Dagblaðið - 24.05.1976, Page 21
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 24. MAt 1976.
21
Ingvar Kolbeinn Ingason,
Austurbrún 6, lézt 20 þ.m.
Sigurjón Júníusson,
Gnoóarvogi 22, lézt á Borgarspít-
alanum 21. maí.
Jónas Björgvinsson,
Furugrund 38 Akranesi, lézt i
Landspitalaum aðfaranótt 20.
mai.
Ágúst Haildórsson,
Sólmundarhöfða Akranesi, lézt að
kvöldi 20. maí.
Valgerður Guðrún Hjartardóttir,
Safamýri 44 Reykjavik, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 25. maí kl. 13.30.
Ingigerður Danivaisdóttir
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 24. maí kl. 15.
Sigríður Gísladóttir,
Laugavegi 139, er lézt 17. maí,
verður jarðsungin frá l'ossvogs-
kirkju þriðjudaginn 25. mai kl.
10.30.
Sigurður F. Ólafsson
forstjóri, Flókagötu 65, lézt að
heimili sinu að kvöldi 21. maí.
Katrín Lára Stefánsdóttir
frá Borgarfirði eystra verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 25. maí kl. 15.
Húsmœðrafélag
Reykiavíkur
Aðallunaur félagsins verður haldinn mánu-
daginn 31. maí kl. 20.30 að Baldursgötu 9.
Lagabreytingar. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Kristniboðsfélag
karla, Reykjavík
Fundur verður I kristniboðshúsinu Laufás-
vegi 13 mánudagskvöldið 24. maí kl. 20.30.
Reidar G. Albertsson sér um fundarefni. All-
ir karlmenn velkomnir. Stjórnin.
Kvenfélaaið Heimaey
Aðalfundur félagsins verður haldinn í
Domus Medica þriðjudag 25. maí kl. 8.30.
Mætið stundvíslega. Stjórnin.
Góðfœrðí
nágrenninu
Lyngdalsheiði þó
enn ófœr
Góð færð er nú um allar
nálægar sveitir hér syðra.
Þingvallavegurinn er sagður
góður, einnig hringveguiinn
um Þingvelli til Ölfuss og
Hveragerðis.
Þó er rétt að fram komi að
vegurinn yfir Lyngdalsheiði til
Laugavatns er enn ófær vegna
snjóalaga. Margir hafa lagt
upp á heiðina og jafnmargir
hafa orðið að snúa við. Rétt
væri af vegagerðinni að skjóta
upp skilti við vegarendana
meðan svo er. Sparaði það
mörgum amstur og færri
myndu bölva Vegagerðinni.
— ASt.
„Flugslysið"
stöðvaði f lugumferð:
Tvœr undan-
tekningar
ó meðan
œfingin
stóð yfir
Meðan á aðgerðum á Reykja-
víkurflugvelli stóð vegna „flug-
slyssins” stöðvaðist þar öll flug-
umferð. Þó voru gerðar tvær
undantekningar þar á. Ölafur
Jónsson læknir var að missa af
flugvél til Bandaríkjanna og
fékk því litla flugvél til að
fljúga með sig til Keflavikur.
Eftir mikið málaþras var hon-
um leyft að fara í loftið. Flug-
vél hans varð þó að gæta þess
að koma hvergi nærri slysstaðn-
um.
Hitt tilvikið var, að flugvél
frá Flugstöðinni var að koma til
lendingar með landlækni og
fleiri lækna innanborðs. Vegna
farþeganna fékk vélin þegar
lendingarheimild og fóru lækn-
arnir þegar í leikinn með
starfsbræðrum sínum.
— ÁT —
Vegurinn norður
um mó ófœr
heita ó köflum
Margir f esta sig — sumir brjóta bfla sína
„Það er vart hægt að segja að
leiðin til Akureyrar sé fær venju-
legum bílum,” sagði ökumaður
einn er ók frá Reykjavík til Húsa-
víkur á laugardaginn. „A löngum
köflum verður hreinlega að
Iæðast yfir forarvilpur og leðju-
pytti, ef menn vilja ekki hætta á
að brjóta bila sina og eyðileggja.”
