Dagblaðið - 24.05.1976, Page 14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. MAt 1976.
Olympíulágmðrk
náðust ekki
í gær fór fram sundmót KR í
Laugardalslauginni sem flest
okkar bezta sundfólk tók þátt í.
Eitt íslandsmet var sett, sveit
Ægis setti met í 4x100 metra
skriósundi, synti vegalengdina á
3:59.4 sem er tveimur tíundu
betri árangur en fyrra metið.
Sigurður Ólafsson var einnig
nærri Íslandsmeti sínu í 400
metra skriðsundi. Hann synti
vegalengdina á 4:23.2 sem er
aðeins einum tíunda frá metinu.
Engin olympiulágmörk náðust
enda kannski ekki til þess
stofnað, við árangri má búast í
júní og að einhverjir nái lág-
mörkunum þá.
Ný brezk
hlaupastjarna
Sovétríkin sigruðu Bretland
með 428 stigum gegn 253 í lands-
keppni karla og kvenna í Kiev um
helgina — en marga af beztu
keppnismönnum Breta vantaði.
Langmesta athygli vakti árangur
vélritunarstúlkunnar úr Miðlönd-
uniim, Sonju Lannaman 19 ára
Hún hljóp 100 m á 10.75 sek. og
setti brezkt met einnig i 200 m
22.6 sek. Vafasamt að 100 m verði
staðfestir sem met vegna of mik-
ils vinds.
Sovézku keppendurnir höfðu
yfirburði á nær öllum sviðum —
meira að segja sigraði Baryshni-
kov í kúluvarpi Evrópumeistar-
ann Geoff Capes. Sá sovézki
varpaði 21.31 m — Capes 21.15 m
og var mjög ánægður með þann
árangur.
Jafntefli KA
og Þórs
Á laugardag Iéku Þór og K.A. i
tslandsmótinu i knattspyrnu, 2.
deild. Leikurinn var mjög jafn, en
þófkenndur, þar sem K.A. var
betri aðilinn í fyrri hálfleik, að
undanskildum fyrstu 15. min.,
sem voru jafnar, en Þór í þeim
síðari. En knattspyrnan, sem liðin
sýndu var vægast sagt Iéleg og
voru það heldur K.A.-menn sem
reyndu samspil. Ekki voru liðnar
nema 2 mín., þegar fyrsta markið
kom. Það var sjálfsmark, sem
hægri bakvörður Þórs-liðsins,
Oddur Öskarsson gerði, en hann
ætlaði að renna boltanum til
Sanúels markvarðar, sem kominn
var út úr markinu og úr jafnvægi.
En Adam var ekki lengi í
paradís, því að á 11. min. tókst
Þórsurum að skora sitt annað
mark, en nú hjá andstæðingum
sinum. Boltinn barst fyrir markið
úr þvögu sem myndaðist við
vítateigshornið og beint til Bald-
vins Þórs Harðarsonar sem
skallaði í markið 1-1.
Ekki voru skoruð fleiri mörk og
lauk leiknum því með jafntefli.
Þórsarar sóttu mjög stíft, og áttu
nokkur hættuleg skot i síðari
hálfleik en Ævar í marki K.A.
varði vel. Eins áttu K.A.-menn
góð skot í þeim fyrri og hefðu
bæði liðin átt að skora fleiri mörk.
Lið Þórs var nokkuð jafnt, en
þó bar mest á Gunnari Austfjörð
og stöðvuðust ófáar sóknir K.A.-
liðsins á honum. Eins var Baldvin
Þór frískur á kantinum og
sýnilegt, að úthaldið er að batna
hjá honum, en hann var ,,sveltur“
langtímum saman.
Loksins tókst liðsmönnum K.A.
að þétta vörnina, en hún hefur
verið vægast sagt ömurleg i
síðustu leikjum liðsins, og orsökin
vafalaust sú að Steinþór Iék sem
bakvörður og Hörður sem aftasti
maður (sveeper), en hann hefur
ekki leikið þá stöðu áður en
skilaði því hlutverki með sóma.
Var bezti maður liðs síns ásamt
þeim Guðjöni, Jóhanni (Donna),
Haraldi — sem sótti sig er á
leikinn leið — og einnig var Ævar
markvörður nokkuð göður þrátt
fyrir óöryggi og nokkur glæfraleg
úthlaup. Ágætur dómari leiksins
var Einar Hjartarson og
línuverðir þeir Arnar Einarsson
og Guðmundur Búason. -SA.
