Dagblaðið - 24.05.1976, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. MAÍ 1976.
15
X;
Boi 1m má gaí lúflend- körfu!
— Samþykkt á ársþingi Körfuknattleiks- sambandsins um helgina. Páll Júlíusson kjörinn f ormaður í stað Einars Bollasonar
mark væri skorað. A DB-mynd Bjarnleifs að ofan sækir knötturinn í
stöngin kom Loga markverði til bjargar og knötturinn hrökk úr henni
í marki ÍA
ið dœmt af
í A í Kaplakrika 0-0 í 1. deild
fyrr en síðar í sumar. Hjá FH var
Ólafur Dan. beztur — og Janus
Guðlaugsson var sterkur í vörn-
inni. Lið FH er jafnt og eftir þessi
úrslit í gær er maður hissa á stór-
tapi liðsins gegn ÍBK í fyrsta leik
mótsins. Skagaliðið er ekki hið
sama og i fyrra og munar þar
mestu að Jón Alfreðsson leikur
ekki með. Framlínan var ósköp
bitlaus yfirleitt — landsliðsmenn-
irnir ekki í „stuði” — helzt að
Karl Þórðarson kæmi einhverju
spili f gang. Hann var bezti maður
lA ásamt Davíð markverði. Þröst-
ur Stefánsson var drjúgur sem
framvörður — og Björn og Jón
Gunnlaugsson þéttir fyrir i vörn-
inni,
Eysteinn Guðmundsson var
góður dómari leiksins — og
ákveðinn. Áhorfendur voru
honum erfiðir — voru innan girð-
ingar við hlaupabrautina, en Ey-
steinn lét s.h. ekki hefjast fyrr en
þeir voru komnir á sinn rétta
stað.
— h.sím.
Arsþing Körfuknattleikssam-
bands Islands var haldið um helg-
ina og bar margt til tíðinda þó
auðvitað beri hæst bann þingsins
á innflutningi leikmanna til
landsins. Körfuknattleiksmenn
settu reglur um innflutning
manna til að leika með íslenzkum
félagsliðum. Þar kveður svo á, að
leiki útlendingur með íslenzku
félagsliði verði hann að hafa búið
I landinu í að minnsta kosti 6
mánuði.
Auðvitað jafngildir þetta engu
Fjögur stig
hjá ÍBV!
Vestmannaeyingar hafa farið
vel af stað í 2. deildinni í ár —
sigrað í tveimur fyrstu leikjum
sinum. A laugardag sigruðu Vest-
mannaeyingar lið Völsungs frá
Húsavik 2-0.
Vestmannaeyingar höfðu yfir-
burði í leiknum, spiluðu ágætlega
úti á vellinum. Boltinn var látinn
ganga á milli manna og ágæt
tækifæri sköpuðust. Eru Vest-
mannaeyingar ánægðir með leik
sinna manna. mun meira spil er í
liðinu en í fyrra. En hið unga lið
Völsungs var fast fyrir, vörnin
sterk. Þrátt fyrir að Völsungur
ætii í vök að verjast sköpuðu
norðanmenn sér ágæt tækifæri.
Hörkuskot varði Arsæll naum-
lega í horn og eins varð Arsæll
vel þegar einn leikmanna völs-
ungs komst einn inn fyrir vörn
ÍBV.
örn Óskarsson skoraði fyrra
mark ÍBV á 20. mínútu og það var
ekki fyrr en á 75. mínútu að tókst
að bæta við öðru marki, Valþór
Sigþórsson skoraði. Eftir það var
nánast eitt lið á vellinum, ÍBV.
Þó urðu mörkin ekki fleiri en
greinilegt að iBV stefnir á topp 2.
deildar. Ahorfendur voru á milli
3 og 400. RS/h.halls
öðru en banni, þvi ekki halda
félög uppi leikmanni hér í 6 mán-
uði áður en hann fær að leika.
Miklar deilur voru um þetta og
féllu atkvæði „bannmönnum”
22:16 í vil. Það voru Framarar,
ÍR-ingar og Njarðvíkingar, er
stóðu fast að baki þessari tillögu.
