Dagblaðið - 04.10.1976, Side 32
Sviptingar í stjórn Vœngja hf.:
Meirihluti stjórnar kaupir
hlutabréf af sjólfum sér ó
allt að fimmföldu verði
— en sinnir ekki boðum um
nafnverðskaup. Bókhaldið í
gagnrýnni endurskoðun, skv.
kröfu kjörins endurskoðanda
Einn hluthafi, starfsmaöur
og stjórnarmaður flugfélagsins
Vængja hf. hefur sagt sig úr
stjórninni, þar sem hann treysti
sér ekki lengur að bera þá
ábyrgð, er fylgi því að vera
stjórnarmaður í félaginu, enda
liggi fyrir rökstuddur grunur
um bókhalds- og fjármála-
óreiðu hjá félaginu skv. heim-
ildarmönnum og gögnum hjá
Dagblaðinu.
Bókhald fyrirtækisins er nú í
gagnrýnni endurskoðun lög-
gilts endurskoðanda. Þar til
fyrir aðeins nokkrum vikum
hafði bókhald ekki verið fært
síðan Guðjón Styrkársson,
hæstaréttarlögmaður, keypti
meirihluta í Vængjum hf. 28.
maí í vor og varð formaður
stjórnarinnar — um leið og
,,lausn“ fannst á Vængjadeil-
unni svokölluðu.
Félagið fékk í sumarleyfi við-
skiptaráðuneytisins til að „eiga
sjálft allt að 30% af hlutafé
sinu. Heildarhlutafé félagsins
er kr. 12.139.000,“ eins og sagði
í leyfisveitingu ráðuneytisins
16. júlí sl.
Síðan hafa umtalsverð eig-
endaskipti orðið á hlutabréfum
í félaginu og hefur nafnverð
bréfanna sem stjórnin hefur
keypt, m.a. af einstökum
stjórnarmönnum, allt að fimm-
faldast. Þessi kaup hafa verið
gerð án formlegs samþykkis
stjórnarinnar. Jafnframt hefur
forgangsboðum um kaup á
hlutabréfum á nafnverði verið
hafnað eða ekki sinnt, í trássi
við samþykktir stjórnar • þar
um. Stjórnarfundir hafa verið
fáir haldnir að undanförnu og
stjórnarmenn ekki átt þess kost
að fylgjast með því er varðar
fjárreiður félagsins. Fleiri
stjórnarmenn bíða spenntir
eftir bókhaldinu úr endurskoð-
uninni, sem hófst þegar kjörinn
endurskoðandi fékk því til
leiðar komið um 20. ágúst sl.
Guðjón Styrkársson sagði, í
samtali við fréttamann blaðsins
í gærkvöld, að hann kannaðist
ekki við að bókhaldið væri í
„krítískri" endurskoðun.
„Þetta er allt venju sam-
kvæmt,“ sagði Guðjón. „Sömu
menn sjá um þessa endurskoð-
un og alltaf áður, svo þetta er
aðeins venju samkvæmt." Hann
benti á, að oft væru gerð upp-
gjör eftir ákveóið tímabil, t.d. 3
eða 6 mánuði.
Guðjón Styrkársson sagði að
sér væri ekki kunnugt um að
nokkuð sérstakt væri að frétta
af starfsemi Vætigja hf. „Ekki
annað en það, að okkur vantar
flugvirkja,“ sagði Guðjón.
„Var einhver að hætta?“
spurði fréttamaður.
„Nei, já, bæði það og svo
vantar okkur fleiri," sagði Guð-
jón Stvrkársson.
— ÓV.
Reiðhjdaran p6|kjnn 0g Dagblaðið í efstu sœtunum
Reiðhjólarall, KFUM, fór
fram við Ulfarsfell í gær
Um fimmtíu drengir 13 ára og
eldri, tóku þátt i því og var hver
þeirra fulltrúi ákveðins
fyrirtækis.
Eftirtaldir drengir lentu í
fyrstu ellefu sætunum:
1. 36 stig Ingi Erlendsson,
Fálkinn hf.
2. 38 stig Þorsteinn Ölafur Þor-
steinsson, Dagblaðið.
3. 38 stig Valdimar Guðlaugs-
son, Fálkinn hf.
4. 39 stig Alfons Jónsson, Ingv-
ar Helgason heildverzlun.
5. -7. 42 stig. Runólfur Bjarnas.,
Ræsir hf„ 42 stig ' Erling
Bergþórsson, Islendingasagna-
útgáfan, 42 stig Sigurjón
Sigurðsson, Skógarmenn
KFUM.
8.-9. 45 stig Bjarni Karlsson,
Hekla hf. 45 stig Magnús Þ.
Jónsson. Toyota-umboðið.
10.-11. 47 stig Egill Stefánsson,
Bókav. Sigfúsar Eymunds-
sonar, 47 stig Stefán
Guðmundsson, Hekla hf.
Eins og sést af ofangreindu,
sigraði sá sem fæst stigin fékk.
Dregið var á milli þeirra
drengja, sem urðu næstefstir
og bar Þorsteinn O. Þorsteins-
son sigur úr bvtum.
-JB.
Keppandi okkar Dagblaðsmanna leysir hér erfiða þraut, áhuginn skín úr andlitum dómaranna.
(DB-mynd Sv. Þorm).
