Dagblaðið - 15.06.1976, Side 9
DAGBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNl 1976.
Listahátíð
fœr tónleika
að gjöf
íslenzki dansflokkurinn mun
sýna „La Valse“ eftir Ravel á
Kjarvalsstöðum í kvöld kl. 20.30.
Halldór Haraldsson og Gísli
‘Magnússon sjá um tónlistina. A
tónleikum þessum, sem eru á
vegum Félags islenzkra tónlistar-
manna og íslenzka dansflokksins,
mun koma fram fjöldi lista-
manna. Tónleikar þessir eru gjöf
listamannanna til listahátlðar.
Tvær af stúlkunum i íslenzka
dansflokknum sem sýnir á Kjar-
valsstöðum í kvöld. Kennari
þeirra er Englendingurinn
Kenneth Tillson.
DB-mynd Björgvin.
Hegðun skipstjóra
freigdtnanna:
Skráð hjá
CIA og KGB
„Bandaríska leyniþjónust-
an CIA og hin sovézka KGB
hafa nákvæmlega skrásett
hjá sér ábyrgðarlausar gerð-
ir brezku skipstjóranna á
freigátunum," segir í á-
lyktun frá „flokki skozkra
þjóðernissinna á íslandi.“
I ályktuninni segir að CIA
og KGB muni ef til vill not-
færa sér þessar upplýsingar
síðar.
Starfsmönnum Land-
helgisgæzlunnar er þökkuð
snjöll og árangursrik
barátta fyrir 200 mílunum.
-HH.
Blaðamenn:
Eiga 47 millj. kr.
Blaðamenn eiga í sjóðum síns
félags samtals um 47 milljónir
króna. Þetta kom fram á
aðalfundi Blaðamannafélags
Islands á laugardaginn. Þar var
Einar Karl Haraldsson, frétta-
stjóri Þjóðviljans, kjörinn for-
maður félagsins fyrir næsta ár.
Aðrir í stjórn voru kjörnir Fríða
Björnsdóttir Tímanum, Björn
Vignir Sigurpálsson Morgun-
blaðinu, Kári Jónasson útvarpinu
og Bragi Guðmundsson Vísi. I
varastjórn sitja Atli Steinarsson
Dagblaðinu. Sæmundur Guðvins-
son Alþýðublaðinu og Guðjón
Einarsson sjónvarpinu.
Stærsti sjóður B.I. er Lífeyris-
sjóðurinn en eign hans er nú
tæplega 41 milljón króna.
Sjóðurinn hefur lánað félags-
miinnum sent i byggingum standa
og er hámarkslán úr sjóðnum nú
1 milljón kr. Menningarsjóður
félagsins á nú eignir sem nenta
tæplega 4.2 millj. króna. Þessi
sjóður veitti á sl. starfsári 20
blaðaniönnum utanfararstvrki.
Neinnr sá styrkur 60 þús. kr. á
hvern blaðamaim þanmg að iir
Bjarni Jónasson flugmaður í Vestmannaeyjum:
Byggir flugvöll í Þórsmörk
og annan í Landeyjunum
— fleiri vellir f yrirhugaðir
Bjarni Jónasson, flugmaður í
Vestmannaeyjum, er nú að
byggja flugvöll í Þórsmörk og
ráðgerir að hafa hann 600 til
þúsund metra langan. Hingað
til hefur ekki verið hægt að
fljúga í Þórsmörk. Þá er hann
einnig að byggja flugvöll að
Bakka í Landeyjum í félagi við
heimamenn, en flugtíminn
milli Eyja og þess vallar verður
300 sekúndur, eða fimm
mínútur og þar með ódýrasti
ferðamáti milli Eyja og lands
og jafnframt ódýrasta flugleið
á Iandinu.
Þetta kom fram er blaða-
maður DB hitti Bjarna á flug-
vellinum á Selfossi fyrir
skömmu, en Bjarni flýgur til
flugvalla frá Höfn í Hornafirði
vestur til Stykkishólms. Lang-
mest.flýgur hann nú á Selfoss-
völlinn, eða frá einni til sex
ferða á dag með farþega til eða
frá Eyjum.
