Dagblaðið - 24.05.1976, Qupperneq 16
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 24. MAl 1976.
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
þróttir
Sigur Hollands í báðum
leikjunum við Belgíu!
Þrátt fvrir að Belgar hefðu eins
marks forustu á Hollendinga eftir
fvrri hálfleik í síðari leik
landanna i Evrópukeppni lands-
liða í Brussel á laugardag stóðu
þó Hollendingar uppi i lokin sem
sigurvegarar i leiknum, 2-1.
Sigruðu þeir því Belga í báðum
leikjunum í áttaliða-úrslitunum
— samanlagt 7-1! — Ahorfendur í
Brussel á laugardagskvöld voru
aðeins 25 þúsund — kannski
skiljanlegt að þeir væru ekki
fleiri eftir stórsigur Hollendinga,
5-0, í fvrri leik iandanna.
Það var hinn ungi markvörður
Belgíu, Jean Marie Pfaff frá
Waregem, sem átti mestan heiður
af forustu Belga í leikhléi —
varði snilldarlega í fyrri hálf-
leiknum, einkum frá Neeskens og
van Hanegem. Hann var einn af
fimm nýliðum í belgíska liðinu.
Eina markið í fyrri hálfleik kom
eftir aukaspyrnu. Rene van der
Eycken renndi knettinum til
félaga síns í FC Brugge, Roger
van Gool, sem spyrnti knettinum í
mark án þess Piet Schrijvers í
marki Hollands hefði möguleika á
að verja. Holland hefði þó átt að
vera búið að ná forustu áður.
Marice Maertens handlék
knöttinn í vítateig, og dæmd var
vítaspyrna á Belga. Neekens
spyrnti framhjá — illilega. Það
var á sjöundu mínútu.
Hollendingum tókst að jafna á
63. mín. Andrie van Kraay og
Johan Cruyff léku i gegnum
belgísku vörnina og Rep skoraði.
Vörn Belga opnaðist oft mjög illa
í leiknum. Fimmtán mín. síðar
skoraði Cruyff sjálfur sigurmark
Hollands — kom knettinum fram
hjá Pfaff að því er virtist úr von-
lausri stöðu, en belgíski mark-
vörðurinn virtist þá vera farinn
að þreytast eftir miklar sóknarlot-
ur Hollands.
Þótt hollenzku leikmennirnir
sýndu flestir frábæra knatt-
spyrnu varð leikurinn þó mikil
vonbrigði fyrir Robby Rensen-
brink, sem leikur með belgiska
liðinu Anderlecht (Brussel) og
var aðalmaður þess liðs í úrslitum
Evrópubikars bikarhafa á
dögunum. Hann kom varla við
knöttinn í leiknum og eina skot
hans á mark fór langt fram hjá.
Island leikur við Belgíu og Hol-
land í september — í Reykjavík
— og við skulum því líta á liðs-
skipunina á laugardag.
Belgía — Pfaff (Waregem),
Renquin (Standard), Dalving
(Lokeren), Martens
(Molenbeek), van Binst
(Anderlecht), Julii ’ Cools (FC
Brugge) van der Elst (Ander-
lecht), van der Eycken FC
Brugge), van Gool (FC Brugge),
Verheyen (Lokeren), Wellens
(Molenbeek). — Þeir Pfaff,
Wellens, van Gool og van der
Eycken léku sinn fyrsta landsleik
— en þetta var fyrsta landsliðið
sem nýi landsliðsþjálfarinn hjá
Belgíu. Gau Thvs, valdi. — Vara-
menn voru Piot (Standard),
Leekens (FC Brugge). Mille-
camps (Waregem) og Delesie
(Waregem).
Holland — Schrijvers (Ajax),
Kroll (Ajax), Suurbier (Ajax),
Rijsbergen (Fejenoord), Kraay
(PSV), Hanegen (Fejenoord),
Kerkhof (PSV), Neeskens og
Cruyff (Barcelona), Rensenbrink
(Anderlecht) og Johnny R'ep
(Valencia). — Varamenn Jan
Ruiter (Anderlecht), Meutstege
(Sparta), Jan Peeters (Twente).
Guðmundur Þorbjörnsson á
þarna t höggi við Helga
Helgason í leik Víkings og
Vals. Það var ekki fyrr en
Helga var vísað af velli að
Guðmundi tókst að skora.
DB-mynd Bjarnleifur.
Allt hrundi þegar Helga var vísað
af leikvelli!
— og Valur sigraði Víking 3-0
íl.deild
IÐNAÐARMENN
wlltCe
FREE WiTH AIL GOLDBLATT TILE SAWS
Adjustabie ftip Ouaí
AdjustaDÚ 90« Anfcle Guide
DESIG.NEÐ m USE
WITH COST CUTTER
BLADES BELQW.