Jofntefli, en
KR nœr sigri
— í leik Fram og KR í 1. deild á
Laugardalsvelli í gœrkvöldi. Bœði lið
skoruðu eitt mark
KR og Fram skildu jöfn á
Laugardalsvellinum í 1. deild
Islandsmótsins í knattspyrnu í
gærkvöld, hvort liðið skoraði eitt
mark. KR-ingar voru þó mun
frískari lengst af og oft opnaðist
vörn Fram illa án þess þó að KR
tækist að skora fleiri en þetta
eina mark.
Það rigndi í gærkvöld, þegar
leikurinn fór fram og blés af
austri. Þó voru um fimm hundruð
manns á vellinum, og allan
tímann rigndi beint í andlit
þeirra. KR-ingar tóku þegar
frumkvæðið í leiknum í sínar
hendur og spiluðu ágætlega, vel
stjórnað af fyrirliða sínum
Halldóri Björnssyni, sem nú er í
ágætu formi. Illa gekk þó að koma
boltanum í netið þrátt fyrir að
vörn Fram væri alls ekki nógu
sannfærandi. En þó stóð einn
maður upp úr hjá Fram —
Marteinn Geirsson, sem nú lék
aftur af fyrri getu og er það
ánægjulegt.
Já, KR-ingum gekk illa að koma
boltanum í netið, þó fékk Jóhanri
Torfason, hinn harðskeytti
miðherji liðsins tvö ágæt tækifæri
sem ekki nýttust. En markið lá í
Ioftinu og þegar það loks kom var
það glæsimark. KR-ingar byggðu
upp sókn vinstra megin, Hálfdán
Örlygsson, hinn skemmtilegi
útherji KR, fékk boltann við víta-
teigshornið. Hann lék nær
markinu og þrumuskot hans réð
Árni Stefánsson ekki við. Markið
kom á 42. mínútu.
Flestir bjuggust við, að þegar
leikmenn KR lékju á móti
vindinurh ættu þeir í vök að
verjast en svo var ekki. Vindinn
Gott hjá Dönum
Danir Iéku sinn fyrsta leik í
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar, sem fram fer í
Argentínu ’76. Danir Iéku viö
Kýpur í Limasol — á eyjunni
óróasömu í Miðjarðarhafinu.
Hið sterka lið Ðana sigraði
örugglega með 5-1 eftir að staðan
í hálfleik hafði verið 3-1.
Mörk Dananna skoruðu: Lars
Bastup 2, Ailan Simonsen, Níels
Tune Hansen og Ole Rasmussen.
lægði talsvert í síðari hálfleik og
KR-ingar héldu áfram að sækja að
marki Fram. Nokkrum sinnum
skapaðist mikil hætta við mark
Fram eftir að sóknarmenn KR
höfðu slitið af sér skugga sinn og
brunuðu í átt að marki Fram.
Vörn Fram leikur maður á mann
og síðan er Marteinn látinn leika
einn. Vörnin var alls ekki
sannfærandi í gærkvöld og
má með sanni segja að Fram-
arar hafi verið heppnir að fá
ekki á sig fleiri mörk en
lukkan var með liðinu. Á 18.
mínútu siðari hálfleiks
jafnaði Fram — hornspyrna
var tekin frá hægri-, boltinn
gefinn vel fyrir. Magnús Guð-
mundsson í marki KR ætlaði að
slá knöttinn frá en tókst ekki,
boltinn barst til Ágústs Guð-
mundssonar, þar sem hann stóð í
teignum og þrumuskot hans
hafnaði í netmöskvum KR.
Magnús víðs fjarri góðu gamni
þar, 1-1.
Eftir það var sem Fram
vaknaði af dvala en hvorugu liði
tókst að skapa sér tækifæri og
jafntefli var staðreynd, 1-1.
KR-ingar hafa verið frískir í
þeim tveimur leikjum sem liðið
hefur þegar leikið. Þrjú stig hafa
fengizt og greinilegt að KR verður
ekki við botninn eins og þó
margir höfðu spáð. Halldór
Björnsson var bezti maður liðsins
í gærkvöld, mikill baráttumaður
og átti margar sérlega fallegar
sendingar. Eins kom Björn
Pétursson vel frá leiknum, út-
sjónarsamur leikmaður. En ailt
barðist liðið sem heild.