Það sem gerði gæfumuninn var
að Breiðabliksmenn og Valsmenn
voru ekki með fulltrúa á þinginu.
Hins vegar geta Ármenningar og
KR-ingar notað Rogers og Trukk-
inn þar sem þeir hafa dvalið
lengur en 6 mánuði á landinu.
Nokkurs konar stjórnarbylting
var gerð í stjórn KKl. KR-ingar
sem hafa verið atkvæðamiklir í
stjórninni eiga nú engan fulltrúa.
Stjórn KKÍ skipa nú: Páll
Júlíusson formaður, Bogi Þor-
steinsson, Birgir örn Birgis,
Haukur Hannesson og Guðni
Guðnason. Hin nýja stjórn fær
nóg af verkefnum. Fyrir liggur að
skuldir sambandsins eru 3 millj-
ónir. Það er geypipeningur fyrir
ekki stærra samband en KKÍ.
h.halls.
Evrópumet
Wolfgang Schmidt, Austur-
Þýzkalandi, setti nýtt Evrópumet
í kringlukasti á móti í Köln á
föstudag. Kastaði kringlunni
68.60 metra — en það er 20 sm.
betra en Evrópumet Ricky Bruch,
Svíþjóð. Heimsmethafinn Mac
Wilkins, USA, varð annar með
67.22 m. Jean Michel Bellot setti
nýtt, franskt met í stangarstökki
á laugardag í París. Stökk 5.46
metra, en eldra metið átti
Francois Tracanelli, 5.42 metra,
sett í ágúst 1973.
Á sama móti náði Karl Heinz
Riehm 3ja bezta árangri í
sleggjukasti frá upphafi —
kastaði 78.52 metra. Heimsmetið
á landi hans Walter Schmidt
79.30 m. og Yri Sedykh, Sovétríkj-
unum, hefur kastað 78.86 m.
Gott oð vera ekki í riðli
með íslendingum í HM!
Svíar höfðu mikinn áhuga á
landsleik Noregs og islands sl.
miðvikudag í Osló, þar sem Svíar
eru í sama riðli og Norðmenn í
heimsmeistarakeppninni. Margir
sænskir blaðamenn voru því á
leiknum I Osló — og greinar
þeirra eru allar á einn veg. Mjög
íslandi í hag — en hins vegar
skrifa þeir um að Norðmenn eigi
við mikil vandamál að stríða með
landslið sitt. Eftir landsleik Svía
og Dana á dögunum skrifuðu
norsku blöðin, að það yrði létt hjá
Norðmönnum í HM-riðlinum.
Leikurinn við ísland breytti þar
þó öllu.
En snúum okkur að sænsku
blöðunum. Alls staðar kemur
fram, að íslenzka liðið hefði verð-
skuldað sigur gegn Norðmönnum
— jafnvel stærri — en leikurinn
hafi jafnframt verið lélegur á
lélegum velli.
„tslendingar voru hættulegir
allan leikinn og eftir það, sem
þeir sýndu þarna í Osló er gott að
við erum ekki I sama riðli og
þeir“, skrifar Bobby Byström.1
„Kannski hafa Norðmenn van-
metið íslenzka liðið — en leikur
þeirra var svo slakur, að sænska
liðið var ekki einu sinni svo lélegt
í tapleik sínum gegn Norðmönn-
um,“ skrifar Byström ennfremur.
íslendingar voru með þrjá at-
vinnumenn í liði sínu ,og þessir
þrír báru af á vellinum — með
Ásgeir Sigurvinsson sem bezta
mann í leiknum segja Svíarnir.
| Nci. 7g Irui þér rkki. 1.r sá ;») tiún ktiin »r t)ási j
þínu og þú cltir hana. . . og svo scgir þú mcr r
að þú þckkir ] [ntu.nV^r
'--luum ckki. A______gcfa \ xkyii'.'
'Aö ci? <‘r oröin |>rt*y11 á Jx*ssu ollu! Viö
a*tluöum aö fara aö ^il’ta okkur })cjíar |)ú
j á hciinskulct»an hátt ákvaöst að fara í_____________
k •.. r....\. i....
