Dagblaðið - 24.05.1976, Síða 8
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 24. MAÍ 1976.
leander sigldi ó okkur
ó um 30 sjómflna hraða
— segir Kristinn
Árnason
skipherra á
Ver
„Við fengum freigátuna
Leander þarna á okkur miðja
um klukkan fimm síðdegis á
laugardag,” sagði Kristinn J.
Arnason skipherra á varðskip-
inu Ver í samtali við Dagblaðið
i gærdag. „Við höfðum verið að
lóna á Öræfagrunninu um 25
sjómílur sunnan við Ingólfs-
höfða frá því um morguninn.
Þarna voru tveir brezkir togar-
ar að veiðum er við komum að
þeim um morguninn. Þeir
hífðu þegar upp er þeir sáu
okkur en héldu kyrru fyrir.
Síðar um daginn kom
Leander til okkar og þá settu
togararnir vörpurnar þegar út.
Við stugguðum við þeim og þeir
hifðu þegar upp aftur. Þeir
biðu síðan í um klukkustund
þar til þeir köstuðu aftur.
Við sigldum þá að öðrum tog-
aranum sem mun hafa verið
Jachvita FD 159, og reyndum
að klippa aftan úr honum. Það
tókst því miður ekki. Leander
kom þá að okkur og var með
alls konar tilburði og æfingar
en fékk ekkert að gert. Okkur á
Ver tókst að hrista freigátuna
af okkur og gerðum aðra atlögu
við togarann.
Kom ó fulíri ferð
Er við vorum um það bil 50
metra frá honum kom Leander
á fullri ferð, sem er um 30
sjómílur, og stefndi í bilið á
milli okkar. Þegar freigátan
kom i þetta mjóa bil beygði hún
snögglega og stefndi á okkur
miðja.
Við beygðum þá þegar á bak-
borða til að fá stefni freigát-
unnar ekki á okkur miðja því
að þá hefði hún lent langt inn i
skipið. Leander skall síðan á
okkur miðskips en með litlum
halla þannig að áreksturinn fór
betur en á horfðist á tímabili.”
Flatti út klefa
3. stýrimanns.
— Hvað með skemmdir á
Ver?
„Jú, Leander lenti kröftug-
lega á siðunni á okkur og fletti
byrðingnum. Skemmdirnar eru
ekki alveg kannaðar enn þá, —
einhverjar leiðslur fóru í
sundur, einnig fór spilið hjá
okkur og fremri gálginn.
Stefnið á freigátunni lenti
einnig inn í klefa 3. stýrimanns
og fór alveg yfir hann. Ef stýri-
maðurinn hefði verið í klefan-
um hefði hann ekki haldið lífi
en það voru sem betur fer allir
uppi er ásiglingin varð og allir
sluppu ómeiddir.”
— Hvernig fór freigátan?
„Hún slapp náttúrlega ekki
ósködduð. Það kom gat á
stefnið og einnig myndaðist
heilmikil sprunga aftur eftir
bakborðshliðinni. Ég býst við
því að freigátan verði að fara til
heimahafnar til að láta gera við
þessar skemmdir.”
— AT —
Skemmdirnar á Ver. Hér á myninni stendur einn yfirmanna á Ver á miðjum rústunum. Sem
betur fór tókst að víkja varðskipinu undan svo að freigátan lenti ekki eins kröftuglega á hliðinni. Þess
skai getið að innan í stigvélunum neðst á myndinni var enginn maður. — Ljósmynd Mats Wibe Lund.
— sextón óra
menntaskólastúlka
stökk í fallhlrf
ífyrstasinn
ó Sandskeiði
„Það var enginn tími til að
óttast,” sagði Sigrún Þórodds-
dóttir, 16 ára gömul mennta-
skólastúlka sem stökk tvívegis í
fallhlíf á laugardagsmorguninn
uppi á Sandskeiði. „Ég verð að
viðurkenna að ég var anzi
taugaóstyrk þegar ég átti að
fara um borð í flugvélina, en á
fluginu og eins þegar ég átti að
kasta mér út var ég eins og
dofin og taugaóstyrkurinn
hvarf algjörlega.”
Sigrún er systir Sverris kapp-
aksturskappa og flugmanns
Þóroddssonar, svo flugið hefur
lengi verið sjálfsagður hlutur
hjá fjölskyldunni.
„A ieiðinni niður var mjög
skemmtilegt, ég held að ég hafi
aldrei óttazt neitt eftir að ég fór
frá vélinni, fallhlffin opnaðist
eins og tii stóð og lendingin
heppnaðist vel, nema hvað ég
gieymdi að hafa fæturna saman
og ég er svolítið aum eftir hana
en það lagast.”
Sigrún stökk tvivegis þarna
um morguninn og kvaðst hún
vera að hugsa um að stökkva í
framtíðinni ef sér gæfist
kostur á því. Aðeins örfáar
stúlkur hafa lagt þessa íþrótt
fyrir sig til þessa en eflaust
sækja konur á f þessu sem öðru
eftir kvennaárið mikla. Það
virðist hafa haft mikil Ihrif á
,,hið veika kyn" si-m liafnar
eiginlega með öllu þeim titli
núorðið.
— JBP
ENGINN TIMITIL AÐ OTTAST
'
Sigrún i loftinu á 1 .-2.
Londingin ekki sem verst. — 3.-4.
AöstoAarmaAur kemur hlaupandi á staAinn,
5.-7.
..Ckki sem verst, get ég fariA aftur? —8. 10.
DB-myndii Bjorgvin Pálsson.
LÖGREGLAN
UM
HELGINA
Lítið leggst fyrir
suma kappa
Ekki er hægt að segja að
náungakærleikur ríki alltaf I
samskiptum fólks á höfuð-
borgarsvæðinu. Einstaka
maður virðist vel geta hugsað
sér að komast áfram i lífinu
með því að stela frá náung-
anum. Arbæjarlögreglan fékk
tvö slík mál til meðferðar um
helgina. A föstudaginn var
stolið 8 pokum af áburði á
hlaðinu á Korpúlfsstöðum.
Þarna er alltaf einhver umferð
vegna hringvegar sem hægt a
er að fara. Einn vegfarandi
virðist hafa kippt pokunum
upp í bil sinn. Urtir hans munu
því væntanlega vaxa vel af
stolnum áburði.
A laugardag var svo tilkynnt
um stuld á tveim rúllum
af gaddavfr frá sumarbústað að
Elliðavatnsbletti 21. Lftið
leggst fyrir suma kappa.,
—ASt.
Braut 5 stórar
rúður í olœði
Fimm stórar rúður voru
brotnar i sumarbústað rétt hjá
Rauðhólum á laugardagskvöld-
ið. Við rannsókn kom f ljós að
þar hafði verið að verki ungur
piltur er gisti eitt af mörgum
tjöldum sem unglingar slógu
upp í landi Vorboðans við
Rauðhóla. Kom lögreglan þar
oft og fór alit vel fram, utan
þessa atviks. Pilturinn náðist,
reyndist aliölvaður og iðraðist
synda sinna eftir á. Honum var
ekið heim til sin.
—ASt.
i