Dagblaðið - 15.06.1976, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNl 1976.
ÍÞRÓTTAKENNARASKÓLANUM SLITIÐ:
Dúxinum þótti verst
að missa af leiknum!
„Það er engin furða þó
kennarar sitji hér skælbrosandi,
því við stóðum okkur með prýði,“
sagði formaður Nemenda-
félagsins Magnús Pálsson, en
hann mælti nokkur kveðjuorð
fyrir hönd nýútskrifaðra iþrótta-
kennara.
Að þessu sinni voru 29
nemendur í skólanum. I skóla-
slitaræðu sinni lét Árni
Guðmundsson skólastjóri í ljós
ánægju með árangur nemenda, en
mikill meirihluti þeirra var með
fyrstu einkunn og einn með
ágætiseinkunn, Janus Guðlaugs-
son úr Hafnarfirði, 9,05. Þetta er
frábær árangur, þegar tekið er
tillit til þess að fjöldi námsgreina
er rúmlega 20.
Lára Sveinsdóttir frjálsíþrótta-
kona úr Armanni. „Auðvitað hef
ég hugsað um Ólympíuleikana, og
ef til vill kemst ég aftur ef vel
gengur.“
„Það er bara verst að ná ekki i
leikinn á móti Val,“ sagði Janus
Guðlaugsson knattspyrnumaður
úr FH og dúx skólans að þessu
sinni. „Ég leik með félögum
minum í sumar, enda var líka
knattspyrna mitt valfag í vetur.“
— Þú hefur þurft að halda vel á
spöðunum til að ná þessum
árangri?
„Við höfðum öll svo sannarlega
mikið að gera. Það segir sig sjálft,
við vorum í skólanum til kukkan
5 á hverjum degi og svo áttum við
eftir að undirbúa næsta dag.“
Aðspurður kvaðst Janus ekki
ákveðinn um starf í sumar, en það
ætti varla að vera vandi fyrir
hann að fá eitthvað við sitt hæfi.
Við rákumst á Árna Stefánsson
hressan í bragði, enda nýút-
skrifaður íþróttakennari. Árni
leikur með íslenzka landsliðinu í
knattspyrnu og fer með til
Færeyja í dag. Einnig mun hann
standa í marki Fram. „Ég býst við
Janus Guðlaugsson, knatt-
spyrnumaður úr FH, varð dúx
skólans að þessu sinni með
ágætiseinkunn. ^
að taka við starfi Jóhannesar
Atlasonar, í vetur sem íþrótta-
kennari i Breiðholti, en hann
ætlar til náms erlendis," sagði
Árni.
Lára Sveinsdóttir frjálsíþrótta-
kona var í hópi hinna nýút-
skrifuðu íþróttakennara. „Ég hef
auðvitað ekki haft tíma til að æfa
neitt að ráði og hef tapað niður
tækni,“ sagði Lára. „Dvölin hér á
skólanum hefur verið mér til góðs
að því leyti að ég er miklu
sterkari en áður og því betur
undir það búinn að æfa af krafti.
Auðvitað hef ég hugsað um
Ólympíuleikana, og ef til vill
kemst ég aftur ef vei gengur.“-KP.
Arni Stefánsson markvorður
íslenzka landsiiðsins var hress í
bragði, enda nýútskrifaður
Nýútskrifaðir iþróttakennarar sýndu gestum brot af þvi, sem þeir höfðu iært i tvo vetur. DB-myndir KP.
WÍS;
* /
J
íþróttir
Þjóðhótíðormót í
frjólsum iþróttum
og sundi
Þjóðhátíðarmótið í frjáisum
íþróttum — 17. júní-mótið — verður að
þessu sinni haldið á Meiavellinum 16.
og 17. júní vegna þeirra framkvæmda,
sem nú standa yfir á Laugardalsvelli.
Á morgun, miðvikudag, verður
keppt í eftirfarandi greinum: 110 m
grindahlaupi, 200 m hlaupi karla og
kvenna, 1500 m hlaupi, þrístökki,
hástökki, kringlukasti karla og kvenna,
1000 m boðhlaupi og langstökki
kvenna.
