Dagblaðið - 24.05.1976, Qupperneq 7
DAUBLAÐItt. MANUDAC.UH 24. MAÍ 1976.
7
Erlendar
fréttir
REUTER
Mach-
ekhin
farínn
frá Japan
Sovézki blaðamaðurinn
Alexander Machekhin, sem
Tokyolögreglan hafði í haldi í
tíu daga vegna gruns um að
hann hefði stundað njósnir um
bandaríska flotann, var látinn
laus á laugardaginn og hélt til
Moskvu í gær, , að sögn
japanska utanríkisráðuneytis-
ins.
Machekhin, sem var frétta-
maður APN-Novosti í Tokyo,
var vísað úr landi. Hann kom
til Japan í október 1974.
Fjölmiðlar
þjóðnýttir
I
Angola
Að sögn fréttastofu Júgó-
slavíu hafa stjórnvöld í Angóla
þjóðnýtt alla fjölmiðla.
Þá segir fréttastofan, að um
leið hafi verið sett á laggirnar
ríkisfyrirtæki, er sjá eigi um
alla framleiðslu og dreifingu á
eldsneyti.
Einnig hafa verið kynntar
reglur og lög varðandi bæjar-
og sveitastjórnarkjör, en það
fyrsta fer fram í landinu nú í
næsta mánuði.
Haft er eftir fréttastofunni,
að Lusio Lara, einn ráðamanna
i frelsishreyfingu Angóla,
MPLA, hafi sagt, að aldrei hafi
verið um neitt stjórnmálasam-
band milli Portúgal og Angóla
að ræða, og því ekki hægt að
rjúfa það.
KAREN ANNt QUINLAN
NBTAR AÐ DEYJA!
áreiðanleguin heimildarmönn-
um, að öndunarvélin hafi verið
úr sambandi af og til undan-
farna tíu daga. Blaðið segir enn
fremur, að þessi aðferð sé
venjuleg, þegar verið sé að
kanna hvernig líkaminn
bregðist við.
Þá segir blaðið að Karen hafi
á laugardagskvöldið verið flutt
af gjörgæzludeild á stofu í
sjúkrahúsinu.
Karen Anne Quinlan hefur
legið í dái í 13 mánuði.
Öndunarvélin, sem læknar
segja að hafi haldið Karen
Anne Quinlan á lífi í þrettán
mánuði, hefur verið tekin úr
sambandi — án þess að það hafi
nokkur sýnileg áhrif á hana, að
því er segir í fréttum frá
Mossistown í New Jersey.
Talsmaður sjúkrahússins í
Denville, þar sem Karen liggur,
hefur hvorki viljað staðfesta né
bera til baka fréttir í Morris-
town Daily Record og New
York Times þess efnis, að önd-
unarvélin hafi fyrst verið tekin
úr sambandi fyrir 10 dögum
síðan.
Karen Quinlan, sem nú er 22
ára, hefur verið miðdepill flók-
inna réttarhalda, þar sem reynt
hefur verið að ákvarða hvort
verjandi sé að taka lungnavél-
ina úr sambandi og láta stúlk-
una deyja drottni sínum. Hún
hefur verið meðvitundarlaus í
rúmlega eitt ár.
í marz úrskurðaði hæstirétt-
ur New Jersey að leyfilegt væri
að taka öndunarvélina úr sam-
bandi, svo framarlega sem sér -
stakur hópur lækna samþykkti
það.
I blaðinu Morristown Daily
Record er í morgun haft eftir
Kissinger í Sviþjóð:
15 þúsund manns hrópuðu
„Kissinger er morðingi"
Fimmtán þúsund manns
gengu um götur Stokkhólms í
Henry Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna.
gærkvöld í fjölmennustu mót-
mælagöngu, sem farin hefur
verið í Svíþjóð síðan á tímum
Víetnam stríðsins. Tilgangur
göngunnar var að mótmæla
heimsókn Henry Kissingers,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna.
Göngumenn hrópuðu „Kiss-
inger morðingi“ og báru spjöld,
sem á voru letruð vigorð gegn
stefnu Bandarikjanna í Chile,
Indókína og Miðausturlöndum.
Göngumenn sóttu hart að
bandaríska sendiráðinu, þar
sem Kissinger dvelur í þá tvo
daga, sem heimsókn hans varir.
I stuttu ávarpi, sem Kiss-
inger flutti a á flugvellinum
eftir komuna til Stokkhólms,
sagðist hann gera sér' grein
fyrir því, að ekki væru allir
jafn hrifnir af þangaðkomu
sinni. Engu að siður gerði hann
sér vonir um árangursríkar við-
ræður við Olof Palme forsætis-
ráðherra og Sven Andersson
utanríkisráðherra.
Ekki kom til átaka í fram-
haldi af mótmælagöngunní,
sem er hin stærsta síðan gengið
var um götur Stokkhólms-
borgar í desember 1972 I mót-
mælaskyni við loftárásir
Bandarikjamanna á Hanoi.
Háttsettur bandarískur
embættismaður í fylgdarliði
Kissingers (en svo er Kissinger
nefndur þegar hann vill ekki
láta hafa eitthvað beint eftir
sér) sagði mótmælagönguna
vera sænskt vandamál, ástæðu-
laust væri að hafa áhyggjur af
henni.
