Dagblaðið - 15.06.1976, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNl 1976.
Rœtíst 28 ára
— um sjóbaðstað í Nauthólsvík?
„Ég lagði þessa tillögu fyrir
borgarstjórnarfund á árinu
1948,“ sagði Jón Sigurðsson, fyrr-
um borgarlæknir, er við báðum
hann að rifja upp hugmynd sína
um útivistarsvæðið í Nauthólsvík.
Tillagan var á þá leið að leiðsla
úr hitaveitugeymunum yrði lögð
niður að sjó þar sem girt yrði af
svæði. Hugmyndin var að settur
yrði upp veggur milli höfðans og
steinbryggjunnar. Var gert ráð
Höfum til sölu vélskornar túnþökur.
Tökum að okkur að leggja túnþökur
EGILL OG PÁLMAR
Símar 72525 á kvöldin.
Grunnvíkingar sunnanlands
Farið verður til Flæðareyrar föstu-
daginn 9. júlí með Fagranesinu frá
ísafirði, til baka mánudaginn 12. júlí.
Þeir sem hafa áhuga og hafa ekki
farkost, vinsamlegast hafió samband
við stjórnina fyrir 1. júlí. Farið verður
með rútu ef næg þátttaka fæst.
Hringið í síma 41156, 71065, 73994.
gamall draumur?
Líkan af hugmynd Jóns Sigurðssonar um sjóbaðstað.
fyrir að þetta yrði 8000 fermetra
sjósundlaug.
Þá var og ætlunin að koma
þarna upp snyrtiaðstöðu og
steypiböðum. Síðan átti að
kóróna verkið með þvf að setja
hvítan sand i fjöruna. Það var
reyndar gert síðar en honum
skolaði alltaf burt á veturna þar
sem garðinn vantaði.
Leiðslan úr hitaveitugeymun-
um hefur verið lögð niður í víkina
og rennur vatnið þar í opnum
skurði rétt við steinbryggjuna.
Jón var einnig með hugmyndir
um víðtæka barnagæzlu. Börnin
yrðu sótt í strætisvögnum á ýmsa
staði í borginni og skilað heim
síðdegis. Var ætlunin að þetta
gæti hjálpað þeim börnum sem
ekki kæmust í sveit. Tillagan
gerði ráð fyrir rúmu athafna-
svæði fyrir börn með vaðsvæði.
Tillagan var samþykkt og Jóni
ásamt borgarverkfræðingi og
hitaveitustjóra falið að hafa um-
sjón með framkvæmdum. Þeim
var hins vegar einungis lofað pen-
ingum eftir þvf sem fjárhagsáætl-
anir segðu til á hverjum tíma.
Tókst aldrei að hrinda ölium hug-
myndunum í framkvæmd. Var
Sjúklingur á Ströndunum:
Varnarliðsþyrla
náði í konu í
Ófeigsfirði
Björgunarþyrlur varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli sönnuðu
ennþá einu sinni ágæti sitt síðasta
föstudag er ein þeirra var send
eftir veikri konu til Ófeigsfjarðar
á Ströndum. Hefði þyrlan ekki
verið til taks hefði orðið að flytja
konuna langa leið með báti og
síðan jeppa eftir troðningum sem
fáum eru færir nema stærstu
fjallabílum.
Konan, sem náð var í, hafði
brugðið sér í Ófeigsfjörð með
kærasta sínum til dún- og eggja-
töku. Hún gekkst undir alvarleg-
an uppskurð fyrir ári og er auk
þess komin fimm mánuði á leið.
Héraðslæknirinn á Hólmavík og
heimilislæknir konunnar lögðust
eindregið gegn því að konan yrði
flutt land- og sjóveg vegna hrist-
ings. Því var þegar leitað til Slysa-
varnafélagsins sem gekkst í því
að fá þyrlu frá varnarliðnu til
flutningsins.
Varnarliðsmenn brugðust
skjótt við og lögðu upp í förina
klukkan 11 á föstudagskvöldið. I
Ófeigsfirði var viðbúnaður góður
til að taka á móti þyrlunni. Meðal
annars hafði verið kveikt bál á
bænum til að hann fyndist strax.
Förin gekk öll að óskum og var
konan komin í sjúkrahús klukkan
2 um nóttina.
— AT —
komið upp snyrtiaðstöðu og
steypiböðum og jókst við það að-
sóknin. Baðvörður var ráðinn til
eftirlits.