Slæmir kaflar eru í Holtavörðu-
heiði beggja vegna og ætla má að
hún verði ófær ef rignir. Hrúta-
fjarðarhálsinn er mjög varhuga-
verður. Leðjuhryggur er á miðj-
um vegi og ökumenn þræða yztu
kantbrúnir. Guð og lukkan
ræður því, hvort kanturinn
heldur, en víða eru kantar allháir.
Bezti hluti leiðarinnar er frá
afleggjara til Hvammstanga og
til Akureyrar. Er þá undan skil-
inn kafli I öxnadal. Heita má að á
þessum kafla sé vegurinn sæmi-
legur.
Vaðlaheiðin er slæm vestantil.
Fljótsheiðin frá Fosshóli til
Einarsstaða í Reykjadal er afleit.
Þar er sem keyrt á is, sem er að
bresta. Sá er Db ræddi við lenti
ofan um siikan „ís” og sat blýfast-
ur. Varð að sækja hjálp til bæja
til að ná bilnum upp.
öllum er ráðlagt að fara ekki
þessa leið nema nauðsyn beri til.
Vegurinn er verri á mörgum
stöðum en fram kom í sjónvarps-
fréttum á dögunum. Hins vegar
verða breytingar á veginum frá
degi til dags. Haldist þurrt má
ætla að ástandið skáni, en rigni þá
er leiðin með öllu ófær.
— AST
Gangbrautarslys ó Hringbraut
Enn eitt gangbrautarslysið
varð á Hringbraut um klfjögur
á föstudag. Þá varð rúmlega
sextug kona fyrir bifreið er hún
var að fara yfir gangbrautina
rétt við gamla Kennaraskólann.
Hún hlaut höfuðhögg og
kvartaði yfir eymslum í vinstra
handlegg. Konan var þegar
flutt á slysadeild.
Sjónvarvottar að þessu slysi
bera að konan hafi gengið á
bilinn sem kom á venjulegum
hraða vestur Hringbrautina.
Stúlka, sem ók bifreiðinni,
segir að hún hafi ekki séð
konuna fyrr en slys var óum-
flýjanlegt. Hún ók eftir vinstri
akrein. Engin umferð var á
W
hægri akrein þannig að ekki
var því til að dreifa að umferð
skyggði á konuna. -AT-
Ægir klippti
í morgun
Ægir klippti klukkan níu I
morgun á annan togvir
brezka togarans Jacimta, 25
mílur frá Ingólfshöfða.
Þetta er sami togarinn og
Ver var að reyna að
halastýfa, þegar freigátan
sigldi á Ver á laugardaginn.
—HH
Sumarbústað-
ur skemmdur
í Heiðmörk
— talsvert um fólk
þar um þetta leyti
Lögreglan handtók aðfara-
nótt laugardagsins nokkra
unglinga á aldrinum 15—16
ára sem höfðu gert sér það að
leik að vinna skemmdarverk á
sumarbústað Normannslaget í
Heiðmörk. Krakkarnir gengu
berserksgang i bústaðnum,
brutu rúður og umsneru
flestu, sem hægt var að ná til.
Það var eftirlitsmaður með
Heiðmörkinni sem kom að
unglingunum og gerði lögregl-
unni viðvart.
Síðar kom einnig í ljós að á
svipuðum tíma hafði verið
rænt úr bíl þarna á sömu
slóðum peningaveski, segul-
bandsspólum og fleiru laus-
legu. Skemmdarvargarnir
viðurkenndu einnig þann
þjófnað. — Þeir hafa áður
komið við sögu hjá lögregl-
unni.
Talsvert er um að unglingar
taki sig upp og bregði sér í
útilegu I Heiðmörk í tilefni
þess að vorprófum er nú að
ljúka. Vill þá oft bregða við að'
vín sé haft um hönd og f ölæði
taka krakkarnir oft upp á
ýmsu misjöfnu, svo sem að
vinna skemmdarverk og
skemma gróður.
