Dagblaðið - 04.10.1976, Page 17

Dagblaðið - 04.10.1976, Page 17
DACBl-AÐIi). MAN'UDACl’K 4. OKTOBKK 17 Iþróttir Iþróttir Iþróttir "3 óttir H unnu upp forustu ÍR sigurmarkið aðeins minútu fyrir leikslok, leikhléi. Dómarar leiksins grýttir annað brunuðu leikmenn ÍR upp, og skoruðu á svo auðveldan hátt. Eftir 13 mínútna leik var staðan orðin 8-1 — breyttist síðan í 5-10 en fimm mörk ÍR í röð kom liðinu í 15-5 — já, gegn sjálfum íslands- meisturum FH. FH tókst að minnka muninn í 15-6 — en ÍR svaraði með tveimur mörkum — 17-6 í hálfleik. En ÍR-ingar komu kærulausir til síðari hálfleiks — héldu greini- lega að leikurinn væri unninn. Hver getur álasað þeim það — með 11 mörk yfir í hálfleik. Það kom brátt á daginn að FH var alls ekki á þvi að gefa neitt eftir og brátt tók að saxast á forskot lR. Nú voru það leikmenn iR sem gerðu sig seka um byrjendamis- tök. FH-ingar pressuðu vel í vörn- inni og að baki henni stóð Birgir Finnbogason sig frábærlega í markinu — varði hvað eftir annað stórvel. iR-ingar misstu knöttinn klaufalega hvað eftir annað og það var ekki fyrr en á 15. mínútu að Brynjólfur Markússon skoraði fyrsta mark ÍR í síðari hálfleik — og þá eftir að Þórarinn Ragnarsson hafði sent knöttinn beint í hendurnar á honum, svo hann get brunað einn upp. Þá breytti hann stöðunni i 18-13 — FH-ingar höfðu skorað sex fyrstu mörk hálfleiksins. En áfram héldu íslandsmeistar- ar að saxa á forskot ÍR. Geir, hreint óstöðvandi, skoraði hvert markið á fætur öðru með glæsi- legum skotum og er aðeins tvær mínútur voru eftir jafnaði hann, 19-19 — hafði þá skorað 6 mörk i röð. En gæfan sneri þá baki við FH. Geir brunaði upp í hraðaupp- hlaupi — „maðurinn setti báðar hendurnar í bakið á mér svo ég missti jafnvægi. Skotið geigaði — ef þetta var ekki víti þá eru aldrei víti dæmd í handknattleik," sagði Geir Hallsteinsson um atvikið. Já, handknattleikur er óút- reiknanlegur — vissulega óút- reiknanlegur. Mikið rifrildi upp- hófst eftir leikinn — FH-ingar voru gramir út í dómarana — þá Björn Kristjánsson og Óla Ólsen, sem að öðru leyti dæmdu mjög erfiðan leik vel. Ahorfendur sýndu gremju sína með að grýta þá félaga — köstuðu peningum að þeim. Sannarlega slæmur endir á annars einhverjum skemmtileg- asta og um leið furðulegasta igen, tapaði fyrir Dankersen, van Oepen einnig þrjú, tvö úr vítum, Becker tvö, en aðrir færri. Derschlag er eina liðið, sem sigrað hefur í þremur fyrstu umferðunum í norðurdeildinni. Vann Nettelstedt á laugardag í hörðum leik á heimavelli 13—12. Þá vann Gummersbacli Welling- hofen 16—10 og Berlínarliðið Fusche sigraði Phönix Essen á heimavelli með 29—21 — tölur. sem sjaldgæfar eru í þýzkum handknattleik. Hamborgar-Iiðinu, sem Einar Magnússon lék með í 2. deild, hefur gengið illa. Tapað tveimur Icikjum í þremur fyrstu umferð- iinum. handknattleik sem fram hefur farið hér á íslandi. íslandsmeistararnir misstu þarna af tveimur dýrmætum stig- um — en ótrúlegur munur var á leik liðsins. Fyrri hálfleikur eitt það lakasta sem íslenzkt lið í 1. deild hefur sýnt lengi. Hins vegar var síðari hálfleikurinn algjör andhverfa þess. Geir fór á kost- um. — Birgir