Dagblaðið - 13.07.1976, Qupperneq 6
ti
DA(iBLAt)Ii) — l>KIt)JUDA(iUK 13. JÚLl 1976.
Carter tilkynnir um
varaforsetaefnið á
fimmtudag
Næsta forsetaefni demókrata
í Bandaríkjunum, Jimmy
Carter, lauk í gær að ræða við
tvo þá síðustu af sjö manns,
sem koma til greina sem vara-
forsetaefni hans. Carter mun
ekki tilkynna flokksþinginu
um, hvern hann velur fyrr en á
fimmtudagsmorgun. Þangað til
verða flokksþingsmenn bara að
skemmta sér við hróp og köll og
langar, leiðinlegar ræður.
Meðal þeirra sem koma til
greina sem varaforsetaefni eru
Frank Church, Adlai Stevenson
og geimfarinn fyrrverandi,
John Glenn. Church stjórnaði
rannsókn á aðgerðum leyni-
þjónustunnar CIA hér um árið.
Edmund Brown, fylkisstjóri
Kaliforníu, sem keppti við
Carter í prófkosningunum,
sagði á þinginu í gær, að hann
ætlaði að berjast við Carter um
útnefningu fram á síðasta dag.
Flestir telja þó, að það verði
vonlaus barátta, þar eð Carter
hefur mikla yfirburði á þing-
inu.
Frá undirbúningi flokksþingsins. Iðnaðarmenn gera klárt í
Madison Square Garden.
Aðgerðirnar á Entebbe
rœddar íÖryggisráðinu
Fulltrúi Bandaríkjanna í
Öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna, William Scranton, sagði í
gær á fundi í ráðinu að aðgerðir
ísraelsmanna á Entebbeflug-
velli þann 4. júlí síðastliðinn,
væru réttlætanlegar sem
neyðaraðgerðir og að ,,hug-
rekki og hugvit ísraelsmanna
yrði seint við jafnað," eins og
hann komst að orði. Sendíherra
Bretlands hjá Sameinuðu
þjóðunum, Richard tók í sama
streng.
Fulltrúi Tanzaníu í Öryggis-
ráðinu var á öðru máli. Hann
talaði í nafni Afríkuríkja og
bað ráðið að fordæma að-
gerðirnar á Entebbe.
Richard sendiherra Bret-
lands sagði í Öryggisráðinu í
gær, að öðrum ritara sendi-
nefndar Bretlands i Kampala,
konu og hans tveimur öðrum
brezkum íbúum í Uganda hefði
verið vísað úr landi. Hann sagði
einnig að þeir 500 brezku íbúar,
sem eru eftir í Uganda, hefðu
fengið slæma meðferð að
undanförnu, af hálfu yfirvalda
í Uganda. — Fyrstaritari sendi-
nefndarinnar hefur þegar verið
vísað úr landi.
f reisun gislanna á Entebbe-flugvelli vakti mikinn fögnuð viða um
heim. Hér gleðjast Israelsmenn yfir fregnunum.
ERU LOKS
KOMNIR
2 nýjar gerðir
Dönsku ófóðruðu
tréskórnir með
þykku svampsól-
unum
Litir: Ljósbrúnt
brúnt og
rauðbrúnt
Nr. 36—40.
Verðfrá 6.835,-
Postsendum
DAGBLAÐIÐ
er smáaug-
lýsingablaðið
GIFTINCARFRETTIN
m PRESLEY
VAR TILBÚNINGUR
Fréttin um að Elvis Presley
hefði ætlað að kvænast stúlku
að nafni Sky Alexander í gær
re.vndist hið alvarlegasta gabb.
Tom Parker, umboðsmaður
Presleys, bar þessa fregn til
baka í gær og sagðist ekki vita
til þess að stjarnan væri i
neinum hjónabandshugleiðing-
um.
Það var konurödd sem til-
kynnti fréttastofu Reuters og
öðrum fréttastofnunum að hún
væri með fréttatilkynningu frá
Alan Wexler, forstjóra RCA-
hljómplötufyrirtækisins, um að
Presley hefði í hyggju að
kvænast gamalli vinkonu sinni.
Stuttu síðar var haft samband
við giftingarkapelluna í Las
Vegas og tími tekinn frá fyrir
Presley og fröken Alexander.
Og ekki nóg með það: fimm
hótelherbergi voru tekin frá
fyrir Parker umboðsmann,
Presley og fleiri á hóteli í Las
Vegas.
RCA-fyrirtækið sagði í gær
að það kannaðist ekki við neinn
Wexler forstjóra. Þá var sagt að
þetta væri í annað skiptið á
þremur mánuðum sem orðrómi
um giftingu Presleys væri
komið á kreik.
Erlendar
fréttir
REUTER
verði látnir lausir og krafist
umbóta i lýðræðisátt. Þessi mynd
er tekin i Madrid sl. sunnudag og
sýnir mólmælendur með borða
þar sem kröfur þeirra voru
ritaðar. Lögreglan tók harkalega
á fólkinu sem átti fótunt sínum
fjör að launa.
I sumgrfríjð
Kvenkjólar,
morgunkjólar,
stór númer
Elízubúðin,
Skipholti 5
Mótatimbur
i!!
III 9VIU
1x6, 1 V4x4,
2x4, 2x6.
Sími 44144.
Mikils óróleika gætir nú i
sptenskum stjórnmálum. Ilroyf-
ingar vngri vinstrisinna hafa
heimilað að póiitiskir fangar