Dagblaðið - 24.05.1976, Qupperneq 28
SAMNINGAVKMMEÐUR
UGGJA f LOFTINU
Bretar munu hafa boðizt til að kalla herskipin út fyrir 200 mílur
frfálst, óháð dagblað
MANUDAGUR 24. MAl 1976.
Capablanca-mótið:
Bretar munu hafa boðizt til
að fara með herskipin út fyrir
200 mílurnar til að fá
samningaviðræður í gang. Þá
hefur brezka útgerðin boðizt
til að fara með togarana út fyrir
200 mílur í eina viku, meðan
reynt verði að semja, ef brezka
rikið greiði henni það, sem
tapazt í veiðum. Líklegast var
talið í morgun, að samningavið-
ræður væru á næsta leiti.
Osló er talin líklegastur
samningsstaður, en Briissel
hefur einnig verið nefnd.
Islenzka stjórnin hefur sett
það sem ófrávíkjaniegt skilyrði,
að herskipin færu út fyrir
mörkin, áður en viðræður færu
fram. Hún hefur neitað að lofa,
að brezku togararnir yrðu þá
látnir afskiptalausir við veiðar.
Er því ekki vita, hvað verður
utn togarana, hvort brezka
stjórnin mun greiða þeim styrk
eða ekki, eða hvort semst um
aörar leiðir. Allavega Iágu
samningaviðræður i loftinu j
morgun, en islenzkir ráðherrar
hafá varizt allra frétta, síðan
forsætis- og utanrikisráðherra
komu heim í gær.
Ríkisstjórnarfundur hófst
klukkan tíu í morgun. Þar
gerðu ráðherrarnir grein
fyrir stöðu mála eftir funda-
höldin i Osló.
Menn hafa gefið þær
skýringar á skuggalegum
ásiglingum herskipanna á varð-
skipin um helgina, aó þetta
gerist oft, áður en „vopnahlé“
er samið í styrjöldum, aó þá sé
atgangurinn aukinn.
Brezkt blað nefndi um
helgina, að samið kynni að
verða um 40—50 þúsund tonna
afla, sem er talsverl minna en
tilboð íslendinga var í fyrra.
Allt mun enn óráðið um, hvaða
aflamagn Bretar munu telja
sig geta unað við. —HH
Áfengissjúklingur ert þú þegar...
„Þegar áfengið er farið að hafa
varanleg áhrif á líf þitt og ég tala
nú ekki um ef það breytir því á
einhvern hátt, þá er hægt að segja
að þú sért orðinn áfengissjúkl-
ingur,” sagði prófessor Joseph F.
Pirro, sem veitir forstöðu með-
ferðardeildar fyrir áfengissjúkl-
inga á Freeport sjúkrahúsinu í
New York. Eftir mjög vel heppn-
aðan fyrirlestur að Hótel Loft-
leiðum um málefni áfengissjúkl-
inga ^ókum við hann tali.
— Hvernig er meðferðinni
hagað hjá ykkur á Freeport
sjúkrahúsinu? .
„Viðkomandi kemur að sjálf-
sögðu sjálfviljugur og hann dvelst
hjá okkur 7—14 daga i einu.
Fyrstu 3 dagana gefum við sjúkl-
ingunum lyf, til að þeir komist í
jafnvægi og róist. Síðan tekur við
nokkurs konar nám. Þar er hóp-
lækningum beitt í ríkum mæli og
hver og einn fær eins mikla
fræðslu um þessi málefni og
kostur er á. Þegar sjúkrahúsvist
lýkur er mjög mikilvægt að sam-
band náist við Ala-non samtökin.
en þau eru fyrir aðstandendur
sjúklinganna. Einnig bendi ég
mínum sjúklingum á AA-
samtökin, þay eru mjög mikil
aðstoð í áframhaldandi meðferð.”
— Hvernig er svo árangurinn?
