Dagblaðið - 04.10.1976, Side 12
12
IMÍiBI-AíMf). MANUDACUH 4. OKTOBKK 1976.
„MEÐ GÓÐU HAUSTITEKST AÐ LJÚKA
VERKINU A RETTUM TIMA## - segir verkstiórinn við inntakið
„Vinnuaðstaóa er hér mjög
erfið, en vart gjörlegt að létta
neitt undir með mönnunum,"
sagði Grettir Gunnlaugsson sem
hefur verið verkstjóri við inntak-
ið.
Grettir sagði, að nú væri reynt
að fá fram hámarksafköst hjá
fólkinu og ynnu um 100 manns að
ljúka við inntakið. Kvaðst hann
bjartsýnn á, að lokið yrði við að
gera inntakið fyrir 15. nóvember.
Þá ætti að vera unnt að taka á
móti vatninu. Hins vegar mætti
svo ganga frá ýmsum útlitsat-
riðum seinna.
Sterkur vindur
til trafala
Grettir sagði, að hávaðarok
væri oft á þessum stað og seinkaði
það oft vinnu. Þannig hefðu
nýlega 5 vaktir í röð lítt getað
unnið á krönum.
Grettir sagði, að keppzt væri
við að ljúka sem mestu áður en
færi að frysta að ráði. Vinna
menn 12 tíma vaktir í senn, frá kl.
7 að morgni til 7 að kvöldi og þá
tekur annar flokkur við og vinnur
til kl. 7 að morgni.
Hann sagði, að fyrirsjáanlegt
væri að þeir yrðu búnir með
beygjur í inntaksskálinni, en
ýmsan frágang í botni skálarinnar
væri unnt að vinna, þrátt fyrir
snjókomu og frost. Þar væri unnt
að einangra að einhvérju leyti.
Verkið sagði hann, að hefði í
heild gengið vel og afköst hjá
mönnunum aukizt verulega.
Nefndi hann sem dæmi, að til að
byrja með hefði tekið 18—20 tíma
að steypa eina 47 metra línu í
skálinni, en menn væru jafnvel
komnir niður í 12 tíma.
Grettir sagðist telja líklegra, að
ekki yrði lokið við inntakið fyrr
en í lok nóvember, enda þótt allt
væri miðað við að ljúka því þann
15. nóvember.
Grettir Gunnlaugsson getur illa án stafsins verið, en lætur sig ekki
vanta, þegar allir ieggjast á eitt við að ljúka.
Það eru hraustir menn.sem ráða sig í vinnu við jafnerfitt verkefni og
frágangur inntaksins er. Kaupið er líka betra en almennt gerist hjá
iðnaðar- og verkamönnum.
Flutningabíiar eru á stöðugri ferð við að ílytja til etni á svæðinu. Hér
sjáum við svæðið sem vatnið kemur til með að fara eftir á leið sinni í
stöðvarhúsið. Fyrir enda myndarinnar sést skálin, sem verið er að
steypa.
„Pressan nú ekki meiri
en hún var í fyrrahaust"
- segir Stefún
Björnsson
eftirlitsmaður
„Það tókst að ganga frá malbik-
'nu við stífluna í fyrrahaust þráct
fyrir erfið skilyrði og ég hef trú
á að það takist að fullgera inn-
takið,“ sagði Stefán Björnsson,
sem sér um leigu á tækjum til
Sigölduvirkjunar.
Hann kvaðst telja ástandið nú
sambærilegt við það sem hefði
verið í fyrra og að þá hefði ekki
verið minni pressa en i fyrra.
Stefán er aðstoðarmaður
Péturs Péturssonar starfsmanna-
stjóra. Hann sagði, að lítil vand-
ræði hefðu verið á svæðinu nú
síðari hluta sumars. Menn virtust
leggja áherzlu á það að ljúka við
verkið og þar að auki væru menn
orðnir þreyttir. Verkið gengi vel
og vinnufriður myndi vonandi
haldast.
Deilur hefðu komið upp þessi
tvö ár, sem hann hefði starfað, en
þær hefðu ekki verið meiri en
búast mætti við á svona fjölmenn-
um vinnustað. Benti hann á að
um 1400 manns hefðu starfað við
Sigöldu sjálfa frá því fram-
kvæmdir hófust.
Stefán Björnsson, sem sýndi
okkur hvern Krók og kima á
svæðinu.
HRIKALEGT
MANNVIRKI!
Þeað er hrikalegt að horfa upp ettir skálinni þar sem vatnsmagnið i
vélasamstæðurnar er temprað. Mennirnir.sem við sjáum vinna, eru
eins og smápeð.
Niður eftir þessum halla verða
starfsmennlrnir að þevtast alian
daginn og alia nóttina lika. Hvet
lina, sem við sjáum, er 47 metrar
og hailinn er 45 gráður.