K»g nú finn cg |>i^ cltandi stúlku scm þú
scgist ckki þckkja. Hvcrn crt þú aö blckkjaj^ ~
csíí.u\s
Holland —
Þýzkaland
í úrslitin?
— í Evrópukeppni
landsliða
Það verða Tékkóslóvakía,
Holland, Júgóslavía og Evrópu-
og heimsmeistarar Vestur-
Þýzkalands, sem leika í úrslita-
keppninni í Evrópumóti landsliða
í Júgóslaviu i næsta mánuði.
Dregið hefur verið um það
hvaða lönd leika saman I undan-
úrslitum og varð niðurstaðan
þannig:
Tékkóslóvakía — Holland
Júgóslavía — V-Þýzkaland
Sigurvegararnir i undanúrslita-
leikjunum leika svo um Evrópu-
meistaratitil landsliða í Belgrad
— en liðin sem tapa um þriðja
sætið.
Það gæti því svo farið, að um
endurtekningu yrði að ræða frá
HM 1974 — úrslitaleikur
Hollands og V-Þýzkalands. Það
verða þó erfiðir leikir, sem þessi
lönd eiga i undanúrslitunum —
einkum þó Þjóðverjarnir þar sem
Júgóslavar leika á heimavígstöðv-
um.
Þrír sigrar —
þrjú töp
Frá Símoni Simonarsyni
Monte Carlo
íslenzka sveitin á Olympiu-
mótinu vann 3 leiki — tapaði 3 í 6
síðustu umferðunum i Monte
Carlo. í 40. umferð vann island
Mexíkó 16-4. Ásmundur, Hjalti,
Guðmundur og Karl spiluðu. GK
og við Stefán spiluðum við
Panama, tap 0-20, en efstu
þjóðina Braziliu, unnum við
Stefán, Ásmundur og Hjalti 13-7.
Sömu menn spiluðu við Spán —
tap 4-16. GK og AH spiluðu tvo
síðustu leikina. Unnu ísrael 12-8,
en töpuðu 8-12 fyrir Austurriki.
í miðjum leik okkar við
Brazilíu sagði þekktasti spilari
þeirra Chagas allt í einu við
okkur Stefán „Farðu til helvitis"
á hreinni íslenzku — og skellihló
svo. Þetta hafði Jakob Möller
kennt honum á Olympiumótinu
1968 og Chagas mundi orðin.
Fann þarna i leiknum, að farið
var að halla undan fæti — en
gleði Brazilíumanna eftir að þeir
höfðu sigrað á mótinu smitaði út
frá sér.
Sjá nánar bls. 17 um úrslit
mðtsins.,
Þrumuveðrið hvarf
í skugga leiksins
— þegar Þjóðverjor unnu
Spónverja 2-0
Heimsmeistararnir i knatt-
spyrnu og eins núverandi Evrópu-
meistarar landsliða, Vestur-
Þýzkaland, tryggði sér rétt í
fjögra liða úrslit Evrópukeppni
landsliða á laugardag, þegar V-
Þýzkaland sigraði Spán 2—0 á
Olympíuleikvanginum í Miinchen.
Sigur V-Þjóðverja var aldrei í
hættu og hinir tæplega 80 þúsund
áhorfendur næstum gieymdu
þrumuveðrinu, sem geisaði i
síðari hálfleik. Vörn Þjóðverja
var ákaflega þétt fyrir, þar sem
Beckenbauer stjórnaði eins og
marskálkur. Sóknarleikur liðsins
var beittur þar sem Uli Hoeness
og Klaus Toppmöller, sem Þjóð-
verjar kalla hinn nýja Gerd
Múller, voru ávallt hættulegir.
En þrátt fyrir að Þjóðverjar
hefðu sigrað örugglega voru
Spánverjarnir hættulegir fyrstu
15 mínúturnar. Þá átti Enriqui
Quini skot í slá, Þjóðverjar
brunuðu upp og Uli Höness
skoraði af stuttu færi. Síðar bætti
Toppmöller við öðru marki og
gulltryggði sigur heimsmeistar-
anna.
Þjóðverjar mæta Júgóslövum í
undanúrslitunum.