Dagblaðið - 24.05.1976, Síða 6
6
Kemedy
vS gjaman
verða
forseti, en...
Haft er eftir öldungadeildar-
þingmanninum Edward
Kennedy að hann vildi gjarnan
verða forseti Bandaríkjanna,
„en það getur ekki orðið nú.“
Segir Kennedy í viðtali við
tímaritið Time, að hann sækist
ekki eftir embættinu „vegna
fjölskylduástæðna.“
„Ég get ekki farið í for-
setaframboð núna og ég hef
sætt mig við það. Það er
einfaldlega ekki hægt, þegar á
fjölskylduástæður mínar er
li.tið."
Talsmaður tímaritsins segir að
viðtal þetta hafi verið tekið I
síðustu viku, áður en fréttir í
dagblaðinu New York Daily
News hermdu að hann hygðist
gefa kost á sér til framboðs, ef
farið yrði fram á það við hann á
flokksþingi demókrata 1 júlí.
Kennedy bar fréttir þessar
til baka, og hefur sagt tíma-
ritinu að staða hans, eins og
hann segir hana vera í við-
talinu, sé óbreytt.
Eftir að hafa lýst því yfir árið
1974 að hann myndi ekki fara í
forsetaframboð mun Kennedy
hafa sagt við fjölskyldu sína, að
ekki kæmi til greina, að leggja
það á sína nánustu, að fara út í
stjórnmálabaráttu, sem
einungis hefði erfiðleika í
för með sér.
I vikuritinu er einnig sagt, að
Kennedy sé í sjálfu sér
ánægður með það að vera ekki í
framboði. Eins og kunnugt er
Iétu báðir bræður hans, John
og Robert, lífið fyrir morðingja
hendi, er þeir gegndu embætti.
„Sumir kunnk að halda að
Edward Kennedy öldunga-
deildarþingmaður.
skrúðgangan sé að fara fram
hjá mér, en hvað er hægt að
gera“, segir Kennedy í
viðtalinu. „Ég reyni að vera
raunsær. Að heita þessu nafni
hefur byrði og ábyrgð í för með
sér.“
OSCAR BONAVINA
SKOTINN TIL BANA
Á HÓRUHÚSI í USA
Skammbyssa fannst í öðru
stígvéli argentínska boxarans
Oscars Bonavenas, sem var
skotinn til bana utan við
vændishús nærri Virginia City í
Nevada í Bandaríkjunum.
Bonavena, sem varð 33 ára
gamall, fannst dauður snemma í
gærmorgun nærri Mustang
Ranch-hóruhúsinu, en það er í
eigu mannsins, sem annaðist
auglýsingar og skipulagningu
hnefaleikakeppna Bonavenas.
Þrjátíu og eins árs gamall öryggis-
vörður hóruhússins, Willard Ross
Brymer, er hafður í haldi,
grunaður um morðið.
Lögreglustjórinn á staðnum
sagði i símtali við fréttamann
Reuters, að byssan, sem fannst í
skó boxarans, hafi verið ónotuð.
Hinn grunáði neitar að tala, en
lögreglustjórinn neitaði því hins
vegar ekki, að fjölmargar
skýringar væru til á morðinu.
Líkskoðun hefur leitt í ljós, aó
Bonavena var skotinn í brjóstið
með kraftmiklum riffli og að
morðinginn var staddur á lóð
vændishússins, sem er rammgirt.
Talið er að Bonavena, einn
þekktasti hnefaleikamáður þessa
áratugs, hafi verið að reyna að
komast inn í vændishúsið þegar
skotið var á hann.
Gegi herstöðvum
áDiegoGanu
Mosambík og Sovétríkin hafa
hvatt til þess, að engar erlendar
herstöðvar verði settar á lagg-
irnar við Indlandshaf.
Kemur þetta fram í
sameiginlegri yf irlýsi ngu
þjóðanna tveggja, en Samora
Machel, forseti Mosambik
hefur nú lokið sex daga
opinberrf heimsókn í Sovét-
ríkjunum. Segir ennfremur í
yfirlýsingunni að herstöð
Bandaríkjanna á eyjunni
Diego Garcia sé örgun við
friðinn og allar friðelskandi
þjóðir.
