Dagblaðið - 04.10.1976, Qupperneq 7
DACBLAÐIÐ. MÁNUDACUR 4. OKTÓBKR 1976.
✓
I einu gömlu húsanna í
miöbæ Akureyrar hefur um
áratuga skeið verið rekin
hótelstarfsemi, líklega allt frá
síðustu aldamótum. Húsið að
Hafnarstræti 98 er þrílyft
timburhús, vinalegt eins og
mörg gömlu húsin, og þar fá
þreyttir ferðalangar enn inni
og njóta þar hins bezta atlætis.
Síðastliðið vor tóku við
rekstri hótelsins hjón frá
Reykjavík, Halldór Lárusson
sem lengi var prestur í Mikla-
bæ í Skagafirði, og kona hans,
Kolbrún Guðmundsdóttir.
„Þetta hefur verið mikill
reynslutími,“ sagði Halldór í
stuttu spjalli við Dagblaðið.
„Maður kynnist ýmsu í sam-
bandi við hótelstarfið, ekki þó
sízt ágætum viðskiptavinum,
sem við höfum verið svo heppin
að fá sem gesti okkar í sumar.“
Halldór kvaðst ákveðinn í að
hafa hótelið opið í vetur, enda
SEX FENGU
STYRKI EN
SAUTJÁN
SYNJUN
— er úthlutað var
vísindastyrkjum NATO
Sex íslenzkir sérfræðingar og
vísindamenn hlutu samtals 2,2
milljónir króna í náms- og
rannsóknarstyrki frá Atlantshafs-
bandalaginu 1976. Það er mennta-
málaráðumeytið sem úthlutar
styrkjunum eftir að heildarstyrk-
upphæð hefur verið skipt milli
aðildarríkja NATO.
Umsækjendur um styrkina hér
á landi voru 23 og fengu því 17
umsækjendur enga úrlausn. Þeir
sem styrk fengu eru:
1. Axel Bjömsson, eölisfræðingur, 500 þúsund
krónur til jaröeölisfræöisrannsókna, einkum á
nýjum aöferðum í rafleiönimælingum. viö jarö-
fræöistofnun Arosahaskóla og háskólana i
Braunschwoig og Göttingen í Þýzkalandi.
2. Höröur Kristjánsson, B.S., 250 þúsund
krónur til framhaldsnáms og rannsókna i iífefna-
fræöi viö University of Maryland í Banda-
rikjunum.
3. Jóhann Þorsteinsson, lifefnafræðingur, 500
þúsund krónur til aö kynnast nýjum aðferöum
viö rannsóknir á nýtingu aukaafuröa i fisk- og
slaturiðnaði við haskolann í Tromsö í Noregi.
4. Kristján R. Jensen, M.Sc., 250 þúsund
krónur til rannsókna a sviöi taugaliffræði til
undirbúnings doktorsprófi við University Coll-
ege í London.
5. Siguröur B. Þorsteinsson, læknir, 200
þúsund krónur til aö Ijúka rannsóknum á öndun-
arvegasýkingum á sjúkrahúsum viö Baylor
College of Modicine í Houston í Banda-
ríkjunum.
6. úm Holgason, dósent, 500 þúsund krónur til
náms- og rannsóknadvalar viö Verk-
fræöiháskóla Danmerkur í Kaupmannahöfn til
aö kynna sér jaröeðlisfræöilegar mælingar með
sérstakri geislamælitækni.
Ekið ó ungan
pilt á vélhjóli
Umferðarslys varð á mótum
Suðurlandsbrautar og Reykjaveg-
ar síðastliðið föstuagskvöld.
Voru þar á ferðinni ungur
piltur á létt'i bifhjóli, sem ók
vestur Suðurlandsbraut, og
Cortina-fólksbifreið sem hugðist
beygja af Reykjavegi inn á Suður-
landsbraut í austurátt. Lenti
billinn framantil á hliðina á hjól-
inu. Pilturinn, sem bifhjólinu ók,
fékk nokkuð ljóta skurði á
fótleggi og var fluttur á slysa-
deild, en siðan sendur heim. Öku-
maður fólksbifreiðarinnar slapp
ómeiddur.
-JB.
r
••
7
\
HOTELIÐ ER FJOLSKYLDUFRAMTAK
þótt þá sé oftast fátt um
ferðafólk. Hann kvaðst mjög
ánægður með samvinnu
hótelmanna nyrðra, hún hefði
verið öllum til sóma og þar væri
hreint ekki undan neinu að
kvarta. Hins vegar kvaðst
Halldór þeirrar skoðunar að
sumarhótelin ættu hótelmenn
að fá að reka, það væri
ósanngjarnt að ríkisvaldið
kæmi inn á markaðinn þegar
ferðamannatíminn er i blóma,
en pakki síðan saman þegar
blómatímanum lýkur.
„Við rekum Hótel Akureyri
sem fjölskyldufyrirtæki. Það
kostar að sjálfsögðu samheldni.
Vinnan við að reka hótel,
jafnvel þótt það sé ekki
nema 19 herbergi, er gífurleg,
það þarf að leggja nótt við dag
að heita má. Þetta held ég að
okkur hafi tekizt, og við ætlum
að reyna að veita eins góða
þjónustu og okkur er frekast
unnt,“ sagði Halldór að lokum.
-JBP-
Þarna eru þau Halldór og
Kolbrún ásamt börnum sínum
og tilvonandi tengdasyni, sem
sjá um að aiit sé í lagi á Hótel
Akureyri. Frá vinstri á
myndinni: Óskar Ingimundar-
son, Hrafnhildur, Guðlaug, Kol-
brún, Lárus, Halldór og
Kolbrún Birna, yngsta barn
þeirra hjóna. A m.vndina
vantar annan soninn, Guðmund
Örn. (DB-mynd Friðgeir
Axfjörð).
vetursem sumar
Þess vegna gerir vetraráætlun okkar ráð fyrir
tíðum áætlunarferðum til átta stórborga í Evrópu
og Bandaríkjunum.
Sumarið er sá tími ársins, sem Islendingar nota
mest til ferðalaga, þá koma einnig flestir erlendir
ferðamenn til landsins. Þess vegna er sumar-
áætlun okkar víðtækari, við fljúgum til fleiri staða
og fjöldi áætlunarferða okkar er meiri en
venjulega.
En ferðalög landsmanna og samskipti við umheim
inn eru ekki bundin við sumarið eingöngu- þau
eiga sér stað allan ársins hring. _
Þjóðin þarf aö geta reitt sig á fastar öruggar
áætlunarferðir til útlanda jafnt vetur sem sumar,
það er henni lífsnauðsyn.
Þaö er okkar hlutverk að sjá um að svo megi
verða áfram- sem hingað til.
flucfélac LOFTLEIDIR
LSLAJVDS
Félög sem sjá um föst tengsl við umheiminn