(!»***
INSTANTt-Y
AÖJUSTABLE
SLÍÖING TRAY
Hcfum aftur fyrirliggjandi 8"-10"-14"
flísasagirnar vinsœlu
Ódýrar — Handhœgar
Einnig litlar ódýrar
gólfslípivélar
Leitið upplýsinga
G. ÞORSTEINSSON 0G J0HNS0N HF.
Ármúla 1, sími 8-55-33
Valur vann ákafiega þýðingar-
mikinn sigur í 1. deild tslands-
mótsins í knattspyrnu á laugar-
dag þegar liðið lagði að velii
Reykjavíkurmeistara Víkings
3—0 á hinum nýja grasvelli í
Laugardai.
Valsmenn verðskulduðu sigur-
inn í blíðunni á laugardaginn, þó
sigur liðsins hafi ef til vill verið f
stærsta lagi. öll mörk leiksins
komu á síðustu 17 mínútum leiks-
ins — Víkingsliðið hreinlega féll
saman á síðasta stundarfjórðungi
leiksins, eftir að Hermann
Gunnarsson hafði skorað glæsi-
legt mark á 28. mínútu eftir góða
sendingu Guðmundar Þorbjörns-
sonar fyrir markið.
Skömmu síðar rak tauga-
slappur og óöruggur dómari leiks-
ins, Grétar Norðfjörð Helga
Helgason, miðvörð Víkings af
leikvelli eftir að Helgi hafði lent í
samstuði við Alexander Jóhannes
son. Alexander sparkaði í Helga,
sem missti stjórn á skapi sínu og
sparkaði til Alexanders. Grétar
sýndi Helga gula spjaldið en eitt-
hvað var Helgi óánægður og
skipti engum togum að Grétar
vísaði Helga af velli. Ástæðulaust
að flestra mati.
Eftir þetta atvik var nánast
aðeins eitt lið á vellinum. Valur.
Valsmenn sýndu skemmtilega
samleikskafla enda fyrirstaðan
lítil hjá 10 Víkingum. Tvívegis
fyrir leikslok máttu Víkingar
hirða knöttinn úr eigin netmöskv-
um. Guðrnundi Þorbjörnsyni var
brugðið innan vítateigs og Atla
Eðvaldssyni urðu ekki á nein mis-
tök úr vítinu. Síðara markið var
fallegt. Hermann Gunnarsson
fékk fallega sendingu frá Kristni
Björnssyni og gaf vel fyrir þar
sem Guðmundur Þorbjörnsson
var til staðar og skoraði af stuttu
færi, 3—0.
Góður sigur Valsmanna í höfn.
Þetta var fyrsti leikurinn sem
Víkingur tapar a keppnistima-
bilinu undir stjórn þjálfara síns
Billy Haydock. Víkingar voru
óvenju daufir í leiknum, það var
rétt f.vrsta stundarfjoi ðung í.vrrt
hálfleiks sem verulega kvað að
þeim en þá sköpuðu þeir sér lfka
þrjú góð tækifæri, það bezta er
unglingalandsliðsmaðurinn Har-
aldur Haraldsson átti góðan
skalla rétt yfir. Eftir það náðu
Valsmenn betri tökum á leiknum
án þess að ógna verulega.
Sama gerðist í byrjun síðari
hálfleiks, Víkingar pressuðu og
Óskar Tómasson fékk gott tæki-
færi en var of seinn og skot hans
fór í varnarmenn. Eftir það fór
að kveða meir að Valsmönnum.
Þeir náðu betri tökum á miðjunni
en það var þó ekki fyrr en á 28.
mínútu síðari hálfleiks að markið
kom og eftir það opnuðust allar
flóðgáttir hinnar sterku Víkings-
varnar, enda nýttu Valsmenn
kantana vel.
Um það er engum blöðum að
fletta — Valur verðskuldaði sigur
á laugardaginn. Greinilegt er að
Valsmenn verða með í baráttunni
um Islandsmeistaratitilinn í
sumar. Lið Valsmanna er ákaf-
lega heilsteypt. Sókn liðsins er
beitt með þá Hermann Gunnars-
son og Guðmund Þorbjörnsson
sem aðalmenn vel studda af
Albert Guðmundssyni. Miðjan er
sterk, á laugardag var Atli
Eðvaldsson sterkur og eins kom
Kristinn Björnsson vel frá leikn-
um ásamt Bergsveini Alfonssyni.
Ýmsir óttuðust að vörnin yrði
veikasti hlekkur liðsins —en á
laugardaginn var hún þétt og gaf
sóknarmönnum Víkings lítið rúm.
Víkingar áttu á laugardaginn
slakan leik — mikill munur á
liðinu sem vann Val í úrslitaleik
Reykjavíkurmótsins á dögunum,
þegar Valsmenn náðu vart að
komast fram yfir miðju. Miðju-
menn liðsins brugðust gjörsam-
lega, sáust varla í leiknum.
Vörnin var sterkasti hluti liðsins
— allt þangað til miðvörður
liðsins. Helgi Helgason var
rekinn af velli. Greinilegt er að
veikust er sókn liðsins. Öskar
Tómasson barðist vel en hann má
sín lítils einn. Liðið saknar
Stefáns Halldórssonar, sem er
meiddur. I hans stað hefur
unglingalandsliðsmaðurinn
Haraldur Haraldsson leikið og þó
hann geri margt laglegt þá er
hann ekki miðherji, enda hans
staða tengiliður. h halls.