„Ef fólkið tekur því sem við
höfum fram að færa og fylgir
reyndir. Það væri ekki vænlegt til
árangurs ef t.d. sykursjúkur
maður færi leynt meó sjúkdóm
sinn og aðrir úr fjölskyldunni
gerðu það einnig. Hann verður að
fá sína meðferð ef bati á að nást
og líðanin verði góð. Það gildir
það sama um áfengissjúklinginn,
hann verður einnig að fá meðferð
semviðá.” —KP.
Kúbumoður-
inn Garcia
efstur
ef tir 5
umferðir
Kúbumaðurinn Gareia er
efsturmeð 4 vinninga á Capa-
blanca-mótinu á Kúbu eftir
5 umferðir. Guðmundur
Sigurjónsson er í 2.—4. sæti
ásamt Sovétmönnunum,
Razuvaév og Gulko. Hafa
þeir 3 vinninga eftir þessar
5 umferðir, en Guðmundur
sat yfir í 5. umferðinni.
Virðist Guðmundur Sigur-
jónsson því hafa mjög góða
stöðu í þessu afmælismóti
heimsmeistarans fyrrver-
andi, Capablanca, en hann
var frá Kúbu.
—BS
1 „Fólk verður að ræða þessi mál, það á ekki að fara með þau í felur,"
segir Joseph F. Pirro prófessor um vandamál áfengissjúkiinga.
okkar leiðbeiningum þá er hægt
að segja að um 50% fái bata. En
ef gengið er lengra og AA-
samtökin koma til að sjúkrahús-
vist lokinni og ef vinnuveitandi
fylgist með málum, þá vil ég
halda því fram að 90% sjúkling-
anna fái bót.”
— Er börnum áfengissjúklinga
hættara en öörum börnum að
falla fyrir áfenginu?
„Þessari spurningu held ég að
ég geti svarað játandi. Ef ungling-
urinn hefur fyrirmyndina, þá eru
miklar líkur á því að hann breyti
eftir henni. Ef ungur maður
hefur séð föður sinn skella
hurðum og fara út og drekka, ef
eitthvað blæs á móti, þá er hann
líklegur til að gera hið sama í
sinni sambúð.”
„Fólk verður að ræða þessi mál,
það á ekki að fara með þau í felur.
Þaó verður að viðurkenna stað-
Hótaði að skjótc
konu í ókunnu húsi
Ölvaður utanbœjarmaður ú f erð í Reykjavík
með rrffil og 18 skot
Mikið ölvaður maður ruddist
óboðinn inn að Bogahlíð 16 kl.
11.25 á föstudagsmorguninn. I
stigagangi kom hann að konu
sem þar var að ryksuga. Hafði
maðurinn engin umsvif á, en
hótaði að skjóta konuna, ef hún
hefði ekki hægt um sig.
Konunni tókst þó að láta gera
lögreglunni viðvart og var hart
við brugðið. Komu lögreglu-
menn í skotheldum vestum á
vettvang og fóru til móts við
manninn. Stóð hann þá enn efst
í stiganum.
Maðurinn reyndist
óvopnaður þar sem hann stóð.
Úti fyrir dyrum fannst hins
vegar riffill og 18 skot. Vegna
ummæla mannsins lék grunur
á, að hann hefði einnig skamm-
byssu í fórum sínum.
Rannsóknarlögreglan var til
kvödd og hefur nú þetta mál til
rannsóknar. Maðurinn, sem er
utanbæj armaður, fylgdi lög-
reglunni á brott mótþróalaust.
— ASt.
( ÞRJÁR STÚLKUR DÚXUÐU )
Kópavogur:
Krístín œtlar að kenna vangef num
Krislín tekur við viðurkenningu frá rektor menntaskólans í Kópa-
vogi, Ingólfi Þorkelssyni. (I)B-mvndir Björgvin).
...—, , .......
