Dagblaðið - 24.05.1976, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 24. MAl 1976.
Álverið íStroumsvík:
Álverðíð fer hœkkandi og
stefnt að stœkkun í haust
Uppsagnir til fastróðinna hafo verið dregnar til baka
„Við höfum aflað allra
heimilda og leyfa fyrir stækkun
álverksmiðjunnar í Straumsvík
en engar ákvarðanir um fram-
kvæmdir hafa enn verið
teknar,” sagði Ragnar Hall. 'órs-
son forstjóri í viðtali við Dtí.
„Horfurnar hafa vænkazt og
markaður fyrir ál fer batnandi.
Vonandi heldur svo áfram sem
horfir og þá ætti ákvörðun um
framkvæmdir við stækkun að
verða raunhæf er líða tekur á
sumarið. Stækkunin, ef til
kemur, verður í því fólgin að
skáli 11, sem nú rúmar 120 ker,
verður lengdur þannig að hann
rúmi 160 ker eins og skáli 1.
Um 700 manns starfa nú við
Alverið og frá 1. október verður
unnið með fullum afköstum.
Dregnar voru til baka uppsagn-
ir til hóps manna, sem verið
hafa í föstu starfsliði verk-
smiðjunnar, en uppsagnir til
lausráðinna starfsmanna eru í
gildi og þeir menn munu hætta
störfum í haust. Að sögn
Ragnars hafa þessir lausráðnu
menn aðallega unnið við við-
gerðir á biluðum kerum.
Álbirgðir í Straumsvík eru
nú litlar. A sl. hausti voru seld
27 þúsund tonn til Alufinance
og tiltölulega litlar birgðir voru
þvi eftir hér, sagði Ragnar. Á
þær hefur gengið ört á þessu
ári.
Verð áálier nú hækkandi en
getur þó enn ekki talizt gott.
Hæsia verð sem fengizt hefur
fyrir ál frá Straumsvik, var
1100 dollarar tonnið. Var lítið
magn selt héðan á því verði í
ágúst 1974. Þá var skráð heims-
markaðsverð 870 dollarar fyrir
tonnið.
Markaðsverð komst lægst í
660 dollara tonnið. Núna er
markaðsverð áls um 850 dollar-
ar tonnið.
Skráð heimsmarkaðsverð var
í aprílbyrjun sl. 950 dollarar á
tonnið. Markaðsverð hefur enn
ekki náð því en það er von mín
og trú að markaðsverð nái
skráðu heimsmarkaðsverði inn-
an skamms, sagði Ragnar.
Til skýringar á þessum hug-
tökum skal fram tekið að
heimsmarkaðsverð þýðir það ál-
verð sem framleiðendur keppa
að að ná og byggja áætlanir
sínar á. Markaðsverð er hins-
vegar gangverð á hverjum tíma
á hörðum samkeppnismarkaði.
ASt.
Aðveitustöðin við
Austurbœjarskólann:
athugun nú
fyrirhuguð
Borgarráð hefur nú frestað
allri ákvörðunartöku um
hugsanlega byggingu
aðveitustöðvar Rafmagnsveitu
Reykjavíkur á leiksvæði
Austurbæjarskólans. Hyggst
ráðið taka sér hálfan mánuð til
að kanna einhverja aðra
möguleika.
Eins og skýrt hefur verið frá
hér í blaðinu mótmælti
kennarafundur Austurbæjar-
skólans einróma þessari
skerðingu á athafnaplássi
nemendanna, en eftir það sam-
þykkti borgarráð að veita sfna
heimild fyrir framkvæmdinni.
Hávær mótmæli í kjölfar þess
hafa nú leitt til að frekari
athugun er nú fyrirhuguð.-G.S.
Helga á Engi og 6 óra dótturdóttir stof na félag:
HUÐSKJÁLF ó að
hjólpa Gœzlunni
„Þingmennirnir okkar
framleiða hvorki smjör né
mjólk. Þeir búa ekki til
peninga. Allir landsmenn þurfa
nú að taka höndum saman og
leggja eitthvað af mörkum í
þennan sjóð til að styðja
útverði frelsis íslands, starfs-
menn Landhelgisgæzlunnar,”
sagði Helga Larsen í Engi en
hún ásamt sex ára dótturdóttur
sinni, Helgu Bergmann er
stofnandi sjóðs til styrktar
Landhelgisgæzlunni. Sjóðurinn
hefur hlotið nafnið Hliðskjálf.
