Dagblaðið - 04.10.1976, Blaðsíða 22
22
IMCBLAmt). MANUDAdUH 4. OKTÓBKR 1976.
Það er allt i lagi þótt það sé ausandi rigning ef maður er svo heppinn
að eiga samfesting úr vatnsheldu efni, góð gúmmistígvél og regnhlíf.
Þessi fatnaður hentar vel þegar styttir upp og kaldir vindar næða um
láð og liig.
Vetrartízkan hentar
prýðilega fyrir
íslenzkar aðstœður
Nú er aldeilis ástæða fyrir
íslenzkar konur að kætast yfir
tízkunni, sem virðist vera alls ráð-
andi úti í hinum stóra heimi. Það
eru einmitt föt sem henta á okkar
bæði kalda og raka landi sem er
hið eina sanna. Hlýlegur og skjól-
góður fatnaður, sterklegir og
þægilegir skór, sem hægt er að
fóta sig á á lélegum götum eru
efst á baugi til utanhúss notk-
unar.
Fatnaður til notkunar innan-
dyra er einnig mjög hlýlegur,
bæði kjólar, pils og buxnadres's.
Ullarefni virðast alls ráðandi í
hversdagsfatnaði. Spari-
klæðnaðurinn er mjög kvenlegur
og ber mikið á léttum chiffon:
efnum, tafti og flaueli. Hér getur
að líta sýnishorn af hausttízkunni
í ár.
—A.Bj.
Kla'ðilcg og þa*gileg stigvél úr denimefni og rúskinni.
Smart klæðnaður úr uilarefni, indíánasláið og kögrið er með kögri.
Hentugur útiklæðnaður í vetrarferð. Takið eftir höfuðbúnaðinum,
næian er dáiítið sniðug.
í %■
Hlýlegt vetrarslá úr uliarefni
með hettu, takið eftir gúmmístíg-
vélunum.
Hlýlegur fatnaður úr prjónaefni.