Dagblaðið - 08.11.1976, Qupperneq 1
2. AR<;. — MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBKR lí»7fi. — 251. TBL.
RITSTJORN SIÐUMULA 12, SIMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022
Matthías
Bjarnason á
fundi útvegs-
manna
á Suðurnesjum
Læt ekki þrýsti-
hópana hræða mig
,tEg læt ekki hina ýmsu þrýsti-
hópa hræóa mig til þess að segja
ávallt já, þegar þeir óska þess,“
sagði Matthías Bjarnason sjávar-
útvegsráðherra á fundi um
sjávarútveg Suðurnesjamanna
sem haldinn var í Félagsheimil-
inu Stapa i gær.
„Það er kominn tími til að velja
og hafna þeim kröfum, sem
gerðar eru til ríkisstjórnarinnar,"
sagði ráðherra. Hann kom víða
við í ræðu sinni. Ræddi hann m.a.
verndun fiskistofna, útfærslu
------. ' ----------\
Sr. Olafur
Skúlason
dómprófastur
Séra Ölafur Skúlason
hefur verið kjörinn dóm-
prófastur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi. Sr. Olafur er
sóknarprestur í Bústaða-
sókn. Með kosningu hans
verður að telja, að prófastur-
inn hafi verið kosinn úr
röðum hinna frjálslyndari
afla innan kirkjunnar.
Kosningin stóð um tvo
presta, sr. Olaf Skúlason og
sr. Arngrím Jónsson,
sóknarprest í Háteigssókn.
BS.
landhelginnar og hin ýmsu vanda-
mál sjávarútvegsins yfirleitt. Vék
hann að þeirri gagnrýni sem að
sér hefði verið beint fyrir að hafa
ekki stöðvað flotann, þegar til-
tekið magn fiskjar hafði verið
veitt. í því sambandi bað hann
menn að íhuga þá staðreynd, að
fiskirannsóknir væru ung grein
hér á landi, og að stundum kynni
að þurfa að athuga málin í sam-
hengi við fleiri þætti en þá, sem
kæmu fram þar.
Fyrirsjáanlegt atvinnuleysi
blasti við, ef flotinn hefði verið
stöðvaður. Þá hefði vaknað sú
spurning hvernig hefði átt að
standa undir skuldbindingum um
greiðslur, meðal annars vegna
endurnýjunar flotans.
Matthías Bjarnason var þung-
orður í garð þeirra sem stóðu að
sjómannasamningunum. Kvað
hann suma þá sem undir þá hefðu
skrifað beinlínis hafa svikið þau
fyrirheit, sem þeir hefðu gefið
með undirskrift sinni. Þeir hefðu
valdið sér sárum vonbrigðum.
Einn fundarmanna spurði ráð-
herra hvenær hann ætlaði að fara
frá embætti. Matthías Bjarnason
ráðherra kvaðst ekki láta hræða
sig sem fyrr segir. „Þingið er
kosið til fjögurra ára. Þegar þeim
lýkur lætur þjóðin til sín heyra.
Þá læt ég af embætti, ef það er
vilji þjóðarinnar,“ sagði ráðherra.
Af hálfu Suðurnesjamanna
kom fram. að þeir telja sig alger-
lega sniðgengna í sambandi við
lánamál sjávarútvegsins. Telja
þeir að við blasi algert hrun 1
sjávarútvegi á Suðurnesjum
vegna minnkandi afla og þess
hversu erfiðlega hefur gengið að
endurnýja flotann. Þetta stafaði
af tíllitsleysi við útvegsmenn á
Suðurnesjum þrátt fyrir það að
22% af heildarsjávarafurðum
landsmanna koma þaðan. Sá
hlutur hefði þó verið meiri en
hlyti að fara minnkandi við sömu
aðstæður áfram.
Fundurinn var fjölmennur og
stóð í 5 klukkustundir.
— emm
„í Sportvali voru rammgerðustu byssuge.vmslur sem um getur í verzlunum hér,“ sagði kaupmaðurinn við
DB. En allt var sundur snúið og brotið eins og sjá má til vinstri. Siðan var reynt að skjóta sundur lása,
sumir létu sig, aðrir stóðust átökin. Peningakassar voru gegnumskotnir, svo og kvikmyndasýningavélar,
símtól og ótal fleira. Tjónið metur kaupmaðurinn á 4 milljónir króna. — DB-m.vnd Arni Páll.
Fríídag
— kennarar halda
fundi i
skólunum um
hagsmunamál
Það hafa euau»i margir
krakkar notið þess að sofa út
í morgun. Nú áttu kennar-
arnir að mæta einir í skól-
ann. A föstudag fengu nem-
endur bréf heim með sér,
þess efnis, að kennarar
ætluðu að fjalla um hags-
munamál sín á fundum í
skólunum í dag. Kjaramálin
verða rædd og eflaust
kemur til umræðu sá launa-
múnur sem er um að ræða,
eftir því hvaða ár kennara-
prófið er tekið.
