Dagblaðið - 15.06.1976, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 15. JtJNÍ 1976.
14
6. skoðanakönnun Dagblaðsins:
Ertu með eða ó móti zetunni?
##
ALDREISKAPAÐ
ANNAÐEN
BOLVAÐ HRINGL
##
„Það er sama hvorum megin hryggjar þessi zeta
liggur. Við notum hana svo lítið.“ (Kona á
Reykjavíkursvœðinu).
„Endilega að fella niður zetuna og líka y-ið.“ (Kona
á Reykjavíkursvœðinu).
„Ég er andvígur zetu. Þingið gerði lítið úr sér með
því að karpa um zetuna þegar fullt er af verkefn-
um.“ (Karl í sveit).
„Það vœri tómlegt ón zetunnar, eins og prentvilla.“
(Kona ó Sauðórkróki).
„Hlutlaus. Zetan þvœlist fyrir mér hvort sem hún
er í ritmólinu eða ekki.“ (Kona ó
Reykjavíkursvœðinu).
„Sé zetan slitin burt er það eins og slitið vœri
líffœri úr líkama lifandi veru.“ (Karl ó Akranesi).
„Zetan hefur aldrei skapað annað en bölvað
hiingl.“ (Kona ó Akranesi).
„Mér gekk nú afskaplega illa að lœra hana en
finnst samt að hún eigi að vera í mólinu." (Karl í
sveit).
„Það mundi kosta of mikið að taka hana upp
aftur þegar nauðsynlega vantar fjórmagn til
kennslu.“ (Kona ó Reykjavíkursvœðinu).
„Ég er ó móti zetu. Það er eiginlega það eina sem
ég er ókveðin í.“ (Kona ó Reykjavíkursvœðinu).
„Bílarnir okkar eru jú merktir með Z“ (Kona í
Skaftafellssýslu).
Það væru einkum hægri menn,
sem styddu zetuna, en vinstri
menn væru á móti.
Dagblaðið bar því niður-
stöður þessarar könnunar
saman við niðurstöður könn-
unarinnar um afstöðu til ríkis-
stjórnarinnar.
I ljós kom, að greinilegur
meirihluti bæði stjórnarsinna
og stjórnarandstæðinga var á
móti zetu. Zetan naut ekki, svo
að heitið gæti, meira fylgis
meðal stjórnarsinna en
stjórnarandstæðinga. Fylgi
hennar var svipað á báðum
stöðum.
Mest gert úr
hringlandanum
Andstæðingar zetunnar
nefndu oftast þann hringlanda,
sem væri með hana. Fólk sagði,
að það svaraði ekki kostnaði og
erfiði að fara að taka hana upp
aftur.
Margir nefndu auðvitað að
reglurnar um zetuna væru
býsna erfiðar.
Stuðningsmenn zetunnar
töldu sumir hverjir að málið
mundi missa mikið ef hún yrði
á burtu að fullu.
Margir, bæði andstæðingar
og stuðningsmenn, komu því
að, að Alþingi hefði hegðað sér
illa þegar það eyddi miklum
tíma í rifrildi um zetu í þing-
lokin meðan mörg stórmálin
hefðu litla afgreiðslu fengið.
— HH
Þetta eru dæmi um svör fólks
í skoðanakönnun Dagblaðsins
um zetuna. Spurt var: Ertu með
eða á móti zetunni?
Alls voru 300 spurðir, 150
karlar og 150 konur. Helmingur
fólksins var á Reykjavíkur-
svæðinu og helmingur úti á
landi. Hringt var í númer á
ákveðnum stöðum í hverri
opnu símaskrárinnar.
Meiri andstaða
hjó karlkyninu
Greinilegur meirihluti
reyndist vera á móti zetunni.
Meðal kvenna úti á landi var
mjótt á mununum, en meiri-
hluti kvenna á Reykjavíkur-
svæðinu var á móti zetunni.
Drjúgur meirihluti karlkyns-
ins, bæði á höfuðborgar-
svæðinu og úti á landi, var and-
vígur zetunni.
Alls var af 300 spurðum 91
fylgjandi zetunni, 153 voru and-
vígir og 56 óákveðnir.
Stundum hefur verið sagt, að
zetumálið væri flokkspólitískt.
Margir ávituðu Alþingi fyrir að eyða dýrmætum tima í þinglokin f
rifrildi um zetuna.
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar:
Með zetu 91 eða 30’/3%
Móti zetu 153 eða 51%
Óókveðnir 56 eða 18%%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem afstöðu tóku,
verða niðurstöðurnar þessar:
Með zetu 37,3%.
Móti zetu 62,7%.
