Dagblaðið - 24.05.1976, Page 3
I)A(;HI,AÐ1Ð. MANUUAIíUK 24. MAl 1976.
3
Víkingaferðin í vesturheim:
HVAÐ UM FULLTRÚA ÞESS ÞJÓÐFÉLAGS
ER LEIFUR EIRÍKSSON SPRATT UPP ÚR?
Sjómaður hringdi:
„Nú skal höggva í sama
knérunn og fyrir tæpum
þúsund árum. Vaskir og valin-
kunnir menn fara með víkinga-
skipinu Leifi Eiríkssyni í
„landafundinn mikla hinn
síðari".
Hinir vösku og valinkunnu
menn munu ferðast alskeggjað-
ir upp Hudsonfljót i
Bandríkjunum í tilefni 200 ára
afmælishátíðar fullveldis
Bandaríkja Norður-Ameríku.
Þeir munu koma víða við og ef
að líkum lætur mun ferð þeirra
hljóta mikla eftirtekt.
Þess vegna voru sjö vaskir og
valinkunnir menn valdir til
fararinnar. Þeir eru Viggó
Maack, sem verður skipstjóri,
Sigurður A. Magnússon, Sveinn
Sæmundsson, Kjartan Mogen-
sen, Hinrik Bjarnason. Auk
þessara víkinga munu Reykja-
víkurborg, utanríkisráðuneytið
og Blaðamannafélag tslands
ætla sér sína fulltrúa i þessari
skemmtilegu og frumlegu ferð.
Allt klappað og klárt! Góðir
fulltrúar íslenzku þjóðarinnar
hljóta hnossið. Þeir munu koma
fram með atgeir í hendi í hinni
miklu heimsálfu I vestri —
hinni miklu heimsálfu sem
Leifur Eiríksson, bóndinn og
sjófarandinn frá eyjunni fögru
langt norður í höfum, fann
fyrir tæpum þúsund árum.
Hvað þá um fulltrúa þess
þjóðfélags sem Leifur Eiríks-
son kom frá? nefnilega
sjómenn og bændur. Eiga þær
stéttir sér enga fulltrúa?
Hvað um bóndann, hendur
hans erja hina sömu mold og
forfeður okkar gerðu fyrir
þúsund árum? Á hann ekki
sinn fulltrúa?
Hvað um sjómanninn er
sækir fisk á hin sömu fiskimið
og forfeður okkar gerðu fyrir
þúsund árum? Á hann ekki
sinn fulltrúa?
Gleymdust þessar stéttir?
Eða er eins og svo oft áður, þær
afla þjóðinni lífsviðurværis
sem aðrar stéttir þjóðfélagsins
byggja á og njóta góðs af?
Hin íslenzka embættis-
manna- og skrifstofustétt velur
hina vösku og valinkunnu
fulltrúa og auðvitað koma þeir
úr röðum embættis- og skrif-
stofustéttanna. Nefnilega skrif-
stofuþrælar er verðlauna
sjálfa sig með víkingaferð á
fullum launum!“
Leifur Eiríksson, hinn mikli
landafundamaður, sprottinn
upp úr islenzku sjómanna- og
bændaþjóðfélagi.
Vikingaskipið Leifur Eiríksson kiýfur úthafsöiduna fyrir
þöndum seglum.
Þjóðin verður að veita
ríkisstjóm Geirs aðhald
í landhelgismálinu!
Matthías Gunnarsson skrifar:
„Þrátt fyrir hótanir Nimrod
njósnavélarinnar á dögunum
um að skjóta á Ægi hefur ríkis-
stjórnin sýnt dæmalaust þrek-
leysi og ákveðið að senda utan-
ríkisráðherra á fund NATO til
þess að skála með NATO-
kollegum sínum, kollegum er
ótvírætt brugga íslenzkri þjóð
launráð. Rikisstjórnin átti að
sýna kjark og festu og hafna
þátttöku í NATO-fundinum.
Þannig hefði málstaður okkar
vakið mun meiri athygli en
annars og NATO-ríkin alvar-
lega hugsað sinn gang.
Eitt blaða þjóðarinnar,
Morgunblaðið, stendur þó
fastan vörð um málstað Breta,
ef marka má fréttaflutning og
leiðara blaðsins. Eins er hið
dæmalausa viðtal við Geir
Hallgrimsson í brezkum fjöl-
miðli ljóst dæmi um undan-
sláttarstefnu ríkis-
stjórnarinnar. Þar lýsir hann
því yfir að hefja megi
samningaviðræður. Flotinn fari
út fyrir en varðskipin murti láta
togarana nokkurn veginn af-
skiptalausa á meðan. Komi
varðskip að togara þá hífi hann
svona rétt til málamynda á
meðan varðskipið siglir fram
hjá. Hvað kalla menn slikt? —
þetta er auðvitað ekkert annað
en undanhald.
Ríkisstjórnin vill losna við
landhelgismálið, þá getur hún
sofið værar.
En auðvitað gerir ríkis-
stjórnin ekkert slíkt! Þjóðin
leyfir henni það ekki og
mikilvægt er að þjóðin haldi
vöku sinni og veiti ríkisstjórn
Geirs Hallgrímssonar aðhald —
þess er vissulega þörf.
Haldi þjóðin vöku sinni er
sigurinn vís, sigurinn verður
okkar."
OHEMJU
gall abuxn aúrv al
Auk þess minnum við á nýkomnar
jersey skyrtur og denimvestin
margrómuðu
**.
sn
sS
48
V/ LAUG/WEGUR
II
BANKASTRÆTI
®-14275
&-21599