Aðgerðir barnakennara
eru samræmdar um mest-
allt landið svo það eru ekki
bara börnin á Reykjavíkur-
svæðinu sem fá að sofa út.
Ekki vitum við hvort kenn-
ararnir fara út í frímínútur í
dag en eflaust taka þeir sér
einhverja hvíld frá fundar-
haldinu einhvern tima dags-
ins.
— KP.
Brotlegir glæpamenn ógna lífi og öryggi borgaranna:
„LITIÐ A HLUTVERK LÖGREGLUNNAR EINS 0G
HÚN EIGIAÐ MOKA í BOTNLAUSA TUNNU”
„Tjónið, sem hjá mér varð, er
naumast umtalsvert hjá þeirri
óskiljanlegu mildi að ekki
skyldi hljótast mannsbani af
framferði þessara manna",
sagði Jón Aðalsteinn Jónasson.
eigandi Sportvals, í viðtali við
Dagblaðið. „Það er svo alvarleg-
asta hlið þessa máls hver eða
hverjir bera ábyrgð á því að
menn, sem bíða döms fyrir
brot, sem ógnar lífi og öryggi
borgaranna skuli leika lausum
hala til að endurtaka siikan
háska," sagði Jön Aðalsteinn.
Hann bætti því við, að hann
íhugaði í fullri alvöru að höfða
mál gegn ríkisvaldinu fyrir
svo alvarlegt skeytingarleysi.
Annar innbrotsmannanna var
staðinn að verki við innbrot i
Sportvali i apríl sl.
„I.ögreglan er vel vakandi
yfir öryggi hins almenna
borgara," sagði Jón Aðalsteinn,
„cn það virðist litið á þeirra
starf eins og þeir eigi að moka í
botnlausa tunnu."
Tjönið í Sportvali, þar sem
tveir menn brutust inn og stálu
byssum og skotfærum snemma
á laugardagsmorgni, er
naumast undir 4 milljónum
króna. „Eftir þvi, sem betur er
unt búið, er meira skemmt og
tjónið verður tilfinnanlegra,"
sagði Jón Aðalsteinn Jónasson.
„Hvergi á landinu er betur frá
skotvopnum gengið í verzlun,"
sagði Jón Aðalsteinn. Hver
b.vssa er læst í stálfestingum.
Auk þess eru allir störir rifllar
láslausir, og lásarnir geymdjr á
allt öðrum stað.
Innbrotsmennirnir stálu 3
haglabyssum og einum riffli.
Höfðu þeir skolió a.m.k. 47
skotum, bæði riffil- og
haglaskotum, þegar þeir
náðust. Varð lögreglan að aka á
annan manninn, þar sem hann
stóð og ógnaði umhverfinu. lífi
manna og iimum, með skothríð.
Hinn maðurinn gafst upp fyrir
lögreglunni. — Sá sem ekið var
á. handleggsbrotnaði en
meiddist annars litið.
„Magnús Einarsson
varðstjóri gerði það eina sem
hægt var aö gera," sagði Jón
Aðalsteinn í viðtali við DB.
Áður en lögreglan handsamaði
mennina hiifðu þeir skotið
sundur allt lauslegt inni í
verzluninni Sportvali á Lauga-
vegi 116. þar með talið peninga-
kassa, kvikm.vndasýningarvélar
og fleiri dýra hluti. Þá höfðu
þeir skotið í sundur bílglugga
þar sem maður sat undir sýri.
og auk þess skotið á lögreglúbíl
sem kominn var á vettvang.
Annað skotmark byssu-
þjófanna var gluggi í Afeng-
isútsölunni á Snorr'abraut.
Þar skutu þeir gat á stóra
rúðu föru inn í verzlunina og
náðu sér i vodkaflösku. Þaðan
fóru þeir síðan i áttina að Egils-
götu. þar sem Hermann Bridde
bakarameistari var að fara til
vinnu sinnar og heyrði
viðvörunarhróp lögreglu-
manna. Tókst Hermanni að
þrífa með sér konu, sem þarna
var við blaðaútburð og bjarga
henni með sér inn urn kjallara-
glúgga. Sýndi Hermann þarna
óttalaust snarræði.
Tjónið, sem vatdið var í
Sportvaji, mun ekki vera undir
4 milljónum króna. Er
verzlunin ekki vátr.vggð fyrir
því. og ekki horfur á að
innbrotsmennirnir séu
borgunarmenn fyrir því.
„Ef þessi vaxandi ógnar-
öld á einhvern tína að linna.
verða alþingismenn aö fara að
athuga sinn gang. Þangað til
þeir taka af skarið komast þeir
ekki undan þeirri áb.vrgð. sem
almenningur á kröfu til að þeir
risi undir." sagði Jón
Aðalsteinn að lokum. -BS.