Dagblaðið - 04.10.1976, Qupperneq 8
8
DA(iBLAÐIí). MANUDAC.UR4. OKTÓBER 1976.
Vestur-Þýzkaland:
Stjórn Schmidts hélt velli
Samsteypustjórn Jaínaðar-
manna og Fjrálsra demókrata i
Vestur-Þýzkalandi hélt velli —
naumlega þó — í þingkosning-
unum sem fram fóru þar í gær.
Stjórnarflokkarnir hafa átta
þingmanna meirihluta í neðri
deild (Bundestag) þingsins.
Jafnaðarmannaflokkur
Schmidts kanslara fékk 42.6%
atkvæða og 213 menn, kjörna,
en fékk fyrir fjórum árum
45.8% og 230 menn kjörna.
Hinn stjórnarflokkurinn,
Frjálslyndir demókratar, fékk
7.9% atkvæða og 39 menn
kjörna. í síðustu kosningum
fékk flokkurinn 8.4% atkvæða
og 41 mann kjörinn.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
unnu mjög á í þessum kosning-
um. Kristilegir demókratar
fengu 48.6% atkvæða og 244
menn kjörna, en fengu í síðustu
kosningum 44.9% og 225 menn
kjörna. Kjörsókn var mjög góð.
Búizt er við að samsteypu-
stjórnin sitji áfram en dr.
Helmut Kohl, leiðtogi Kristi-
lega demókrataflokksins, var
mjög broshýr í gærkvöld og
nótt eftir að úrslit lágu fyrir.
Hann sagði að sem leiðtogi
stærsta flokksins á þingj ætti
hann von á að verða kallaður á
fund forseta landsins og beðinn
að mynda nýja ríkisstjórn.
„t þvi tilfelli," sagði Kohl 1
sjónvarpsviðtali, „mun ég
bjóða Frjálsum demókrötum að
taka þátt í samsteypustjórn
undir mínu forsæti.
Það sem við viljum í þessu
landi með tilliti til stjórnmála-
ástandsins heima og heiman, er
sterk stjórn,“ sagði hann. „Átta
sæta meirihluti núverandi
stjórnar er ekki grundvöllur
fyrir fjögurra ára stjórn til við-
bótar.“
Hans-Dietrich Gencher leið-
togi Frjálslyndra og Willy
Brandt, leiðtogi Jafnaðar-
mannaflokksins, sögðu báðir í
nótt að stjórn þeirra myndi
sitja áfram.
Brandt viðurkenndi þó að
flokkurinn hefði tapað illa og
sagði að gerðar yrðu breytingar
á ýmsum sviðum starfsemi
hans. Hann útskýrði ekki nánar
ummæli sín, en aðeins örfáum
minútum eftir að kjörstöðum
var lokað sagði forsætisráð-
herra Hessen af sér vegna
bankamálahneykslis, sem
skemmdi illa fyrir Jafnaðar-
mönnum í kosningabaráttunni.
Stjórnmálafréttaritarar eru
flestir sammála um, að
stjórnarflokkarnir hefðu farið
mun ver út úr kosningunum en
raun varð á ef ekki hefði verið
fyrir mikið persónufylgi
Schmidts kanslara.
Helmut Kohl, leiðtogi Kristilegra demókrata, gefur Helmut Schmidt, kanslara, rauða nelliku skömmu
fvrir kosningarnar. 1 gærkvöld hefði Schmidt átt að gefa Kohi, — sigurvegara kosninganna —
nellikuna til baka.
Ali er blankur
—þarf e.t.v.að halda áfram að berjast
Hnefaleikaheimsmeistarinn
Muhammad Ali, sem kom
heiminum á óvart á föstudag-
inn með því að segjast vera
hættur að keppa, kann að verða
að hajda því áfram enn um sinn
af fjárhagslegum ástæðum. A
blaðamannafundi sem kappinn
boðaði til í gær í Chicago sagði
andlegur leiðtogi hans í trú-
málum að Ali væri nú að hugsa
sig um. — Sjálfur mætti Ali
ekki á fundinn.
Eins og flestir vita hafa
hnefaleikamenn góðar tekjur.