Þjóðhátíðarmót í sundi verður
haldið í sundlauginni í Laugardal 17.
júní og verður þar keppt í átta sund-
greinum og auk þess sundknattleik.
Meðai keppnisgreina eru 100 m skrið-
sund karla og kvenna, og 100 m flug-
sund karla og kvenna.
Foreman gegn Frazier!
— í nótt í stórleik í hnef aleikum í New York
George Foreman, sem iék Joe
Frazier grátt síðast þegar þeir
mættust í hringnum — rothögg í
annarri lotu — er taiinn hafa
mun meiri möguieika til sigurs,
þegar kapparnir keppa í nótt —
að islenzkum tíma — í Nassau
Coliseum í Uniondaie í New York
fylki. Veðmálin standa honum 8-5
í hag í 12 lotu leik þeirra.
Það var í Kingstone á Jamaíku
22. janúar 1973, þegar George
Foreman kom öllum á óvart í
hnefaleikaheiminum og sló Joe
Frazier sex sinnum niður í
tveim lotum. Vann frá honum
heimsmeistaratitilinn í þunga-
vigt, þrátt fyrir að veðmálin
stæðu Frazier 4-1 í hag. I Zaire
1974 tapaði Foreman svo titlinum
til Muhammad Ali eins og frægt
er.
Frazier, sem nú er 32ja ;ára,
sagði i gær. — Þetta verður
grimmilegur leikur. Ég ætla mér
að berja á Foreman — gera hann
að kjána. Hann lofaði því fyrir
titilleikinn 1973 að keppa aftur
við mig ef ég tapaði. En hann hélt
ekki loforð sitt... og maður, sem
gengur bak orða sinna er ekki
mikils virði.
Frazier — en það verður annað
uppi á teningnum nú.
I október síðastliðnum'
tapaði Frazier fyrir
Muhammad Ali í blóðugum leik
— einum hinum mesta, sem um
getur í hnefaleikum. Þar sýndi
hann mikla hæfni, þrátt fyrir
tapið. George Foreman, sem nú er
28 ára, keppti síðast í janúar. Þá
við Ron Lyle og þó Foreman færi
tvívegis í gólfið tókst honum að
rétta sinn hlut og sigra I fimmtu
lotu. Hann sagði í gær: „Eg veit
að Frazier verður erfiður — en
allt, sem hann getur gert get ég
gert betur.“ — Hvor kappanna
fær eina milljón dollara fyrir
keppnina í nótt.
„Smokin’Joe" sagðist ætla að
sækja í leiknum í nótt á sinn
venjulega pressu-hátt, en þó vera
gætnari í vörninni en 1973. „Ég
ætla aö sýna fólki að ég er betri
nú en á Jamaíka. Þar hitti hann
mig — og ég meiddist. Ég þekkti
það ekki frá fyrri leikjum mínum
— og reis strax á fætur aftur og
aftur í stað þess að reyna að jafna
mig. Fá skýrleika í höfuðið. Well,
það er liðin tíð. Það var ekki Joe
Skallagrímur vann í fyrsta leik
Keppnin í D-riðli 3. deildar hófst
í Borgarnesi á iaugardag. Þá lék
Skailagrimur við HSS —Stranda-
menn. Ursiit urðu þau, að Skalia-
grímur sigraði með 4-2 eftir að
staðan í hálfleik var 2-1 fyrir iiðið.
Mörk Skallagríms skoruðu Guð-
mundur Ilalldórsson, sem var bezti
leikmaðurinn á vellinum í leiknum,
Ingólfur Hannesson, Ömar Sigurðs-
son og Þórður Björnsson — en fyrir
HSS skoruðu þeir Andrés Jónsson
og Gunnlaugur Bjarnason. I D-
riðiinum leika einnig Vikingur,
Óiafsvík, Grundarfjörður, Snæfell,
Stykkishólmi og USVH (Hvamms-
tangi).
liommi álítur að hantt vcrði að rcyna að finna -
stúlkuntt dularfullu.
Fyrst (.r a,t finna út hvar þctta símanúmcr ,