Er DB fór um Heiðmörk á
laugardagsnóttina voru þar all-
mörg tjöld og fólk að skemmta
sér. Yfir þessu öllu vakti svo
Hafnarfjarðarlögreglan og
gætti þess að fólkið gengi ekki
of langt í vitleysunni.
Á sunnudagsmorguninn
héldu síðan skátar frá Garða-
bæ I Heiðmörk til að hreinsa,
rusl sem fólk hafði skilið eftir
þar. — Það skal tekið fram að
bannað er að tjalda í Heiðmörk
og hafði lögreglan það hlut-
verk meðal annars að láta fólk
vita um það.
— AT —
w
ELDURIVELSMIÐJU NJARÐVIKUR
Laust fyrir klukkan átta i
morgun var tilkynnt um
mikinn eld í Vélsmiðju
Njarðvfkur. Slökkviliðið i
Keflavik fór þegar á staðinn og
tókst að slökkva aðalbálið á
nokkrum minútum. Er það kom
á staðinn stóðu eldtuneur upp
úr þaki hússins. Miklar
skemmdir urðu á húsinu, — þó
aðallega vesturenda þess.
Timbur og einangrun brunnu
mikið. Þá skemmdust tæki Vél-
smiðjunnar, svo sem
rennibekkir, sagir, hand-
verkfæri og fleira.
Er Dagblaðið fór f prentun
var slökkvistarfi ekki enn að
fullu lokið. Verið var að kæla
súrefnisgeyma og gæta þess að
eldurinn blossaði ekki upp að
nýju.
— at —
DAGBLAÐIÐ ER SMÁ AUGLÝSINGABLAÐIÐ SÍMI 27022 ÞVERHOLTI 2
i
Til sölu
i
Til sölu hlaðrúm,
barnabílstóll og Blaupunkt bílút-
varp, 12 volt. Uppl. i síma 74665
eða 53318.
Sambyggð Luren trésmíðavel
til sölu. Þykktarbefill, afréttari,
fræsari, sög og rennibekkur.
Nánari uppl. í síma 50338.
Til sölu árs gömul
Silver Cross barnakerra, vel með
farin. Uppl. I sima 53521 eftir kl.
8 á kvöldin.
Mjög lítið notað Selmer klarinett
til sölu. Einnig á sama stað 200
mm f4 Pentax linsa. Uppl. í síma
36932 eftir kl. 7.
Til sölu 3 bowling brautir
og auk þess ein i varahluti. Uppl. í
sfma 82130.
Billjardborð.
Til sölu svo til nýtt billjardborð.
Kjuðar og kúlur fylgja.
Glæsilegur hlutur. Uppl. í síma
16090 eftir klukkan 6.
Fallegar hraunhellur,
þunnar og þykkar, til sölu. Sími
28604 á daginn eða eftir kl. 20 I
síma 33097.
Túnþökur Ii 1 sölu.
Upplýsingar i sima 41896.
Birkiplönlur lil siilu
i miklu úrvali. Lynghvammi 4.
Ilafnarfirði. Simi 50572.
Hraunhellur
til sölu. Uppl. i síma 35925 eftir
kl. 20.
Óskast keypt
Hálfs-eins poka vél
Vil kaupa steypuhrærivél. Uppl. í
sima 94-6128.
Taurulla óskast.
Uppl. í síma 18618.
800-1200 litra loftkútur
fyrir loftpressu óskast. Uppl. í
síma 44070.
Verzlun
V»*rzlunin hættir.
Allar vörur seldar með miklum
afslætti. Allt nýjar og failegar
vörur á litlu börnin. Barnafata-
verzlunin Rauðhetta, Hallveigar-
stíg 1, Iðnaðarmannahúsinu.
ítalskar listvörur
Feneyjakristall, keramik frá
Meranó, styttur frá Zambelli.
Fjölbreytt úrval af fallegum
gjafavörum. Helgi Einarsson
Skólavörðustíg 4. Sími 16646.
Kirkjufell, Ingólfsstræti 6.