„Við búum f bezta landi f
heimiog ég vil vekja fólkið til
umhugsunar. Það er mikilvægt
að vernda fiskinn í sjónum,
hann er undirstaða frelsisins,
án hans værum við fátæk.
Fátæktin gerir manninn
ófrjálsan og frelsið er það
dýrmætasta sem við eigum. En
þó vildi ég heldur vera frjáls f
moldarkofa, en ófrjáls i kristals
höll. Við eigum ekki að trúa á
Nato, Bandarfkin eða England,
við eigum að trúa á guð, landið
og okkur sjálf," sagði Helga
og sannfæringarkrafturinn
geislaði út frá henni. „Og þess
vegna vil ég að þessi sjóður
verði öflugur og geti orðið
varðskipsmönnum okkar, sem
berjast upp á líf og dauða að
miklu gagni. Stofnfé sjóðsins er
36.000 krónur, ég lagði frain
30.000 en dótturdóttir mín, sem
er barn varðskipsmanns, 6.000,
en kveikjan að þessu hjá mér
var hún Selma Júliusdóttir,
hún skrifaði margar greinar í
vetur og mér fundust þær
góðar.” -kl.
Splunkuný og dugmikil
Ákerman-beltagrafan okkar er ný og dugmikil grafa,
sem hentar einstaklega vel til allrar jarðvinnu.
Helga Larsen og dótturdóttir hennar, Helga Bergmann, en þær eru
stofnendur sjóðsins Hliðskjálf. DB-mynd Björgvin.
Lítill
veiði-
skapurí
Þing-
vallavatni
— voríð óhagstœtt
og vatnið
aðeins þriggja
gróðu heitt
Veiðiskapur i Þingvalla-
vatni er nú mjög lélegur og
gildir einu hvort um stanga-
eða netaveiði er að ræða, að
sögn Eiríks J. Eirikssonar
þjóðgarðsvarðar. Hann sagði f
viðtali við DB í gær að vatnið
væri aðeins þriggja gráða heitt
og að fiskurinn gengi ekki upp
á grynningar f svo miklum
kulda. ísa leysti fremur
snemma f vor en sólarleysi f vor
hefur tafið fyrir að vatni
hitnaði.
Bjóst Eiríkur ekki við að
veiðiskapur glæddist fyrr en í
júnf og benti hann á að veðrið í
apríl væri þýðingarmikið upp
á svifgróðurinn í vatninu, en
veðrið í apríl sl. var
óhagstætt. -G.S.
Er eitthvað að fela í
reikningum Dagsbrúnar?
Reikningar Dagsbrúnar voru
lagðir fram um síðustu helgi og
að sögn Böðvars Indriðasonar
verkamanns eru þeir ekki
endurskoðaðir af felaginu
og er hvergi undirskrift
félagskanns að finna á
reikningunum. Fékk Böðvar að
skoða reikningana sem félags-
maður en er hann bað um afrit
til að hafa með sér var honum
neitað um það. Malið fór svo, að
sögn Böðvars, að formaður
Dagsbrúnar, leyfði að Böðvar
fengi afrit, ljósritað, og var
honum sagt að hann mætti
sækja það daginn eftir.
Þegar Böóvar kom svo eftir
afritunum á tilsettum tíma
voru þau ekki fyrir hendi. Lýsti
hann því þá yfir í votta
viðurvist að hann teldi
upphaflega neitun um þau enn
i gildi.
Sagði Böðvar að svo virtist
sem forráðamönnum Dags-
brúnar væri illa við að félags-
menn br.vtu reikningana til
mergjar, svo virtist sem þeir
mættu aðeins renna yfir þá og
búið.
Böðvar sagði að svipað hefði
komið f.vrir fvrir nokkrum
árum og virtist sér sem
stjórnarmenn hefðu eitthvað að
fi'la. -G.S.
Aðeins vanir menn stjórna nýju gröfunni
og JCB 7-gröfunni okkar.
VINNUVÉLAREKSTUR VILHJÁLMS ÞÓRSS0NAR
Simar 86465 ú kvöldin og 84047 á daginn
FÉU ÚT
ÚR BÍL
‘Kona féll út úr bifreið sem
var á ferð um Hafnarfjarðar-
veginn síðla nætur á laugardag-
inn. Kópavogslögreglan hafði
ekki upplýsingar um það í gær
hvort bílhurðin hafði opnazt
óvart eða konan stigið út af
misgáningi.
Konan hlaut nokkrar
skrámur við þetta slys. Hún var
flutt í sl.vsadeild þar sem gert
var að sárum hennar.
—AT—