Landeyjavöllurinn verður
grasvöllur og kemst væntan-
lega í notkun síðar í sumar, en
Þórsmerkurvöllurinn verður
malavöllur, tilbúinn innan
tíðar. En Bjarni er með fleiri
áform, enda á hann nú orðið
tvær vélar, Cherokee og
tveggja hreyfla níu farþega
Islander vél, búna til blindflugs
og lendinga á stuttum flug-
brautum.
Hann er nú að kanna vallar-
gerð austan Stokkseyrar og
möguleika á að endurbyggja
gamlan smávöll við Þorláks-
höfn. Loks er hann búinn að
afla sér heimildar til flugvallar-
gerðar austur á hrauni 1 Eyjum,
en hann yrði mun lægri en völl-
urinn, sem fyrir er, og þar
mundi ekki misvinda gæta í
Bjarni Jónasson hjá minni véi sinni á flugvellinum á Selfossi, en
þangað flýgur hann mest.
suðaustanáttinni. Sú átt stöðvar
flug til og frá Eyjum langoftast.
Bjarni sagðist standa 1 þessu
vegna þess að hann hefði orðið
var við svo eindreginn vilja
eyjarskeggja að bæta sam-
göngur sínar á sem flestan hátt
og hefðu þeir þegar sýnt að þeir
kynnu að meta þjónustu hans.
— G.S.
SIBR0TAR0LLA HANDTEKIN!
hefuróður komizt
íkastvið lögin
Ekki vitum við nafnið á kind-
inni sem var handtekin á
Árbæjarstöð lögreglunnar í
gærmorgun. Lögreglan greip
hana er hún var á leið fram hjá
lögreglustöðinni og stakk henni
í fangaklefa á meðan frekari
rannsókn á ferðum hennar fór
fram. Ekki var kindin ein á
ferð því að hún hafði tvö lausa-
leiksbörn sín með sér.
Við nánari athugun lögregl-
unnar kom I ljós að þarna var
síbrotakind á ferðinni. Hún var
handtekin í júlí i fyrra er hún
lék þann ljóta leik að trufla
flugumferð á Reykjavíkurflug-
velli. Nú var hún sem sagt
komin á stjá aftur og hafði
ósiðina fyrir lambkettlingunum
sínum.
Síbrotakind þessari er ekki i
kot vísað. Hún er af tsólfsskála-
kyni en er nú búsett á Alfta-
nesi. 1 vor voru hún og lömbin
flutt að Kaldárseli þar sem þau
áttu að dvelja í útlegð í sumar.
Þarna uppi í sveit hefur lífið
hins vegar gengið of rólega fyr-
ir sig fyrir kind með slíka lífs-
reynslu. Borgarsollurinn
virðist því ekki síður freista
afbrotakinda en -manna.
— AT —
Hún var ekkert að hylja andlit sitt, heldur glennti sig framan í Árna Pál ljósmyndara, síbrotaroilan
sem var handtekin í gær. Hún skammaðist sin ekki einu sinni fyrir að skíta á gólf fangaklefans.
Heldur er þó lambkettlingurinn, sonur hennar, framlágur á svipinn enda skammast hann sin
sennilega fyrir móðurmyndina. Hjtt lambið felur sig bak við móðurina. DB-mynd Árni Páli.
Hótelstjórar bjartsýnir
í sjóðum
sjóðnum voru veittar 1.2 milljónir
króna.
I Orlofsheimilasjóði er nú
rúmlega 1.1. millj. króna en sá
sjóður er nú 4 ára gamall.
Hagur félagsins er betri en
nokkru sinni enda fjölgaði félags-
mönnum um 50% á sl. ári vegna
breyttra inntökuskil.vrða í félagið.