Kissinger kom til Stokk-
hólms í boði Palmes forsætis-
ráðherra. Með heimsókninni er
formlega bundinn endi á þá
sambúðarerfiðleika, er upp
komu eftir að Olof Palme lýsti
loftárásunum á Hanoi um
jólin 1972 sem „þjóðarmorði."
Olof Palme, forsætlsráonerra
Sviþjóðar.
AU KAUPIR 0G GEFUR MIÐA
Muhamed AIi heimsmeistarinn
í þungavigt i hnefaieikum hefur
margar góðar hliðar, það s_ýndi
hann í Munchen á laugardag.
Taisvert illa hefur gengið að selja
miða á keppni Ali við Bretann
Richard Dunn aðfaranótt
þriðjudagsins. Keppni Ali og
Dunn hefur faiiið í skuggann af
knattspyrnunni Stóðu málin
þannig að svo virtist sem aðstand-
endur keppninnar töpuðu stórfé
ef ekki tækist að selja miðana á
keppnina. Ali keypti þá miða
fyrir 100 þúsund dollara,
samsvarar 18 milljónum ísl.
krónum. Miðana gefur hann
bandarískum hermönnum i V-
Þýzkalandi. Aðeins 7500 sæti af
13000 hafa verið seld, enda áhugi
á hnefaleikum i Þýzkalandi ekki
mikiii, þeir hugsa þeim mun meir
um knattspyrnu.
Stjórnmálahneykslið í Bretlandi:
ALLT UPPSPUNIFRÁ RÓTUM
Hópur brezkra stjórnmála-
manna hefur hvatt James
Callaghan og Harold Wilson,
fyrrum forsætisráðherra til
þess að leggja fram tillögur til
úrbóta, er komið gætu í veg
fyrir að Suður-Afríkumenn geti
haft áhrif á brezkt stjórnmála-
líf.
Kemur beiðni þessi í kjölfar
tveggja sögusagna, sem báðar
eru af suður-afrískum upp
runa, þess efnis að þær gætu
reynzt hættuleg brezkum
stjórnmálamönnum, en hafa nú
báðar verið bornar til baka.
Nefnd stjórnarandstæðinga
hefur krafizt þess á þingi, að
sett verði á laggirnar nefnd, er
kanni hvað hæft sé í þessum
sögusögnum og um leið hvort
ekki sé hægt að koma í veg
fyrir að þær berist út.
Einn þeirra hefur sagt, að
viti Harold Wilson eitthvað,
eigi hann auðvitað að skýra frá
því, til þess að skýra stöðuna.
Er Jeremy Thorpe leiðtogi
Frjálslynda flokksins varð að
segja af sér, vegna sögusagna
um að hann hefði staðið í ástar
sambandi við ungan mann,
sagði Harold Wilson, að liann
teldi einhvers konar fjárhags-
leg öfl í Suður-Afríku standa að
baki þessum ásökunum og
rógsherferð.
Fyrir réttum þrem dögum
sagði Callaghan; „tilraunir eru
gerðar til þess að skaða álit
manna á þingmönnum frjáls-
lyndra."
Sendiráð Suður-Afriku hefur
hins vegar krafizt að verða
beðið vendilega afsökunar,
eftir nýjasta söguburðinn, þar
sem dagbiaðið The Guardian
sagði að einn sendiráðsstarfs-
manna, Johan Russouw, sem nú
hefur verið kallaður heim,
hefði átt að reyna að kaupa
klámmynd af ungum manni. I
myndinni átti ákveðinn framá-
maður að hafa verið að gamna
sér með smástelpum.
í dagbiaðinu Sunday People
segir ungi maðurinn hins vegar
að sagan hafi öll verið upp-
spuni frá rótúin og að sendi-
ráðsmaðurinn hafi aldrei reynt
aðkaupaaf honum neina mynd,
sem iiliuui' væri ekki til.
Jeremy Thorpe, fyrrum
leiðtogi frjálslyndra.
Norsk-sovézkar
landhelgis-
viðrœður
Norskir og sovézkir ráðherrar
munu koma saman til fundai i
Moskvu á morgun til að glíma við
hina vandasömu deilu um réttindi
til fiskveiða á Barentshafi, sem
talið er vera ein auðugustu
fiskimið Evrópu.
Talið er að Jens Evensen haf-
réttarráðherra Norðmanna muni
leggja áherzlu á kröfur
Norðmanna um yfirráð yfir haf-
svæði þessu. Norðmenn hafa
undanfarið mjög verið áfram um
að vernda fiskimið sín ágangi
erlendra þjóða, enda er ofveiði
þar eins og víða annars staðar.
Sovétmenn eiga sem kunnugt
er einn stærsta flota togara og
hafa þeir nauðugir fellt sig við
það, að þjóðir hafi fært út land-
helgi sína, en þeir leggja á það
áherzlu að beðið verði úrskurðar
hafréttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í þvi máli. Norðmenn,
eins og fleiri þjóðir, segjast ekki
geta beðið eftir slíku.