Fram hefur verið spáð
velgengni í sumar en aðeins eitt
stig hefur fengizt i tveimur
leikjum. Þó er alls ekki ástæða til
að ætla annað en Fram verði ofar-
lega. Hins vegar er ljóst að
höfuðverkur liðsins er sóknin.
Sóknarleikur liðsins er ákaflega
linur og máttlaus. Helzt skapast
hætta hjá Fram þegar hinir
sterku varnarmenn fara upp í
innköstum og hornspyrnum, og
enda kom mark Fram, eina mark
liðsins í íslandsmótinu í ár, upp
úr hornaspyrnu.
h.halls.
Það vantaði ekki spennuna við mörkin f lelk FH og ÍA f gær, þó ekkert
mark FH að því er virðist eftir gott skot Teits Þórðarsonar — en
Knötturinn
en mark
— og jaf ntefli í leik FH og
Það kváðu við mikil fagnaðar-
hróp nokkrum sekúndum fyrir
leikslok i leik FH við Islands-
meistara Akraness í Kaplakrika i
gær. Knötturinn Iá i marki meist-
aranna — og dómarinn, Eysteinn
Guðmundsson, benti á miðjuna,
og dæmdi mark. En gleði hinna
hafnfirzku áhorfenda var skamm-
vinn — línuvörðurinn var með
flagg sitt á lofti og eftir að hafa
ráðfært sig við hann dæmdi Ey-
steinn markið af.
Hafnfirðingar fengu auka-
spyrnu rétt við hornfánann og
upp úr henni var fyrst bjargað á
llinn leikni úlherji Klt-inga — Hálfdán Örlygsson skorar mark KR i leiknum. Hörkuskot hans réð Arni
Slefánsson ekki við. Marleini Geirssvni varðfáll lil varnar. DB-mvnd Bjarnleifur.
marklínu hjá ÍA áður en Helgi
Ragnarsson sendi knöttinn I
markið.
„Línuvörðurinn, Garðar Guð-
mundsson, veifaði strax eftir
aukaspyrnuna, þar sem FH-ingur
var rangstæður strax og hún var
tekin. Mikill f jöldi leikmanna var
í vítateignum og ég sá ekki til
línuvarðarins. En þegar ég hafði
dæmt mark og var á leið fram á
miðjuna leit ég til llnuvarðarins
að venju og eftir að hafa rætt við
hann, var ekki vafi á þvi að
markið var ólöglegt,” sagði
Eysteinn eftir leikinn.
Ekkert löglegt mark var því
skorað í leiknum. Jafntefli 0-0 og
það voru að mörgu leyti sann-
gjörn úrslit. í fyrra töpuðu Skaga-
menn leik sínum gegn FH i
Kaplakrika. FH-ingar voru mun
beittari í fyrri hálfleik — og þá
slapp mark ÍA nokkrum sinnum
naumlega, auk þess sem Davíð
Kristjánsson átti mjög góðan leik
í marki. Björn Lárusson bjargaði
snilldarlega á marklínu (á lofti)
eftir að Ólafur Danivalsson hafði
lyft knettinum yfir Davíð og hann
stefndi í autt markið. Þá spyrnti
miðherji FH, Jóhann Ríkharðs-
son, yfir mark ÍA í lok hálfleiks-
ins úr opnu færi fyrir miðju
marki — nokkrum metrum frá
því.
1 s.h. snerist leikurinn Skaga-
mönnum í hag. Eftir að Helgi
Ragnarsson hafði farið illa með
gott færi FH í byrjun varð á
stundum mikil hætta við mark
FH. Þannig lék Matthías Hall-
grímsson í gegn — Logi varði skot
hans, en knötturinn hrökk út til
Teits Þórðarsonar, sem sendi
fyrir markið — og boltinn rann
eftir allri marklínunni án þess
nokkrum Skagamanni tækist að
pota í hann!! Þá átti Teitur
stangarskot og Árni Sveinsson
skot rétt framhjá úr góðu færi.
I heild var leikurinn slakur í
rigningunni á malarvellinum í
Kaplakrika — en þar verða fyrstu
heimaleikir FH í 1. deild háðir.
Grasvöllurinn kemst ekki í gagnið