30 ára gamall eikar-
bátur sökk í gœrkvöld
Tveggja manna áhöfn bjargað í gúmbát
Hafursey GK 84, 37 tonna
eikarbátur smíðaður í Dan-
mörku 1946, sökk i gærkvöldi
út af Reykjanesi, eftir að tvö
skip höfðu gert tilraun til að
draga bátinn til hafnar. Tveir
menn voru á Hafursey. Björg-
uðust þeir í gúmbát yfir í olíu-
flutningaskipið Kyndil og varð
ekki meint af volkinu, að því er
Hannes Hafstein hjá SVFÍ
skýrði DB frá í morgun.
Mennirnir tveir á Hafursey
fóru frá Grindavík um kl. 5 í
gærdag og ætluðu til Njarðvík-
ur. Er þeir voru komnir norður
fyrir Öngulbrjótsnef urðu þeir
varir við mikinn leka í bátnum
og báðu um aðstoð. Kyndill var
næsta skip og kom fljótt til að-
stoðar. Tóku kyndilsmenn
Hafurseyna i tog og gerðu til-
raun til að draga hana til
Grindavíkur.
Lekinn i Hafursey jókst er á
leið kvöldið og um kl. 8 fóru
í Kyndil
mennirnir í gúmbát og voru
dregnir yfir í Kyndil.
Mb. Hrafn Sveinbjarnarson
II kom einnig til aðstoðar þvi
kvndill átti í einhverjum erfið-
leikum. Sú aðstoð bar ekki
árangur og sökk Hafurse.vin út
af Reykjanesi um kl. 11 í gær-
kvöld .
Mönnunum tveimur varð
ekki meint af volkinu.
— ASt.
Sigurður Jóhanns-
son vegamála-
stjóri látinn
Sigurður Jóhannsson
vegamálastjóri varð bráð-
kvaddur sl. laugardag er
hann var á ferðalagi í Fær-
eyjum. Sigurður heitinn var
58 ára að aldri, fæddur 16.
marz 1918.
Sigurður gegndi fjölda
trúnaðarstarfa í sambandi
við embættisstörf sín. Hann
tók auk þess virkan þátt í
félags- og menningarstörf-
urn. Hann var forseti Ferða-
félags Islands um fjölda ára.
Sigurður Jóhannsson
vegamálastjóri var á ferða-
lagi i boði Vegamálastjórnar
Fære.vja. þegar hann varð
bráðkvaddur á laugardags-
morguninn. BS.
frjálst, nháð dagblað
MANUDÁGUR 4. OKTÓBÉR 1976.
Dauðaslys í
Vestmannaeyjum:
54 ára maður
drukknaði
Aðfaranótt laugardags
klukkan rúmlega sjö varð
banaslys í Vestmannaeyja-
höfn.
54 ára gamall einhleypur
Vestmannaeyingur, Ingi
Guðmundsson að nafni, féll
þar milli skips og bryggju og
drukknaði. Var hann á ferð
við höfnina við annan mann
og voru báðir nokkuð
ölvaðir. Fékk hinn ekkert
við ráðið en fljótlega bar að
stýrimann sem gat dregið
hann upp. Var Ingi
úrskurðaður látinn við
komuna á sjúkrahúsið, en
þangað var hann fluttur
str-ax.
Fyrr um nóttina, nánar til-
tekið skömmu eftir mið-
nættí, féll annar maður milli
skips og bryggju á svo til
sama stað, en fyrir mikið
snarræði vaktmanns á ms.
Herjólfi bjargaðist hann og
varð ekki alvarlega meint af.
—JB
ítalinn
kominn
aftur
- Verður fluttur til
baka með fríðu
föruneyti við
fyrsta tœkifœri
Island virðist hafa mikið
aðdráttarafl fyrir Italann
sém sagt var frá að hefði
verið fluttur til heimalands
síns við fjórða mann fyrir
skömmu.
Hann mun nú vera kom-
inn hingað til lands aftur,
öllum til mikillar undrunar.
Það var á fimmtudaginn sem
ítalinn kom til baka og hef-
ur honum einhvern veginn
tekizt að komast fram hjá
öllu eftirliti á Keflavíkur-
flugvelli, því hann leikur nú
lausum hala hér í Reykjavík.
Ekki er vitað hvert erindið
er, nema ef vera skyldi að
hressa upp á kunningsskap-
inn við landann.
Að sögn lögreglunnar
verður hann trúlega fluttur
til baka f.vrr en seinna í
góðra manna samfylgd, en
líklega verður fylgdarliðið
eflt í þetta sinn til að koma í
veg fyrir allan misskilning
af hálfu íslands. —JB
Slökkviliðið
tvívegis á ferð
Slökkviliðið var tvívegis
kallað út í gærkvöld. en í
báðum tilfellunum var unt
óverulegan eld að ræða. Að
Sm.vrilsvegi 29 hafði orðið
vart við re.vkjarlykt á litlu
salerni. Kom í ljós að hana
lagði frá rafmagnslinu í
lofti. Varð lltið sem ekkert
tjón af.
Þá var slökkviliðið kvatt
að nýb.vggingu við Norður-
fell. Þar hafði verið kveikt i
einhverju timburrusli. Var
búið að slökkva er slökkvi-
liðið kom á staðinn.
—ASt.