A fundinum voru fluttar itar-
legar skýrslur um hdgi sjóða og
þátttöku íslenzkra blaðamanna í
fundum Alþjóða- og Norræna
blaðamannasambandsins, en þá
fundi hafa setið af hálfu íslenzkra
blaðamanna Atli Steinarsson,
Einar Karl Haraldsson og Fríða
Björnsdóttir.
Aðalfundurinn lýsti yfir
stuðningi við baráttu frétta-
manna útvarps f.vrir baettum kjör-
um.
Fundurinn var einn sá
fásótiasti aðalfundur sem haldinn
hefur verið í félaginu. Sátu hann
aðeins 22 félagsmenn. Dagblaðs-
menn mættu ekki, að einum
undanskildum. Mótmæltu þeir i
bréfi til f undarins siðbúinni boð-
un fundariiiN.
-ASt.
Tæplega áttatíu þúsund
erlendir ferðamenn komu hingað
til lands á síðasta ári. Var það um
fimm þúsund einstaklingum fleiri
en á árinu 1974.
Þess má geta að tekjur vegna
erlendra ferðamanna voru á
síðastliðnu ári 3 milljarðar og 10
milljónir ísl. króna. Þetta mun
vera sem svarar 6,3% af heildar-
verðmæti útfluttrar vöru.
Til þess að fregna af horfunum
i ár var haft samband við fyrir-
svarsmenn nokkurra hótela.
Eriing Aspelund á Hótel
Loftleiðum kvaðst bjartsýnn á
sumarið, það er að segja ef mark
mætti taka á bókunum. Þær
bentu til þess að ferðamanna-
straumurinn yrði meiri en á árinu
1975.
Er hann var inntur eftir því
hvernig nýting hefði verið í fyrra
sagði hann að hún hefði verið
rúm 59% á Loftleiðum en 63% á
Esju. Þessar tölur væru hins
vegar inun lægri en sumar-
tölurnar. Þá hefði nýtingin
komizt upp i 91% á Loftleiöum.
Islendinga kvað hann ekki koma
inn í sumartölurnar, hins vegar
gistu þeir nokkuð á veturna.
Konráð Guðmundsson á Hótel
Sögu kvaðst bjartsýnn á sumarið
og vonast til að nýting gæti
komizt upp i 83%.
Er hann var inntur eftir hlut
Islendingá kvað hann þá vera
38%, af gestum hótélsins. Þeir
sæjust hins vegar yfirleitt ekki
yfir sumarmánuðina.
Nýtingin á hótelinu á síðast-
liðnu ári var góð eða 71% yfir allt
árið en fór yfir 80% yfir háannk-
timann.
Björn Vilmundarson hjá
Ferðaskrifstofu ríkisins varð
næstur fyrir svörum.
Bókanir í ár kvað hann mjög
góðar, hins vegar væri lítil
reynsla komin á aðsóknina.
Hótelið á Kirkjubæjarklaustri er
það eina af Eddu-hótelunum, sem
búið er að opna.
Björn sagði að Islendingar
væru stór hluti af gestahópnum.
Virtust þeir laðast að ýmsum af-
sláttartilboðum eins og 7 nátta
gistingu sem boðið var upp á 1
fyrra.
Á Akureyri var gott hljóð f
hótelstjóranum á Hótel KEA.
Hann var ánægður með
útkomuna á síðastliðnu ári. Þá
var nýtingin yfir sumartímann
lægst 71%, og fór upp í 91%.
íslendingar gista mikið á
Akureyri, og þar er aðeins 1 af
hverjum 5 gestum útlendingur.
Arni Stefánsson á hótelinu á
Höfn í Hornafirði kvaðst vera
fremur bjartsýnn á útkomuna í
ár. Bókanir hefðu verið mjög
miklar. Hins vegar væri lítið farið
að sjást af ferðamönnum fyrir
austan og væri greinilegt að anna-
tíminn hæfist seinna í ár en
venjulega.
Gisting var mjög mikil á Höfn í
fyrrasumar. 94% af rýminu var
notað vfir sumarmánuðina.
-BÁ-