Fyrir brúðkaupið: kerti, serví-
ettur, styttur, gjafir. Servíettur
og styttur fyrir silfur- og gull-
brúðkaup. Minnum á kertapok-
ana vinsælu. Seljast ódýrt meðan
birgðir endast. Opið milli ki. 1 og
6. Kirkjufell, Ingólfsstræti 6.
Körfugerðin Ingólfsstræti 16.
Brúðuvöggur, vinsælar gjafir,
margar tegundir. Nýtízku reyr-
stólar með púðum, reyrborð,
barnavöggur, bréfakörfur og
þvottakörfur ávallt fyrirliggjandi.
Kaupið íslenzkan iðnað.
Körfugerðin, Ingólfsstr. 16, sími
12165.
Húsgögn
Lítill tekkborðstofuskápur
til sölu. Uppl. að Háaleiti 1, Kefla-
vík, 2. hæð B.
2ja manna svefnsófi
tii sölu. Upplýsingar i sima 52713.
Sófasett til sölu
4ra sæta sófi og tveir stólar. Uppl.
í sima 44018 á kvöldin.
Til sölu danskt antik sófasett,
útskorið, sófi, þrir stóiar ásamt
borði. Póleruð hnota I borði og á
stólörmum. Verð 350 þús. Uppl. í
sima 20880.
Furuhúsgögn.
Nú er tíminn tii að kaupa I sumar-
bústaðinn. Til sýnis og sölu sófa-
sett, sófaborð, hornskápar, vegg-
húsgögn o fl. Húsgagnavinniistofa
Braga Eggertssonar, Smiðshöfða
13, Stórhöfðamegin. Sími 85180.
Húsgagnasaia og viðgerðir.
Seljutn bólstruð húsgögn og áklæði
og innrammaðar myndir. Tökum
alls konai húsgiign til viðgerðar.
Vönduð liiina. Síini 22373.
Bólstrun Jóns Arnasonar.
Frakkastíg 14.
Hjónarúm.
Til sölu nýtt hjónarúm með nýju
rúmteppi. Greiðsluskilmálar.
Uppl. í síma 75893.
Smiðum húsgögn
og innréttingar eftir binni
■hugmynd. Tökum mál og
teiknum ef óskað er. Seljum
svefnbekki, raðstóla og hornborifr
á. verksmiðjuverði. Hagsmiði hf.,
Hafnarbraut 1, Kópavogi. Simi
40017.
Góð skermkerra,
Silver Cross, til sölu. Uppl. I sima
23681.
Stór og góð barnakerra
til sölu. Uppl. í síma 73931.,
Vel með farinn kerruvagn
óskast. Upplýsingar I sima 15964.
Barnaleikgrind óskast
(rimla). Uppl. í síma 52592 og
92-3185.
1
Heimilistæki
i
Notaður ísskápur
til sölu. Uppl. I síma 38209 til kl.
20 í kvöld.
Isskápur—Fíat 127:
Vil kaupa góðan og vel með
farinn ísskáp. Á sama stað er til
sölu grænn Fíat 127, árg. ’74.
Uppl. í síma 10910 I dag og næstu
daga.
Stór fallegur amerískur
Evercold isskápur til sölu. Uppl. í
síma 36635 eftir kl. 5.
Fatnaður
Onotaður brúðarkjóll
úr hvítu prjónasilki til sölu, stærð
ca 40. Uppl. í síma 24918.
'-------------->
Fyrir ungbörn
Óskaeftir aðkaupa
skermkerru og barnaleikgrind.
Uppl. í síma 72865.
Silver Cross barnavagn
sem nýr til sölu. Uppl. 1 sima
84383.
Dýrahald
i
Fiskabúr með öllu
tilheyrandi til sölu. Uppl. í síma
37727.
I
Hljómtæki
i
TII sölu lftið notað
stereosett, Dual sambyggður 30
vatta magnari og plötuspilari
ásamt tveim 60 vatta Dynaco
hátölurum. Vero kr. 120.þúsUppl.
I sima 52067.
Stereo magnari og plötuspilari
án hátalara til sölu. Uppl. I sima
25706.
Hljóðfæri
í
Píanó eða píanetta
óskast til kaups. Uppl. 1 síma
51418.