Dagblaðið - 15.06.1976, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 15.06.1976, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ — ÞHIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1976. „ÉG TÓK BARN MITT AF LAUFASBORG Salome Kristinsdóttir Sogavegi 156 skrifar: „Halldóra Ástþórsdóttir tekur anzi stórt upp í sig í tveim greinum sem hún skrifar i Dagblaðiö. Öll rök for- stöðukonu Laufásborgar segir hún ósönn og sjálf þeysir hún áfram sem hvítþveginn engill og er mikið niðri fyrir. Ég er móðir barns þess, sem Krist- björg Steingrímsdóttir segir frá í svari sínu við fyrstu grein Halldóru, að hafi verið tekið af Laufásborg vegna framkomu Halldóru í þess garð. Vissulega segir hún satt. Ég sá mér ekki fært að hafa barnið hjá Halldóru, því hennar uppeldis- aðferðir virðast vera barsmíðar og hróp ef barn er ódælt. Ég hef komið að Halldóru þar sem hún lamdi barn. Einnig hef ég talað við sumar af þeim mæðrum sem höfðu börn sín hjá Halldóru og voru þær fremur óánægðar en höfðu^ engin tök á því að koma þeim fyrir annars staðar. Halldóra segir að engin fóstra hafi starfað með henni. Það er ósatt, því áramótin 1974- 75 starfaði fóstra með henni og hefur hún sagt mér og að minnsta kosti einni annarri móður að með Halldóru sé ófært að vinna sökum yfirgangs og ráðríkis. Kristbjörg Stein- grímsdóttir er mjög hæf í sinu starfi, að mínu mati, sérstak- lega hlý við börnin og áhuga- söm. Hún tók það mjög nærri sér að ég þurfti að taka barnið af Laufásborg. Sérstaklega af því að hún passaði hann sjálf um tíma og kom þeim mjög vel saman og enn talar hann um hve góð hún var. Varðandi meðmælin sem Halldóra talar um er eftir- tektarvert að þar kemur hvergi fram að hún sé barngóð, þar sem hún starfaði jú með börnum. Halldóra Ástþórsdóttir hefði betur átt að láta vera að skrifa róg um manneskju sem ber á allan hátt höfuð og herðar yfir hana, því eins og Halidóra segir sjálf: Sannleikurinn er sagna beztur. Einnig vil ég að fram komi að ég hef unnið við 3 barnaheimili í Þýzkalandi og Sviss í samtals 3 ár vegna náms míns svo ég veit hvað ég er að tala um.“ Barnaheimilið Laufásborg í Reykjavík. — vegna f ramkomu Halldóru í þess garð, segir Salome Kristinsdóttir HERSTÖÐIN ER ERLEND ÁSÆLNI í ÍSLENZKT LAND Einn góðborgari þessa lands, sem vill láta kalla sig sjálf- stæðismann vildi koma eftirfar andi á framfæri vegna skrifa sjálfstæðismanns síðastliðinn fimmtudag: „Síðastliðinn fimmtudag birtist í DB lesendabréf frá manni er kallaði sig sjálf,- stæðismann. Tæplega á maðurinn nógu sterk orð til að lýsa aðdáunsinniog hrifningu á veru herliðsins á Miðsnesheiði. Sjálfstæðismaðurinn hélt því blákalt fram að dvöl herliðsins á Miðnesheiði væri vegna Islendinga sjálfra og engra annarra. Eins og hann sagði „að sjálfsögðu á að vera varnarlið á íslandi. Ástandið í heiminum í kringum okkur er þess eðlis, að varnarlaus þjóð má sín lítils gegn oki einræðisríkja. Banda- ríkjamenn eru hér til varnar okkur — ef þeir fara er allt eins víst að Rússarnir komi.“ Og síðar. „Bandaríkjamenn eru hér til að verja íslenzkt land erlendri ásælni." Heyr á endemi. Sjálfur tel ég mig gegnarn og nýtan sjálf- stæðismann. En að bera slfkt á borð fyrir sæmilega skynsama menn er firra — fjarstæða. Á síðustu misserum hafa íslendingar gert sér æ ljósar eðli herstöðvarinnar suður á Miðnesheiði. Auðvitað er herliðið eingöngu vegna þess að Bandaríkjamenn og NATO sjá sér hag af því. Með öðrum orðum — Island er hlekkur í varnarkeðju Bandaríkjanna, útvörður USA í Atlantshafinu. Herinn á Miðnesheiði er liður Bandaríkjanna í og þetta vil ég að mepn geri sér ljóst — sjálfstæðismenn eða ekki sjálfstæðismenn — að ná tökum á íslenzku landi. Með öðrum orðum, herinn er erlend ásælni i íslenzkt land. Þrátt fyrir þetta er ég fylgjandi herstöð á íslandi. Ég tel að ísland eigi að vera í nánum tengslum við vestræn lönd. Herstöðin er liður í þessum tengslum okkar við þau. Hún er framlag okkar til viðhalds vestrænnar menningar. Einungis þarf að upplýsa fólk um eðli herstöðvarinnar, halda henni innan vissra marka og auðvitað taka gjald fyrir.“ HVER BROSIR EKKI þegar hann kemst ó auðveldan hátt hjá einhverju? 1459-8764 skrifar: „Ég er hlynntur vestrænni samvinnu, en ég er ósammála þeim, sem ekki vilja taka gjald fyrir aðstöðuna á Keflavíkur- velli. Eg er furðu lostinn yfir skoðunum núverandi utan- ríkisráðherra sem hefur margt gott gert fyrir land okkar, en segir að ekki megi gera herliðið að féþúfu. A sama tíma sem þjóðin stynur undan drepþungum sköttum leyfa einhverjir sér- vitringar sér að halda fram mis- skildu þjóðarstolti, sem er eitt- hvert ræflastolt. Eða halda því fram að við séum að selja land er óheiðarlegt en að selja aðstöðu það er annað mál. Hver brosir ekki þegar hann getur komizt hjá þvi að greiða himinháar upphæðir, sem hann er tilbúinn til aö greiða þegar í hart fer. Arðn Guðbrandsson er einn mesti fjármálaspekingur þjóðar vorrar. Hann hefur um langt árabil opinberað kenningu sína, en talað fyrir daufum eyrum, þangað til fyrir stuttu. Hvenær förum við að taka staðreyndum. Við erum lítil þjóð i stóru landi og getum ekki einu sinni haft sómasam- legar samgöngur vegna fátæktar. Við þurfum digra sjóði til að þola náttúruham- farir og allir landshornamenn heimta sitt. Hvað er svo til ráða? Hvað eiga ráðamenn að gera? Svarið er nýir skattar, sem aldrei verða afnumdir. Þjóðin stynur undan byrðinni. Allt hækkar nema kaupið. Eg er fremur ihaldssamur borgari, aðhyllist þó að vissu marki sósíalisma og vil engan stéttarmismun, ef hjá því verður komizt með nokkru móti. Þess vegna tek ég undir með þeim fjölmörgu, sem hafa einurð gagnvart forríkum nágrannaþjóðum. En hvað á að gera við það fé sem kemur af hersetunni? 1. Að standa í skilum við erlenda aðila. 2. Að verja því til framkvæmda sem eru varanlegar. 3. Að láta af þeim hætti að sækja á lágkúruleganháttí vasa áfengissjúklinga pemnga í skattaformi. Þessa einstaklinga ætti fremur að vernda."

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.