld og í Hellubíói
á laugardagskvöldið.
-ÖV.