Dagblaðið - 24.05.1976, Qupperneq 2
IMCBLAttltt. MÁNUDA(;UH 24. MAÍ 1976.
S
MÓTMÆLI
MÓÐGANDI
UMMÆLUM
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir
formaður Sóknar hringdi:
,,Ég mótmæli móðgandi
ummælum forstöðukonu Lauf-
ásborgar varðandi starfs-
stúlkur Sóknar sem voru á
þessa leið: „Það er einungis á
valdi forstöðukonu að ráða tii
sín starfsfólk en ekki starfs-
stúlkna að vaða uppi með alls
kyns ósóma, eins og oft vill
verða þegar þær eru í meiri-
hluta starfsfólks."
Eins og öllum er kunnugt,
sem málin þekkja, hafa Sóknar-
konur að miklu leyti haldið
uppi barnaheimilunum og
þetta orð hefur aldrei farið af
þeim fyrr. Ég vil ekki svara
frekar að sinni vegna þess að ég
treysti því að stjórn Sumar-
gjafar taki þessi ummæli til
rækilegrar athugunar."
SUMARGJÖF
HARMAR
MEIÐANDI
UMMÆLI
Vegna bréfaviðskipta milli
starfsstúlku og forstöðukonu
Laufásborgar vill stjórn
Sumargjafar taka eftirfarandi
fram:
1. Samkvæmt starfsreglum sér
forstöðukona um ráðningu
starfsfólks.
2. Varðandi uppsögn
viðkomandi starfsstúlku var
hún studd af framkvæmda-
stjóra, þar sem um uppsögn
vegna ráðningar fóstru var að
ræða.
3. Stjórn Sumargjafar harmar
meiðandi ummæli um stétt
Sóknarstúlkna, sem Sumargjöf
hefur haft mikil og góð sam-
skipti við allatíð.
Hvað myndi gerast ef helmingur
farþega þyrfti að standa upp á
endann milli Reykjavíkur og
Akureyrar?
Hafnfirðingur hringdi: einn þeirra sem ferðast með
„Það er kannski að bera í vögnum Landleiða milli Reykja
bakkafullan lækinn en ég get víkur og Hafnarfjarðar dag
nú vart orða bundizt. Eg er hvern og oftsinnis verður
manni hugsað til hver stjórni
eða beri ábyrgð á þeim gífur-
lega fjölda fólks sem troðið er í
vagnana kvölds og morgna.
Sérstaklega á þetta við um
ferðirnar um áttaleytið á
morgnana og svo tuttugu
minútur yfir fimm síðdegis.Það
Það verður að bæta við aukavögnum, segir Ha fnfirðingur.
er svolítill munur á — hvort í
vögnunum eru 50-60 manns eða
hátt á annað hundrað. Mér
þætti gaman að vita hvernig
tryggingum er háttað, ef
eitthvað kæmi fyrir, og eins vil
ég benda á að þetta er sérleyfi.
Það þætti víst saga til næsta
bæjar ef helmingur farþega
þyrfti að standa upp á endann á
milli Reykjavíkur og
Akureyrar.
Eorráðamenn Landleiða:
Setjið endilega inn aukavagna,
þegar mest er að gera — þið
vitið vel að svona lagað getur
alls ekki gengið.“
CBsamB
Hreinlœtistœkin skera sig
hvarvetna úr vegna frábœrrar
hönnunar, og ábyggilega hefur
ekki áður verið boðið glœsilegra
úrval.
í dag sýnum við eina gerðina
enn, en hœgt er að velja um
átta mismunandi gerðir af
settum í tólf litum ásamt
handlaugum í borð og
baðkerjum.
Dragið ekki að panta því ennþá
er sérstakur kynningarafsláttur
í gildi.
BRAUTARHOLTI20, 9
(ÞÓRSKAFFI)Á II.HÆÐ, SÍMI13285
Okkur vantar
umboðsmenn
úti á landi.