Dagblaðið - 15.06.1976, Síða 7
7
DAGBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNl 1976.
NýréttarhöU
í máli
PattyHearst?
— dómarínn í
málinu lézt í gœr
Oliver Carter, dómari í máli
Patty Hearst, lézt í San
Francisco í gær. Banamein
hans var hjartaslag. í kjölfar
dauða hans er ekki taiið ólík-
legt að ný réttarhöld fari fram í
máli Patty — og víst er, að
dauði dómarans mun verða til
þess, að bið verður á að hún
hljóti sinn dóm.
Carter dómari, sem varð 65
ára, hafði dæmt Patty í bráða-
birgðahámarksfangelsi i 35 ár,
eftir að hún hafði verið fundin
sek um þátttöku í bankaráni.
En dómarinn fyrirskipaði að
hún skyldi sæta nákvæmri
rannsókn á andlegu og likam-
legu heilbrigði áður en hún
kæmi fyrir rétt á ný ekki síðar
en 12. júlí.
Akveðið verður í þessari viku
hvaða dómari tekur við málinu.
Verjendur Patty munu nota
þetta tækifæri til að reyna að fá
hana látna lausa skilorðsbundið
þar til endanlegur dómur hefur
verið kveðinn upp.
Myrtv fófk í kjöl
far hvirfílvinds
Dauði, sár og ofbeldi dundu
yfir hvíta íbúa Chicagoborgar í
fyrrinótt í kjölfar hvirfilvinds,
sem gekk yfir borgina. Vegna
flóða urðu margir hvítir
bifreiðarstjórar að aka út af
þjóðveginum inn til borgar-
innar inn í borgarhverfi þar
sem blökkumenn eru í meiri-
hluta og þá notuðu glæpamenn
meðal þeirra sér tækifærið og
réðust á hvita fólkið.
Ung hvíl rnóðir var skotin
til bana fyrir framan þrjú börn
sín, er eiginmaður hennar
neitaði að greiða 10$ ,,vegatoll“
í einu blökkumannahverfinu.
Önnur hvít fjölskylda slapp
naumlega er ungir blökkumenn
brutu allar rúður í bíl þeirra.
Að sögn lögreglunnar urðu
fimmtánmanns fyrir árásum í
borginni í fyrrinótt og tveir
harðir skotbardagar urðu, er
lögreglan reyndi að skerast í
leikinn
Brezkir sjómenn
í kossaflensi
— foringinn lœkkaður í tign
Undirforingi i brezka sjó-
hernum hefur verið lækkaður í
tign og orða, sem hann hafði
fengið fyrir góða hegðun, tekin
af honum fyrir að kyssa annan
sjómann á bar í New Orleans.
Undirforinginn, John
Bodymore, sagði við herréttinn,
að hann hefði kysst unga
manninn til þess að sýna honum,
hvernig það væri að vera kysstur
af tannlausu fólki.
Sagði hann réttinum, að hann
hefði týnt fölsku tönnunum
sínum kvöldið áður, er hann lét
þær vega salt á nefinu á sér sem
skemmtiatriði í samkvæmi.
Nokkrir sjómenn af sama her-
skipi kærðu undirforingjann er
þeir urðu varir við kossaflens
þetta, þar er þeir sögðu kossinn
hafa verið „langan og blautan."
Lítið er nú talið standa í veginum fyrir því, að Jimmy Carter verði forsetaefni Demókrataflokksins. Hann
hefur nú tryggt sér 1200 kjörmenn af þeim 1505, sem til þarf og flestir fyrrum andstæðingar hans hafa
lýst yfir stuðningi við hann. Hér má sjá Carter á framboðsfundi ásamt fjölskyldu sinni.
Carter vinsœlastur
FYRIR 17. JÚNÍ
37%. Væri kosið á milli Carters
og Reagans fengi Carter 55.32%.
Meðal demókrata nýtur Carter
stuðnings 41% þeirra, sem
spurðir voru, Hubert
Humphrey 22% og Edmund
Brown, fylkisstjóri í Kaliforníu,
15%.
1 hópi repúblikana nýtur Ford
forseti mests stuðnings, eða 52%
á móti 33% Reagans.
Þessi skoðanakönnun var gerð
dagana 10. og 11. júni.
Jimmy Carter er vinsælli meðal
bandarísku þjóðarinnar en bæði
þeir Ford forseti og Ronald
Reagan, ef marka má skoðana-
könnun, sem niðurstöður voru
birtar úr í morgun
Það var NBC sem gerði könn-
unina. Segir í niðurstöðum
hennar að Carter njóti stuðnings
52% þjóðarinnar en Ford aðeins
Fall Polisario
MáritansKir hermenn hafa
drepið um sjötíu Polisario-
hermenn í bardögum í norð-
vesturhluta Sahara undan-
farna tvo daga, að því er sagði í
fréttasendingum Nouakchott-
útvarpsins, sem heyrðust í
Dakar I morgun.
í fréttasendingum útvarps-
ins sagði einnig, að þrjátíu og
þrír bílar og töluvert magn
vopna hefði verið gert upp-
tækt.
Á fréttum, sem borizt hafa
af þessum átökum að undan-
förnu, má skilja að Polisario —
frelsishreyfing V-Sahara —
bíði nú mikið afhroð í barátt-
unni við hermenn Máritaníu.
Erlendar
fréttir
REUTER