Til dæmis hefur Ali haft 14
milljón dollara tekjur á þessu
ári (2.6 milljarðar ísl. króna)
Leiðtogi Alis, Wallace Mu-
hammad, sagði á blaðamanna-
fundinum að gagnstætt áliti
fólks væri Ali ekki ríkur maður
af fé. Hann hefði þegar eytt
allri summunni sem hann fékk
fyrir að berjast við Ken Norton
á dögunum.
r Muhammad Ali hefur tvisvar
sagzt vera hættur að berjast, —
1975. t bæði skiptin var hann
byrjaður að berjast nokkrum
mánuðum seinna.
J ...
Telly hér, Teffy þar
Bandaríski sjónvarpsleikar-
inn Telly Savalas þykir nú á
dögum eitt helzta tákn heims-
byggðarinnar um sanna karl-
mennsku. Hann er nú á
Bermuda-eyjum, þar sem hann
leikur ásamt Nick Holte og
Jacqueline Bisset i kvikmynd-
inni „The Deep“, sem gerð er
eftir nýrri skáldsögu Peter
Benchley (Jaws). Stúlkan, sem
Telly er með á myndinni, er
ungfrú Bermuda, Vivienne
Hollis.
„Hinztu orð Maos":
„SUMIR YKKAR VILJA
LOSNA VH> MIG"
Skömmu fyrir dauða sinn
sagði Mao Tsetung það skoðun
sína, að sumum hefði ekki þótt
leiðsögn hans góð og að þeir
hefðu viljað sjá hann hverfa af
sjónarsviðinu, að því er kín-
verska blaðið Ming Pao í Hong
Kong sagði í gær.
„Eru ekki einhverjir meðal
ykkar, sem vona að ég hverfi
fyrr en síðar á fund við Marx?“
hefur blaðið eftir Mao.
Blaðið birti það sem það
sagði vera heildartexta „hinztu
orða“ Maos formanns. Þau eiga
að hafa verið skrifuð niður og
dreift á stjórnarskrifstofur í
Peking.
Mao mælti þessi orð á fundi í
júní, en þar voru auk hans sjö
helztu áhrifamenn landsins,
þeirra á meðal Hua Kuo- feng,
forsætisráðherra, að sögn
blaðsins. Mao lézt 9. september.
Hua forsætisráðherra and-
mælti orðum formannsins og
taldi útilokað að nokkur væri
andvígur leiðsögn Maos. „Raun-
verulega enginn?“ svaraði Mao.
„Ég trúi því ekki.“
Hann nafngreindi síðan þá,
sem hann nefndi „svikara“ og
„andstæðinga" — Liu Shao-sji,
fyrrum þjóðhöfðingja, Lin
Piao, fyrrum varnarmálaráð-
herra, og Teng Hsiao-ping, sem
í annað skipti á ferli sínum var
sviptur öllum embættunj og
virðingarstöðum í apríl sl.
„Sumir hafa jafnvel ráðizt
gegn mér í nafni Chous for-
sætisráðherra og um tíma var
ég skotspónn allra og einmana
maður," segir blaðið Mao hafa
sagt.
„Eg hef sagt að þetta er ekki
neitt. Sannleikurinn liggur
alltaf með minnihlutanum.
Jafnvel æðsta ráðið og öll
miðstjórnin voru á móti mér.
Jörðin snýst enn og ef allt um
þrýtur mun ég snúa aftur til
Chingkengshan".
Chingkengshan er fjalla-
svæðið í Kiangsi-héraði, þar
sem Mao hóf skæruhernað sinn
í lok þriðja áratugarsins áður
en gangan mikla hófst.
Samkvæmt frásögn Hong
Kong-blaðsins var Mao sam-
mála þeim, sem kölluðu hann
þrjózkan og ósveigjanlegan, en
hann gat þess, að marxískar
kennisetningar og grundvallar-
stefna flokksins yrðu stöðugt að
vera leiðarljósið.
Hann taldi að bezta lausnin
eftir dauða hans yrði að æðsta-
ráðið skipaði þríeykisráð til að
stjórna rfkinu. Blaðið sagði
einnig að það hefði verið að ósk
Maos sjálfs, að lík hans var sent
heim til Hunan.
Hann kvaðst ekki óttast að
farið yrði að naga á sér
hryggjartindana eftir sinn dag.
Þeir silja nú við stjórnvölinn í Kína. Frá vinstri: Hua Kuofeng, forsætisráðherra, Wang, varaformaður
flokksins, Yeh, varnarmálaráðherra og ekkja Maos, Chiang Ching. Fyrir aftan Hua er Chang
Chun-ehiao, varaforsætisráðherra.