Hafnarfjörður:
Gíf uriegt nómsef ni í sumum fögum
— segirSigríður Hermannsdóttir
„Jú, það hefur verið líf og
fjör í kringum þetta allt saman,
ball í Sigtúni í fyrrakvöld og
allt í fullum gangi ennþá,“
sagði Kristín Hallgrímsdóttir,
dúx úr Menntaskólanum í
Kópavogi, en þaðan voru í
fyrsta skipti brautskráðir 53
stúdentar á laugardaginn.
Kristin er dóttir Hallgríms
Sæmundssonar kennara í
Garðahreppi og Lovísu Öskars-
dóttur. Hún útskrifaðist úr
máladeild og hlaut einkunnina
8.40.
Þetta var svolítið frábrugðið
venjulegum prófönnum, þar
sem við fengum meiri tíma til
lesturs og því var það bara
vinnan sem dugði," sagði hin
alsæla stúdína ennfremur. „I
sumar ætla ég að vinna í Noregi
og síðan ferðast með vinkonum
minum þar á eftir. Ég hef
hugsað mér að taka árs frí og
leggja síðan fyrir mig
kennslustörf fyrir vangefna að
námi loknu,“ sagði Kristín að
lokum.
Til hamingju Kristín og
gangi þér allt í haginn.
-JB.
„Það hefur verið mikið að
gera undanfarnar vikur í
kringum prófin og svo
útskriftina,“ sagði Sigríður
Hermannsdóttir, sem vann það
afrek að verða dúx yfir
nýstúdenta úr menntadeild
Flensborgarskólans i Hafnar-
firði, en þar var útskrifaður 31
stúdent á laugardaginn.
Sigríður lauk stúdentsprófi úr
máladeild með ágætiseinkunn
9.40. Hún er dóttir Hermanns
Þórðarsonar, flugumferðar-
stjóra og Auðar Arnadóttur,
verzlunarkonu.
„Alagið var ekki svo
frábrugðið öðrum prófum, að
öðru leyti en því, að þessu
fylgdi meiri vinna, þar sem
námsefni var gífurlegt í sumum
fögum,“ hélt Sigríður áfram.
„En við erum líka að taka þetta
út þessa dagana á „léttari"
máta eins og alltaf fylgir
stúdentsútskriftum.“
„Það hefur reynzt mér erfitt
eins og fleirum að fá atvinnu,
svo ég er atvinnulaus sem
stendur,“ sagði nýstúdentinn
ennfremur. „Hvað liggur fyrir í
framtíðinni er frekar óráðið,
en mig langar til að komast á
skóla erlendis og leggja síðan
fyrir mig störf tengd
Menntaskólinn í Reykjavík:
Gríska við hóskókuin nœsta vetur
— segir Ragnheiður Bragadóttir
„Ég stefni að lögfræði- og
griskunámi í Háskóla Islands,"
sagði Ragnheiður Bragadóttir,
nýbakaður stúdent og dúx í
þokkabót úr Menntaskólanum í
Reykjavík. Ragnheiður er
dóttir Braga Hannessonar
bankastjóra og Ragnheiðar
Gunnarsdóttur. Hún lauk
stúdentsprófi úr máladeild með
ágætiseinkunn 9.18.
„Það er frekar fátítt hér á
landi að fólk fari í grískunám
og þess vegna fáir sem geta lagt
fyrir sig þýðingar og kennslu á
þessu sviði," sagði stúdinan
ennfremur. „Ég valdi
fornmálasvið 1, með grísku og
latínu sem aukamál, svo ég hef
aðeins fengið innsýn i námið.
Það er enn óákveðið hvað ég
tek mér fyrir hendur í sumar,
en siðan er það Háskólinn
næsta vetur,“ sagði Ragnheiður
að lokum.
Við óskum Ragnheiði til
hamingju og alls hins bezta i
framtíðinni. -JB-
Bagnheiður
Sigríður
tungumalum eða félagsmál-
um,“ sagði Sigríður að lokum.
Og við óskum Sigríði til
hamingju og árnum henni allra
heilla i því sem hún leggur
fyrir sig i framtíðinni. -JB.