Finnbogason varði mark FH eins og berserkur og nýliðinn Janus Guðlaugsson skoraði skemmtileg mörk en Janus er þekktari sem knatt- spyrnumaður með FH. Mörk FH skorðu Geir Hallsteinsson 7 — 1 víti. Viðar Símonarson 6 — 3 víti. Janus Guðlaugsson, Þórarinn Ragnarsson og Árni Guðjónsson 2 mörk hver. Já, og FH missti þrjú víti í leiknum. Mörk ÍR skoruðu Brynjólfur Markússon 6 — Vilhjálmur Sigur- geirsson 4 — 3 víti, Gunnlaugur Hjálmarsson og Hörður Hákonar- son skoruðu 3 mörk hvor. Bjarni Hákonarson og Sigurður Svavars- son skoruðu 2 mörk hvor. Gunnlaugur Hjálmarsson var liði sínu drjúgur — skoraði 3 mörk. Hér vippar Gunnlaugur knettinum yfir Birgi. DB-mynd Bjarnleifur. Úthaldíð bróst hjá Þróttí - Yalur vann — eftir að Þróttur hafði skorað þrjú fyrstu mörkin Ekki tókst hinum nýju Reykja- víkurmeisturum Þróttar í hand- knattieiknum að sigra í sínum fyrsta leik í isiandsmótinu — þrátt fyrir góða tilburði framan af. Eftir slaka byrjun náði Valur sér vel á strik iokakafia fyrri hálfieiks og þeim góða ieik héidu Valsmenn áfram. Fimm marka munur var í Iokin, 21-16 fyrir Val. Það var úthaidið, sem brást hjá Þrótti, enda keyrt á nær sömu leikmönnum allan leikinn — og þegar þreytan gerði vart við sig var skammt í vilíurnar. Þó verður að segjast eins og er. að á einhvern hátt nutu Vals- menn talsverðra forréttinda hvað dómgæzluna varðaði og það án þess maður merkti nokkru sinni hjá dómurum leiksins, Hannesi Þ. Sigurðssyni og Karli Jóhannssyni, að þeir drægju taum Valsmanna — eða beinlínis væru hlutdrægir. Síður en svo. Þó fengu Valsmenn fimm vítaköst í leiknum. Skorað úr þeim öllum og þar til dæmis lá munurinn í mörkum á liðunum í lokin. Þróttur fékk eitt vítakast, sem Óli Ben. varði. Tveimur leik- mönnum Þróttar var vísað af leik- velli í tvær mín. hvorum — engum Valsmanni. Leikur Þróttar var ívið grófari — en varla þessum mun. Þróttar-liðið drifið áfram af Bjarna Jónssyni byrjaði skínandi vel. Óli Ben. fékk hörkuskot Bjarna í magann strax á fyrstu mínútu leiksins og var nokkra stund að jafna sig. Þegar ein og hálf mínúta var af leik skoraði kappinn Halldór Bragason fyrir Þrótt. F.vrsta mark íslands- mótsins 1976—1977. Síðan fylgdu mörk Sveinlaugs Kristjánssonar og Konráðs Jónssonar. Staðan 3-0 f.vrir Þrótt eftir rúmar fimm mínútur. Þegar átta mín. voru af loik skoraði Valur loks. Jón Karls- son úr víti, en Konráð skoraði fyrir Þrótt og hafði möguleika á að koma Þrótti i 5-1. Öli Ben. varði þá heldur slakt vítakast hans. Sveinlaugi var visað af velli — og þegar 17 mín. voru af leik skoraði Valur annað mark sitt. Aftur vítakast — Jón Karlsson. Jóhann Frimannsson skoraði fyrir Þrótt, 5-2. En þá kom Jóhann Ingi Gunnarsson inn á hjá Val og leikur liðsins gjörbreyttist til hins betra. Þar var Jóhann Ingi drif- fjöður í öllum sóknaraðgerðum — ákaflega útsjónarsamur og flinkur leikmaður. Valsmenn fléttuðu stórfallega á köflum — línusendingar frá hornum inn á miðju, sem gáfu falleg mörk. Þó Jóhann Ingi skori varla mark — íþróttir var hann maðurinn bak við flétt- urnar. Munurinn minnkaði, 6-3, '6-4 og 6-5. Aftur komst Þróttur tveimur mörkum yfir, en Valur jafnaði