Dagblaðið - 18.08.1976, Síða 22
22
NYJA BIO
"Hardy
frTONTO"
Ákaflega skemmtileg og hressileg
ný bandarísk gamanmynd, er
segir frá ævintýrum sem Harry og
kötturinn hans Tonto lenda í á
ferð sinni yfir þver Bandaríkin.
Leikstjóri Paul Mazursky. Aðal-
hlutverk: Art Carney. sem hlaut
Oscarsverðlaunin í apríl 1975.
fyrir hlutverk þetta sem bezti
leikari ársins.
Svnd kl. 5, 7 og 9.
TONABIO
Mr. Majestyk
Spennandi, ný mynd, sem gerist i
Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Myndin fjallar um melónubónda
sem á í erfiðleikum með að ná inn
uppskeru sinni vegna ágengni
leigumorðingja.
Leikstjóri: Richard Fleischer.
Aðalhlutverk: Charles Bronson,
A1 Lettieri, Linda Cristal.
„Fráhærar manngerðir, góður
leikur, ofsaleg spenna.“
Dagblaðið 13/8/76.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Svnd kl. 5, 7 og 9.
I
AUSTURBÆJARBÍÓ
I
Æðisleg nótt
með Jackie
Sprenghlægileg og víðfræg, ný,
frönsk gamanmynd í litum. Aðal
hlutverk: Pierre Richard, Jane
Birkin. J
Gamanmynd í sérflokki, sem allir
ættu að sjá.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
íslenzkur texti.
8
1AUGARASBÍO
,Kóti“ lögreglumaðurinn
THEIPVE LIFE DFflCDP
Slý^JmeríslUögréghJmýncníjörf
og spénnandi.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
íslenzkur lexti.
Biinnuð innanl6ára.
Detroit 9000
DETROIT
Signalet til
en helvedes ballade
Ný hörkuspennandi bandarísk
sakamálamynd. Aðalhlutverk:
Alex Rocco, Haris Rhodes og
Vonetta Macgee.
íslenzkur texti.
Bönnuð hörnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 11.
Allra síðasta sinn
8
HASKOIABIO
l
DAGBLAÐIÐ. — MIDVIKUDAGIIR 18. ÁGtJST 1976
Dagur plógunnar
(The Day of the Locust).
Paramount Pictures Presents
nTHE DAY
OF THE LOCUST”
Raunsæ og mjög athyglisverð
mynd um líf og baráttu
smælingjanna í kvikmynda-
borginni Hollywood. Myndin
hefur hvarvetna fengið mikið lof
fyrir efnismeðferð leik og leik-
stjórn.
Leikstjóri: John Schlesinger.
Aðalhlutverk:
Donald Sutherland
Burgess Meredith
Karen Black.
Islenzkur texti.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum.
8
GAMIA BIO
I
Mr. Ricco
Spennandi og skemmtileg banda-
rísk sakamálamynd. Aðalhlut-
verk: Dean Martin.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
| STJÖRNUBÍÓ
Síðasta sendiferðin
(The Last Detail)
Ný úrvalskvikmyna með Jack
Nicholson.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Vélbyssu-Kelly
Ofsaspennandi ný bandarísk lit-
mynd.
Dale Robertson
Harris Yulin.
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
8
BÆJARBÍÓ
Carmen Baby
Övenjulega djörf.
og æsileg kvikmynd.
Endursýnd kl. 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Islenzkur texti.
8
Útvarp
Sjónvarp
Útvorp kl. 19,35: Akurinn er frjór sem fyrr
HAFRANNSÓKNIR VIÐ ÍSLAND
EKKI NÆGILEGAR MIKLAR
„Ég ætla nú aðallega að ræða okkur er mikil auðlind ennþá og að farið,“ sagði Einar Jónsson
um það hvað hafið í kringum kemur til með að verða ef rétt er fiskifræðingur. Hann mun flytja
erindi sitt í útvarpinu kl. 19.35 í
kvöld.
„Hafið er gullkista okkar ís-
lendinga og framtíð okkar liggur
þar. En þessi mál krefjast réttrar
stjórnunar. Hafsvæði sem þessi
krefjast mikilla rannsókna en
það vantar mikið á að hafrann-
sóknir séu nægilegar hér á landi.
Bretar og Vestur-Þjóðverjar hafa
stundað hafrannsóknir hér við
land í sambandi við sínar veiðar
en þeir minnkuðu rannsóknir við
útfærslu landhelginnar. 200 míl-
unum fylgja skyldur sem við
megum ekki bregðast.