Adam var þó ekki lengi í Para-
dís. Sjórinn varð smám saman
mengaðri og bann var að lokum
sett við sjóböðum. Stóran þátt I
því að þetta gerðist átti sú ráðstöf-
un að veita frárennslisröri Kópa-
vogsbúa beint út I víkina.
— B.A.
Tœpur mánuður þar
til áœtlunarferðir
nýja Herjólfs byrja
„Þá fer nú loksins að styttast
í það að Vestmannaeyjar
komist í samband við þjóðvega-
kerfi landsins, ef svo mætti
segja,“ sagði Magnús Magnús-
son stöðvarstjóri Pósts og síma í
Eyjum er Dagblaðið rabbaði við
hann í gær.
„Við hérna lítum svo á að
nýja ferjan, Herjóifur, verði
beinn milliliður milli vegakerf-
isins í Vestmannaeyjum og á
megilandinu. Afhending
Herjólfs fer fram i Kristian-
sund í Noregi þann 30. þessa
mánaðar. Búast má við því að
skipið verði komið til landsins
ekki síðar en 10. júlí.“
Áætlunarferðir Herjólfs
verða milli Þorlákshafnar ög
Vestmannaeyja. Á báðum
þessum stöðum þarf að gera
nokkrar breytingar á höfnun-
um til að bílaumferð til og frá
ferjunni gangi greiðlega. í
Vestmannaeyjum vantar enn
járnasendingu frá Þýzkalandi
til að ganga að fullu frá aðstöð-
unni þar. I Þorlákshöfn er
reiknað með að móttaka
Herjólfs verði tilbúin í ágúst-
byrjun. Fram til þess tíma
verður að setja bíla um borð í
Herjólf með krana. Það mun
tefja dálítið fyrir ferðunum en
ekki þó til muna.
Flutningageta Herjólfs er
50—60 fólksbílar 1 hverri ferð
og hámark farþega er um 400.
Gjaldskrá fyrir ferðir milli
lands og Eyja hefur enn ekki
verið samin. Að sögn Magnúsar
er þó áætlað að hjón með bil
sinn þurfi ekki að greiða meira
fyrir ferðina en með flugvél frá
Flugfélaginu.
Áætlað er að Herjólfur fari
eina ferð á dag til og frá Eyjum.
Þó verður hægt að bæta við
aukaferðum eins og þurfa
þykir. Að sögn Magnúsar
Magnússonar er þegar búið að
panta fjórar aukaferðir með
5—600 manns í hverri ferð.
Magnús var að lokum
spurður að því hve langan tíma
hver ferð ætti að taka.
„Við reiknuðum fyrst með
tveimur og hálfum tíma,“
svaraði hann. „Nú hefur aftur á
móti komið upp sú staða að
enginn vill svara fyrir hraðann
á ferjunni. Það kemur því ekki
í ljós fyrr en í reynsluferðinni."
— AT —
Ónef nt fyrirtœki gaf 2 milljón króna tœki
Tveggja milljón króna tæki til
gjörgæzlu á hjartasjúklingum
hefur verið afhent Borgarspítal-
anum að gjöf. Gefandi er fyrir-
tæki sem ekki óskar að nafn þess
komi fram.
Hér er um bandarísk tæki að
ræða og eru þau mjög fullkomin.
Hluti tækjanna er við rúm sjúkl-
ings og tengdur honum. Sendir
hann þaðan allar upplýsingar til
miðstöðvar sem staðsett er í vakt-
herbergi sjúkradeildar. Þaðan er
þannig hægt að fylgjst með mörg-
um sjúklingum samtímis og koma
fram á tækjunum breytingar og
truflanir á hjartslætti sjúkling-
anna.
Þessi búnaður kemur til við-
bótar hliðstæðum búnaði sem
fyrir er og bætir þessi höfðing-
lega gjöf stórlega aðstöðu til
læknismeðferðar hjartasjúklinga.
í fréttatilkynningu frá Borgarspít
alanum segir að þessi gjöf sýni
höfðingslund og ræktarsemi unar Reykjavíkurborgar sem
fyrirtækisins í garð sjúkrastofn- seint verði fullþökkuð. ASt.
Gjörgæzlutækið við rúm sjúklings. Innsetta myndin er af tækinu i
vaktherbergi. Af því má lesa allar bre.vtingar á hjartslætti sjúklings.
I)B-mynd Arni Páll.