fyrir hlé i 7-7. Talsvert jafnræði var með liðunum framan af síðari hálfleik eða meðan úthald lykilmanna Þróttar hélzt. En svo fóru þeir að gefa eftir Bjarni, Halldór og Kon- ráð og Valsmenn gengu á lagið. Jón Pétur Jónsson skoraði falleg mörk fyrir Val — sló eitt sinn knöttinn í markið — og Jóhannes Stefánsson var mjög virkur í hornunum. Um miðjan hálfleik var Valur kominn tveimur mörkum yfir og jók for- skotið svo í 16-12. Þá var útséð hver úrslit yrðu. Munurinn var fjögur, fimm og upp í sex mörk — og lokatölur 21-16. Góður sigur Valsmanna og oft stórfallegur handknattleikur, sem liðið sýndi. Þróttur á eftir að bíta frá sér í mótinu. Liðið virkar mun sterkara en síðasta leiktímabil — og það þó einn maður liðsins þá, landsliðsmaðurinn Friðrik Frið- riksson, geti ekki leikið vegna meiðsla. Konráð Jónsson er bráð- efnilegur leikmaður — og markvörður liðsins, Kristján Sigmundsson, vakti mikla ath.vgli. En það er erfitt að þurfa að keyra nær allan leiktímann á sömu leik- mönnum — og kannski heldur ekki þörf. Mörk Vals skoruðu Þorbjörn Guðmundsson 6 (2 víti) og flest þeirra glæsileg af linu. Jón Karls- son 6 (3 víti), Jón Pétur 3, Steín- dór Gunnarsson 3, Jóhannes 2 og Gunnsteinn Skúlason eitt — stór- fallegt úr horninu. F.vrir Þrótt skoruðu Halldór Bragason 5, Kon- ráð Jónsson 5. Bjarni Jónsson 3. Sveinlaugur 2 og Jóhann Frímannsson eitt. — lisim. Jafntefli Standard — ósigur Charleroi „Við náðum jafntefli gegn CS Bruges á útivelii en ég lék ekki með. A æfingu á föstudag opnaði sárið sig — að vísu ekki mikið en nóg til þess að ég varð að hætta æfingu. Því var iokað aftur með kiemmum og ég vonast til að byrja æfingar aftur síðdegis i dag,“ sagði Ásgcir Sigurvinsson er við ræddum við hann um úrsiit í belgísku knattspyrnunni um helgina. „Eg fór með Standard til Brugge og horfði á leikinn. Það var klaufaiegt af okkur að vinna ekki. Þeir náðu að vísu forystu í fyrri hálfieik, en Armond Tachter jafnaði fyrir Standard í síðari hálficik. Við fengum góð tækifæri til að knýja fram sigur — þannig átti Austurríkismaður- inn Riedl tvívegis mjög góð tæki- færi, sem ekki nýttust. Það er aiitaf gott að fá stig á útivelli og ég vona og held að Standard verði meðal efstu iiða í deiidinni.“ En lítum á úrslitin í Beigíu: Molenbeck—Beershot 3-1 Winterslag—Anderlecht 1-2 Antwerpen—Charlerói 2-1 Malinois-Courtrai 2-31 Waregem—Beringen 1-0 Ostende—Lierse 1-3 FC Liege—FC Brugge í-4; Beveren—Lokeren 1-í CS Bruges—Standard Liege 1-1 Charleroi tapaði í Antwerpen 0-1 og í sjónvarpinu var viðtai við þjálfara liðsins. Hann sagði að heppni Antwerpen hefði verið mikil það sem af er keppnistíma- bilinu og gæti ekki gengið til iengdar. Þjálfarinn gagnrýndi lcikmenn sína — sagði að í liðinu væru margir góðir einstaklingar en þeir væru aðeins fyrir sjálfa sig — ekki liðið. Því yrði að breyta. Royale Union hlaut slæmt tap á útivelli — 0-4 í Diest og hefur nú liðið hrapað niður fvrir miðja deild. pumn IÞR0TTA- TÖSKUR POflli > irnn -a. Sportvöruverzlun Ingólfs Óskorssonar Hólagarði Breiðholti Simi 75020 Klapparstíg 44 Sími 11783

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.