Við verjum 0,4% þjóðartekna
okkar i rannsóknir i þágu at-
vinnuveganna og erum við þar
hálfdrættingar á við Finna sem
eru mestu skussarnir á Norður-
löndunum á þessu sviði. Svíar
verja t.d. 1.5% af sínum þjóðar-
tekjum i þessum tilgangi.
Ég vík einnig aðeins að þvi að
við erum að mennta fjöldann all-
an af mönnum. Samt er ekki enn
farið að kenna fiskifræði hér i
háskólanum. Og fiskifræðingar
hér á landi eru fáir miðað við alla
þá háskólamenntuðu menn sem
eru hér á landi. Þetta er svolitið
einkennileg þróun mála i landi
sem á allt sitt undir hafinu og því
sem veiðist þar.“
— KL
Einar Jónsson fiskifræðingur
flytur erindi í útvarpinu í kvöld
um hafrannsóknir. En mikið
vantar á að þessi mál séu í nægi-
lega góðu lagi.
DB-mynd Bjarnleifur.
Til sölu: GMC meö 6 cyl.Benz-
disilvél '73. Vökvastýri, 4 gira,
sæ1i fyrir 10. Bíllinn er á
stórum dekkjum. Bíll í sér-
flokki. Verð 2.7 millj.
^BjUpVftLJfK j/
Ofurlítill Indíónahasar
í stórbrotinni umgjörð
Hafnarbíó.
Vetrarhaukurinn (Winterhawk).
Bandarísk litkvikmynd.
Leikstjórn: Charles B. Pierce.
Kynþáttamisrétti og bar-
dagar, ofsóknir og rómantík.
Allt þetta er að finna í kvik-
myndinni Winterhawk sem
þessa dagana er sýnd í Hafnar-
bíói. Stórkostlegt landslag
Kanada og norövesturhluta
Bandaríkjanna gerir bakgrunn-
inn ógleymanlegan og dregur
jafnvel athyglina frá atburða-
rásinni.
Söguþráður: Mislingafarald-
ur kemur upp meðal Svartfætl-
ingaættbálksins árið 1840 og
hrynur fólkiö niöur án þess að
hægt sé að gera nokkuð til úr-
bóta. Þegar sonur hins unga
höfðingja Winterhawks
(Michael Dante) deyr ákveður
höfðinginn að leita til hvíta
mannsins um aðstoð þótt ekk-
ert sé honum meira á móti
skapi.
Hann leggur af stað með
nokkra hrausta fylgdarmenn
en þegar hann nær ákvörðunar-
stað sem er hjá hvítu fjalla-
búunum í Montana fær hann
ekki mjög hughreystandi mót-
tökur heldur er beittur hinum
verstu vélabrögðum. Þeir tveir
menn, sem hefja bardaga,
drepa tvo Indíána og komast
undan með hin verðmætu skinn
þeirra. Winterhawk tekur þá
tvo gísla frá hvítu mönnunum,
unga stúlku, Kathie (Sachen
Littlefeather), og bróður
hennar (Chuck Pierce) og er
þegar í stað sendur leiðangur
X
•:.•'■■' :•■:. ■:
■ •
til að frelsa þau. Fyrirliðinn,
Guthrie (Leif Erickson), er
heldur tregur til að stofna til
illinda við Indíánana, enda
mikill vinur Winterhawks.
Upphefst nú hinn mesti elt-
ingaleikur og sótt og hörfað á
víxl. Skúrkarnir tveir sem
undan komust afkasta ýmsu á
leið sinni og heimsækja jafnvel
konu Guthries, sem er Indíána-
stúlka, og myrða hana. Guthrie
fréttir af þessu og kálar öðrum
morðingjanum en tekur hinn
til fanga.
Þegar hóparnir tveir mætast
uppi í miðri snævi þakinni
fjallshlíð er allt útlit fyrir að til
bardaga muni koma, en þegar
hinn ungi bróðir Kathie slasast,
leggja báðir upp laupana og
reyna í sameiningu að bjarga
lífi hans. Það tekst og sættir
eru gerðar, en á síðustu stundu
rennur upp fyrir Kathie að hún
kýs frekar að eyða ævinni með
Winterhawk enda er hann ákaf-
lega heillandi og spennandi
persóna.
Þetta er frekar innihaldslaus
lýsing á söguþræðinum, enda
erfitt að gera grein fyrir öllum
atburðum myndarinnar.
Eflaust er leikurinn í henni
ágætur en þó þykir manni galli
í leik Dantes að honum gengur
erfiðlega að dylja enskukunn-
áttuna.
M.vndin er ágætis afþreying
og falleg, ef svo má að orði
komast, og er enginn svikinn
semáhanafer. JB.
Kvik
myndir