Slade in flame:
MYND FYRIR
UNGLINGA
0G ENGA AÐRA
sveit verður stór. Fyrst i stað er
allt skemmtilegt og spennandi,
en er líða tekur á, verða með-
limir Slade dauðþreyttir á öll-
um látunum í kringum þá. I
enda myndarinnar leysist
hljómsveitin upp. Þetta er
gömul saga sem flestar frægar
hljómsveitir kannast við — til
dæmis Beatles.
Fyrir hverja
er FLAME?
Vafasamt er að nokkrir hafi
gaman af að horfa á FLAME
nema unglingar — og þá einna
helzt Sladeaðdáendur. Ef með-
limir Slade lékju ekki í mynd-
inni væri hún nauðaómerkileg.
Leikhæfileikar þeirra Holders,
Hills, Lea og Powells eru ekki
miklir utan þess að á sviði eru
þeir á heimavelli og kunna öll
brögð.
Mjög erfitt er fyrir ungling-
ana að fylgja söguþræði mynd-
arinnar, þar sem málið á henni
er mjög erfitt — frekar léleg
cock.ney enska, sem fáir skilja
nema innfæddir Tjallar. ís-
lenzkur texti er ekki með
myndinni. Að sögn sýningar-
manns í Háskólabiói var ein-
hver húð á filmunni sem barst
til íslands. Vegna húðarinnar
reyndist ógjörningur að setja
textann inn á hana. Til stóð að
fá nýja filmu til landsins og
setja islenzkan texta á hana, en
af einhverjum ástæðum var það
ekki gert.
Af þessum sökum á FLAME
eftir að fara fyrir ofan garð og
neðan hjá flestum áhorfendum
af yngri kynslóðinni.
t FLAME flytja Slade tónlist
sem kom út á næstnýjustu LP
plötu hljómsveitarinnar sem
nefndist Slade In Flame. Fæst
þeirra eru þekkt nema lagið
Far, Far Away, sem er senni-
lega eitt vandaðasta lag Slade.
Lögin í myndinni eru öll eftir
Noddy Holder og Jimmie Lea.
— ÁT —
Kvik
myndir
Háskólabíó: Slade in FLAME. Stjóm: Chas
Chandler. AAalhlutverk: Dave Hill, Jimmie
Lea, Don Powell, Noddy Holder.
Söguþráðurinn:
FLAME hefst á því, að sýnd
er hljómsveit Jack Daniels og
félaga, — annars flokks hljóm-
sveit sem skemmtir 3ja
flokks áheyrendum. Meðlim
ir þessarar hljómsveitar eru all-
ir Slade-félagarnir — nema
Noddy Hoíder — og Jack þessi
Daniels, sem leikinn er af Allan
Lake. Þeim leiðist greinilega
spilamennskan og áheyrend-
urnir því að helzta dægrastytt-
ing þeirra er að kíkja upp undir
kvenfólkið á böllunum.
Það er loks í Norður-
Englandi sem eitthvað fer að
gerast. Hljómsveit Jack Daniels
kemur fram á skemmtun með
annarri, sém nefnist Roy Priest
And His Undertakers. Söngvar-
inn Stoker, sem er leikinn af
Noddy Holder, hefur
þann háttinn á að koma fram
lokaður í líkkistu og spretta
þaðan upp eftir nokkur lög.
Þetta kvöldið er kistunni læst
með hengilás, svo að nota
verður brunaöxi til að opna
hana.
Meðlimir Roy Priest ... gruna
Daniels og félaga um að hafa
læst kistunni og telja sig eiga
eitthvað vantalað við þá. Nú
hefst mikill eltingaleikur sem
endar með því að annar bíllinn
veltur og allir lenda í steinin-
um. Þar lenda þeir Paul
(Jimmie Lea) og Stoker saman
í klefa. Góð kynni takast með
þeim, sem leiða til þess að
Stoker gengur í hljómsveit með
hinum Slademeðlimunum en
þeir reka Jack Daniels. Og þar
með hefst frægðarsaga hljóm-
sveitarinnar Flame.
Enn er ósagður hlutur um-
boðsmanns Jack Daniels, Ron
Hardings. Hann er orðinn
Ieiður á hljómsveitinni og
stuttu eftir að Jack er rekinn
slítur hann samstarfi við
Flame. Þá tekur við annar
umbi, Robert Seymour, sem
tekst að gera Flame fræga með
alls konar brögðum, svo sem
með skotárás á þá, er þeir
heimsækja sjóræningjaútvarps-
stöð.
Er Flame er orðin fræg vill
Harding njóta eldanna, fá
hljómsveitina aftur til sín og
veifar samningi við Daniels
og félaga málstað sínum til
stuðnings. Seymour tekst aftur
á móti að stela samningnum og
fjallar myndin að miklu leyti
um baráttu þeirra um hljóm-
sveitina.
Fyrir utan þessa baráttu er
sagt frá þvl, hvernig smáhljóm-
ÁSGEIR
TÓMASSON