Machel forseti átti viðræður
við Podgorny forseta Sovét-
ríkjanna um ýmis sameiginleg
hagsmunamál og alþjóðlcg
málefni.
í yfrlýsingunni segir, að bæði
löndin leggi áherzlu á, að
„sameiginleg barátta Afríku,
Asíu og Suður-Ameríku og
sósíalískra rikja sé nauðsynleg
til þess að sigrast megi á heims-
valdasinnum um heim allan."
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 24. MAÍ 1976..
Gamlar kempur í Cannes
Ein aöaluppistaðan í kvikmyndahátíðinni í þessu sviði er myndin „Hollywood, Holly-
Cannes þetta áriö er sýning gamalla söngva- wood" þar sem Fred Astaire #er með eitt^
og dansmynda. Stœrsta kvikmyndaverkiö á aðalhlutverkiö.
Myndin er byggö á hlutúm úr mörgum
söngva- og dansmyndum og því þótti til
hlýða, að sjálfur aðalleikarinn vœri viðstadd-
ur frumsýningu myndarinnar á hátíðinni.
Með honum á myndinni er önnur gömul
kempa, Cary Grant og leikstjórinn Gene
Kelly.
Flugránið á Filippseyjum:
Skyndileg upplausn
— og vélin stóð í
Ijósum logum
Hernaðaryfirvöld á Filippseyj-
um sögðu í morgun, að skyndileg
upplausn meðal flugræningjanna
hafi valdið bardaganum u’m flug-
vélina á Zamboangaflugvelli.
Þrettán manns biðu þar bana.
Þrír af sex ræningjum biðu
bana.
Að minnsta kosti nítján farþeg-
anna og ræningjarnir þrír, sem
eftir lifðu, voru alvarlega særðir.
Ráninu lauk þremur dögum
eftir að það hófst, í gærmorgun,
þegar ræningjarnir —
múhameðskir aðskilnaðarsinnar
— sprengdu handsprengju í vél-
inni og hófu skothríð í allar átti.
Yfirvöld segja að hermenn hafi
ráðizt að flugvélinni þegar fyrstu
skotin heyrðust. Talið er að til
upplausnar hafi komið þegar
nokkrir þeirra 83 farþega og
fimm áhafnarmanna sem voru um
borð, reyndu allt í einu að komast
að útgöngudyrum.
Vélin sprakk síðan í loft upp.
Hernaðaryfirvöld höfðu hafnað
kröfum flugræningjanna, sem
voru á aldrinum 17—23 ára. Þeir
fóru fram á að fá flugvél til að
komast til Líbýu, reiðufé og vopn.
Burton og
í Exorcist II
Nú hefur verið, oina og oft vtll vorða i
Bandaríkjunum, ákvaöið að gera nýja fram-
haldsmynd, byggða á efninu um djöflatrú,
sem fram kom í myndinni ,,The Exorcist" og
sýnd var hár á landi við mikla aösokn.
Myndin á að fjalla um efni þar sem hinni
fyrri lauk og til þess að reyna að lappa upp á
hlutina hefur Richard Burton verið fenginn
til þess að leika eitt aðalhlutverkið, ásamt
Lindu Blair, sem hér sést við hlið hans.
Vesturbakki
Jórdanár:
ísraelskur
liðsforingi fyrir
herrétt
Simon Peres, varnarmálaráð-
herra Israels, segir að liðsforingi
sá er varð ungum Araba að bana í
óeirðum á vesturbakka Jórdanár
nú fyrir skömmu muni verða
leiddur fyrir herrétt.
Arabinn lézt í varðhaldsklefa 1
borginni Salpit, eftir að hafa
verið barinn af ísraelskum her-
mönnum, er voru undir stjórn
liðsforingjans.
Peres segir ennfremur, að
ástandið á hernumda svæðinu á
vesturbakkanum fari nú skán-
andi, eftir að beitt hefur verið
nýjum aðferðum við stjórnina.
Ekki tilgreindi hann nánar
hvérjar þær aðferðir væru, en
talið er, að hann hafi átt við þær
breytingar, er gerðar hafa verið
á liðsaflanum. I stað hermanna
hefur landamæravörðum verið
falið að halda uppi lögum og
reglu, og reynt hefur verið að
halda hermönnum frá þeim stöð-
um, þar sem líklegast væri, að til
átaka kæmi.